Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Maður lést af höfuðáverkum - Mögulegt manndráp á Frakkastíg Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar nú hvort Pólverji, sem lést af höfuðáverkum á sjúkrahúsi á föstudag, hafi verið myrtur. Landi hans, sem heimildir Vísis herma að sé nágranni mannsins, hefur setið í gæsluvarðhaldi í hálfa aðra viku en það rennur út í dag. 23.6.2008 10:06
Flatskjá og heimabíói stolið í bústað á Þingvöllum Brotist var inn í sumarbústað á Þingvöllum seint í gærkvöldi. 23.6.2008 09:31
Ísbjarnaflug á Tröllaskaga í dag? Landhelgisgæslan ætlar aftur í ísbjarnarflug í dag og verður endanleg ákvörðun um flugið tekin nú fyrir hádegið 23.6.2008 09:30
Sjötíu prósent vilja kanna pólitískar rætur Baugsmáls Samkvæmt nýrri skoðanakönnun Fréttablaðsins eru sjötíu prósent landsmanna eru hlynntir því að rannsaka hvort Baugsmálið eigi sér pólitískar rætur. 23.6.2008 09:25
Íbúðalánasjóður lækkar vexti um 0,15 prósentustig Íbúðalánasjóður hefur í kjölfar útboðs á íbúðabréfum ákveðið að lækka útlánavexti um 0,15 prósentustig. 23.6.2008 09:24
Fleiri finnast á lífi eftir ferjuslys við Filippseyjar Björgunarmenn hafa nú fundið 33 á lífi af þeim 750 farþegum sem voru með ferjunni sem hvolfdi á laugardag undan strönd Filippseyja. 23.6.2008 09:17
Kaupmáttur launa rýrnar um rúm fjögur prósent Kaupmáttur launa hefur rýrnað um um það bil fjögur prósent síðustu tólf mánuði ef tekið er mið af þróun launavísitölu og verðbólgu. 23.6.2008 09:16
Blettasóti ver hreiður sitt með kjafti og klóm Fjöldi vegfarenda í og við bandarísku borgina Chicago hefur orðið fyrir óvæntum loftárásum síðustu daga sem þó er reyndar árviss viðburður. 23.6.2008 08:43
Vill ekki tjá sig um uppsagnir Icelandair Björgólfur Jóhannsson forstjóri Icelandair vill ekki tjá sig um fyrirhugaðar uppsagnir félagsins að svo stöddu. Í samtali við Vísi í morgun benti hann á fjölmiðlafulltrúa félagsins en ekki hefur tekist að ná tali af honum í morgun. 23.6.2008 08:25
Pele rændur Tíu manna hópur rændi brasilísku knattspyrnugoðsögnina Pele um helgina þar sem hann var á leið frá borginni Sao Paulo til húss sem hann á við ströndina utan við borgina. 23.6.2008 08:21
Skógar í Kaliforníu brenna í hita- og þurrkatíð Slökkvilið í norðurhluta Kaliforníu berst nú við um 400 skógarelda sem kviknað hafa í mikilli hitabylgju undanfarna fjóra daga. 23.6.2008 08:15
Salmonellusýking í tómötum frá Mexíkó eða Flórída Rúmlega 550 manns hafa veikst af salmonellu í 32 ríkjum Bandaríkjanna eftir að hafa borðað tómata sem að öllum líkindum eru ræktaðir í Mexíkó eða Flórída. 23.6.2008 08:09
Segja skipulagt fyrir forsetann „Tillagan virðist fyrst og fremst gerð með það í huga að taka út lóðina Miðskóga 8,“ bókuðu fulltrúar minnihluta Sjálfstæðisflokks þegar meirihluti Á-lista í skipulagsnefnd Álftaness samþykkti breytingu á deiliskipulagi Vestur-Skógtjarnarsvæðis. 23.6.2008 06:00
Enginn á lífi eftir ferjuslysið á Filippseyjum Óttast er að rúmlega þúsund manns hafi farist þegar fellibylur fór yfir Filippseyjar um helgina. Ferju með hátt í níu hundruð manns um borð hvolfdi í veðurofsanum og aðeins er vitað um fjóra sem komust lífs af. Við vörum við myndunum sem fylgja þessari frétt. 22.6.2008 20:44
Búið að finna eiganda hvolpsins Lögreglan á suðurnesjum er búin að finna eiganda hvolpsins sem fannst í hrauni við Kúagerði skammt frá veginum þar sem keyrt er að Keili. Málið verður rannsakað enn frekar. Dýralæknir sem annaðist hvolpinn segir hann á góðum batavegi og muni jafna sig að fullu. 22.6.2008 18:07
Hátt í 90% keyra minna eftir eldsneytishækkun Hátt í níutíu prósent landsmanna eru farin að keyra minna eftir að bensínverðið rauk upp, samkvæmt nýrri könnun Stöðvar 2. Fleiri konur spara við sig í dýrtíðinni en karlar og þeir sem hæstar hafa tekjurnar eru ólíklegastir til að draga úr notkun bílsins. 22.6.2008 18:32
Baðstrandargestir leita skjóls undir rofabörðum Enn er áratugur hið minnsta þar til skjól skapast við eina baðstrandarsvæði Reykvíkinga - Ylströndina í Nauthólsvík. Umsjónarmaður svæðisins segir dapurt að borgaryfirvöld hafi ekki hugsað fyrir skjólmyndun. Barátta hans fyrir skjóli hefur skilað gróðurbelti sem nú teygir sig fáeina sentímetra í loft upp. 22.6.2008 19:40
Þyrla landhelgisgæslunnar sá enga ísbirni Þyrla landhelgisgæslunnar flaug eftirlitsflug nú í dag til þess að kanna hvort einhverjir ísbirnir væru á vappi. Flaug þyrlan yfir svæði frá Aðalvík að Sauðárkróki en sáu enga ísbirni á leiðinni. 22.6.2008 18:20
Bilun í jarðskjálftamæli Glöggir lesendur heimasíðu Veðurstofu Íslands ráku upp stór augu þegar jarðskjálftamælir stofunnar sýndi jarðskjálfta upp á 5,7 á richter rúma 11,5 km SSA af Bárðarbungu um klukkan 15:00 í dag. 22.6.2008 17:25
Segir Svan ófrægja Hannes Hólmstein Björn Bjarnason dómsmálaráðherra tjáir sig um greinar Svans Kristjánssonar prófessors sem birtust í Fréttablaðinu í vikunni á heimasíðu sinni. 22.6.2008 16:54
Mugabe verður að hætta öllu ofbeldi Hvíta húsið hefur blandað sér inn í kosningafíaskóið sem nú ríkir í Simbabve. Hafa yfirvöld í Bandaríkjunum biðlað til yfirvalda í landinu og þeirra "óþokka" sem þar eru að hætta öllu ofbeldi. 22.6.2008 15:26
Fæddist með typpi á bakinu Kínverskir læknar reyna nú að átta sig á læknisfræðilegri ráðgátu eftir að kínverskur drengur fæddist með tvö typpi. Annað typpið er staðsett á baki drengsins. 22.6.2008 13:36
Dregur framboð sitt til baka og vill forða frekara blóðbaði Stjórnarandstæðingurinn Morgan Tsvanigrai hefur ákveðið að hætta við framboð sitt til forseta í Simbabve. Þannig vill hann forða frekara blóðbaði vegna baráttunnar fyrir seinni umferð forstakosninganna þar í landi í næstu viku. Robert Mugabe, sitjandi forseti, segir alrangt að farið sé með ofbeldi gegn stjórnarandstæðingum. 22.6.2008 13:21
Taugaveiklunarbragur á ríkisstjórninni Húsnæðisaðgerðir ríkisstjórnarinnar eru krampakenndar ákvarðanir til að friðþægja háværa hagsmunaaðila, segir Kristinn H. Gunnarsson, þingmaður Frjálslyndra. Hann telur að aðgerðirnar viðhaldi þenslunni og lengi í verðbólgunni. 22.6.2008 12:15
Að minnsta fjórir látnir eftir ferjuslys á Filippseyjum Að minnsta kosti fjórir eru látnir eftir að ferja með yfir 700 farþegum sökk í óveðri í kjölfar fellbyljarins Fengshen á Filippseyjum. Þetta er haft eftir aðilum sem eru á staðnum. 22.6.2008 11:27
Hringurinn farinn að þrengjast um hundaníðinginn Lögreglan á Suðurnesjum hefur ekki haft uppi á eiganda hvolpsins sem fannst grafinn lifandi í gærmorgun. Fjölmargir hafa hringt og nokkrar vísbendingar hafa borist vegna málsins. Fólki blöskrar meferðin á hvolpinum sem dýralæknir telur að muni ná sér. 22.6.2008 09:48
Stungið á hjólbarða sjö bifreiða í Reykjanesbæ Lögreglan á Suðurnesjum kærði í nótt tvo ökumenn fyrir ölvun við akstur og einn fyrir akstur undir áhrifum fíkniefna. Þá voru tveir aðilar handteknir fyrir óspektir í miðbæ Reykjanesbæjar í nótt. 22.6.2008 09:24
Fengu hrefnu í trollið Áhöfnin á Guðmundi VE 29 frá Vestmannaeyjum, fékk hrefnu í trollið hjá sér þar sem skipið var á síldveiðum við Jan Mayen. Þorbjörn Víglundsson skipverji á Guðmundi greinir frá þessu á bloggsíðu sinni. 22.6.2008 09:18
Sjálfstæðisflokkurinn tapar þriðjungi á landsbyggðinni Fylgi Sjálfstæðisflokksins dregst saman um tæp sex prósentustig frá því í apríl. 32,8 prósent segjast nú myndu kjósa flokkinn samkvæmt nýrri skoðanakönnun Fréttablaðsins. 22.6.2008 07:00
Þjóðin vill íbúðalánasjóð áfram Þjóðin vill ekki leggja niður Íbúðalánasjóð og láta banka og lífeyrissjóði sjá um að lána fólki til húsnæðiskaupa. Þetta kemur fram í nýrri könnun fréttastofu Stöðvar 2 sem leiðir í ljós að aðeins tæp tvö prósent landsmanna vill að sjóðurinn verði lagður niður. 21.6.2008 21:00
Útthlutað úr Afreks- og hvatningarsjóði stúdenta HÍ Í gær var í fyrsta sinn úthlutað úr Afreks- og hvatningarsjóði stúdenta Háskóla Íslands. Þeir 25 afburðastúdentar sem valdir voru úr hópi glæsilegra fulltrúa ungra námsmanna komu úr 14 framhaldsskólum og þeir sækjast eftir inngöngu í 15 ólíkar námsleiðir. 21.6.2008 18:05
Grófu hund lifandi við Kúagerði Í hádeginu í dag barst lögreglunni tilkynning um hund sem hefði fundist í hrauninu skammt frá Kúagerði, þar sem ekið er í áttina að Keili. 21.6.2008 16:56
Þrír handteknir vegna hvarfs tveggja stúlkna í Danmörku Danska lögreglan hefur handtekið þrjá aðila vegna hvarfs sjö ára stúlku sem var tekin úr skóla í Greve í Danmörku fyrir nokkrum dögum. 21.6.2008 17:13
Afhjúpuðu útsýnisskilti Útsýnisskilti var afhjúpað við Höfðabakka neðan við Hólahverfið í Breiðholti klukkan tvö í dag. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson formaður borgarráðs og íbúi í Breiðholtinu afhjúpaði skiltið. 21.6.2008 16:12
Ræddu samgöngu- og öryggismál Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra, Aleqa Hammond, utanríkisráðherra í grænlensku landsstjorninni, og Halldór Halldórsson, bæjarstjóri á Ísafirði, ræddu meðal annars samgöngu- og öryggismal á fundi sem þau áttu i gær. 21.6.2008 13:48
Banaslys á Hafnarfjarðarvegi Nítján ára piltur er látinn eftir umferðarslysið sem varð á Hafnafjarðarvegi við Kópavogslæk um hálffimmleytið í nótt. Aðrir sem í bifreiðinni voru eru á batavegi. Í tilkynningu frá lögreglunni segir að hinn látni sé 19 ára piltur en ekki sé unnt að gefa upp nafn hans að svo stöddu. 21.6.2008 13:25
Hundsar andfeminiskann áróður Sóley Tómasdóttir, ráðskona í Femínistafélagi Íslands, segir það einkennilegt að fjölmiðlar þurfi ávallt að bera á borð andfeminiskann áróður rétt eftir að feminisk umræða hefur verið í umræðunni. 21.6.2008 12:33
Castro sakar ESB um hræsni Fídel Kastró, fyrrverandi forseti Kúbu, sakar Evrópusambandið um hræsni í mannréttindamálum. 21.6.2008 10:22
Varar við árás á Íran Mohammed El Baradei, yfirmaður Alþjóðakjarnorkumálastofnunarinnar, hótar að segja af sér verði gerð árás á Íran. 21.6.2008 10:19
Bandarískum símafyrirtækjum veitt friðhelgi vegna heimildalausra hlerana Fulltrúadeild Bandaríkjaþings samþykkti í gær lagafrumvarp sem veitir bandarískum símafyrirtækjum friðhelgi vegna heimildarlausra símahlerana fyrir yfirvöld. 21.6.2008 10:14
Ólympíukyndillinn í Lasa Hlaupið var með ólympíukyndilinn um götur Lasa, höfuðborgar Tíbets í morgun. Þar kom til blóðugra óeirða í mars síðastliðnum en þær urðu kveikjan að miklum mótmælum víðast hvar þar sem hlaupið hefur verið með kyndilinn. 21.6.2008 10:04
Harður árekstur á Biskupstungnabraut Harður árekstur varð á Biskupstungnabraut um hálftíuleytið í gærkvöldi. Fólksbifreið var ekið inn á Biskupstungnabraut í veg fyrir annan bíl. 21.6.2008 09:52
Þrír mikið slasaðir eftir bílveltu Þrjú ungmenni eru mikið slösuð eftir umferðarslys sem varð á Hafnarfjarðarvegi á móts við Fífuna á fimmta tímanum í nótt. 21.6.2008 09:42
Sinubruni í Fossvogsdal Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var kallað í Fossvogsdalinn vegna sinubruna þar um áttaleytið í kvöld. Að sögn slökkviliðsins tók um tuttugu mínútur að slökkva eldinn. Töluvert hefur verið af útköllum vegna sinubruna það sem af er þessu sumri, að sögn slökkviliðsmanna. 20.6.2008 21:44
Þung umferð um Suðurlandsveg Nokkuð þung umferð er á Suðurlandsvegi, að sögn lögreglunnar á Selfossi og lögreglunnar á Hvolsvelli. Allt hefur þó gengið vel fyrir sig. Þær upplýsingar fengust jafnframt hjá lögreglunni að Borgarnesi að þar væri nokkuð þétt umferð. 20.6.2008 19:50