Fleiri fréttir

Þórunn: Nóg komið af gamaldags lausnum

Þórunn Sveinbjarnardóttir segir að fólk sé búið að fá nóg af gamalds lausnum í virkjanamálum. ,,Ég held að fólk sé búið að fá nóg af gömlu lausnunum og meðvitaðra að orkan sem við eigum er mjög verðmæt og hún muni einungis vaxa í verði."

Fólk verði áfram á varðbergi gagnvart ísbjörnum

Yfirlögregluþjóninn á Sauðárkróki telur fulla ástæðu fyrir fólk að vera áfram á varðbergi gagnvart hugsanlegum ísbjörnum þótt aðeins hafi fundist spor eftir sauðfé á þeim slóðum sem fólk taldi sig sjá ísbjörn í fyrrakvöld.

Frístundakort ekki byrjuð að skila tilsettum árangri

Frístundakort Reykjavíkurborgar hafa enn sem komið er ekki skilað þeim tilsetta árangri sem vonast var eftir. Nýleg skýrsla sýnir að marktækur munur er á notkun kortsins eftir tekjum því hinir tekjumeiri nýta sér kortið mun betur.

Virkjanir í Þjórsá komnar á beinu brautina

Hreppsnefnd Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkti einróma í gærkvöldi að setja Hvamms og Holtavirkjun inn á aðalskipulag með þeim rökum að þetta væri sá virkjunarkostur sem hefði hvað minnst umhverfsáhrif virkjana á Íslandi. Þar með eru tvær af þremur umdeildum Þjórsárvirkjunum komnar á beinu brautina fyrir Landsvirkjun.

Barnaníðingurinn Ágúst barinn af hópi manna

Barnaníðingurinn Ágúst Magnússon var á dögunum laminn fyrir utan heimili sitt af hópi manna. Gengið var í skrokk á Ágústi sem slapp þó óbrotinn frá viðureigninni. Hann hefur ekki kært árásina.

Dísellítrinn nálgast óðfluga 200 krónur

Verð á eldsneyti hækkaði enn og aftur í dag og í gær og vantar nú aðeins rúmum tveimur krónum upp á að verð á dísilolíu með þjónustu komist í 200 krónur.

Hernaður talibana líklega kostaður með ópíumskattlagningu

Sameinuðu þjóðirnar telja að talibanar hafi grætt 100 milljónir bandaríkjadala með því að leggja 10 prósenta skatt á afghanska bændur sem rækta valmúa fyrir ópíumiðnaðinn. Líklegt er að þeir fjármunir séu notaðir til að kosta hernaðaraðgerðir uppreisnarmannanna.

IKEA innkallar barnasvefnpoka

IKEA á Íslandi hefur ákveðið að innkalla Barnslig-svefnpoka og eru viðskiptavinir vinsamlegast um að skila vörunni aftur í IKEA-verslunina gegn fullri endurgreiðslu.

Hollenskur smyglari fær að afplána hluta dóms heima

Hollendingurinn Johan Hendrick, sem dæmdur var í sex ára fangelsi fyrir aðild sína að Stóra BMW-málinu árið 2006 þar fjórir menn reyndu að smygla 15 kilóum af hassi og 10 kílóum af amfetamíni í tanki BMW-bifreiðar, hefur fengið leyfi til að afplána hluta dómsins í Hollandi.

Dæmt í máli tollvarðanna á Hressó

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur fellt dóm í máli tveggja tollvarða sem ákærðir voru fyrir að misnota aðstöðu sína á skemmtistaðnum Kaffi Hressó í janúar síðastliðinn. Annar var sýknaður en refsingu yfir hinum var frestað og fellur hún niður að tveimur árum liðnum, haldi hann skilorð.

Jóhanna: Málefni fatlaðra í forgangi

Jóhanna Sigurðardóttir segir málefni fatlaðra vera í forgang. ,,Málefni fatlaðra hafa verið í forgang hjá mér og þannig verður það áfram. Stoðþjónustan hefur verið efld og á milli 800 og 900 milljónir voru settar aukalega í málaflokkinn," segir Jóhanna.

240 sagt upp hjá Icelandair

Starfsmönnum Icelandair verður fækkað í heild um 240 í viðamiklum aðgerðum félagsins sem miða að því að endurskipuleggja rekstur þess og bregðast við breyttu rekstrarumhverfi vegna hækkandi eldsneytisverðs og óvissu í efnahagsmálum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.

Akureyri, Selfoss og Borgarnes í 3G samband

Akureyri, Selfoss og Borgarnes hafa bæst í hóp þeirra bæjarfélaga sem geta tengst 3G farsíma- og netkerfi Nova eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá Nova.

Stuðningur við náttúruvernd fer vaxandi segir NSÍ

Náttúruverndarsamtök Íslands telja að niðurstaða skoðanakönnunar Fréttablaðsins um frekari virkjanir fyrir orkufrekan iðnað sýni að náttúruvernd eigi nú vaxandi fylgi að fagna í samfélaginu.

Eigandi Margrétar: Þetta eru höfðingjar

Jón Pétursson, eigandi Margrétar, Samherjatogarans fyrrverandi, er afar þakklátur lögreglunni og hafnaryfirvöldum á Akureyri fyrir þeirra þátt í að bjarga skipinu frá því að sökkva við Krossanesbryggju í nótt.

Veitingamaður í Beirút býður upp á vopnarétti

Veitingahúsaeigandi í hinni stríðshrjáðu borg Beirut í Líbanon hefur fundið upp á nýstárlegri leið til að auka viðskiptin hjá sér. Allir réttirnir á matseðli staðarins bera nöfn þekktra vopna og stríðstóla.

Vopnasalar smygla Viagra inn til Gaza

Vopnasmyglarar á Gaza-svæðinu hafa nú snúið sér að smygli á öðrum varningi. Ástæðan er einfaldlega sú að búið er að smygla svo miklu af vopnum inn á svæðið að engir kaupendur að þeim finnast lengur.

Ekkert lífsmark í Filippseyjaferjunni

Kafarar hafa ekki fundið nein lífsmerki um borð í ferjunni sem hvolfdi við Filippseyjar um helgina. Einungis 38 manns komust lífs af úr slysinu. Fólkið var í sjónum í rúman sólarhring.

Enginn ísbjörn en spor eftir sauðfé

Enginn ummerki ísbjörns fundust við Bjarnafell á Skaga þar sem tvær konur kváðust hafa séð ísbjörn á sunnudaginn. Aðeins fundust spor eftir sauðfé á staðnum.

Margréti bjargað í nótt

Lögreglan á Akureyri stóð í ströngu í nótt við að bjarga gamla Samherjaskipinu Margréti sem liggur við Krossanesbryggju.

Lítt þekktur Tyrki mesti hugsuður heims

Lítt þekktur tyrkneskur stjórnmálamaður og rithöfundur er mesti hugsuður heimsins um þessar mundir samkvæmt könnun sem breska tímaritið Prospect og hið bandaríska Foreign Policy stóðu fyrir á Netinu fyrir skemmstu.

Neitar að hafa drepið konu og barn

Breskur maður sem er ákærður fyrir að hafa skotið konu sína og níu mánaða dóttur til bana í Massachuset í Bandaríkjunum segist saklaus - konan hafi skotið barnið og framið sjálfsmorð - og hann hafi tekið á sig sökina.

Enn leitað í lofti og á jörðu

Ísbjarnarleitin á Skaga heldur áfram. Flugvél er í loftinu og leitarhópar á jörðu niðri. "Ekkert komið í ljós sem sannar eða afsannar veru dýrsins," segir Stefán Vagn Stefánsson, yfirlögregluþjónn á Sauðárkróki.

Skólpumræðan skaðað bæinn

"Þessar fullyrðingar eru rangar," segir Gunnar Birgisson, bæjarstjóri Kópavogsbæjar. Kópavogsbær hefur verið harðlega gagnrýndur fyrir að dæla skólpi út í Fossvoginn. Gunnar segir dælustöðina á ábyrgð Reykjavíkurborgar og aðeins dælist skólp út í flóann í neyðartilvikum. Umræðan hafi skaðað bæinn.

Búast við mikilli röskun á flugi

Flugstoðir hafa samið viðbúnaðaráætlun vegna yfirvofandi verkfalls flugumferðarstjóra næsta mánuðinn þar sem meðal annars er gert ráð fyrir að allt flug í gengum flugstjórnarsvæði Íslands leggist af á meðan á aðgerðum stendur.

Dæmdur fyrir eitt gramm af hassi

Eitt gramm af hassi getur verið dýrkeypt. Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag 23 ára karlmann fyrir að hafa keypt eitt gramm af kannabisefnum af ókunnugum aðila í Reykjavík.

Öryggi aukið í Sundlaug Kópavogs

Myndavélakerfi sem nemur ef fólk liggur hreyfingarlaust á sundlaugarbotni verður tekið í notkun í Sundlaug Kópavogs í næsta mánuði. Þetta er í fyrsta sinn sem slíkt kerfi er sett upp hér á landi en það hefur orðið mönnum til bjargar erlendis.

Ísbjörn ekki kind

Leitað hefur verið að þriðja ísbirninum í Skagafirði í dag eftir að tvær konur tilkynntu að þær hefðu séð bjarndýr við Bjarnarfell í gærkvöldi. Konurnar segjast sannfærðar að um ísbjörn hafi verið að ræða en ekki hest eða kind.

Máttu ekki leyfa unglingum að selja tóbak

Verslunin Samkaup í Kópavogi fékk ekki undanþágu til að leyfa unglingum undir átján ára aldri að selja tóbak. Úrskurðarnefnd um hollustu og mengunarhætti staðfesti synjunina.

Kúkur frá Kópavogi fullkomlega siðlaus

Eins og kom fram í Fréttablaðinu síðastliðinn laugardag dælir Kópavogsbær skólpi í Skerjafjörð um einu sinni í viku. Að mati Óttars Hrafnkelssonar, forstöðumanns Ylstrandarinnar í Nauthólsvík og Siglingaklúbbsins Siglunesi, sem eru næstu nágrannar við dælustöðina, er fullkomlega siðlaust af bæjaryfirvöldum í Kópavogi að dæla skólpi út með þessum hætti. „Það getur vel verið að það sé gott að búa í Kópavogi en það er ekki gott að vera nágranni þeirra,“ segir Óttarr og er allt annað en sáttur.

Kókaínpar áfram í gæsluvarðhaldi

Héraðsdómur Reykjaness framlengdi í dag, að kröfu lögreglunnar á Suðurnesjum, gæsluvarðhald yfir hollensku pari sem gripið var í Leifsstöð í síðustu viku með 300 grömm af kókaín í fórum sínum.

Sýslumaður verður við kröfu íbúa í Lundi

Sýslumaðurinn í Kópavogi hefur fallist á kröfu húsfélagsins í Lundi 1 um stöðvun frekari framkvæmda við Nýbýlaveg. Styr hefur staðið um framkvæmdir við Nýbýlaveg og nálægð götunnar við íbúðarblokk.

Breskur ráðherra vill einangra Mugabe

Malloch-Brown, ráðherra málefna Afríku, Asíu og Sameinuðu þjóðanna í bresku ríkisstjórninni, kallar eftir samhentu átaki ríkja heims í að einangra einræðisstjórn Roberts Mugabe forseta Simbabve og koma honum frá völdum.

Sjá næstu 50 fréttir