Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Heimdallur ályktar til stuðnings Sollu Stjórn Heimdallar, félags ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík, samþykkti í dag ályktun þar sem tekið er undir hugmyndir Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur um lækkun innflutningstolla neytendum til hagsbóta. 2.4.2008 20:45
42 myndaðir á Strandgötu Brot 42 ökumanna voru mynduð á Strandgötu í Hafnarfirði í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Strandgötu í norðurátt, nærri Hellubraut. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 468 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 9%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var liðlega 62 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 75. 2.4.2008 19:12
Flokkur Mugabe tapaði meirihluta í stjórn Robert Mugabe forseti Simbabve og Zanu flokkur hans hafa tapað meirihluta í ríkisstjórn samkvæmt opinberum úrslitum kosninganna á laugardaginn. Zanu flokkurinn hefur fengið 94 af 210 þingsætum, en stjórnarandstöðuflokkarnir 105. Endanlegar niðurstöður forsetakjörsins hafa ekki enn verið birtar. 2.4.2008 16:48
Tvær grenjaskyttur létust við Blönduvirkjun Seinnipartinn í gær fóru tveir menn til veiða á tófu í skothúsi sem staðsett er á Auðkúluheiði skammt ofan við Blönduvirkjun. Í morgun er þeir skiluðu sér ekki til byggða fór sonur annars þeirra ásamt öðrum manni að til að kanna með þá. 2.4.2008 17:00
Sautján ára á 153 km hraða Sautján ára stúlka var tekin fyrir hraðakstur á Reykjanesbraut, sunnan Hafnarfjarðar, í nótt en bíll hennar mældist á 153 km hraða miðað við klukkustund. 2.4.2008 16:34
Útvarpsstjóri boðar til aðalfundar Aðalfundur Ríkisútvarpsins ohf. verður haldinn fimmtudaginn 17. apríl 2008 í útvarpshúsinu við Efstaleiti 1, Reykjavík, og hefst fundurinn kl. 14.00. 2.4.2008 16:26
Hafa 46 daga til þess að breyta eftirlaunalögum Þingmenn hafa 46 starfsdaga til þess að breyta hinum umdeildu eftirlaunalögum ef utanríkisráðherra á að verða að ósk sinni um að ljúka málinu fyrir þinglok. 2.4.2008 16:10
Forsætisráðuneyti neitar að upplýsa kostnað við einkaþotu Forsætisráðuneytið ætlar ekki að gefa upp kostnað vegna leigu á einkaþotu undir Geir H. Haarde, Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur og fylgdarlið þeirra til Búkarest. Þetta staðfesti Bolli Þór Bollason ráðuneytisstjóri í dag. 2.4.2008 15:55
SUS hvetur íslenska stjórnmálamenn til að sniðganga ÓL Samband ungra sjálfstæðismanna hvetur íslenska stjórnmálamenn til að sniðganga opnunar- og lokahátíð Ólympíuleikanna sem hefjast í Peking 8. ágúst og sýna með þeim hætti andstöðu íslenskra stjórnvalda við meðferð kínverskra stjórnvalda á þegnum sínum. 2.4.2008 15:53
Samkeppniseftirlitið kannar ummæli um matarhækkun Samkeppniseftirlitið hefur sent tvennum hagsmunasamtökum erindi vegna ummæla á opinberum vettvangi um verðhækkanir á matvælum og gruns um að seilst hafi verið of langt við hagsmunagæslu. Vísar eftirlitið til samkeppnislaga máli sínu til stuðnings. 2.4.2008 15:44
Hættulegur fangi slapp úr haldi í London Hættulegur fangi gengur nú laus í London eftir að hann slapp úr haldi skömmu áður en hann átti að koma fyrir dómara. Þar biðu hans ákærur vegna vopnaðs ráns. 2.4.2008 15:35
Risaeðlupöddur finnast í rafi Vísindamenn hafa fundið fjöldan allan af 100 milljón ára gömlum skordýrum í rafi. Fundurinn minnir á myndina Jurassic Park en í henni voru risaeðlur klónaðar úr blóði skordýrum sem fest höfðu í trjákvoðu sem seinna breyttist í raf. 2.4.2008 15:28
Bush ítrekar að NATO stækki til austurs George Bush Bandaríkjaforseti hefur ítrekað að hann hvetji Nató til að stækka til austurs. Fyrir leiðtogafund NATO í Búkarest í dag hvatti hann til þess að fyrrum Sovétlýðveldin Úkraína og Georgía yrðu boðin velkomin í bandalagið. 2.4.2008 15:21
Handvömm að ráðherra fundaði ekki með nefnd fyrir Búkarestferð Handvömm virðist hafa ráðið því að utanríkisráðherra fundaði ekki með utanríkismálanefnd Alþingis áður en hún hélt á leiðtogafund Atlantshafsbandlagsins í Búkarest í dag. Þetta sagði Árni Páll Árnason, varaformaður utanríkismálanefndar á Alþingi. 2.4.2008 15:19
Sektaðir fyrir að vera með hass í bílnum Tveir piltar voru dæmdir í Héraðsdómi Norðulands eystra í dag til sektar fyrir að hafa haft hass í bifreið sinni sem þeir óku á of miklum hraða. Piltarnir mættu ekki fyrir dóm og var sú fjarvist metin til játningar í málinu. 2.4.2008 15:08
Setur reglugerð um þátttöku TR í kostnaði vegna bæklunarlækna Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra hefur sett reglugerð um greiðsluþátttöku Tryggingastofnunar ríkisins vegna þjónustu sjálfstætt starfandi bæklunarlækna sem eru án samninga. 2.4.2008 14:53
Vill fara yfir brunaskýrslu í borgarráði Dagur B. Eggertsson, oddviti Samfylkingarinnar í borgarstjórn, hefur farið fram á það að ný skýrsla Brunamálastofnunar um brunann í miðborg Reykjavíkur í fyrra verið kynnt í borgarráði sem fyrst. 2.4.2008 14:42
Ríkisstjórnin gagnrýnd fyrir aðgerðaleysi í eldsneytismálum Stjórnarandstaðan á Alþingi gagnrýndi í dag ríkisstjórnarflokkanna fyrir aðgerðarleysi í ljósi hækkandi eldsneytisverð. 2.4.2008 14:32
Slökkvistarfi lokið við Grettisgötu Slökkvistarfi lauk laust fyrir klukkan 13 í íbúð við Grettisgötu 86 þar sem kviknað hafði í potti á eldavél. Slökkvilið reykræsti íbúðina og tók lögregla að því búnu við á vettvangi. Íbúðin var mannlaus en nágranni í húsinu tilkynnti um atvikið til slökkviliðs. 2.4.2008 14:23
Tyrkir fella 16 Kúrda Tyrkir segja að herlið þeirra hafi drepið sjö meðlimi kúrdíska uppreisnahópsins PKK í átökum í Sirnak í suðausturhluta landsins. Þá er tala uppreisnarmanna PKK sem Tyrkir hafa fellt komin upp í 16 frá því á mánudag. Átökin hafa átt sér stað við landamæri Írak en þrír tyrkneskir hermenn hafa einnig látist í átökunum. 2.4.2008 14:22
Geir og Ingibjörg hluti af þotuliðinu Álfheiður Ingadóttir, þingmaður Vinstri grænna, gagnrýndi Geir H. Haarde forsætisráðherra og Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur utanríkisráðherra fyrir að nýta sér einkaþotur til þess að fara á fund NATO í Búkarest í dag. 2.4.2008 14:12
Tjón í miðbæjarbruna um 132 milljónir Tjónið í brunanum í miðbæ Reykjavíkur í fyrravor nam rúmum 132 milljónum króna samkvæmt því sem fram kemur í nýrri skýrslu Brunamálastofnunar um brunann. 2.4.2008 13:43
Nokkrar líkur á að eldur hafi komið upp í lofti yfir Fröken Reykjavík Nokkrar líkur eru á því að eldurinn sem eyðilagði húsin að Austurstræti 2 og Lækjargötu 22 í miðborg Reykjavíkur í fyrravor hafi komið upp í loftinu yfir söluturninum Fröken Reykjavík. 2.4.2008 13:30
Lögreglu hafa borist ábendingar um úraþjóf Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu birti í gær mynd af meintum úraþjófi í verslun Hermanns Jónssonar úrsmiðs við Ingólfstorg í síðustu viku. Tveir menn voru að verki og birti lögregla mynd af öðrum þeirra. 2.4.2008 13:12
Eldur í eldhúsinnréttingu í húsi við Grettisgötu Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kvatt að Gettisgötu 86 nú í hádeginu en þar logaði eldur í eldhúsinnréttingu í íbúð í húsinu. Snorrabraut hefur verið lokað til suðurs til þess að slökkviliðsmenn geti athafnað sig. 2.4.2008 13:07
Fjöldi manna féll fyrir aprílgabbi Stöðvar 2 Fjöldi landsmanna hljóp apríl eftir að fréttastofa Stöðvar tvö sagði frá því í gær að Vodafone hefði landað samningi við Apple um sölu á iPhone símanum. Það var aprílgabb. Enginn iPhone sími er til sölu í verslunum Vodafone. 2.4.2008 13:01
Leggur fram framkvæmdaáætlun um barnavernd Jóhanna Sigurðardóttir félags- og tryggingmálaráðherra leggur fram á Alþingi í dag tillögu til þingsályktunar um framkvæmdaáætlun ríkisins í barnavernd. Þetta er í fyrsta sinn sem slík áætlun er lögð fram eftir því sem segir í tilkynningu frá ráðuneytinu. 2.4.2008 12:53
Geir ræðir við Sarkozy um loftrýmiseftirlit Geir H. Haarde, forsætisráðherra, mun eiga fund með Nicholas Sarkozy Frakklandsforseta í tengslum við leiðtogafund Atlantshafsbandalagsins sem hófst í Búkarest í dag. Þar munu þeir ræða loftrýmiseftirlit við Ísland eins og segir í tilkynningu á vef forsætisráðuneytisins. 2.4.2008 12:44
Ábyrgir foreldrar á Akureyri gagnrýna seinagang Félag ábyrgra foreldra á Akureyri gagnrýnir seinagang sýslumannsembættisins á Akureyri á úrskurðum í umgengnismálum foreldra við börn þeirra , og telur óhæft að foreldrar þurfi að bíða mánuðum saman eftir niðurstöðu sýslumanns í þessum málaflokki. 2.4.2008 12:43
Búið að lækka bensínið hjá öllum nema Skeljungi Öll olíufélögin að Skeljungi undanskildum eru búin að lækka hjá sér bensínverð í dag. Verð á bensíni er komið í 129,40 krónur og dísel olían í 138,40. 2.4.2008 12:34
Gríðarlega öryggisgæsla í Búkarest vegna NATO-fundar Gífurlegar öryggisráðstafanir hafa verið gerðar í Búkarest fyrir fund Atlantshafsbandalagsins sem þar hefst í dag. Bush Bandaríkjaforseti undirstrikaði í morgun áherslu sína á að Úkraínu og Georgíu verði boðin aðild að bandalaginu. 2.4.2008 12:29
Tafir á brottför flugvéla vegna mótmæla Tafir urðu á brottför nokkurra flugvéla frá Keflavíkurflugvelli í morgun vegna þess að tugir vörubíla lokuðu Reykjanesbraut í Kúagerði upp úr klukkan fimm í morgun. Enginn missti þó af flugi því áhafnirnar töfðust líka. 2.4.2008 12:23
Líklegast kosið á ný í Zimbabwe Dagblað í eigu ríkisins í Zimbabve segir allar líkur á því að efna verði á ný til forsetakosninga í landinu þar sem hvorugur frambjóðendanna fékk meira en helming atkvæða. Stjórnarandstæðingar hafa lýst yfir sigri. 2.4.2008 12:07
Kviðdómur Díönurannsóknar íhugar niðurstöðu Kviðdómur í réttarrannsókninni á dauða Díönu prinsessu hefur dregið sig í hlé til að íhuga úrskurð sinn. Síðustu tvo daga hefur Scott Baker lávarður og dánardómstjóri dregið saman helstu sönnunargögn áður en hann sendi kviðdóminn úr dómsalnum. 2.4.2008 12:07
Eldveggur ekki milli húsa sem brunnu í miðbænum Eldveggur sem átti að vera á milli Austurstrætis 22 og Lækjargötu 2 var ekki til staðar þegar húsin brunnu til kaldra kola í apríl í fyrra. Þetta kemur fram í skýrslu Brunamálastofnunar sem birt er nú í hádeginu. 2.4.2008 12:07
Sprautunálarræningi vistaður á stofnun vegna veikinda Hæstiréttur hefur komist að því að maðurinn sem grunaður er um þrjú rán í verslunum í Breiðholti nýlega skuli sæta vistun á viðeigandi stofnun í stað gæsluvarðhalds þar sem hann glími við geðsjúkdóm. 2.4.2008 12:00
Tíma ráðherra illa varið að bíða löngum stundum í flugstöðvum Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins gerir engar athugasemdir við að ráðherrar ferðist með einkaþotu á NATO-fund og segir tíma ráðherra illa varið að bíða löngum stundum í flugstöðvum. Framkvæmdastjóri Alþýðusambands Íslands segir það að sínu mati skjóta skökku við að ráðherrar velji þennan kost þegar þeir hafi boðað aðhald í samfélaginu. 2.4.2008 11:38
Borgarstjóri krafinn svara Stjórn Alfreðs, Félags ungra framsóknarmanna í Reykjavík suður, gerir þá kröfu að Ólafur F. Magnússon borgarstjóri útskýri ummæli sín þegar hann segir að: "Framsóknarflokkurinn sé sá flokkur sem lengst hefur gengið í þjónustu við verktaka og auðmenn í Reykjavík". Þetta kemur fram í tilkynningu frá framsóknarmönnunum ungu. Ólafur lét ummælin falla í kvöldfréttum RÚV í fyrradag. 2.4.2008 11:30
Heljartak Mugabe á Simbabve að losna? Heljartak Mugabe á simbabvesku þjóðinni virðist vera að losna samkvæmt nýjum fréttum dagblaðs sem hallt er undir ríkisstjórnina. Afar líklegt þykir að blása þurfi til annarar umferðar kosninga þar sem enginn frambjóðendanna þriggja hafi hlotið meira en 50 prósenta fylgi sem tryggir sigur. 2.4.2008 11:09
Rannsóknarnefnd flugslysa stýrir rannsókn á atviki á Dhaka-velli Rannsóknarnefnd flugslysa á Íslandi hefur verið falið að stýra rannsókninni á því hvað fór úrskeiðis þegar eldur kom upp í hreyfli Boeing 747 flugvélar flugfélagsins Atlanta á flugvellinum í Dhaka í Bangladess í síðustu viku. 2.4.2008 11:03
Einkaþotuflugið óvistvænt bruðl Bjarni Harðarson, þingmaður Framsóknarflokksins, segir það óverjandi að ferðast með einkaþotu á NATO-fundinn eins og þau Ingibjörg Sólrún Gísladóttir og Geir Haarde ákváðu að gera og Vísir greindi frá í gær. 2.4.2008 10:59
Slasaðist í dínamítsprengingu í Hveragerði Karlmaður sem var við vinnu á byggingarsvæði í Hveragerði í gær slasaðist á hendi þegar dínamít sem hann var að vinna með sprakk skyndilega. Maðurinn er ekki alvarlega slasaður að sögn lögreglunnar á Selfossi en töluverð sprenging varð. 2.4.2008 10:56
Segir för oddvitanna forkastanlega „Mér finnst þetta forkastanlegt!“ segir Ögmundur Jónasson, formaður BSRB, inntur álits á ferðalagi Geirs H. Haarde og Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur á leiðtogafund Atlantshafsbandalagsins í Rúmeníu en för þeirra hófst í morgun. 2.4.2008 10:52
Rafmagn komið aftur á í miðbænum Rafmagnslaust varð í um 20 mínútur við Laugarveg, Skúlagötu og Hafnarstræti í morgun. 2.4.2008 10:46
Ríkisstjórnin gerir ekkert nema panta sér einkaþotu „Forsætisráðherra hélt blaðamannafund og lýsti þar yfir að ekki væri ástæða til þess að gera nokkuð og pantaði sér einkaþotu til þess að skjótast niður til Evrópu“ skrifar Guðmundur Gunnarsson formaður Rafiðnaðarsambandsins á heimasíðu sína í gær. 2.4.2008 10:42