Setur reglugerð um þátttöku TR í kostnaði vegna bæklunarlækna 2. apríl 2008 14:53 MYND/Anton
Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra hefur sett reglugerð um greiðsluþátttöku Tryggingastofnunar ríkisins vegna þjónustu sjálfstætt starfandi bæklunarlækna sem eru án samninga. Eins og fram kom í fréttum í fyrradag runnu samningar við læknana út um mánaðamótin án þess að um semdist um nýja samninga. Með ákvörðun ráðherra er ætlunin að tryggja stöðu sjúkratryggðra með sérstakri reglugerð. Reglugerðin gildir til og með 31. maí og samkvæmt henni er tilvísun frá öðrum lækni ekki skilyrði fyrir endurgreiðslu TR á kostnaði vegna þjónustu bæklunarlækna. Sjúkratryggður einstaklingur greiðir þjónustu viðkomandi sérfræðings að fullu og getur síðan sótt um endurgreiðslu hjá TR samkvæmt gjaldskrá sem fylgir reglugerðinni.„Enn er í gildi samningur Læknafélags Reykjavíkur (LR) og TR um greiðslu fyrir einnota efni og áhöld vegna aðgerða sem sjúkratryggðir einstaklingar gangast undir utan sjúkrahúsa. Þá eru einnig í gildi samningar við tilgreinda bæklunarlækna vegna krossbandaaðgerða á hnjám. Sjúklingar þurfa því hvorki að leggja út fyrir efniskostnaði né greiða kostnað vegna krossbandaaðgerða umfram hlutdeild hins sjúkratryggða skv. reglugerð nr. 1265/2007.Sérgreinalæknar sem hafa falið LR samningsgerð fyrir sína hönd hafa þegar samið við samninganefnd heilbrigðisráðherra og gildir sá samningur til 31. mars 2010. Sérstök reglugerð vegna þjónustu þeirra er því ekki nauðsynleg. Auk bæklunarlækna er enn ósamið við hjartalækna og barnageðlækna. Samninganefnd heilbrigðisráðherra á í viðræðum við fulltrúa þeirra og er stefnt að niðurstöðu í þessum mánuði," segir í tilkynningu heilbrigðisráðuneytisins.
Mest lesið Töframaður lúbarinn í Garðabæ: „Ég hélt að þetta væri búið“ Innlent „Ég spyr hvernig hefði farið ef ég hefði ekki lifað þetta af“ Innlent „Liggur maður þarna á jörðinni og það var verið að berja hann í stöppu“ Innlent Spennt að mæta fyrrverandi yfirmanni í kappræðum Innlent Segir af sér þingmennsku að ákveðnu skilyrði uppfylltu Innlent „Á yfir höfði sér kærur vegna fjölda umferðarlagabrota“ Innlent Líkurnar á lækkun „mjög litlar“ Innlent Listamenn safna fyrir 10 ára dreng á Selfossi í dag Innlent Dómari krefst þess að Liam og föður hans verði sleppt úr haldi Erlent Björg sökuð um brot á kosningareglum Viðreisnar Innlent Fleiri fréttir Segir af sér þingmennsku að ákveðnu skilyrði uppfylltu Sáttamiðlun úrræði sem væri alls ekki fyrir alla þolendur Spennt að mæta fyrrverandi yfirmanni í kappræðum Dagur kvenfélagskonunnar er í dag 1. febrúar Líkurnar á lækkun „mjög litlar“ Mótmæla og biðla til utanríkisráðherra Nýir oddvitar og sáttameðferð í kynferðisbrotamálum Töframaður lúbarinn í Garðabæ: „Ég hélt að þetta væri búið“ Listamenn safna fyrir 10 ára dreng á Selfossi í dag „Ég spyr hvernig hefði farið ef ég hefði ekki lifað þetta af“ Sprengisandur: Laxeldi, verðbólga og falsfréttir Grunaður um stórfellda líkamsárás „Á yfir höfði sér kærur vegna fjölda umferðarlagabrota“ Ölvuð kona grunuð um að valda umferðarslysi á rafhlaupahjóli Hlýnandi veður í dag og „meinlaus austanlægð“ í kortunum Hilmar Gunnarsson er oddviti í Mosfellsbæ Vilhjálmur Árnason leiðir Sjálfstæðismenn í Reykjanesbæ Baráttan hafi verið Viðreisn til sóma „Lúxusvandamál“ að velja og hafna á listann Stöðvuðu stolinn bíl með naglamottu eftir eftirför um alla borg Sjálfstæðismenn í Reykjanesbæ velja sér oddvita „Vinna er heilsuefling“ Björg sökuð um brot á kosningareglum Viðreisnar Blótað í Grindavík á nýjan leik Vaktin: Björg Magnúsdóttir leiðir lista Viðreisnar í borginni „Liggur maður þarna á jörðinni og það var verið að berja hann í stöppu“ Vilja Hjallastefnugrunnskóla í Árborg Skjálftinn í Bárðarbungu 5,3 að stærð Rýnt í Epstein-skjölin, prófkjör Viðreisnar og árás ungmenna „Koma einhverjir strákar og svo fer allt í háaloft“ Sjá meira