Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Fjórir blaðamenn frá BBC handteknir á Írlandi Fjórir blaðamenn frá BBC voru handteknir á Írlandi um helgina eftir að hafa tekið upp yfirlýsingu frá grímuklæddum IRA-manni sem gera átti opinbera um páskana. 17.3.2008 07:53
Stal skjávarpa úr galleríi við Klapparstíg Innbrotsþjófur stal skjávarpa úr galleríi við Klapparstíg í Reykjavík í nótt. 17.3.2008 07:50
Flokkur Sarkozy tapaði mikilvægum borgum í Frakklandi Hægriflokkur Nicolas Sarkozy Frakklandsforseta laut í lægra haldi fyrir sósíalistum í annari umferð sveitarstjórnarkosninganna í Frakklandi um helgina. 17.3.2008 07:48
Tugir manna frá NATO og SÞ sárir eftir átök í Kosovo Skotið var á hermenn á vegum NATO og lögreglumenn frá Sameinuðu þjóðunum í óeirðum sem urðu í borginni Mitrovica í norðurhluta Kosovo í morgun. Að minnsta kosti 22 lögreglumenn og tveir hermenn eru slasaðir eftir átökin og hafa hinar alþjóðlegu sveitir hörfað frá svæðum sem lúta stjórn Serba í borginni. 17.3.2008 00:00
Ekki ólíklegt að Sjálfstæðisflokkur klofnaði vegna ESB Björn Bjarnason dómsmálaráðherra segir ekki ólíklegt að Sjálfstæðisflokkurinn myndi klofna ef kæmi til umræðu um aðild að Evrópusambandinu. Málið gangi þvert á alla flokka og þjóðin myndi skiptast í fylkingar. Þetta sagði ráðherra í viðtali við Sigmund Erni Rúnarsson í Mannamáli í kvöld. Björn segir gallann á umræðunni um ESB vera þann að vegvísi vanti eins og notast sé við þegar leysa eigi alþjóðadeilur. 16.3.2008 19:36
Grunur um íkveikju í fjölbýlishúsi í Breiðholtinu Grunur leikur að kveikt hafi verið í íbúð í fjölbýlishúsi í Breiðholti í morgun þar sem hátt í tvö hundruð manns búa. Engum varð meint af en íbúar í húsinu hafa farið fram á að íbúðin verði seld þar sem óregla sé á leigjendum þar. 16.3.2008 18:53
Stúlkan frá Bitrufirði ekki alvarlega slösuð Átta ára gömul stúlka sem flutt var á með þyrlu á slysadeild Landspítalans í Fossvogi frá Bitrufirði eftir slys í dag reyndist ekki alvarlega slösuð. Stúlkan og maður skullu saman þar sem þau voru að renna sér á plastpokum. Manninn sakaði ekki en grunur lék á áverkum á hálsi, höfði og brjóstkassa stúlkunnar samkvæmt upplýsingum sjúkraflutningamanna á Hólmavík. 16.3.2008 15:11
Vilja banna reykingakvikmyndir innan 18 ára Hópur sem berst gegn reykingum í Bretlandi hefur farið fram á að allar kvikmyndir sem innihalda reykingaratriði verði bannaðar innan 18 ára í landinu. 16.3.2008 17:42
Ný flugstöð útilokar samgöngumiðstöð Unnt er að hefja smíði samgöngumiðstöðvar á Reykjavíkurflugvelli innan fárra mánaða. Hún er hins vegar úr myndinni ef ráðist verður í smíði flugstöðvar við gömlu Flugfélagsafgreiðsluna, að mati stjórnarformanns Flugstoða, sem segir menn verða að velja þar á milli. 16.3.2008 19:23
Óeirðir vegna Tíbets breiðast út Tíbet naut í raun sjálfstæðis í marga áratugi þartil árið 1950 að Kínverjar sendu þangað her til að taka völdin. 16.3.2008 19:15
Skattleysismörk helmingi hærri ef persónuafsláttur hefði fylgt launavísitölu Skattleysismörk væru nærri helmingi hærri í dag ef persónuafsláttur hefði fylgt launavísitölu síðastliðin tólf ár samkvæmt útreikningum ASÍ. 16.3.2008 19:15
Fermingarbörnin vonast eftir tölvum Að muna trúarjátninguna var mesta áhyggjuefni hjá fermingarbörnum í Háteigskirkju í dag og flest vonuðust þau eftir tölvum í fermingargjöf. 16.3.2008 19:04
Aflaverðmæti upp á 250 milljónir króna Frystitogarinn Venus kom til hafnar í Reykajvík í dag með afla að verðmæti 250 milljónum króna. Hásetahluturinn einn nemur tveimur og hálfri milljón króna. 16.3.2008 19:00
Fjörutíu ár frá fjöldamorðunum í My Lai Yfir 500 óvopnaðir íbúar í My Lai voru myrtir þann 16 mars árið 1968. Menn konur og börn. Líklega hefðu allir þorpsbúarnir verið myrtir ef bandarísk könnunarþyrla hefði ekki flogið þar yfir. Þriggja manna áhöfnuin sá hvað var að gerast. 16.3.2008 19:00
Hundruð húsa flöttust út í sprengingum Óttast er að tuttugu manns hið minnsta hafi farist þegar skotfærageymsla albanska hersins sprakk í loft upp í gær. Geymslan var rétt fyrir norðan höfuðborgina Tirana. 16.3.2008 18:30
Lystugir veislugestir Fílar hafa um aldir verið þarfasti þjónninn í Thailandi. Það er því haldið upp á dag fílsins og ýmislegt gert til þess að heiðra þessar stóru en gæfu skepnur. 16.3.2008 17:44
Engin vörubretti þrátt fyrir fjárstyrk Enn hafa engin vörubretti verið framleidd í Mývatnssveit. Hratt gengur á opinbert fé sem fékkst til framleiðslunnar og lýsa heimamenn vonbrigðum. 16.3.2008 17:00
Skoskir bændur hægðu á netsambandi frá landinu Vorverk skoskra bænda orsökuðu bilun til á ljósleiðara sem olli töfum á netumferð til og frá landinu um FARICE-1 sæstrenginn frá Skotlandi. Í tilkynningu frá FARICE segir að girðingarvinna bændanna hafi orsakað bilunina. 16.3.2008 16:44
Loðnuskip kasta í einum hnapp Sex loðnuskip eru nú að veiðum nánast á sama punktinum við Vestmannaeyjar. 16.3.2008 16:35
Stúlka meiddist í Bláfjöllum Níu ára gömul stúlka datt á skíðum í Bláfjöllum á öðrum tímanum í dag og meiddi sig á hálsi. Sjúkralið var kallað á vettvang. Meiðsl hennar eru ekki talin alvarleg að sögn Einars Bjarnasonar verkstjóra Skíðasvæðisins í Bláfjöllum. Hann segir að stúlkan hafi verið með meðvitund og getað hreyft útlimi. Hún væri í lagi að öðru leiti en því að hún fyndi fyrir höfuðverk. Ávallt væri þó sent eftir sjúkraliði í tilfellum sem þessum. 16.3.2008 14:22
Greiðlega gekk að slökkva eld á Eiðistorgi Allt tiltækt lið Slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu var kallað út á öðrum tímanum í dag vegna elds á Eiðistorgi á Seltjarnarnesi. Eldur logaði í þaki og þurfti að rífa það frá til að komast að eldinum. Greiðlega gekk að slökkva hann en ekki er á þessari stundu ljóst með tjón. 16.3.2008 13:58
Ekið á bifhjólamann á Miklubraut Tveir menn voru fluttir á slysadeild eftir að bifreið ók á bifhjól á Miklubraut til móts við Réttarholtsveg á öðrum tímanum í dag. Hluta Miklubrautar var lokað vegna slyssins á meðan lögregla og sjúkralið unnu á staðnum. Mennirnir eru ekki alvarlega slasaðir samkvæmt heimildum vakthafandi læknis á slysadeild. 16.3.2008 13:26
Maðurinn kominn í leitirnar Maðurinn sem Lögreglan á Akranesi lýsti eftir fyrr í morgun er kominn í leitirnar. Maðurinn Hafsteinn Erlendsson fannst á bíl sínum á Sandskeiði samkvæmt heimildum fréttastofu. Hann hafði ekið heiman frá sér eftir hádegi í gær en ekki sést síðan. 16.3.2008 12:54
Viðgerð stendur yfir á ljósleiðara Enn stendur yfir viðgerð á ljósleiðara fyrir sambönd FARICE í Skotlandi og er ekki búist við að viðgerð ljúki fyrr en síðdegis í dag. Bilunin hefur m.a. haft þau áhrif að öll netumferð frá Íslandi og Færeyjum er hægvirkari en ella. 16.3.2008 12:23
Ráðuneyti getur ekki stöðvað framkvæmdir í Helguvík Umhverfisráðuneytið getur ekki stöðvað byggingu fyrirhugaðs álvers í Helguvík. Framkvæmdirnar geta hægt á stýrilækkunarferli Seðlabankans, en fjármálaráðherra segir þær nauðsynlega innspýtingu í efnahagslífið. 16.3.2008 12:10
Fjórir látnir eftir að krani féll á hús í New York Miðað við tjónið sem kraninn olli er eiginlega furðulegt að ekki skyldu fleiri en fjórir láta lífið. 16.3.2008 12:08
Lýst eftir manni frá Akranesi Lögreglan á Akranesi lýsir eftir karlmanni á áttræðisaldri Hafsteini Erlendssyni. Hafsteinn ók heiman frá sér eftir hádegi í gær en hefur ekki sést síðan. 16.3.2008 11:35
„Austurríki ekkert miðað við Bláfjöll um helgina“ Frábær mæting var á skíðasvæðið í Bláfjöllum í gær. Þá mættu milli sjö og níu þúsund manns; „Í algjörri bongóblíðu og færi eins og það gerist best,“ segir Einar Bjarnason verkstjóri. Þrátt fyrir fjöldann mynduðust ekki miklar biðraðir, mestur var biðtíminn um fimm mínútur í nýju stólalyftunni í Kóngsgili. 16.3.2008 11:21
Eldsvoði í Hrafnhólum Eldur kviknaði í íbúð á annarri hæð í átta hæða fjölbýlishúsi í Hrafnhólum í Breiðholti í morgun. Allt tiltækt lið Slökkviliðsins var kallað út rétt eftir klukkan tíu og hefur þegar slökkt eldinn í íbúðinni sem var mannlaus. Mikinn reyk lagði frá íbúðinni og reykinn lagði einnig inn í stigahúsið. 16.3.2008 10:33
Herskáir islamistar undirbúa hryðjuverk í Danmörku Leyniþjónusta dönsku lögreglunnar segir að stöðugt fleiri hópar herskárra islamista undirbúi hryðjuverk, annaðhvort í Danmörku eða öðrum löndum. Jakob Scharf, yfirmaður leyniþjónustunnar segir í viðtali við danska blaðið Politiken að það sé mikið áhyggjuefni hvað hinir verðandi hryðjuverkamenn beri sig orðið fagmannlega. 16.3.2008 10:27
Ökumaður með 50 E-töflur innanklæða Fimmtíu E-töflur fundust á karlmanni á lögreglustöðinni á Akranesi eftir að hann var stöðvaður við hefðbundið umferðareftirlit seinnipartinn á föstudag. Þá vaknaði grunur hjá lögreglumönnum um fíkniefni og var maðurinn fluttur á lögreglustöðina. Eftir yfirheyrslu var manninum síðan sleppt. Málið er í rannsókn. 16.3.2008 10:22
Brotist inn í Lyfju og félagsmiðstöð á Skagaströnd Miklar skemmdir voru unnar í Lyfju á Skagaströnd í nótt og mikið magn lyfja tekið þegar brotist var þangað inn. Lögreglu var gert viðvart eftir að viðvörunarkerfi apóteksins fór af stað. Samkvæmt heimildum Lögreglunnar á Blönduósi var brotist inn í apótekið bakdyramegin. Innbrotsþjófurinn fór í gegnum glugga inn á gang þar sem hann braut sér leið inn um bakdyr apóteksins. 16.3.2008 10:13
Enn leitað að loðnu við Vestmannaeyjar Fimm loðnuskip eru enn við loðnuleit við Vestmannaeyjar en ekkert hefur sést í morgun, að sögn Sturlu Þórðarsonar, skipstjóra á Berki NK. Veiðin í gær út af Eyjafjöllum var nánast engin og telur Sturla að loðnuveiðin sé búin að þessu sinni, svo fremi sem ekki komi vesturganga. 16.3.2008 10:09
Áttatíu fallnir í átökum í Tíbet Áttatíu manns hafa fallið undanfarna daga í átökum milli Tíbeta og kínverskra stjórnvalda, að sögn tíbetsku útlagastjórnarinnar í Indlandi. Tugir til viðbótar hafa slasast. Lhasa, höfuðborg Tíbet er nánast í herkví lögreglu- og hersveita. Íbúarnir hætta sér ekki út fyrir dyr. 16.3.2008 10:02
Tekinn á tvöföldum hámarkshraða Karlmaður á fimmtugsaldri var tekinn á tvöföldum hámarkshraða í Borgarnesi í gærkvöldi þar sem hámarkshraði er 50 km. Maðurinn missir ekki prófið en fær 60 þúsund króna sekt og fjóra refsipunkta í ökuferilsskrá. 16.3.2008 09:56
Fjögur líkamsárásarmál í Reykjavík Nokkuð var um slagsmál í miðborginni í nótt og komu fjögur líkamsárásarmál til kasta lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, ekki hefur þó verið kært vegna þeirra. Fangageymslur í Reykjavík voru yfirfullar svo notast þurfti við fangageymslur í Hafnarfirði líka. Þannig gistu 15 manns fangageymslur, langflestir vegna ölvunar eða óspekta. 16.3.2008 09:49
Búið að rífa gömlu Nestis-bensínstöðina Gamla Nestisbensínstöðin norðan megin við Ártúnsbrekkuna í Reykjavík hefur verið rifin. Stöðin hefur staðið þar í yfir hálfa öld. Þar á að reisa 500 fermetra bensínstöð með skyndibitastöðum og verður hún svipuð bensínstöðinni sem nú er hinu megin við götuna. 16.3.2008 12:59
Tveir létust í sprengjuárás á veitingastað í Pakistan Tveir létust og níu slösuðust þegar sprengja sprakk við veitingastað í Islamabad höfuðborg Pakistan í dag. Samkvæmt heimildum öryggissveita sprakk sprengjan við ítalskan veitingastað í miðborginni. 15.3.2008 20:45
Eldur í tjaldi útigangsmanns í Laugardal Nú fyrir stundu var tilkynnt um eld í tjaldi á tjaldstæðunum í Laugardal. Lögregla og Slökkvilið eru á leið á staðinn. Samkvæmt upplýsingum lögreglu er um að ræða tjald útigangsmanns. Ekki er ljóst hversu eldurinn er mikill á þessari stundu. 15.3.2008 19:37
Ræningi Shannon tengdur fjölskyldunni Maðurinn sem rændi hinni níu ára gömlu Shannon Matthews og hélt henni fanginni á heimili sínu í 24 daga er tengdur fjölskyldunni. Vinir og ættingjar fjölskyldunnar söfnuðust saman fyrir utan heimili hennar í gær og slógu upp veislu. 15.3.2008 18:28
Suðurstrandarvegur allur boðinn út Margsvikið kosningaloforð um Suðurstrandarveg kann loks að verða efnt. Samgönguráðherra lofar nú að vegagerðin í heild verði öll komin í útboð fyrir mitt þetta ár. 15.3.2008 18:58
Biðröð eftir notuðum hlutum Starfsfólk Góða hirðisins sér engin merki þess að farið sé að kreppa að í þjóðfélaginu enda berst þangað á hverjum degi mikið af veglegum hlutum. Viðskiptavinirnir bíða í röðum þegar verslunin er opnuð í von um að finna eitthvað einstakt. 15.3.2008 18:23
Umsátursástand í Tíbet Umsátursástand ríkir í borginni Lahsa eftir að óeirðir brutust út milli kínverskra öryggissveita og andstæðinga kínverskra yfirráða í Tíbet. Víða um heim hefur fólk fjölmennt fyrir utan sendiráð Kína og lýst yfir stuðningi við sjálfstæði Tíbets. 15.3.2008 18:22
Stúlka féll sex metra úr rúllustiga Fjögurra ára gömul stúlka slasaðist þegar hún féll um sex metra niður úr rúllustiga í nýrri verslun Rúmfatalagersins á Glerártorgi á Akureyri í dag. Stúlkan var í fylgd ættingja þegar slysið varð. Hún var flutt á slysadeild í sjúkrabíl. Ekki hafa fengist nánari upplýsingar um líðan stúlkunnar en hún féll niður á teppalagt gólf. 15.3.2008 16:28
Óttast að fjölmargir hafi látist í Albaníu Óttast er að fjölmargir hafi látist í gífurlegri sprengju sem varð í skotvopnabirgðastöð albanska hersins nálægt höfuðborginni Tirana í dag. Meira en 155 manns slösuðust, þar á meðal mörg börn. 15.3.2008 16:21