Fleiri fréttir

Segir lögregluembættin svelta

„Á undanförnum árum hefur almennum lögreglumönnum verið fækkað stórlega á götunum en fjölgað á skrifstofum ríkislögreglustjóra og í sérsveit sama embættis," skrifar Dagur B. Eggertsson borgarfulltrúi í Morgunblaðið í morgun.

Eskja segir upp nærri 40 manns vegna kvótaniðurskurðar

Sjávarútvegsfyrirtækið Eskja á Eskifirði hefur ákveðið að segja upp öllum starfsmönnum í frystihúsi félagsins, 39 talsins. Ástæðan er niðurskurður á þorskveiðiheimildum sem stjórnvöld kynntu fyrr í sumar.

Slátrið vinsælt norðan heiða

Slátursala fer vel af stað og eru dæmi um allt að fjörutíu prósenta söluaukningu. Slátrið þykir gómsætt og fyrirtaks búbót.

Gríðarleg aukning kynferðisbrota í Árborg

Þrátt fyrir að enn sé september eru kynferðisbrot á málaskrá lögreglunnar í Árborg fyrir árið 2007 þegar orðin 28. Allt árið 2005 voru kærð kynferðisbrot hjá sama embætti 8. Þrátt fyrir þessa gríðarlegu aukningu er sami fjöldi lögreglumanna að störfum hjá rannsóknardeild lögreglunnar í Árborg og þegar málin voru aðeins átta.

Kynna verðmat Gagnaveitunnar ef ekki koma fram gild rök fyrir leynd

Meirihluti sjálfstæðismanna og framsóknarmanna í borgarráði hafnaði því í dag að létta leynd af verðmati á Gagnaveitu Reykjavíkur, dótturfélags Orkuveitu Reykjavíkur, sem áður var Lína.net. Verðmatið verður birt á næsta borgarráðsfundi en þá sem trúnaðarmál og hyggjast borgarfulltrúar Samfylkingarinnar kynna það einhliða komi ekki fram gild rök sem styðji leyndina.

Spector sóttur aftur til saka

Kviðdómi í Bandaríkjunum mistókst að komast að niðurstöðu um það hvort hinn frægi tónlistarmaður Phil Spector hefði myrt leikkonuna Lönu Clarkson fyrir tæpum fimm árum.

Þjóðheta Mjanmar - Aung San suu Kyi

Líkt og Nelson Mandela hefur Aung San Suu Kyi orðið alþjóðlegt tákn hetjulegrar og friðsamlegrar andstöðu undirokunar og kúgunar. Í langan tíma hefur þessi baráttukona og leiðtogi Lýðræðisflokks landsins verið eina von landa sinna um að tímabil herstjórnarinnar líði einhvern tíman undir lok.

Rekin fyrir reykingar eiginmannsins

Bæjaryfirvöld í Óðinvéum í Danmörku ráku í gær dagmóður eftir að upp komst að eiginmaður hennar hafði reykt á heimili hjónanna þar sem hún passar börnin. Dagmóðirin sjálf hefur hins vegar aldrei reykt heima hjá sér.

Innanlandsflug liggur niðri

Allt innanlandsflug hefur legið niðri í morgun vegna veðurs. Hjá Flugfélagi Íslands fengust þær upplýsingar að næst yrði athugað með flug klukkan 14.10. Sigurður Ragnarsson veðurfræðingur hjá Stöð 2 segir að það sé vindstrekkingur víða um land en hann muni lægja. Horfur séu á ágætis flugveðri seinnipart dags og í kvöld.

Staðinn að veggjakroti í Kringlunni

Lögreglan hafði hendur í hári hálfþrítugs manns sem staðinn var að veggjakroti í Kringlunni í gærkvöld. Eftir því sem lögreglan greinir frá í frétt viðurkenndi maðurinn brot sitt en gat að öðru leyti lítið skýrt þetta háttalag sitt.

Fljúgandi elgur veldur usla

Starfsmenn sænska símafyrirtækisins Telia fengu heldur betur óvænta heimsókn á föstudaginn í síðustu viku þegar elgur kom fljúgandi í gegnum glugga skrifstofunnar. Glerbrotum rigndi yfir starfsmenn og kalla þurfti á veiðimann til að aflífa dýrið.

Vill að ríkissjóður greiði niður skuldir

Frosti Ólafsson, hagfræðingur hjá Viðskiptaráði Íslands, segir það vera mjög jákvætt að hið opinbera skuli skila rekstrarafgangi á sama tíma og Seðlabankinn er í mjög stífum aðhaldsaðgerðum með hárri vaxtastefnu.

Mjanmar: Ljósmyndari skotinn til bana

Erlendur ljósmyndari sem talinn er japanskur, var skotinn til bana í mótmælunum í Yangon í Mjanmar í dag. Fréttastofa Reuters hefur þetta eftir sjúkrahúsyfirvöldum á staðnum. Vitni segir manninn hafa fallið til jarðar þegar óeirðalögregla skaut að hópi eitt þúsund mótmælenda.

Kveikti á neyðarblysi inni í skólastofu

Reykræsta þurfti tvær skólastofur í Grunnskólanum í Borgarnesi laust eftir klukkan átta í morgun eftir að átta ára gamall nemandi kveikti fyrir misskilning í neyðarblysi. Blysið höfðu nemendur skólans fundið í fjöruferð sem farin var í gær. Engan sakaði í óhappinu.

Vísar ummælum um spillingu á bug

Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegsráðherra vísar fullyrðingum Friðriks Arngrímssonar, framkvæmdastjóra LÍÚ, um spillingu á bug.

Vilja banna nekt á Everest

Samtök fjallgöngugarpa í Nepal vilja banna nekt og tilraunir til ruddalegra meta á Everest fjalli, stærsta fjalli heims. Nepalskur fjallgöngumaður setti met í hæstu nektarsýningu á síðasta ári þegar hann beraði sig í nokkrar mínútur á toppi fjallsins, í 8.848 metra hæð og tíu stiga gaddi.

Formaður Heimdallar kjörinn

Erla Ósk Ásgeirsdóttir hefur ákveðið að gefa kost á sér til áframhaldandi setu sem formaður Heimdallar á komandi starfsári. Formaður verður kjörin á aðalfundi Heimdallar, félags ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík, sem fer fram í Valhöll í dag kl. 18.00.

Vísir kærir launaleynd RÚV

Vísir lagði fyrir helgi fram kæru til úrskurðarnefndar um upplýsingalög. vegna þeirrar ákvörðun Ríkisútvarpsins ohf að neita að gefa upplýsingar um mánaðarlaun Páls Magnússonar útvarpsstjóra.

Björn vill samstarf við Rússa í öryggismálum

Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra, telur æskilegt að Íslendingar og Rússar hafi með sér samstarf um öryggi skipa á norðurslóðum. Þetta kemur fram á heimasíðu Björns.

Herstjórnin skýtur að búddamunkum

Hermenn herforingjastjórnarinnar í Myanmar skutu aftur að mómælendum í Rangoon stærstu borg landsins í morgun. Vitni segja einn hafa fallið í jörðina í skothríðinni. Talið er að um 70 þúsund manns mótmæli á götum borgarinnar. Hermennirnir ráðast einnig að fólkinu og berja það með byssusköftum.

Truflanir á GSM- og netþjónustu á Akureyri

Truflanir eru á GSM- og netþjónustu Vodafone á Akureyri og nágrenni þessa stundina vegna skemmda sem urðu á ljósleiðara við jarðvegsframkvæmdir snemma í morgun.

Tekjuafkoma hins opinbera aldrei betri

Tekjuafkoma hins opinbera var jákvæð um 81 milljarð á síðasta ári samkvæmt tölu Hagstofunnar. Það er besta afkoma hins opinbera frá upphafi og er 7 prósent af landsframleiðslu.

Eftirlýstur Íslendingur handtekinn í Indlandi

Gunnar Wathne, íslenskur ríkisborgari sem bandarísk yfirvöld hafa leitað í fjögur ár, var handtekinn á Indira Gandhi flugvellinum í Nýju-Delí á Indlandi á föstudag. Þetta kemur fram á indverska vefnum India Exrpess.

Fljótsdalshérað niðurgreiðir frístundastarf

Bæjarstjórn Fljótsdalshéraðs ákvað fyrr í mánuðinum að niðurgreiða þátttökugjöld barna og unglinga í íþrótta-, tómstunda-, og æskulýðsstarfi. Öll börn á aldrinum 6 til 18 ára sem eiga lögheimili í sveitarfélaginu fá 20 þúsund kr. í hvatapeninga á ári samkvæmt ákvörðun bæjarstjórnar.

Verðmatið á Gagnaveitunni verði opinbert

Fulltrúar Samfylkingarinnar í borgarráði hafa óskað eftir því að mál Gagnaveitu Reykjavíkur verði sett á dagskrá borgarráðs á morgun, 27. september 2007. Jafnframt hefur verið óskað eftir því að lagt verði fram verðmat Glitnis og Landsbanka Íslands á Gagnaveitunni og að það verði þar með gert opinbert. "Ótækt er að leyndinni sé viðhaldið vegna þröngra flokkshagmuna Sjálfstæðisflokksins," segir í frétt um málið.

Öryggisráðið vill fulltrúa sinn til Myanmar

Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna samþykkti á neyðarfundi sínum í kvöld að hvetja stjórnvöld í Myanmar til að leyfa sérstökum fulltrúa sínum, Ibrahim Gambari að heimsækja landið. Miklar og blóðugar mótmælaaðgerðir hafa verið í landinu gegn stjórnvöld undanfarna daga.

Sérleyfi fyrir olíuboranir í undirbúningi

Í iðnaðráðuneytinu er nú verið að undirbúa útboð á sérleyfi til rannsóknarboranna eftir olíu innan íslensku landhelginnar. Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra segir að unnið sé að tillögu um hvort veita fara eigi í útboðið en tillagan verður svo lögð fyrir ríkisstjórnarfund seinna í haust.

Kókaínsmyglari áfram í gæsluvarðhaldi

Karl um fertugt hefur verið úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald til mánudagsins 1. október nk. en hann er grunaður um innflutning á kókaíni í fljótandi formi. Karl á fertugsaldri var sömuleiðis handtekinn í tengslum við rannsókn málsins en sá er laus úr haldi

Verkfallinu hjá GM lokið

Verkfallinu hjá GM lauk í dag eftir aðeins tvo sólarhring og um leið stigu hlutabréf í fyrirtækinu um tæp 9% á markaðinum vestan hafs. Verkfallið var hið fyrsta hjá GM á síðustu rúmu 30 árum en það náði til um 73.000 verkamanna fyrirtækisins.

Rather kallar Bush fyrir sem vitni

Fréttamaðurinn þekkti Dan Rather lét að því liggja í spjallþætti í kvöld að hann myndi kalla George Bush Bandaríkjaforseta fyrir sem vitni í málaferlum sínum gegn CBS sjónvarpsstöðinni. Rather telur að uppsögn sín hjá CBS árið 2004 hafi verið ólögmæt en hún kom í kjölfar fréttar hans um brokkgengann feril Bush í þjóðvarðliði Texas.

Fékk fót í kaupbæti

Bandarísk húsmóðir fékk óvæntan kaupauka á dögunum þegar hún keypti sér eldavél á uppboði í Norður Karólínu. Þegar Shannon Whisnant opnaði eldavélina góðu heima hjá sér kom í ljós fótur af manni.

Árekstur við Kaplakrika í dag

Tveir voru fluttir á slysadeild eftir árekstur á Reykjanesbraut við Kaplakrika rétt fyrir tvö í dag. Slökkvilið þurfti að beita klippum til þess að ná hinum slösuðu úr bílum sínum.

Samkomulag um Hatton Rockall nauðsynlegt

Ómögulegt verður að nýta mögulegar auðlindir á Hatton Rockall svæðinu nema samkomulag takist milli ríkjanna fögurra sem gera tilkall til þess. Þetta segir Tómas H. Heiðar, þjóðréttarfræðingur í utanríkisráðuneytinu sem fer fyrir íslensku samninganefndinni.

Kortleggja ferðir skútunnar

Bjarni Hrafnkelsson sem situr í gæsluvarðhaldi vegna skútusmyglsins er talinn hafa fjármagnað og pakkað inn fíkniefnunum erlendis. Lögreglumenn sem nú eru staddir í Færeyjum í tenglsum við málið munu síðar halda til Danmerkur og þaðan þræða þá leið sem skútan fór áður en hún hélt til Íslands.

Fyrsta olíuhreinsistöðin á Íslandi sett upp í Bolungarvík

Bolvíkingar ætla að setja upp fyrstu olíuhreinsistöðina á Íslandi í miðjum kaupstaðnum en rannsóknir standa nú yfir á hagkvæmni olíuvinnslu í Bolungarvík. Ekki er um að ræða hefðbundna olíuhreinsistöð heldur á að vinna eldsneyti úr fiskúrgangi.

Pólitískar ástæður að baki hótun Útlendingastofnunar

Atli Gíslason þingmaður Vinstri grænna og lögmaður segist ekki sjá annað en að pólitískar ástæður liggi að baki hótun Útlendingastofnunar um brottvísun breskrar stúlku úr landi en hún hefur tekið þátt í mótmælum Saving Iceland.

Ólafur Ragnar flutti vitnisburð í Öldungadeildinni

Forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson flutti í morgun í boði orkunefndar Öldungadeildar Bandaríkjaþings ítarlegan vitnisburð um nýtingu jarðhita, reynslu Íslendinga og tækifæri á þessu sviði í framtíðarorkubúskap Bandaríkjanna.

Torfærukapparnir reyndust allir edrú

Hin árlega torfærukeppni var haldin á Hellu um helgina og tókst hún vel að sögn mótshaldara. Á sunnudagsmorgun voru allir keppendur látnir blása í öndunarmæli hjá lögreglunni og reyndust þeir allir vera í góðu lagi. Þetta samstarf lögreglunnar á Hvolsvelli og Flugbjörgunarsveitarinnar á Hellu hefur varað í nokkur ár og mun vara áfram.

Norðmenn veita 60 milljarða í þróunaraðstoð

Jens Stoltenberg, forsætisráðherra Noregs, lofaði í dag einum milljarði dollara, jafnvirði um 60 milljarða króna, í stuðning til mæðra og barna í þróunarlöndunum á næsta áratug.

Sjá næstu 50 fréttir