Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Héraðsdómarar gengu of langt Einar Gauti Steingrímsson, verjandi Róberts Árna Hreiðarssonar sem í dag var dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn fjórum stúlkum, var harðorður í garð dómara Héraðsdóms Reykjavíkur eftir að dómur féll í dag. 26.9.2007 15:26
Kompáslögmaður í þriggja ára fangelsi Róbert Árni Hreiðarsson lögmaður var í dag dæmdur í þriggja ára óskilorðsbundið fangelsi fyrir kynferðisbrot gagnvart fjórum unglingsstúlkum. Þá var hann einnig sakfelldur fyrir vörslu barnakláms. 26.9.2007 15:23
70% framkvæmda ríkisins fara yfir áætlun Af 70 opinberum framkvæmdum á vegum ríkisins síðustu ár hafa 70 prósent þeirra farið fram úr fjárhagsáætlunum. Einungis fimm prósent haldast á áætlun, en heildarkostnaður 25 prósent verkefna er undir áætlun. Orsakanna er yfirleitt að leita í undirbúningi verkefnanna, en þar gæti jafnan óraunsærrar bjartsýni. 26.9.2007 15:16
Myndin er ekki af Maddý Ljósmyndin sem farið hefur eins og eldur í sinu um heimsbyggðina er ekki af Madeleine McCann eins og sumir hafa haldið fram. Fréttastofa Sky sjónvarpsstöðvarinnar segist hafa heimildir fyrir því að stúlkan á myndinni sé frá Marokkó. 26.9.2007 14:58
Sátu föst í jeppa við Upptyppinga í þrjá daga Lögreglan á Húsavík fann í dag tékkneskt par nærri Upptyppingum en farið var að svipast um í fyrradag eftir að það skilaði sér ekki til vinnu. 26.9.2007 14:56
SOS þorpin í suðurhluta Gana hafa sloppið við flóð Börn í Gana sem búa í SOS barnaþorpum þar í landi og eiga íslenska styrktarforeldra eru óhult þrátt fyrir geysileg flóð í landinu. Flóðin í Afríku hafa haft skelfilegar afleiðingar í för með sér og er Gana á meðal þeirra ríkja sem verst hafa orðið úti. 26.9.2007 14:27
Yfir 1200 útlendingar nema íslensku Ætla má að um 1200 útlendingar hið minnsta leggi nú stund á íslenskunám reglulega, annaðhvort í skólum hér á landi eða á Netinu. 26.9.2007 14:13
Ingibjörg fundar með starfssystkinum á allsherjarþingi SÞ Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra átti gær sex tvíhliða fundi með utanríkisráðherrum annarra landa auk óformlegra funda með ýmsu forystufólki sem sækir allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna í New York sem sett var í gær. 26.9.2007 13:59
Rafmagnlaust í Hálsahverfi í Árbæ Rafmangslaust er í Hálsahverfi í Árbæ vegna rekstrartruflunar eins og Orkuveita Reykjavíkur orðar það. Verið er að vinna að því að koma rafmagni á að nýju sem verður vonandi fljótlega. 26.9.2007 13:53
Enn ekki yfirheyrt meintan höfuðpaur Lögreglan hefur enn ekki hafið yfirheyrslur á Bjarna Hrafnkelssyni, sem grunaður er um að vera annar af höfuðpaurunum í Fáskrúðsfjarðarmálinu. 26.9.2007 13:38
Fá 30 þúsund aukalega á mánuði vegna álags Björn Bjarnason dómsmálaráðherra hefur ákveðið að greiða öllum starfandi lögreglumönnum sérstakt tímabundið álag upp á 30 þúsund krónur á mánuði samkvæmt samkomulagi sem Landssamband lögreglumanna hefur gert við stjórnvöld. Þetta kemur fram á vef landssambandsins. 26.9.2007 13:22
118 sektaðir fyrir hraðakstur í Hafnarfirði 118 ökumenn eiga von á sektum vegna hraðaksturs en brot þeirra voru mynduð í Hafnarfirði í gær. 26.9.2007 13:15
Vilja fá að skjóta ref á Ströndum Skotveiðifélag Íslands ætlar að beita sér fyrir því með heimamönnum að friðun á ref á Ströndum verði aflétt. Hún sé vanhugsuð náttúruvernd. 26.9.2007 13:00
Ráðist inn í sorg sjötugrar ekkju Ekkja sem missti mann sinn fyrir þremur mánuðum fékk í vikunni senda könnun þar sem hún er meðal annars beðin um að svara spurningum um kynlíf sitt og áfengis- og lyfjanotkun eftir missinn. Ekkjan, sem er á sjötugsaldri, er enn í sárum eftir fráfall manns síns og segir dóttir hennar að könnunin beri vitni um fullkomið dómgreindarleysi af hálfu þeirra sem að henni standa. Könnunin er liður í lokaverkefni sálfræðinema en ábyrgðarmaður er sálfræðingur á öldrunarsviði Landspítalans. 26.9.2007 12:52
Lundinn finnur griðland í Flatey á Skjálfanda Lundinn virðist vera búinn að finna sér griðland norður í Flatey á Skjálfandaflóa, samkvæmt rannsóknum Náttúrustofu Norðausturlands. 26.9.2007 12:45
Var vanhæfur til að fjalla um ráðningu aðstoðarskólastjóra Fulltrúi Samfylkingar í skólanefnd Kópavogs var vanhæfur til að taka þátt í afgreiðslu á ráðningu aðstoðarskólastjóra Smáraskóla. Að þessu kemst bæjarlögmaður Kópavogs sem kynnti niðurstöður sínar á bæjarstjórnarfundi í gær. 26.9.2007 12:30
Mál Vilhelms Þorsteinssonar fyrir rétt í Noregi Norska strandgæslan sleppti fjölveiðiskipinu Vilhelm Þorsteinssyni EA úr haldi í Norður-Noregi í gærkvöldi gegn tryggingu. Útgerðin hafnaði dómssátt og fer málið fyrir rétt í Noregi. 26.9.2007 12:25
Ræðir við öldungadeild Bandaríkjaþings um orkumál Forseti Íslands kemur í dag á fund fastanefndar Öldungadeildar Bandaríkjaþings til að ræða hvernig nýta megi jarðvarma og miðla reynslu Íslendinga. Ætla má að þetta sé í fyrsta sinn sem íslenskur forseti kemur fyrir þingnefnd í Bandaríkjunum eða annars staðar. 26.9.2007 12:16
Ekki samstíga um hvort taka eigi upp flatan skatt Formaður Samfylkingarinnar og viðskiptaráðherra eru ekki samstíga í því hvort taka beri upp flatan skatt. Viðskiptaráðherra vill slíkan skatt og sér fylgismenn í Sjálfstæðisflokknum og hjá Viðskiptaráði. 26.9.2007 12:04
Ekki ekið á manninn í Hraunbergi Rannsókn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í svokölluðu Hraunbergsmáli hefur leitt í ljós að ekki var ekið á manninn í umræddu máli. Grunur beindist strax að ákveðnum bíl og var ökumaðurinn yfirheyrður. Við rannsókn málsins kom ekkert það fram sem bendir til að hann hafi átt hlut að máli. Sama á við um farþega sem voru í bílnum en umrætt ökutæki var rannsakað ítarlega. Það er jafnframt álit sérfróðra aðila að áverkar á hinum slasaða séu ekki tilkomnir vegna umferðarslyss. Málavextir voru á þá leið að lögreglan var kölluð að Hraunbergi í Breiðholti föstudagskvöldið 4. ágúst sl. Þar lá karl á sjötugsaldri illa á sig kominn en grunur lék á að ekið hefði verið á hann. 26.9.2007 11:41
Vara við ferðum á Snæfellsnesi Lögreglan hafði rétt í þessu samband við Vísi til þess að vara fólk við að vera að óþörfu á ferðinni á norðanverðu Snæfellsnesi í dag vegna hvassviðris. Sigurður Þ. Ragnarsson veðurfræðingur á Veðurstofu Stöðvar 2 tekur undir þessu varnaðarorð. "Já það má búast við vindhraða á bilinu 20-30 m/s á norðanverðu nesinu í dag og að hviður geti slegið í um eða yfir 40 m/s," segir Sigurður" 26.9.2007 11:18
Einn lést í skotárás hersins í Burma Einn lést og fimm slösuðust þegar herinn í Myanmar skaut byssuskotum að stórum hópi mótmælenda í Yangon í dag. Vitni segja blóðugan líkama munks hafa verið borinn í burtu en ekki er ljóst hvort hann var lífs eða liðinn. Búddamunkar hafa leitt mótmælin í Myanmar sem hófust fyrir mánuði síðan þegar olíuverð hækkaði skyndilega. Þau hafa breiðst út og eru orðin mestu mótmli í landinu í 20 ár. 26.9.2007 11:13
Þjónusta skert á fjórum leikskólum Þjónusta hefur verið skert á fjórum leikskólum á höfuðborgarsvæðinu vegna manneklu. Í morgun fengu foreldrar barna í Brekkuborg bréf þar sem þeim er tilkynnt að þau þurfi að hafa börnin sín heima í tvo daga í byrjun október. Leikstjóraskóli vonar að um tímabundið ástand sé að ræða. 26.9.2007 10:57
Fjáröflun Guilianis sögð ógeðsleg Rudy Giuliani, fyrrverandi borgarstjóri New York borgar, sem sækist eftir forsetaembætti Bandaríkjanna hefur verið gagnrýndur harkalega fyrir að misnota ímynd hryðjuverkaárásanna á tvíburaturnana til fjáröflunar. Stuðningsmaður hans býður almenningi að styðja Giuliani fyrir 9,11 dollara á mann. 26.9.2007 10:41
Konur afklæðast í kosningabaráttu Konur í nýjum stjórnmálaflokki í Póllandi komu fram naktar í umdeildri auglýsingaherferð fyrir þingkosningar í landinu 21. október. Sjö konur skýla sér á bakvið auglýsingaskilti sem á stendur; „Stjórnmálaflokkur kvenna, Pólland er kona.“ Herferðin hefur vakið mikla athygli í landinu sem er að miklum meirihluta kaþólskt og stjórnað af Kaczynski tvíburunum sem eru afar íhaldssamir. 26.9.2007 10:01
Fluttur á sjúkrahús eftir harðan árekstur á Suðurnesjum Einn var fluttur á sjúkrahús í Reykjanesbæ eftir harðan árekstur tveggja fólksbíla á mótum Sandgerðisvegar og Miðnesheiðarvegar um klukkan hálftíu í gærkvöld. 26.9.2007 09:31
Tvö hundruð handteknir í Búrma Að minnsta kosti tvö hundruð búddamunkar voru handteknir í Rangún, höfuðborg Búrma, í morgun. Hermenn beittu táragasi og kylfum gegn mótmælendum sem höfðu safnast saman í miðborginni og þá skutu þeir einnig viðvörunarskotum yfir höfði mótmælenda. 26.9.2007 08:47
Bauð samföngum sínum upp á pizzur Kjell Inge Rökke, norska auðmanninum sem setið hefur í fangelsi í heimalandi sínu í þrjár vikur hefur verið sleppt úr haldi, viku á undan áætlun. Norskir miðlar greina frá því að hann hafi farið rakleiðis í sumarfrí eftir að afplánun lauk. Hann gleymdi þó ekki samföngum sínum því hann lét það verða sitt fyrsta verk utan múra fangelsisins að panta pizzur handa sambýlingum sínum fyrrverandi. 25.9.2007 23:48
Evrópusambandið aðvarar stjórnvöld í Myanmar Evrópusambandið varar herforingjastjórnina í Myanmar við því að brjóta á bak aftur mótmælin í landinu. Sambandið hótar að herða refsiaðgerðir sínar gegn stjórnvöldum reyni þau að beita hervaldi til þess að koma í veg fyrir mótmælin. 25.9.2007 22:22
Auglýsing Umferðarstofu að erlendri fyrirmynd Þær sögur hafa undanfarið gengið á Netinu að auglýsing Umferðarstofu sem sýnd hefur verið undanfarin misseri sé stolin. Vísað hefur verið í erlenda auglýsingu sem er sláandi lík henni, því til sönnunar. Einar Magnús Magnússon hjá Umferðarstofu vísar þessum sögum alfarið á bug. Fullt leyfi hafi verið fengið til að endurgera auglýsinguna. 25.9.2007 21:48
Spítalinn fer gegn stefnu ríkisstjórnarinnar Ásta Möller, formaður heilbrigðis- og trygginganefndar Alþingis, segir að áform Landspítalans um að ráða til sín erlenda hjúkrunarfræðinga til starfa sé andstætt stefnu ríkisstjórnarinnar. Það sé yfirlýst stefna að auka samstarf við einkaaðila í heilbrigðisþjónustu. Hún segist ekki hafa trú á því að spítalanum takist að fá 90 erlenda hjúkrunarfræðinga til starfa hér á landi. 25.9.2007 20:05
Er Madeleine fundin? Interpol rannsakar nú mynd sem spænskir ferðamenn tóku nýlega á ferðalagi í Marokkó. Á myndinni sést lítil ljóshærð stúlka borin á baki konu og líkist sú ljóshærða Madeleine McCann töluvert. Madeleine hefur verið saknað síðan 3. maí s.l. 25.9.2007 19:50
Mannekla Landspítalans versnar Mannekluvandi Landspítalans mun aukast á næstu mánuðum segir talsmaður ráðningafyrirtækis, sem spítalinn sagði upp samningi við. Landspítalinn verði því verr í stakk búinn að taka við erlendum hjúkrunarfræðingum. 25.9.2007 19:00
Feginn að fá faðernið loksins staðfest Lúðvík Gizurarson er feginn að faðernismáli hans, til staðfestingar á að hann er sonur Hermanns Jónassonar fyrrverandi forsætisráðherra, er lokið. Dóttir hans á síður von á að hann muni eftirleiðis kenna sig við Hermann. 25.9.2007 18:45
Brottvísun fyrir mótmæli? Breskur jarðfræðingur sem tekið hefur þátt í aðgerðum Saving Iceland á yfir höfði sér að vera vísað úr landi vegna mótmæla sinna á grundvelli almannaöryggis og allsherjarreglu. 25.9.2007 18:45
Byggingarréttur ætti að fyrnast Formaður Torfusamtakanna segir óeðlilegt að byggingarréttur sé óafturkræfur. Þá geti hluti gamla bæjarins í Reykjavík glatast. Hann vill að sett verði á fót embætti umboðsmanns íbúa til að gæta hagsmuna þeirra við breytinga á skipulagi. 25.9.2007 18:45
Herforingjastjórninni refsað Bandaríkjaforseti boðar refsiaðgerðir gegn herforingjastjórninni í Myanmar vegna mannréttindabrota. Fjölmenn mótmæli voru í stærstu borg landsins - áttunda daginn í röð - þar sem lýðræðis var krafist. 25.9.2007 18:45
Óttast um öryggi sitt vegna nauðgunarsenu Tólf ára afganskur aðalleikari í kvikmyndinni Flugdrekahlauparinn vill að nauðgunaratriði verði klippt úr myndinni. Hann óttast um öryggi sitt og fjölskyldu sinnar vegna þess. Þau verið jafnvel útskúfuð. 25.9.2007 18:45
Skuggaráðuneyti Samfylkingarinnar Samfylkingin í Reykjavík hefur komið á fót skuggaráðuneytum í Reykjavík. Borgarstjórnarflokkurinn hefur skipt með sér verkum og skipað talsmenn í einstökum málaflokkum. 25.9.2007 18:38
Engar fyrirliggjandi breytingar á peningastefnu Seðlabankans Forsætisráðherra segir ekkert liggja fyrir um breytingar á peningastefnu Seðlabankans, en segir engin lög það merkileg að ekki megi breyta þeim. Varðandi gagnrýni utanríkisráðherra á síðustu ríkisstjórn segir hann að kosningabaráttunni hafi lokið 12.maí. 25.9.2007 18:27
Fimm milljónir gegn dauðarefsingu Á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í október 2007 verður lögð fram ályktun um að aftökur verði stöðvaðar um heim allan. Talið er að ályktunin verði fyrsta skrefið í átt að afnámi dauðarefsingarinnar. Hægt er að skrá sig á sérstaka bænaskrá gegn dauðarefsingum og hafa nú þegar 5 milljónir manna gert slíkt. 25.9.2007 18:09
Þeir sem deila um Norðurpólinn gætu lært af landhelgisdeilunni Björn Bjarnason dóms- og kirkjumálaráðherra er staddur í Tromsö í Noregi á ráðstefnu um öryggi og auðlindir á Norðurslóðum. Þar hélt hann erindi þar sem fram kom að lausn deilunnar um yfirráð yfir Norðurpólnum gæti falist í því hvernig Íslendingar leystu landhelgisdeiluna á sínum tíma. 25.9.2007 18:00
Staða tjónþola bætt um milljónir kr. Drög að lagafrumvörpum vegna breytinga á hafnalögum, siglingalögum og lögum um skipan ferðamála voru kynnt í ríkisstjórn í morgun og samþykkt að þau færu til umfjöllunar í þingflokkum ríkisstjórnarflokkanna. Meðal annars á að stórbæta stöðu tjónþola við slys eða dauðsföll. 25.9.2007 17:45
Vilja bjóða grunnskólabörnum frítt inn á skíðasvæði Stjórn skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins hefur uppi hugmyndir um að bjóða grunnskólabörnum allra aðildarsveitarfélaga skíðasvæðanna frítt inn á skíðasvæðin frá áramótum og til reynslu til tveggja ára. Þá stefnir stjórnin áfram að undirbúningi snjóframleiðslu í bæði Bláfjöllum og Skálafelli. 25.9.2007 17:12
Ökumaður sem velti ekki undir áhrifum fíkniefna Í frétt Vísis af bílveltu í Þrengslunum á laugardaginn var því haldið fram í fyrirsögn að ökumaðurinn hefði verið undir áhrifum fíkniefna. Fyrirsögnin var í engum takti við innhald greinarinnar þar aðeins kom fram að lögreglan grunaði ökumanninn um hafa verið undir áhrifum fíkniefna. Slíkt reyndist ekki vera raunin og biður ritstjórn Vísis hlutaðeigandi ökumann afsökunar á tilhæfulausri fyrirsögn. 25.9.2007 17:09