Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Björgvin segir ónafngreinda sjálfstæðismenn vera bleyður Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra finnst ekki mikill mannabragur á þeim ónafngreindu þingmönnum Sjálfstæðisflokksins sem gagnrýndu hann í Viðskiptablaðinu í gær fyrir ákafa í að koma evru- og Evrópumálum á dagskrá. „En broslegt er það nú í besta falli að kapparnir skuli ekki geta verið menn til að tala undir nafni," segir Björgvin í nýrri færslu á heimasíðu sinni. 12.9.2007 13:24
Þorkell Helgason hættir sem orkumálastjóri Dr. Þorkell Helgason hættir sem orkumálastjóri um áramót. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Orkustofnun. Þar segir að Þorkell hafi af persónulegum ástæðum óskað eftir þessu við iðnaðarráðherra og hann fallist á óskina. 12.9.2007 12:59
Frú Vigdís Finnbogadóttir gisti alltaf á D´Angleterre Hotel D´Angleterre sem nú er komið í eigu Íslendinga er eitt þekktasta hótel Norðurlandanna og iðjulega gististaður þeirra þjóðhöfðingja sem koma í heimsókn til Kaupmannahafnar. Þegar frú Vigdís Finnbogadóttir fyrrum forseti Íslands kom til borgarinnar hér á árum áður gisti hún ávallt á D' Angleterre. Auk þeirra hafa nær allir frægustu kvikmyndaleikarar og tónlistamenn heims gist hótelið ef þeir hafa verið í borginni. 12.9.2007 12:53
SAS tapar allt að 150 milljónum á dag vegna Dash-vandræða Norræna flugfélagið SAS tapar á bilinu 100-150 milljónum á dag vegna þeirrar ákvörðunar forsvarsmanna félagsins að setja allar Dash 8 vélarí flugbann eftir ítrekaðar bilanir í lendingarbúnaði. 12.9.2007 12:45
Einkennilegur áróður fyrir álveri í Helguvík þótt ekkert sé að gerast Mikill og einkennilegur áróður er rekinn fyrir álveri í Helguvík þótt þar sé ekkert að gerast. Þetta segir forstjóri Orkuveitu Húsavíkur. 12.9.2007 12:30
Foreldrar Madeleine vilja láta rannasaka bílaleigubílinn sjálf Foreldrar Madeleine McCann íhuga nú að láta gera sjálfstæða rannsókn á bílaleigubílnum sem þau leigðu í Portúgal. Bresk lögregla fann lífsýni úr stúlkunni í bílnum, en foreldrarnir tóku hann á leigu um þremur vikum eftir að Madeleine litla hvarf frá hótelíbúð þeirra í Portúgal. 12.9.2007 12:27
Rok og rigning hamla ekki hjólagörpum í grunnskólunum Krakkar í Fossvogsskólanum létu ekki rok og rigningu aftra sér frá því að hjóla í skólann í morgunn en í dag er sérstakur umhverfisdagur í grunnskólum Reykjavíkur. 12.9.2007 12:10
Flóðbylgjuviðvarandir vegna jarðskjálfta í Indónesíu Yfirvöld í Indlandi og Malasíu hafa gefið út flóðbylgjuviðvaranir í kjölfar þess að tveir öflugir jarðskjálftar skóku indónesísku eyna Súmötru með skömmu millibili fyrr í dag. Skjálftarnir voru um átta á Richter kvarða, og sá fyrri fannst allt til Singapore og Tælands. Fjöldi bygginga í Padang á vesturströnd eyjunnar hrundi til grunna í kjölfar skjálftanna. 12.9.2007 12:08
Segja yfirmann fjölskyldudeildar hafa verið rekinn fyrir ummæli Oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi segir segir að yfirmaður fjölskyldudeildar hafi verið rekinn eftir að hún hélt því fram í fjölmiðlum að deildin væri undirmönnuð. Nokkrum síðar var gerður við hana starfslokasamningur. Samfylkingarmenn hafa krafist þess að fá að sjá starfslokasamninginn en við því hefur ekki verið orðið enn. 12.9.2007 11:53
Tveir gríðaröflugir jarðskjáltar skekja Indónesíu Tveir skjálftar um 8 á Richterkvarða skóku indónesísku eyna Súmötru með skömmu millibili fyrr í dag. Að sögn bandarískrar jarðskjálftaeftirlitsstofu gætu þeir valdið fljóðbylgju. 12.9.2007 11:49
Staðfesti úrskurð Samkeppniseftirlitsins vegna Icelandair og Bláfugls Áfrýjunarnefnd samkeppnismála hefur staðfest ákvörðun Samkeppniseftirlitsins í máli á hendur Icelandair Group og Bláfugli vegna samruna félaganna. Samkeppniseftirlitið ákvað í sumar að breyta skilyrðum sem sett voru í ákvörðun samkeppnisráðs vegna samruna FL Group, Bláfugls og og Flugflutninga árið 2005. 12.9.2007 11:48
Skjalda setti framleiðslumet Fólki hefur fjölgað hratt á Íslandi undanfarin misseri, einkum með erlendu vinnuafli sem hefur streymt til landsins. Fyrir einu og hálfu ári var fyrirsjáanlegt að skortur yrði á mjólk og mjólkurvörum. Stjórnvöld biðluðu þá til bænda að auka framleiðsluna. Bændur brugðust svo vel við að það vara sett framleiðslumet, 125 milljónir lítra. 12.9.2007 11:35
Hafnarstjórn og Hvalfjarðarsveit vilja bjóða sameiginlega í NATO-eigur Faxaflóahafnir og sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar ræða nú saman um sameignlegt tilboð í fyrrum eigur NATO í Hvalfirði. "Okkar áhugi beinist fyrst og fremst að bryggjunni sem er til staðar þarna," segir Gísli Gíslason hafnarstjóri Faxaflóahafna í samtali við Vísi. "Við getum vel hugsað okkur bryggjuna sem lið í framtíðaráformum okkar." 12.9.2007 11:31
Fékk útsýnislóð út á spaðaásinn Jónas Gestur Jónasson varð hlutskarpastur í útdrætti um eftirsótta lóð á Húsavík á dögunum. Alls sóttu 33 um lóðina, sem stendur á fallegum útsýnisstað í bænum, en dregið var úr umsækjendum með aðstoð spilastokks. 12.9.2007 11:16
Forstjóraskipti í Leifsstöð Höskuldur Ásgeirsson hefur ákveðið að láta af störfum sem forstjóri Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar ohf. í lok nóvember nk. og staðgengill forstjóra, Elín Árnadóttir, tekur þá við starfi forstjóra félagsins. 12.9.2007 11:09
Tvö umferðarslys á sömu mínútunni Tvö umferðarslys voru tilkynnt til lögreglunnar á Akureyri í gærkvöld á sömu mínútunni og urðu bæði á sérstökum akstursbrautum í nágrenni bæjarins. 12.9.2007 11:00
Kyrrsetningar á Dash 8 hafa ekki áhrif á flugvélakaup Gæslunnar Ný flugvél Landhelgisgæslunnar sem pöntuð hefur verið, er af svipaðri gerð og þær vélar sem nú hafa verið kyrrsettar um allan heim. Gæsluvélin er af gerðinni Dash 8 300, en vélarnar sem kyrrsettar hafa verið eru Dash 8 400. Fjármálastjóri gæslunnar segir málið engin áhrif hafa á kaupin á nýju vélinni. 12.9.2007 10:56
Geir í víking til Írlands Geir H. Haarde forsætisráðherra hefur í dag opinbera heimsókn sína til Írlands en hún stendur fram á föstudag. Meðal þeirra sem Geir fundar með eru Bertie Ahern, forsætisráðherra Írlands, Michéal Martin, viðskiptaráðherra, og Brian Lenihan, dómsmálaráðherra, auk þess sem hann hittir Mary McAleese, forseta Írlands. 12.9.2007 10:36
Ákærður fyrir að slá dyravörð á Króknum Ákæra á hendur karlmanni fyrir árás á dyravörð á skemmistað á Sauðárkróki í maí síðastliðnum var þingfest í Héraðsdómi Norðurlands vestra í gær. 12.9.2007 10:25
Nærri fimm segja sig úr Þjóðkirkjunni daglega Trúleysingar í félaginu Vantrú fullyrða á vefsvæði sínu að þeir hafi skráð hartnær fimm hundruð manns úr Þjóðkirkjunni í sérstöku átaki til að skrá einstaklinga úr trúfélögum. Undanfarinn mánuð hafa þrír sagt sig úr Þjóðkirkjunni á dag í gegnum vefsvæði Vantrúar en í heildina tekið segja sig fimm úr Þjóðkirkjunni á degi hverjum. 12.9.2007 10:23
Hass í póstkassa Hass og kannabisefni fundust á heimili konu á Norðurlandi sem ákærð hefur verið fyrir fíkniefnalagabrot. Ákæra á hendur henni var þingfest í Héraðsdómi Norðurlands vestra í gær. 12.9.2007 10:14
Enn verða banaslysin í umdæmi Selfosslögreglu Átta slys hafa orðið í umferðinni í ár. Fimm þeirra í umdæmi lögreglunnar á Selfossi. Þá lést ökumaður eftir árekstur bifhjóls og strætisvagns við Akranes 16. júlí síðastliðinn. Í byrjun júlí lést ökumaður eftir bílveltu við Norðurá og banaslys varð eftir bílveltu í Hörgárdal í mars. 11.9.2007 21:36
Kynferðisabrotamaður lék í jóladagatali TV2 Danska sjónvarpsstöðin TV2 þarf að hætta við sýningu á jóladagatali sínu, eftir að einn leikaranna í því var dæmdur fyrir kynferðisbrot gegn barni. Dagatalið ,,Mikkel og Gullkortið" verður sýnt á næsta ári, eftir að atriði með leikaranum hafa verið klippt út. 11.9.2007 19:42
SAS flugvélar í rannsókn Tveimur flugvélum SAS flugfélagsins, sömu tegundar og þeirrar sem var lent við illan leik í Álaborg á sunnudag, var snúið við í gær vegna bilunar. Allar flugvélar þessarar tegundar eru nú í rækilegri skoðun. 11.9.2007 19:00
Íslendingar næst umburðalyndastir allra þjóða Íslendingar eru næst umburðarlyndastir allra vestrænna þjóða. Svíar eru umburðarlyndastir samkvæmt nýrri rannsókn sem unnin er af tveimur virtum háskólum, öðrum breskum og hinum áströlskum. 11.9.2007 18:45
6 ár frá hryðjuverkum Sex ár eru í dag frá hryðjuverkaárásunum á Bandaríkin. Minningarathafnir voru haldnar í New York, Washington og Pennsylvaníu í dag. Á sama tíma og Bandaríkjamenn syrgja sendu al Kaída hryðjuverkasamtökin frá sér myndband þar sem Osama bin Laden lofsyngur einn flugræningjann. 11.9.2007 18:45
Sjálfstæðisflokkurinn þarf að hugsa sinn gang Sjálfstæðisflokkurinn hefur barið höfðinu í steininn í stað þess að kanna gaumgæfilega hvort raunhæft og æskilegt sé að taka upp evru hér á landi, segir Valgerður Sverrisdóttir, fyrrverandi utanríkisráðherra. 11.9.2007 18:44
Ekki brot á samningum Boðaðar aðgerðir Flugfreyjufélags Íslands eru brot á kjarasamningum segir forstjóri Icelandair. Ekki rétt segir formaður félagsins en á fjölmennum félagsfundi flugfreyja í gær var ákveðið að vinna ekki yfirvinnu. 11.9.2007 18:42
4 milljarðar í djúpborunarverkefni Íslendingar munu fyrstir þjóða hefja djúpborun en samningur þar að lútandi hefur verið undirritaður. Meðal þeirra sem taka þátt í samningnum er álfyrirtækið Alcoa sem leggur 300 milljónir króna verkefnisins. 11.9.2007 18:40
FHM birti mynd af berbrjósta táningsstúlku Karlatímaritið FHM braut siðareglur þegar það birti mynd af berbrjósta fjórtán ára stúlku, en myndin var tekin án samþykkis hennar. Siðanefnd fjölmiðla í Bretlandi komst að þessu. 11.9.2007 18:37
Stærst í jarðhitavirkjunum Safna á fimmtíu milljörðum til að fjármagna útrásararm Orkuveitu Reykjavíkur sem ætlar að verða stærsta jarðhitafyrirtæki í heimi. Bjarni Ármannsson hefur lagt hálfan milljarð í púkkið. 11.9.2007 18:30
Ekki fórna öryggi fyrir minni mengun Ekki má fórna öryggi vegfarenda til að draga úr svifryki, segir framkvæmdastjóri FÍB, og er andvígur því að leggja gjald á þá sem nota nagladekk eins og vinnuhópur hefur lagt til. 11.9.2007 18:30
Ætla að fylgjast með erlendum starfsmönnum Jóhanna Sigurðardóttir, félagsmálaráðherra, hefur ákveðið að fara í skipulagt átak til að fylgjast með fyrirtækjum sem hafa erlenda starfsmenn í vinnu. Þetta var niðurstaða fundar sem ráðherra átti með forystumönnum Alþýðusambands Íslands í dag. 11.9.2007 18:29
Hefnd úr hæstu hæðum ? Hin umdeilda auglýsingu Símans, þar sem síðasta kvöldmáltíðin er sviðsett hefur verið afturkölluð. Ekki er það þó að kröfu sannkristinna heldur virðist í auglýsingunni sem bæði Jesús og Júdas séu viðskiptavinir Vodafone. Síminn er þarna að auglýsa nýjustu tegund af farsímum sínum, sem eru myndsímar með meiru. Og mikið rétt, það eru þarna myndir af Jesús og Júdasi. En undir myndunum má sjá glitta í merki Vodafone. 11.9.2007 17:30
Komið í veg fyrir sprengjuárás í Tyrklandi Tyrkneskri lögreglu tókst í dag að koma í veg fyrir alvarlegt sprengjutilræði, þegar hún fann bíl hlaðinn sprengiefni í margra hæða bílageymslu í höfuðborg landsins, Ankara. 11.9.2007 16:56
Vill fund hið fyrsta vegna hugmynda Þorbjargar Helgu Helga Björg Ragnarsdóttir, fulltrúi Vinstri - grænna í leikskólaráði, hefur óskað eftir fundi í ráðinu hið fyrsta í ljósi ummæla Þorbjargar Helgu Vigfúsdóttur, formanns leikskólaráðs, um mögulegar breytingar á rekstrarformi leikskóla borgarinnar. 11.9.2007 16:49
Rauðu símaklefarnir hverfa í Bretlandi Útlit er fyrir að rauðu símaklefarnir í Bretlandi séu að renna sitt skeið. Breska símafélagið vill losna undan rekstri þeirra. Þeir eru enda reknir með dúndrandi tapi nú þegar níu af hverjum tíu Bretum yfir 13 ára aldri eiga farsíma. Víst er þó að símaklefarnir setja svip sinn á borgir og bæi, og þeirra verður saknað. 11.9.2007 16:36
Faxaflóahafnir selja hlut sinn í Hafnarhúsinu Stjórn Faxaflóahafna samþykkti á fundi sínum í dag tillögu Björns Inga Hrafnsson, formanns stjórnarinnar, að fela hafnarstjóra að auglýsa eignarhluta hafnarinnar í Hafnarhúsinu við Tryggvagötu, skrifstofuhúsnæði í Laugarnesi og Slysavarnafélagshúsið að Grandagarði 14. til sölu. 11.9.2007 16:24
10 ára stúlka finnst stórslösuð í Danmörku Tíu ára stúlka fannst í dag liggjandi í blóði sínu í undirgöngum í Hellerup, rétt fyrir utan Kaupmannahöfn. Hún var flutt á spítala í snarhasti, og leiddi rannsókn þar í ljós að hún var þrí-höfuðkúpubrotin. Hún er þó ekki í lífshættu. 11.9.2007 16:04
Byrja á fyrstu djúpborunarholunni næsta sumar Hafist verður handa við að bora fyrstu djúpborunarholuna hér á landi við Kröflu næsta sumar samkvæmt samkomulagi sem kynnt var í dag. Holan verður 4-5 kílómetra djúp. Þá verða boraðar tvær aðrar djúpar holur, á Reykjanes og á Hengilssvæðinu. 11.9.2007 15:48
Reykjavík Energy ætlar að nota 50 milljarða kr. í útrásarverkefni Reykjavik Energy Invest hyggst búa yfir um 50 milljarða króna hlutafé til að hefja fjármögnun alþjóðlegra jarðhitaverkefna. Eftir að hóf starfsemi hefur fjöldi erlendra og innlendra fjárfesta lýst yfir áhuga á þátttöku í fyrirtækinu. Stefnt er að því að gefa út nýtt hlutafé í fyrirtækinu og að Orkuveita Reykjavíkur verði kjölfestufjárfestir með um 40% hlutafjár. 11.9.2007 15:41
Hallbjörn endurheimtir Skagaströnd Hallbjörn Hjartarson kántrímeistari og útvarpsstjóri segist ánægður með að búa aftur á Skagaströnd, en það nefnist heimahreppur hans nú á ný, eftir að nafninu var breytt úr Höfðahreppi í byrjun mánaðarins. 11.9.2007 15:32
Fjölgar í strætó eftir að frítt varð fyrir nema 36 þúsund fleiri tók strætó í ágúst síðastliðnum en í sama mánuði í fyrra og nemur aukningin fimm prósentum á milli ára. Vöxtinn má rekja til þess að framhaldsskólanemar fengu frítt í strætó eftir því sem segir í frétt frá umhverfissviði borgarinnar. 11.9.2007 15:15
Íslenskt vatn tilnefnt til verðlauna vegna sjálfbærni Vatn frá Icelandic Glacial, sem er í eigu Jóns Ólafssonar, keppir í lokaúrslitum um þekktustu verðlaun sem veitt eru fyrir vatnsframleiðslu í heiminum. Verðlaunin nefnast BottledWaterWorld Awards og eftir því sem fram kemur í tilkynningu etur Icelandic Glacial kappi við Coca Cola og Danone, sem framleiðir hið fræga Evian-vatn, um verðlaunin. 11.9.2007 15:00
Íslensk stjórnvöld berjast gegn barnahermennsku Íslensk stjórnvöld hafa á undanförnum árum styrkt verkefni gegn barnahermennsku í Mið-Afríku, Sri Lanka og Síerra Leone. Verkefnin eru bæði á vegum Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, UNICEF, og Rauða krossins og miða að því að koma börnum sem gegnt hafa barnahermennsku til hjálpar og gera þeim kleift að takast á við eðlilegt líf. Í ár hefur Ísland einnig styrkt verkefni Rauða krossins vegna baráttu gegn barnahermennsku í Síerra Leóne. 11.9.2007 14:42