Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
HA hýsir nýja meistaranámsleið fyrir HV Háskólinn á Akureyri og Háskólasetur Vestfjarða hafa skrifað undir viljayfirlýsingu um að Háskólinn á Akureyri taki að sér að hýsa nýja námsleið Háskólaseturs Vestfjarða í haf- og strandsvæðastjórnun. 11.9.2007 13:54
Hátt í 8.000 Pólverjar fá kennitölu á einu ári Samkvæmt upplýsingum frá Þjóðskrá fengu tæplega 15.000 útlendingar úthlutað kennitölu á tímabilinu frá 1. ágúst í fyrra og til 31. júlí í ár. Af þessum fjölda eru 7.665 Pólverjar. Næstflestir eru Lithár eða 994, Þjóðverjar eru 594 og Lettar eru 520 svo dæmi séu tekin. 11.9.2007 13:12
Engar afgerandi sannanir gegn foreldrum Madeleine Portúgalska lögreglan hefur borið til baka fréttir um að hún hafi undir höndum sönnunargögn sem muni leiða til ákæru á hendur foreldrum Madeleine McCann. Ríkislögreglustjóri Portúgals sagði í sjónvarpsviðtali í gær að lögreglan hafi aðeins fengið hluta af sýnum sem send voru til rannsóknar í Bretlandi. Niðurstöður þeirra séu enganvegin jafn afgerandi og haldið hefur verið fram í fjölmiðlum. 11.9.2007 13:07
Orkuveitan rukkar milljónir fyrir verk sem áður voru unnin án gjalds Gunnar Birgisson, bæjarstjóri í Kópavogi segir augljóst að stefnubreyting hafi orðið hjá Orkuveitu Reykjavíkur undanfarið. Hann segir fyrirtækið rukka ótæpilega fyrir verk sem áður var ekki rukkað fyrir. Hann tekur ný dæmi af Nýbýlavegi og Dalvegi þar sem OR hafi farið fram á margar milljónir króna fyrir að færa til lagnir. 11.9.2007 12:30
Flytja inn falsstinningarlyf í stórum stíl Íslenskir karlmenn virðast ekki vera neinir eftirbátar norskra kynbræðra sinna í að falla fyrir gylliboðum sem berast í tölvupósti og lofa stórstígum framförum í bólinu. 11.9.2007 12:30
Páll ber höfuð og herðar yfir norræna útvarpsstjóra í bílamálum Páll Magnússon útvarpsstjóri ber höfuð og herðar yfir aðra útvarpsstjóra á Norðurlöndunum í bílamálum. Raunar er aðeins einn þeirra, Kenneth Plummer, hjá Dansk Radio með bíl á vegum fyrirtækisins og kemst sá ekki í hálfkvist við Audi Q-7 glæsijeppa Páls upp á 9,2 milljónir kr. Plummer keyrir um á Honda CR-V Executive árgerð 2005 sem kostar um 2,7 milljónir kr. 11.9.2007 12:19
Einungis átta prósent vilja leggja niður Íbúðalánasjóð Aðeins átta prósent fasteignakaupenda vilja að bankarnir taki alfarið við húsnæðislánum og að Íbúðalánasjóður verði lagður niður. Þetta kemur fram í nýrri könnun Capacent Gallup. 11.9.2007 12:16
Petraeus gagnrýndur Demókratar á Bandaríkjaþingi vísa á bug fullyrðingum yfirmanns bandaríska heraflans í Írak um að markmiðum þar hafi verið náð með fjölgun í herliðinu. Herforinginn segir fyrst hægt að kalla hermenn heim næsta sumar en margir þingmenn vilja hefja heimkvaðninguna strax. 11.9.2007 12:14
Nýtt myndband í tilefni dagsins Sex ár eru liðin frá hryðjuverkaárásunum á Bandaríkin hinn 11. september 2001. Af því tilefni hefur Osama bin Laden, leiðtogi Al Kaída, sent frá sér nýtt myndband þar sem hann lofsyngur einn árásarmannanna. 11.9.2007 12:12
Segir álagsgreiðslur hafa verið blekkingar Álagsgreiðslur til leikskólakennara sem borgarráð samþykkti nýlega voru blekking og til þess gerðar að friðþægja samfélagið, segir formaður Félags leikskólakennara. Formaður Leikskólaráðs segir verið að útfæra greiðslurnar svo þær nái líka til leikskólanna. 11.9.2007 12:07
Vitlaus og vanhugsuð ákvörðun Valgerður Sverrisdóttir, fyrrverandi utanríkisráðherra, segir það vanhugsaða og vitlausa ákvörðun hjá arftaka sínum að kalla heim íslenskan upplýsingafulltrúa í Írak. Utanríkisráðherra sé að slá sig til riddara heimafyrir í stað þess að vinna með bandalagsþjóðum í NATO. 11.9.2007 12:00
Riddarakross fyrir störf í þágu íslenskunnar Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, sæmdi í dag tvo prófessora við Háskólann í Leeds riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu fyrir störf þeirra í þágu íslenskrar tungu og íslenskra fræða. 11.9.2007 11:43
Hlutfall vanskila hjá einstaklingum ekki lægri í sex ár Hlutfall vanskila af útlánum fjármálafyrirtækja reyndist 0,6 prósent á öðrum ársfjórðungi þessa árs. Það er 0,1 prósentustigi minna en á fyrsta ársfjórðungi. Tölur Fjármálaeftirlitsins sýna vanskilahlutföll af lánum hafa verið á bilinu 0,5 til 0,7 prósent á síðustu síðustu tveimur árum og eru það lægstu hlutföll vanskila sem sést hafa á rúmlega sex ára tímabili sem yfirlit Fjármálaeftirlitsins nær yfir. 11.9.2007 11:33
Ekki búist við að aðgerðir flugfreyja raski flugi Icelandair á ekki von á að boðaðar aðgerðir flugfreyja valdi röskun á flugi félagsins. Á fjölmennum félagsfundi Flugfreyjufélagsins í gær var samþykkt ályktun þar sem uppsagnir voru harmaðar og að farið skyldi að því fordæmi flugmanna að vinna ekki umfram vinnuskyldu. 11.9.2007 11:29
Áhrifa kaupstefnunnar í Frankfurt gætir langt út fyrir bókmenntirnar Verði Íslendingar fyrir valinu sem gestaþjóð á bókakaupstefnunni í Frankfurt árið 2011 mun áhrifanna hér á landi gæta langt út fyrir bókmenntirnar, segir framkvæmdastjóri JPV útgáfu. Hann telur Íslendinga eiga góða möguleika á að hreppa hnossið en þeir etja kappi við Finna um sætið. 11.9.2007 11:09
Afrekaskrá ráðherra misrýr eftir hveitibrauðsdaga Þegar litið er á hvað ráðherrar ríkisstjórnarinnar hafa afrekað á hveitibrauðsdögum ríkisstjórnarinnar í sumar er eftirtekjan misrýr eftir embættum. Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráðherra ber af en embætti hennar hefur mokað frá sér hverju málinu á fætur öðru í þágu skjólstæðinga sinna. 11.9.2007 10:44
Engin ákvörðun í máli lögreglumanns sem misnotaði aðstöðu sína Enn hefur engin ákvörðun verið tekin af hálfu Ríkislögreglustjóra í máli lögreglumannsins sem ákærður var fyrir að misnota stöðu sína með því að láta aka sér í forgangsakstri út á Keflavíkurflugvöll. Manninum var gert að greiða 200 þúsund krónur í sekt en verið er að meta hvort hann haldi starfi sínu í lögreglunni. 11.9.2007 10:35
Heimilt að rífa norskt skip Hæstiréttur Indlands leyfði í dag að byrjað yrði að rífa gamalt norskt skemmtiferðaskip sem hefur legið við akkeri undan strönd landsins í rúmt ár. Umhverfissamtök hafa barist gegn því að leyfið yrði veitt á þeim forsendum að í skipinu séu yfir 900 tonn af eitruðum úrgangi. Það skapi mikla hættu fyrir verkamenn í slippnum þar sem rífa á skipið. 11.9.2007 10:34
Kviknaði í neyðarlýsingarskilti Eldinn í verslun Pennans í Hafnarfirði í morgun má rekja til neyðarlýsingarskiltis í versluninni. Vaktstjóri hjá slökkviliðinu segir það kaldhæðnislegt að eldurinn hafi kviknað með þessum hætti en skiltinu er ætlað að lýsa fólki leiðina út úr versluninni, komi upp neyðartilvik, til dæmis eldsvoði. 11.9.2007 10:07
Dregur úr vöruskiptahalla milli mánaða Vöruskiptajöfnuður var neikvæður um 12 milljarða í ágúst síðastliðnum samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofunnar. Fram kemur í frétt fjármálaráðuneytisins um málið að vöruskiptahallinn hafi minnkað á milli mánaða en hann var nærri 15 milljarðar í júlí. 11.9.2007 09:42
Fyrrverandi frú Reagan látin Óskarsverðlaunaleikkonan Jane Wyman lést á heimili sínu í Palm Springs í Kalíforníu í kvöld. Wyman var fyrsta eiginkona Ronalds Reagan fyrrverandi Bandaríkjaforseta. Hún lék í sjónvarpsmyndaflokknum vinsæla Falcon Crest. Wyman byrjaði að leika í kvikmyndum á fjórða áratug síðustu aldar, þegar hún gerði samning við Warner Bros framleiðendurna. 10.9.2007 23:26
Þjóðverjar hafa 10 daga til að kveða herlið sitt heim frá Afganistan Íraskir skæruliðar, sem kalla sig Örvar réttlætisins, segja að Þjóðverjar hafi 10 daga til að kveða herlið sitt frá Afganistan. Að öðrum kosti muni þeir drepa þýsk-íraskan gísl sem þeir hafa í haldi. 10.9.2007 23:08
McCann hjónin gætu misst tvíburana Svo gæti farið að tveggja ára gamlir tvíburar McCann hjónanna yrðu settir í umsjá barnaverndaryfirvalda, í kjölfar langs fundar breskra félagsráðgjafa og lögreglu í gær um framtíð fjölskyldunnar. 10.9.2007 20:00
Tveir létust í jarðgangaslysi á Ítalíu Tveir létust og um 150 voru fluttir á sjúkrahús með reykeitrun eftir að bíll skall á öryggisgrindverk með þeim afleiðingum að það kviknaði í honum í jarðgöngum á norður Ítalíu í dag. 10.9.2007 19:23
Öll spjót beinast að móður Madeleine Portúgalska lögreglan telur sig hafa nægar sannanir til að ákæra móður Madeleine McCann fyrir manndráp af gáleysi. Breska blaðið Times fullyrðir þetta í dag. Í kvöld hafði svo Sky-fréttastofan eftir heimildarmönnum að DNA sýni Madeleine hefðu fundist í bílaleigubíl hjónann sem þau tóku á leigu eftir að hún hvarf. 10.9.2007 19:07
Bandarískum hermönnum ekki fækkað strax Meira en helmingur Íraka segir árásir á bandaríska hermenn í landinu réttlætanlegar. Skýrsla um framvindu stríðsins í Írak var kynnt í dag. Þar er lagt til að bandarískum hermönnum verði ekki fækkað fyrr en næsta sumar. 10.9.2007 19:05
Íslendingar meðal þeirra bestu í heimi í nýsköpun Íslendingar eru meðal fremstu þjóða heims samkvæmt bandarískum lista yfir hnattræna sköpunargáfu. Bandaríski prófessorinn Richard Florida hrósar Íslendingum í hástert fyrir sköpunarþrótt í nýlegri metsölubók. 10.9.2007 18:45
Gengur vel í Írak Árangur þess að fjölga í herlilði Bandaríkjamanna í Írak er að mestu í samræmi við markmið. Þetta sagði yfirmaður herafla Bandaríkjanna í Írak, hershöfðinginn David Petraeus, í skýrslu um framvindu stríðsins í landinu sem hann kynnti fyrir Bandaríkjaþingi í dag. 10.9.2007 18:39
Straumur ætlar að tvöfalda starfsemina á þremur árum Straumur-Burðarás ætlar að tvöfalda starfsemi sína á næstu þremur árum með kaupum á fyrirtækjum og með því að styrkja núverandi starfsemi sína. Stjórnendur bankans segja það ekki sitt hlutverk að svara því hverjir séu eigendur fimm prósenta hlutar sem keyptur var fyrir fáeinum vikum. 10.9.2007 18:33
Aðeins fjögur almenningssalerni í miðborginni Aðeins fjögur almenningssalerni eru í miðborg Reykjavíkur og eru tvö þeirra lokuð að hluta eða öllu leyti á næturnar. Lögreglan handtók á þriðja tug manna um helgina fyrir að kasta af sér vatni á almannafæri. 10.9.2007 18:32
Sveitarfélögin vilja jafnlaunastefnu - ekki KÍ Formaður leikskólakennara vísar meintri jafnlaunastefnu KÍ til föðurhúsanna og segir að það séu sveitarfélögin sem komi í veg fyrir að hægt sé að bæta kjör leikskólakennara á höfuðborgarsvæðinu. Hugmyndir meirihlutans um fyrirtækjaleikskóla myndu ýta undir stéttskiptingu, segir fulltrúi Samfylkingarinnar í leikskólaráði. 10.9.2007 18:30
Ellefu teknir fyrir ölvunarakstur um helgina Ellefu ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Sex voru stöðvaðir á laugardag, fjórir á sunnudag og einn í nótt. Níu voru teknir í Reykjavík og tveir í Hafnarfirði. Þetta voru níu karlar á aldrinum 20-48 ára og tvær konur. Önnur er á þrítugsaldri en hin á fimmtugsaldri, eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni. 10.9.2007 18:24
Fasteignakaupendur vilja Íbúðalánasjóð í óbreyttri mynd Mikill meirihluti fasteignakaupenda vill að Íbúðalánasjóður starfi áfram í óbreyttri mynd. Þetta kemur fram í nýrri könnun sem Capacent Gallup gerði fyrir Íbúðalánasjóð í júní og júlí. Tæplega 83% eru þessarar skoðunar samkvæmt könnuninni. Ámóta margir og í sambærilegri könnun í lok síðasta árs. 10.9.2007 18:10
Níu manns bjargað þegar skúta varð vélarvana Níu manns var bjargað eftir að skipstjóri lítillar skútu óskaði eftir hjálp Landhelgisgæslunnar þar sem skútan var vélarvana og með rifin segl. Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar kallaði eftir aðstoð nærstaddra skipa um leið og hjálparbeiðnin barst. Varðskipið Týr var skammt undan og hélt strax á svæðið til aðstoðar skútunni. 10.9.2007 17:52
Reynir að skýla sér á bak við nefnd vegna stórra orða Valgerður Sverrisdóttir, fyrrverandi iðnaðarráðherra, segir Össur Skarphéðinsson, núverandi iðnaðarráðherra, reyna að skýla sér á bak við nefnd um vatnalög, sem hann segir Valgerði ekki hafa skipað, til þess að komast út úr vandræðum vegna stórra orða um vatnalögin. 10.9.2007 17:14
Nægar sannanir gegn móður Madeleine -The Times Breska blaðið The Times segir að portúgalska lögreglan telji sig hafa nægar sannanir til þess að ákæra móður Madeleine MCann fyrir manndráp af gáleysi. Jafnframt verði hún þá kærð fyrir að fela lík telpunnar. The Times segir að lögreglan hafi orðið fjúkandi reið þegar hætt var við að kæra Kate McCann, eftir að lögfræðingur hennar hafði átt fund með ríkissaksóknara Portúgals. 10.9.2007 16:39
Eins mánaðar dómur fyrir fíkniefna- og umferðarlagabrot Héraðsdómur Suðurlands dæmdi í dag karlmann í eins mánaðar fangelsi fyrir fíkniefna- og umferðarlagabrot. Jafnframt var hann sviptur ökuleyfi ævilangt. 10.9.2007 16:21
Gagnagrunnar hafi lagastoð og lúti eftirliti Dóms- og kirkjumálaráðuneytið hafnar því að ekki sé heimild fyrir þeim gagnagrunnum sem greiningardeild embættisins hefur yfir að ráða. Í yfirlýsingu frá ráðuneytinu vegna forsíðufréttar í Fréttablaðinu í gær kemur fram að fyrir hendi sé sérstök reglugerð um meðferð persónupplýsinga hjá lögreglu. 10.9.2007 16:08
Engin gjöld á etanólið Ákveðið hefur verið að etanól, nýjasta viðbótin í flóru vistvæns eldsneytis hér á landi, verði undanþegið gjöldum. Vörugjald á bensín er 42,3 krónur á lítra, en 41 króna á díselolíu. 10.9.2007 15:59
Talibanar segjast tilbúnir til viðræðna Háttsettur talsmaður Talibana í Afganistan segir að þeir séu reiðubúnir til viðræðna við ríkisstjórn Hamids Karzai, forseta landsins um að binda enda á sex ára skæruhernað. Karzai sendi Talibönum tilboð um viðræður, vegna vaxandi blóðsúthellinga í landinu. Hann sagði að friður næðist ekki ef menn töluðu ekki saman. 10.9.2007 15:44
Viðurkenni að aðstaðan var ekki nógu góð KSÍ hefur svarað bréfi Samtaka íþróttafréttamanna frá því morgun þar sem farið var fram á tafarlausar úrbætur á aðstöðu þeirra á Laugardalsvelli. Útspil KSÍ er að boða forsvarsmenn samtakanna á fund um hádegisbilið á morgun. Þórir Hákonarson, framkvæmdastjóri KSÍ, viðurkennir í samtali við Vísi að aðstaðan hafi ekki verið góð. Þorsteinn Gunnarsson, formaður Samtaka íþróttafréttamanna er þó ekki sáttur og býst við mæta í kraftgalla á næsta landsleik. 10.9.2007 15:35
Segja formann leikskólaráðs slá ryki í augu fólks Stjórn Kennarasambands Íslands skorar á sveitarstjórnarmenn að grípa nú þegar til úrræða sem duga til þess að leysa mannekluna á leik- og grunnskólum og greiða þau laun sem nauðynleg eru til að tryggja stöðugleika í skólastarfi. Sakar sambandið formann leikskólaráðs borgarinnar um að slá ryki augu fólks. 10.9.2007 15:17
Allir netnotendur geta nú leitað að Fossett Allir netnotendur í heiminum geta nú tekið þátt í leitinni að auðkýfingnum Steve Fossett með því að greina svæðið sem hann hvarf á. Um er að ræða óvenjulegt samstarf milli Richard Branson vinar Fossett og net-fyrirtækjanna Amazon og Google. 10.9.2007 15:01
Fann fíkniefni og vopn í húsi í miðbænum Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók í gær tvær konur á fertugsaldri og karlmann á fimmtugsaldri vegna gruns um fíkniefnamisferli, vopnalagabrot og þjófnað. 10.9.2007 14:58
Undirbúa áfram aðgerðir gegn svikafyrirtækjum Stjórn AFLs starfsgreinasambands hyggst áfram undirbúa aðgerðir gegn fyrirtækjum sem ekki hafa upplýst um kjör og skráð erlent verkafólk eins og reglur gera ráð fyrir. Sambandið býður fram krafta sína í átak félagsmálaráðherra gegn slíkum fyrirtækjum. 10.9.2007 14:36