Fleiri fréttir

Nefnd kortleggur palestinskt ríki

Ehud Olmert forsætisráðherra Ísraels og Mahmoud Abbas forseti Palestínumanna náðu í dag samkomulagi um aðskipa sameiginlega nefnd til þess að kortleggja sjálfstætt ríki palestínumanna. Leiðtogunum er í mun að hafa náð einhverjum árangri áður en Condoleeza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna kemur til Miðausturlanda í næstu viku.

Rangur skóli að ræna

Ræningi í Kólumbíu valdi sér rangan skóla til þess að veifa skammbyssu sinni í. Hann ruddist inn með miklum bæggslagangi og heimtaði alla peninga sem allir væru með. Lögreglan kom mátulega fljótt á vettvang til þess að flytja hann á sjúkrahús. Sem betur fór var stutt þangað frá karate-skólanum.

Mótmæla stóriðju á miðvikudag

Hreyfingin Saving Iceland hyggst mótmæla fyrirhuguðum virkjunum Landsvirkjunar í Þjórsá á miðvikudag en þann dag verða haldin mótmæli af ýmsum toga gegn útbreiðslu stóriðju víða um heim.

Íþróttafréttamaður tæklaður í beinni

Íþróttafréttamaður ástralskrar sjónvarpsstöðvar varð fyrir heldur óskemmtilegri reynslu í beinni útsendinu í gærkvöldi. Hann var að greina frá úrslitum í rúgbíleik fyrir utan leikvang í Melbourne þegar óð rúgbíbulla tæklaði hann til jarðar.

Abbas og Olmert funda

Mahmoud Abbas, forseti Palestínumanna, og Ehud Olmert, forsætisráðherra Ísraels, hittust til að ræða mögulega stofnun palestínsk ríkis á fundi í Jerúsalem í morgun. Fundur leiðtoganna er haldinn svo þeir geti stillt saman strengi sína fyrir ráðstefnu um málið í nóvember sem Bandaríkjamenn hafa boðað til.

Barinn í beinni

Íþróttafréttamaður ástralskrar sjónvarpsstöðvar varð fyrir heldur óskemmtilegri reynslu í beinni útsendinu í gærkvöldi. Hann var að greina frá úrslitum í rúgbí leik fyrir utan leikvang í Melborun þegar óð rúgbíbulla tæklaði hann til jarðar. Hópur manna réðst þá að fréttamanninum, Ben Davis, og gekk í skrokk á honum.

Ákærður fyrir árás á leigubílstjóra

Karlmaður á fertugsaldri hefur verið ákærður í héraðsdómi fyrir að ráðast á leigubílstjóra á Bústaðavegi 2. september síðastliðinn. Maðurinn er ákærður fyrir að veitast að leigubílstjóranum, þrítugri konu, og taka hana hálstaki með þeim afleiðingum að hún hlaut klórfar hægra megin á hálsi og roðabletti vinstramegin.

Hirsi Ali með fyrirlestur í hádeginu

Sómalski rithöfundurinn Ayaan Hirsi Ali, sem fyrir tveimur árum var valin ein af 100 áhrifamestu mönnum heims af tímaritinu Time, verður með fyrirlestur á Bókmenntahátíð Reykjavíkur nú klukkan hálfeitt.

Saksóknari fær gögn

Saksóknari í Portúgal fær í dag í hendurnar gögn vegna rannsóknar á hvarfinu á bresku telpunni Madeleine McCann. Um er að ræða það sem lögregla hefur aflað eftir að foreldrar stúlkunnar fengu réttarstöðu grunaðra í málinu í síðustu viku.

Kom og fór

Sjö ára útlegð Nawas Sharifs, fyrrverandi forsætisráðherra Pakistans, lauk í morgun en hún hófst aftur sex klukkustundum eftir heimkomuna. Músharraf lét vísa þessu svarna óvini sínum úr landi til að forða sér frá hatrammri deilu um forsetaembættið.

Reykingabannið á rétt á sér

Reykingabannið á Írlandi virðist hafa dregið úr hjarta- og æðasjúkdómum hjá Írum. Í könnun sem náði frá árunum fyrir reykingabannið til áranna eftir bannið kemur í ljós að tíðni hjarta og æðasjúkdóma drógst saman um 11 prósent, strax fyrsta árið efitr bannið.

Meirihluti vill taka upp evruna

Nærri helmingur Íslendinga eða 48 prósent eru hlynnt aðild Íslands að Evrópusambandinu samkvæmt nýrri könnun sem gerð var fyrir Samtök iðnaðarins í síðasta mánuði. Þá vilja 53 prósent taka upp evruna.

Kópavogur getur ekki fríað sig ábyrgð

Mannekla leikskólanna er stærra vandamál en svo að bærinn geti fríað sig ábyrgð á starfsmannahaldi einkarekinna leikskóla, segir Áslaug Daníelsdóttir, leikskólastjóri á Hvarfi. Leikskólafulltrúi Kópavogsbæjar segir bæinn eingöngu bera faglega ábyrgð á slíkum leikskólum.

14,7% launamunur hjá SFR

Konur eru að jafnaði með þrjá fjórðu af launum karla samkvæmt nýrri launakönnun SFR - stéttarfélags í almannaþjónustu. Núverandi ríkisstjórn hyggst minnka óútskýrðan kynbundinn launamun hjá ríkinu um helming innan fjögurra ára.

Mikael Torfason hættur hjá Birtíngi

Mikael Torfason hættur sem aðalritstjóri Birtíngs og ritstjóri Séð og heyrt. Tilkynnt var um þetta í morgun í tölvupósti til starfsmanna. Mikael hóf störf hjá Birtingi í fyrrasumar, fyrst sem ritstjóri Séð og heyrt og síðar sem aðalritstjóri Birtíngs.

Telja öryggi sitt minna eftir herferð Bandaríkjamanna

Sjö af hverjum tíu Írökum telja að öryggi á þeim stöðum þar sem Bandaríkjamenn hafa farið um í herferð sinni síðustu mánuði hafi versnað. Þetta leiðir skoðanakönnun á vegum BBC, ABC-fréttastofunnar og fleiri í ljós.

Íslenskir flugmenn eiga engan forgangsrétt í Lettlandi - forstjóri Icelandair

Stjórn Icelandair telur að flugmenn félagsins eigi engan forgangsrétt á vinnu hjá lettneska dótturfyrirtækinu Letcharter. Icelandair hafi keypt flugfélag í fullum rekstri og starfsmenn þess hljóti að hafa sín atvinnuréttindi í sínu heimalandi. Talsverð truflun hefur orðið á flugi til og frá Íslandi vegna aðgerða íslenskra flugmanna. Þeir neita að fara með málið fyrir félagsdóm, eins og Icelandair hefur boðið þeim.

Ríflega helmingur starfsmanna lánasýslunnar til Seðlabankans

Þegar Lánasýsla ríkisins verður lögð niður og starfsemi hennar flutt til Seðlabanka Íslands mun ríflega helmingur starfsfólksins flytja með til að sinna verkefninu fyrir bankann. Alls eru 12 manns nú starfandi hjá Lánasýslunni. Sigurður Thoroddsen forstöðumaður Lánasýslunnar segir að Seðlabankinn muni yfirtaka launasamninga þeirra sem flytjast til bankans

Náttúruverndarsamtök í Þingeyjarsýslum ekki mótfallin borunum

"Við erum algera gáttuð á þessum undarlegu tillögum og endalausu kærum frá SUNN. Þessi samtök hafa ekkert rætt við heimamenn," segir Sigurjón Benediktsson talsmaður HÚSGULL, samtaka náttúruverndarsinna á Húsavík. "Við teljum ekkert óeðlilegt við það að kannað sé hve mikil orka er undir þessu svæði."

Þýska lögreglan leitar að 8 ára stúlku

Lögreglan í Hannover í Þýskalandi leitar nú af hinni 8 ára gömlu stúlku Jenisu sem hefur saknað síðan á hádegi á föstudag. Stúlkan fór frá heimili sínu í þeim tilgangi að heimsækja frænku sína en ekkert hefur til hennar spurst síðan þá. Lögreglan útilokar ekki að stúlkunni hafi verið rænt.

Tveir særðust í átökum lögreglu og mótmælenda í Malasíu

Tveir særðust þegar til átaka kom milli mótmælenda og lögreglu á heimasvæðum múslima í norðausturhluta Malasíu. Óeirðirnar brutust út í gærkvöldi þegar aðskilnaðarflokkur múslima sem krefst sjálfstæði frá Malasíu hélt útifund.

ETA heitir frekari sprengjuárásum á Spáni

Meðlimir í basknesku aðskilnaðarsamtökunum ETA á Spáni heita því að halda áfram sprengjuárásum í landinu. Þetta kom fram í yfirlýsingu sem samtökin sendu frá sér í dag. Þau telja að friðarsamkomulagið sem gert var á síðasta ári sýni að það sé tilgangslaust að semja við núverandi stjórnvöld á Spáni.

Aurskriða fellur í Sunndal í Noregi

Flytja þurfta íbúa af heimilum sínum í Litjdalen við Sunndal í Noregi í gærkvöldi eftir að aurskriða féll á hús þeirra. Skriðan var um 20 metrar að breidd en nokkrar aurskriður hafa fallið í Sunndal og Romsdal í Noregi á undanförnum dögum. Engan sakaði.

Lýsa yfir áhyggjum af stefnuleysi stjórnvalda

Opinbert ósætti milli ráðherra stjórnarflokkanna hefur fært þjóðinni heim sanninn um það þjóðarskútuna rekur stjórnlaust. Þetta kemur fram í ályktun miðstjórnar Sambands ungra framsóknarmanna. Þeir lýsa yfir þungum áhyggjum af stefnuleysi stjórnvalda.

Blóðug kosningabarátta í Gvatemala

Íbúar í Suður-Ameríkuríkinu Gvatemala gengu að kjörborði í dag og kusu sér forseta í einni af blóðugustu kosningabaráttu sögunnar. Rúmlega 50 frambjóðendur, stjórnmálamenn og ættingjar þeirra hafa verið myrtir í aðdraganda kosninganna.

Skemmdarvargar á Hellu

Skemmdarvargar gengu lausum hala á Hellu í nótt og voru rúður í þremur bílum brotnar sem og rúða í símaklefa. Að sögn lögreglu var engu stolið úr bifreiðunum og því ljóst að gerendur höfðu ekki annað í huga en að valda sem mestum skemmdum.

Bíll festist í miðri Krossá

Björgunarsveitin Dagrenning frá Hvolsvelli var kölluð út klukkan tvö í dag til að aðstoða ferðamenn sem sátu fastir um borð í bíl í miðri Krossá. Fólkinu tókst hins vegar af sjálfsdáðum að komast á þurrt land áður en björgunarsveitarmenn komu á staðinn.

Drápu hval með vélbyssu

Bandaríska strandgæslan hefur í sínu haldi fimm indjána af Makah ættbálknum í Washingtonfylki en mennirnir eru grunaðir um að hafa drepið hval með því að skutla hann og skjóta með vélbyssu. Að mati strandgæslunnar falla þær aðferðir sem notaðar voru til að drepa hvalinn ekki undir hinar svokölluðu frumbyggjaveiðar.

Líkur á frekari flugtöfum nái Icelandair ekki samkomulagi við FÍA

Millilandaflug Icelandair hefur raskast í dag. Félag íslenskra atvinnuflugmanna segir stjórnendur Icelandair Group bera alla ábyrgð á þeim flugtöfum sem orðið hafa í dag. Líkur eru á að áætlunarflug raskist enn frekar ef ekki nást samningar á næstu dögum.

Alcan keppir áfram um orku Þjórsár

Alcan heldur áfram undirbúningi nýs álvers í Þorlákshöfn og á Keilisnesi og hyggst áfram keppa um orkusamning við Landsvirkjun, þrátt fyrir að hafa misst forgang að orku Þjórsárvirkjana.

Nýnasistar handteknir í Ísrael

Fyrirfram hefði mátt ætla að engir nýnasistar væru í Ísrael. Lögreglan þar í landi hefur þó handtekið átta slíka.

Sprengja átti Nørreport lestarstöðina á næstu dögum

Líklegt er að sprengiefnið sem danska leyniþjónustan fann í hryðjuverkaaðgerðunum í Kaupmannahöfn aðfaranótt þriðjudags hafi átt að nota á næstu dögum til að sprengja upp Nørreport lestarstöðina.

Samgöngumiðstöð drifin áfram

Undirbúningur samgöngumiðstöðvar á Reykjavíkurflugvelli er kominn á fulla ferð og stefnir verkefnisstjórn að því að byggingin verði tilbúin eftir tuttugu mánuði. í dag var auglýst eftir áhugasömum leigjendum.

Kreppu spáð

Breskir bankasérfræðingar spá bankakreppu í vikunni sem eigi sér ekki líka síðustu tuttugu ár. Bankar sem þurfi að endurfjármagna lendi í vandræðum. Hagfræðingur hjá Seðlabanka Íslands segir íslenska banka betur í stakk búna til að takast á við slíkt en þegar næddi um þá fyrir einu og hálfu ári.

Ásgeir Elíasson látinn

Ásgeir Elíasson knattspyrnuþjálfari er látinn. Hann varð bráðkvaddur á heimili sínu í morgun.

SAS flugvél nauðlendir á flugvellinum í Álaborg

Flugvél frá flugfélaginu SAS þurfti að nauðlenda á flugvellinum í Álaborg í Danmörku í dag eftir að hjólabúnaður vélarinnar bilaði í flugi. Við nauðlendingu kviknaði í öðrum hreyfli vélarinnar, sem er skrúfuvél af gerðinni Dash 8/Q400. Alls voru 76 farþegar um borð auk áhafnar en engan sakaði.

Tveir teknir fyrir ölvun við akstur í Keflavík

Lögreglan á Suðurnesjum stöðvaði eftir hádegi dag tvo ökumenn fyrir ölvun við akstur. Báðir voru teknir í Keflavík og annar þeirra var nokkuð ölvaður að sögn lögreglu.

Segja að stjórnendur Icelandair beri alla ábyrgð á töfum

Flugmenn segjast ekki bera ábyrgð á þeim töfum sem hafa orðið millilandaflugi Icelandair í dag. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Félagi íslenskra atvinnuflugmanna. Segja þeir ábyrgðina alfarið liggja hjá stjórnendum Icelandair. Flugi til Stokkhólms var aflýst í morgun og þá hefur einnig flugi til Minneapolis í Bandaríkjunum nú síðdegis verið aflýst.

Auglýsti eftir ólygnum og örvhentum veðurfræðingi

Í atvinnuauglýsingablaði Morgunblaðsins í dag er auglýst eftir örvhentum og ólygnum veðurfræðingi og honum lofuð tíföld laun. Auglýsandinn, sem er Austfirðingur, segist vera orðinn langþreyttur á því að veðurfræðingar í sjónvarpinu skyggi á austurhluta landsins á veðurkortinu þegar þeir segja veðurfréttir.

Nýnasistar handteknir í Ísrael

Ísraelska lögreglan hefur handtekið átta nýnasista þar í landi og leyst upp samtök sem mennirnir höfðu stofnað. Þeir eru á aldrinum 16 til 21 árs - allir ísraelskir ríkisborgarar, aðfluttir frá Austur-Evrópu. Þeim er gefið að sök að hafa ráðist með ofbeldi gegn útlendingum, samkynhneigðum og trúræknum gyðingum.

Sjá næstu 50 fréttir