Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Keyrði á kyrrstæða rútu við Flosagjá Lögreglan á Selfossi handtók á laugardag mann eftir skrautlegan akstur í þjóðgarðinum á Þingvöllum. Maðurinn hafði ekki meiri stjórn á bifreiðinni en svo að hann ók á rútu sem var kyrrstæð á bifreiðastæði við Flosagjá. 27.8.2007 15:44
Leyniþjónustumenn myrtu Politkovskayu Það voru bæði núverandi og fyrrverandi starfsmenn rússnesku leyniþjónustunnar FSB sem stóðu að morðinu á blaðakonunni Önnu Politkovskayu. Ríkissaksóknari Rússlands upplýsti þetta á blaðamannafundi í dag. Hann sagði að tíu menn hefðu verið handteknir vegna málsins. Þeirra á meðal maðurinn sem framdi morðið. Politkovskaya var skotin til bana fyrir utan heimili sitt á síðasta ári. 27.8.2007 15:34
Kópavogsbær véfengir ekki niðurstöðu matsmanna Kópavogsbær véfengir ekki niðurstöðu matsmanna í skýrslu um það hversu mörg tré hafi verið fjarlægð og spillst vegna framkvæmda Kópavogsbæjar við vatnslögn í Heiðmörk. Bærinn hefur leitað til Reykjavíkurborgar til að fá úr því skorið hver eigi trén sem um ræðir. 27.8.2007 15:14
Sarkozy útilokar ekki loftárásir á Íran Nicolas Sarkozy Frakklandsforseti sagði í dag að diplómatískur þrýstingur væri eini valkosturinn við íranska sprengju - eða sprengjuárás á Íran. Í fyrstu stóru ræðu sinni um utanríkismál sagði Sarkozy það gersamlega ólíðandi að Íran eignaðist kjarnorkuvopn. 27.8.2007 14:56
Eldur í hurð hjá skipasmíðastöð á Akranesi Eldur kom upp í hurð hjá Skipasmíðastöðinni Þorgeir og Ellert við Bakkatún á Akranesi nú eftir hádegið. Verið var að laga hurðina þegar neisti hljóp úr logsuðutæki í einangrun í hurðinni og eldurinn gaus upp. Slökkvilið á Akranesi var kvatt á vettvang og tók slökkvistarf um háftíma. Ekki urðu miklar skemmdir á hurðinni og húsinu vegna þessa. 27.8.2007 14:42
"Kennarar eins og útspýtt hundskinn á eftir leikstjórum" "Kennarar okkar hafa verið eins og útspýtt hundskinn á eftir leikstjórum og rétthöfum til að fá leyfi til sýninga á myndum þeirra í náminu," segir Ragnhildur Richter deilarstjóri í íslensku við MH. Þrátt fyrir að kennsla um íslenskar kvikmyndir og kvikmyndagerð hafi staðið framhaldsskólanemum til boða um nokkurt skeið hefur menntamálaráðuneytið enn ekki samið um greiðslur fyrir slíkt við rétthafa utan tvo. 27.8.2007 14:36
Ekki fleiri pappírsmiðar Alþjóða flugmálastofnunin, IATA, sagðist í dag hafa lagt inn sína síðustu pöntun á pappírsflugmiðum. ,,Eftir einungis 278 daga, verður pappírsmiðinn orðinn að safngrip" sagði Giovanni Bisignani, framkvæmdastjóri stofnunarinnar. 27.8.2007 13:57
John Prescott hættir þingsetu John Prescott ætlar ekki að gefa kost á sér til áframhaldandi þingsetu eftir næstu kosningar. Prescott var varaforsætisráðherra í ríkisstjórn Tonys Blairs. Hann er 69 ára, og hefur setið á þingi í 37 ár. 27.8.2007 13:50
Krónprins Noregs styður systur sína Hákon krónprins Noregs segist eindregið styðja Mörtu Lovísu systur sína sem hefur opnað stofnað skóla sem daglega gengur undir nafninu Englaskólinn. Þetta er í fyrsta skipti sem einhver úr konungsfjölskyldunni hefur tjáð sig um þetta uppátæki prinsessunnar. Skólinn hefur annars vakið mikla geðshræringu í Noregi og hefur þess bæði verið krafist að Marta Lovísa segi sig úr þjóðkirkjunni og að hún afsali sér prinsessutitlinum. 27.8.2007 13:43
Farþegum um Grímseyjarflugvöll fjölgar mikið Farþegar um Grímseyjarflugvöll voru 60 prósentum fleiri í júní í sumar en á sama tíma í fyrra. Eftir því sem segir í tilkynningu frá Flugstoðum fóru 1270 manns um flugvöllinn í júní en í sama mánuði í fyrra voru þeir 720. 27.8.2007 13:18
Skiluðu ísraelskum hermanni Palestinskir öryggisverðir björguðu í dag ísraelskum hermanni sem tók vitlausa beygju á bíl sínum og lenti inn í bænum Jenin á Vesturbakkanum. Jenin er miðstöð herskárra Palestínumanna. Það var enda ráðist á bílinn, honum velt og kveikt í honum. Öryggisverðir hollir Mahmoud Abbas, forseta, komu hermanninum hinsvegar undan og skiluðu honum að næstu ísraelsku varðstöð. 27.8.2007 13:15
Bílvelta á Öskjuvegi Lögreglan á Húsavík fékk tilkynningu um bílveltu á Öskjuvegi nálægt Herðubreið rétt eftir hádegið. Ekki fengust nákvæmar upplýsingar um það hvernig óhappið vildi til en lögregla telur að ekki hafi orðið alvarleg slys á fólki. 27.8.2007 13:01
Dómsmálaráðherra Bandaríkjanna segir af sér Alberto Gonzales, dómsmálaráðherra Bandaríkjanna hefur sagt af sér. Gonzales hefur legið undir miklu ámæli síðan hann rak átta opinbera saksóknara úr starfi á síðasta ári. Hann var einnig gagnrýndur harðlega fyrir að styðja heimildarlausar njósnir forsetans innanlands. 27.8.2007 12:57
Meiri vinna en menn bjuggust við Nýbýlavegur verður ekki opnaður við Sæbólsbraut fyrr en á morgun, þremur dögum eftir að framkvæmdum þar átti að ljúka. Eins og fram hefur komið í fréttum hafa orðið miklar umferðartafir við Nýbýlaveg vegna færslu háspennustrengs og sátu menn fastir í umferðarhnútum í allt að klukkutíma fyrir helgi. 27.8.2007 12:54
Grunur um að kveikt hafi verið í sófa Grunur leikur á að kveikt hafi verið í sófa að Stuðlum með þeim afleiðingum að tvær stúlkur voru fluttar á sjúkrahús og húsið skemmdist töluvert. Rannsókn málsins stendur yfir og er búist við að stúlkurnar tvær verði yfirheyrðar síðar í dag. 27.8.2007 12:45
Bílstjórinn hafi brugðist hárrétt við Framkvæmdastjóri næststærsta rútubílafyrirtækis landsins segir að bílstjórinn sem lenti í slysi í Bessastaðafjalli í gærdag hafi brugðist hárrétt við í erfiðum aðstæðum. 27.8.2007 12:31
Götuhátíð í Lundúnum Dansað var um götur Notting Hill hverfisins í Lundúnum í gær á árlegri götuhátíð. Mikið var um dýrðir en talið er að um ein milljón manna taki þátt í hátíðinni sem hófst í gær en lýkur í dag. 27.8.2007 12:19
Björn Th. Björnsson látinn Björn Th. Björnsson listfræðingur og rithöfundur er látinn. Björn nam listasögu í Edinborg, Lundúnum og Kaupmannahöfn, var formaður Rithöfundasambands Íslands og forstöðumaður Listasafns Háskóla Íslands. 27.8.2007 12:17
Merkel í Kína Angela Merkel kanslari Þýskalands hitti Wen Jiabao forsætisráðherra Kína á fundi í morgun. Fundurinn markaði upphaf vikulangrar ferðar Merkel um Asíu. 27.8.2007 12:17
560 tré fjarlægð vegna vatnsveitulagnar í Heiðmörk Nærri 560 tré voru fjarlægð við Þjóðhátíðarlund í Heiðmörk í tengslum við lagningu vatnslagnar á vegum Kópavogsbæjar fyrr árinu. Þetta kemur fram í skýrslu matsmanna sem Skógræktarfélag Reykjavíkur og Kópavogsbær létu vinna vegna málsins. 27.8.2007 11:59
Kvartanaherferð segir bareigandi, öskrandi óþolandi skríll segir íbúi Íbúar við Laugaveg 76 eru fyrir löngu búnir að fá sig fullsadda af gestum barsins Monakó. Margeir Margeirsson eigandi barsins segir að íbúarnir stundi skipulagða kvartanaherferð gegn sér. Teitur Þorkelsson einn íbúanna segir að bargestirnir séu öskrandi, óþolandi skríll og kvartanir til lögreglunnar undan þeim tilkomnar þar sem ekkert þýði að kvarta við gestina sjálfa , slíku sé mætt með hótunum. 27.8.2007 11:57
RJF vill bjarga fleirum Einar S. Einarsson, talsmaður RJF hópsins, segir að stjórn hópsins hafi áhuga á því að bjarga fleira fólki sem lent hefur í hremmingum. RJF hópurinn háði ötula baráttu fyrir frelsi Arons Pálma Ágústssonar eins og þekkt er. Einar segir að RJF hópurinn ætli að hittast í hádeginu í dag og fagna frelsi Arons. 27.8.2007 11:44
Grunuðum sleppt Fjórum þeirra sem voru handteknir í tengslum við morðið á hinum ellefu ára Rhys Jones í Liverpool á miðvikudaginn hefur verið sleppt án ákæru. Fólkið, var á aldrinum 15-19 ára, tveir drengir og tvær stúlkur. Tveimur öðrum drengjum, 16 og 19 ára, var sleppt gegn tryggingu meðan rannsókn málsins fer fram. 27.8.2007 11:37
Snúa flestir aftur til vinnu í vikunni Flestir starfsmanna Arnarfells sem lentu í rútuslysinu í Bessastaðabrekku á Fljótsdalsheiði í gærdag snúa til vinnu síðar í vikunni. Slysið hefur ekki áhrif á gang framkvæmda á vegum fyrirtækisins. 27.8.2007 11:28
Hroðaleg hefnd Argentínskur unglingur fór á húðflúrstofu nýlega til þess að láta tattóvera nafn uppáhalds fótboltaliðsins stórum stöfum á bakið á sér. Liðið heitir Boca Juniors. Ekkert óvenjulegt við það, í Argentínu. Unglingurinn var hinsvegar svo óheppinn að rata inn á stofu þar sem eigandinn hélt ákaflega upp á knattspyrnuliðið River Plate. 27.8.2007 11:11
Handtökur vegna morðs á rússneskri blaðakonu Tíu manns hafa verið handteknir vegna morðsins á rússnesku blaðakonunni Önnu Politkovskaju. Hún var skotin til bana fyrir utan heimili sitt í Moskvu 7. október á síðasta ári. Tass fréttastofan segir að ákærur á hendur mönnunum verði birtar innan skamms. 27.8.2007 10:57
Settu aftur heimsmet í borun í aðrennslisgöngum Nýtt heimsmet í borun í göngum var sett í annað sinn á Kárahnjúkasvæðinu í síðustu viku. Eftir því sem fram kemur á vef Kárahnjúka var það áhöfnin á risabor 2 sem boraði rúma 115 metra í aðrennslisgöngum Jökulsárveitu á einum sólarhring. 27.8.2007 10:50
Áfram lokanir á Nýbýlavegi vegna framkvæmda Nýbýlavegur verður áfram lokaður við Sæbólsbraut vegna tafa á framkvæmdum við færslu háspennustrengs. Framkvæmdirnar hófust á fimmtudag og átti að vera lokið í gær en ófyrirséð mál hafa tafið vinnuna 27.8.2007 10:37
Grafarholtsbúar hafa dýralækni en ekki heilsugæslustöð Íbúar í Grafarholti og nærliggjandi hverfum geta nýtt sér þjónustu dýralæknis í hverfinu en hafa ekki heilsugæslustöð. Sem stendur er þeim bent á heilsugæslustöðina í Árbæ en hún er of lítil til að sinna öllu svæðinu. Að sögn Guðmundar Einarssonar forstjóra Heilsugæslu Reykjavíkur stendur til að stöðin í Árbæ verði stækkuð á næsta ári. 27.8.2007 10:30
Eldar loga um helming Grikklands Eldar loga nú um meira en helming Grikklands, og hafa fleiri en sextíu látist þeim. Grísk stjórnvöld heitið milljón evrum í verðlaun fyrir upplýsingar sem geta leitt til handtöku þeirra sem kveiktu þá. 27.8.2007 10:01
Hellisheiðarvirkjun nær sama afli og Nesjavallavirkjun Í október mun Hellisheiðarvirkjun ná sömu framleiðslugetu á rafmagni og Nesjavallavirkjun. Eiríkur Hjálmarsson upplýsingafulltrúi Orkuveitunnar segir að ný lágþrýstivél muni komast í gagnið á þessum tíma og eykst þá raforkuframleiðslan úr rúmlega 90 MW í 123 MW. Tvær háþrýstivélar framleiða orkuna sem stendur. 27.8.2007 09:12
Kosningar í Tælandi 23. desember Tælendingar munu ganga til kosninga þann 23. desember næstkomandi. Stjórnvöld í Tælandi höfðu ákveðið að halda kosningar eftir að ný stjórnarskrá yrði samþykkt í landinu en það gerðist fyrir viku síðan. Um 58% kjósenda samþykktu stjórnarskrárbreytingarnar sem fólu í sér takmörkun á valdi forsætisráðherra landsins. Fyrrverandi forsætisráðherra Tælands, Thaksin Shinawatra, hefur verið sakaður um að misnota vald sitt sem ráðherra. 27.8.2007 08:47
Eldur í öskutunnum við Framheimilið Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var kallað að Framheimilinu í Safamýri á níunda tímanum í kvöld. Eldur kviknaði í ruslatunnum þar. Greiðlega gekk að slökkva eldinn að sögn slökkviliðsins. 26.8.2007 20:37
Met í brjóstagjöf Víetnamar settu í dag heimsmet í brjóstagjöf þegar rúmlega tólfhundruð mæður komu saman í þremur borgum og gáfu börnum sínum brjóst samtímis. Með þessu vildu mæðurnar leggja áherslu á mikilvægi brjóstagjafar fyrir hvítvoðunga. 26.8.2007 19:30
Aron Pálmi glímir við áfallastreituröskun Aron Pálmi Ágústsson sem setið hefur í fangelsi í 10 ár í Texasfylki í Bandaríkjunum segist glíma við áfallastreituröskun eftir fangavistina. Hann kom til landsins í morgun og segist feginn að vera loksins kominn heim eftir langt ferðalag. 26.8.2007 19:28
Sextán manns slösuðust í rútuslysi í Bessastaðabrekku við Kárahnjúka Sextán manns slösuðust þar af tveir alvarlega þegar rúta ók í Klettavegg í Bessastaðabrekku í Fljótsdal rétt hjá Kárahnjúkum í dag. Þrjátíu og einn maður var í rútunni, allt útlendir starfsmenn við Kárahnjúkavirkjun. Enginn er talinn í lífshættu. 26.8.2007 19:16
Fargað vegna fuglaflensu Fuglaflensa af hinum hættulega H5N1 stofni hefur greinst í fuglum á fuglabúi í suðurhluta Þýskalands. 400 fuglar drápust úr flensunni þar á skömmum tíma. Öðrum fuglum þar verður nú fargað - öllum 160 þúsund. Ekki er vitað með vissu hvernig sjúkdómurinn barst í fuglana á búinu. 26.8.2007 19:15
Hákon styður systur sína Hákon krónprins Noregs styður englaskóla Mörtu Lovísu systur sinnar þar sem hún ætlar að kenna fólki að tala við engla og dýr. Þetta sagði prinsinn við blaðamenn þar sem hann og Mette Marit kona hans afhentu góðgerðarsamtökum jafnvirði nærri 6 milljóna króna úr sjóði sínum sem notaðar verða til að hjálpa munaðarlausum börnum í Rússlandi. 26.8.2007 19:15
Berst fyrir því að dóttir sín fái meðferð Faðir 6 ára palestínskrar stúlku, sem lamaðist í loftárás Ísraela fyrir rúmu ári, berst fyrir því að hún fái áfram meðferð á sjúkrahúsi í Jerúsalem. Ísraelar vilja ekki leyfa það þeir vilja senda hana í meðferð á Vesturbakkanum þar sem vantar tæki sem halda henni á lífi. 26.8.2007 19:00
Enn loga eldar í Grikklandi Hvítri ösku rignir yfir íbúa Aþenu, höfuðborgar Grikklands, en skógareldar þar í landi hafa teygt sig að jaðri borgarinnar. Enn logar víða á Pelops-skaga og slökkvistarf gengur hægt. 56 hið minsta hafa týnt lífi í eldunum og menningarsöguleg verðmæti Grikkja í hættu. 26.8.2007 18:45
Mynd af morðingja og vitni gefur sig fram Lögreglan í Liverpool segist hafa upptökur úr öryggismyndavélum af þeim sem myrti hinn 11 ára gamla Rhys Jones. Hettuklæddur unglingur hjóli skaut Rhys þar sem hann var að ganga heim af knattspyrnuæfingu á miðvikudagskvöldið. Enginn hefur formlega verið kærður fyrir morðið. 26.8.2007 18:45
Leit hætt, Þjóðverjarnir taldir látnir Leitin að Þjóðverjunum Matthiasi Hinz og Thomasi Grundt hefur staðið yfir undanfarna viku og hafa sjálfboðaliðar lagt sig í mikla hættu á Öræfajökli. Aðstæður til leitar hafa verið með þeim erfiðustu sem björgunarmenn hafa kynnst hér á landi sagði þyrluflugstjórinn Benóný Ásgrímsson. 26.8.2007 18:39
Tveimur stúlkum bjargað úr eldsvoða með snarræði reykkafara Tveimur heimilismönnum á meðferðarheimilinu á Stuðlum í Reykjavík var bjargað með snarræði reykkafara slökkviliðsins í dag. Slökkviliðsstjórinn í Reykjavík telur að brunakerfi hafi bjargað fólkinu. Ekki er útilokað að um íkveikju hafi verið að ræða. Stuðlar eru meðferðarheimili fyrir unglinga. 26.8.2007 18:30
Ólympía úr hættu Rústir forna helgistaðarins Ólympíu á Grikklandi eru úr hættu. Svo virðist sem svæðinu þar sem fyrstu Ólypíuleikarnir voru haldnir hafi verið þyrmt í skógareldum sem brenna nú víða í Grikklandi. Logar munu aðeins hafa sleikt jaðar svæðisins þar sem þekkt menningarsöguleg verðmæti er að finna. Slökkviliðsmenn segja Ólypíu úr hættu. 26.8.2007 17:22
Morðingjar Rhys Jones náðust á mynd Lögreglan í Liverpool segist hafa upptökur úr öryggismyndavélum af þeim sem myrtu hinn 11 ára gamla Rhys Jones. Þetta var upplýst eftir að sjö ungmenni voru handtekin í gær. Kona sem lögreglan telur að geti verið lykilvitni í málinu hefur gefið sig fram við lögreglu. 26.8.2007 17:16