Fleiri fréttir

Skemma brann í Garðabæ

Eldur kom upp í skemmu í Ránargrund í Garðabæ rétt eftir klukkan ellefu í kvöld. Slökkvilið hefur náð að slökkva eldinn og verið er að slá á glæðurnar. Um er að ræða bátageymslu sem mun vera í eigu Garðabæjar og hefur hún staðið ónotuð um nokkurn tíma.

250 látnir hið minnsta

Írösk yfirvöld segja að 250 hið minnsta, hafi látist í sprengjuárásunum í norðurhluta landsins í gær. Þetta er mannskæðasta árásin í landinu frá því í stríðinu 2003. Fjórar sprengjur lögðu tvö þorp jasída trúflokksins í rúst og slösuðust að minnsta kosti 350. Björgunarsveitir eru enn að störfum og búist er við því að tala látinna eigi eftir að hækka.

Fullt út úr dyrum í Salnum

Fundur í Salnum í Kópavogi, sem íbúasamtökin Betri byggð á Kársnesi standa fyrir, er nú í fullum gangi. Gríðarlega góð mæting er á fundinum en um 400 manns hafa lagt leið sína á fundinn.

Olíuhreinsistöð er lífsspursmál fyrir framtíð byggðar

Ragnar Jörundsson, bæjarstjóri Vesturbyggðar segir að olíuhreinsunarstöð í landi Hvestu í Arnarfirði myndi hafa gríðarlega mikla þýðingu fyrir samfélagið á Vestfjörðum og sé í raun lífsspursmál. Í dag samþykkti bæjarstjórn Vesturbyggðar að breyta skipulagi svæðisins þannig að leyfilegt er að byggja olíuhreinsistöð í Arnarfirði.

Viðskiptaráðherra leitar að vistvænni bíl

Björgvin G. Sigurðsson, viðskiptaráðherra, segir að nýr ráðherrabíll verði keyptur á næstunni. Í fréttum Stöðvar 2 nú í kvöld voru ráðherrabílarnir flokkaðir eftir því hve umhverfisvænir þeir eru og kom bíll Björgvins kom verst út. Bíllinn var áður ráðherrabíll landbúnaðarráðherra. Viðskiptaráðherra hefur hann aðeins til umráða þangað til nýr bíll verður keyptur.

Íbúar á Kársnesi halda fund um skipulagsmál

Íbúasamtökin Betri byggð á Kársnesi halda opinn fund um skipulagsmál nessins í kvöld. Fundurinn hefst klukkan átta og er hann haldinn í Salnum. Í tilkynningu frá samtökunum kemur fram að markmið fundarins sé að gefa íbúum á Kársnesi „kost á að kynna sér nánar inntak þeirra skipulagsbreytinga sem standa fyrir dyrum.“

Grafa með skóflum og berum höndum

Björgunarmenn og almennir borgarar grafa nú með skóflum og berum höndum í rústum húsa í bænum Kataníja í Norður-Írak þar sem sjálfsvígssprengjuárás varð minnst tvö hundruð manns að bana í gær. Fjórar flutningabifreiðar fullar af sprengiefni voru sprengdar í loft upp nær samtímis.

Ráðherrabílarnir misjafnlega umhverfisvænir

Utanríkisráðherra er á umhverfisvænasta ráðherrabílnum. Ráðherrabíll flokksbróður hennar í viðskiptaráðuneytinu er fjandsamlegastur umhverfinu í bílaflota ráðherranna. Þrír ráðherrar eru komnir á tvinnbíla, en enginn þeirra getur lagt ókeypis í stæði í miðbænum - til þess eru bílar þeirra ekki nógu visthæfir.

NATO sagði mikilvægt að reka íslenska loftvarnarkerfið áfram

Atlantshafsbandalagið lagði ofuráherslu á að íslenska loftvarnarkerfið yrði rekið áfram eftir að Bandaríkjamenn gæfu það frá sér. Íslendingar tóku í dag við rekstri fjögurra ratsjárstöðva og reka kerfið áfram sem hluta af evrópska loftvarnarkerfinu.

Vill gegna starfi forstjóra áfram

Forstjóri Ratsjárstofnunar, sem sagt var upp í gær, sækist eftir að gegna starfinu áfram. Hann vill opna reksturinn eins og hægt verður og tryggja gagnsæi hans nú þegar yfirráðum Bandaríkjamanna sleppir.

Engin merki um gliðnun við Hálslón

Öll umræða um hættu á að sprungur undir Hálslóni myndu gliðna við fyllingu Hálslóns voru óþarfar segir jarðeðlisfræðingur sem fylgst hefur náið með skjálftavirkni á svæðinu. Hann segir það hafa komið á óvart hve lítil áhrif lónsfyllingin hefur haft á sprungusvæðið.

Eðlilegast að ljósleiðarar verði boðnir út

Eðlilegast er að ljósleiðarakerfi Ratsjárstofnunar verði boðið út, segja fulltrúar símafyrirtækjanna. Utanríkisráðherra útilokar ekki að það verði gert. Alls eru átta ljósleiðarar á landinu og þar af þrír sem ríkið á. Þeir liggja um allt land en hafa fram til þessa eingöngu verið notaðir af Ratsjárstofnun. Nú þegar ríkið tekur verið rekstri stofnunarinnar hefur utanríkisráðherra líst þeirri skoðun að hluti af ljósleiðarakerfi ratsjárstofnunar verði nýttur til borgaralegra flutninga.

Viðbótargreiðslur ná ekki til allra leikskólakennara

Ekki stendur til að veita öllum leikskólakennurum Reykjavíkurborgar tímabundna launahækkun eftir að tillaga VG var samþykkt á fundi leikskólaráðs borgarinnar í dag. Sviðsstjóri leikskólasviðs Reykjavíkurborgar, segir í samtali við Vísi að þeir leikskólar sem ekki hafi fullnýtt fjárveitingar sína fyrir þetta ár geti notað þá peninga til að greiða kennurum tímabundin viðbótarlaun kjósi þeir það.

Grímseyjarferjuklúðrið ekki látið óátalið

Verklagsreglur samgönguráðuneytisins voru brotnar við kaup á Grímseyjarferjunni og það verður ekki látið óátalið. Sveitarstjóri Grímseyjar segir heimamenn hafa varað bæði Vegagerðina og samgönguráðuneytið við því að kostnaður við ferjuna yrði mun meiri en áætlað var.

Sturla vill gefa Kristjáni svigrúm vegna Grímseyjarferju

Sturla Böðvarsson, forseti Alþingis og fyrrverandi samgönguráðherra, ætlar ekki að tjá sig um svarta skýrslu Ríkisendurskoðunar sem birt var í gær. Sturla segir eðlilegt að núverandi samgönguráðherra, Kristján L. Möller, fái svigrúm til að vinna úr málinu.

Sýslumaður og sendiráð mest framúr fjárlögum

Samkvæmt skýrslu Ríkisendurskoðunnar um framkvæmd fjárlaga á síðasta ári eru það sýslumannsembættið á Keflavíkurflugvelli og sendiráð Íslands sem fara hvað mest framúr fjárlögum síðasta árs. Sýslumannsembættið með 59 milljón kr. halla og sendiráðin með 52 milljón kr. halla. Uppsafnaður halli sýslumannsembættisins nemur nú um 148 milljónum kr. og sendiráðanna um 129 milljónir kr.

Fjögurra manna fjölskylda borgar 10 þúsund

Það kostar fjögurra manna fjölskyldu rúmar 10 þúsund krónur að taka þátt í 10 kílómetra skokki í Reykjavíkurmaraþoninu sem fram fer á laugardaginn. Glitnir niðurgreiðir ekki kostnað þátttakenda en greiðir fyrir markaðssetningu hlaupsins, að sögn Svövu Oddnýjar Ásgeirsdóttur, starfsmanns Reykjavíkurmaraþons.

Ríkisendurskoðun gagnrýnir agaleysi í fjármálum ríkisstofnana

"Ríkisendurskoðun gagnrýnir agaleysið sem einkennir framkvæmd fjárlaga og má bæði rekja til forstöðumanna stofnana og stjórnenda þeirra ráðuneyta sem þær heyra undir. Brýnt er að stofnanir og ráðuneyti sem hlut eiga að máli ráði sem fyrst bót á þessum vanda."

Leikskólaráð samþykkir viðbótagreiðslur til leikskólakennara

Reykjavíkurborg mun greiða tímabundin viðbótarlaun til leikskólakennara til að bregðast við manneklu á leikskólum. Tillaga vinstri grænna þessa efnis var samþykkt samhljóða á fundi leikskólaráð borgarinnar í dag. Heimild er fyrir slíkar viðbótargreiðslur í kjarasamningum til að standa vörð um faglegt starf leikskóla í borginni.

Foreldrar þurfa að skoða Mattel leikföng

Nýverið uppgötvuðust gallar í leikföngum frá Mattel. Annars vegar er um að ræða að í nokkrum leikföngum eru smáir og sterkir seglar og hins vegar er hægt að finna blý í málningu á nokkrum leikföngum. Gallinn uppgötvaðist hjá Mattel enda er fyrirtækið með gott gæðaeftirlitskerfi og voru viðbrögð þess þau að afturkalla allar gallaðar vörur strax.

Lofar að skoða mál Evu Rutar

Þorsteinn Hjartarson, framkvæmdastjóri Þjónustumiðstöðvar Breiðholts, segir að sitt starfsfólk kappkosti við að veita viðskiptavinum sínum góða og skjóta þjónustu. Hann kannast ekki við að fólki sé neitað þjónustu um viðtöl og hefur hann ekki fengið tilkynningar þess efnis. Hann lofar því að mál Evu Rutar verði skoðað.

Þingkona sækir um veitingavagn

“Þetta er ekki ég heldur dóttir mín Hólmfríður sem hefur hug á að vera með færanlegan veitingavagn á hafnarsvæðinu,” segir Guðfinna S. Bjarnadóttir þingkona Sjálfstæðisflokksins. Í fundargerð stjórnar Faxaflóahafna frá í gærdag er greint frá því að Hólmfríður Vilhjálmsdóttir og Guðfinna Bjarnadóttir hafi sent inn erindi til hafnarstjórnar í síðasta mánuði um stöðuleyfi fyrir veitingavagn.

Eva Rut kasólétt og býr í tjaldi í Laugardal

Eva Rut Bragadóttir er ólétt og komin 34 vikur á leið. Hún er heimilislaus og býr í tjaldi í Laugadalnum. Stundum fær hún þó inni hjá Hjálpræðishernum. Eva Rut, sem er 24 ára og hefur neytt fíkniefna frá því að hún var 13 ára, óttast um fóstrið og segir félagsmálayfirvöld ekki hafa sinnt sér vegna sumarleyfa.

Útflutningsverðmæti Becromal sambærilegt við það sem fiskvinnslufyrirtækin áorka

Össur Skarphéðinsson segir ekki ólíklegt að útflutningsverðmæti framleiðslu ítalska hátæknifyrirtækisins Becromal á aflþynnum verði sambærilegt við það sem fiskvinnslufyrirtækin á Akureyri áorka í dag. Fyrirtækið undirritaði í dag samning við Landsvirkjun um umfangsmikil raforkukaup til framleiðslunnar og einnig við Akureyrarbæ um lóð og aðstöðu.

Ekkert gin- og klaufaveikismit í dýragarði í Surrey

Allt bendir til þess að búfé í dýragarði í Surrey og á nautgripabúi í Kent í Bretlandi hafi ekki sýkst af gin- og klaufaveiki. Rannsóknum á sýnum sem tekin voru úr búfénu er að mestu lokið. Óttast var á tímabili að yfirvöldum í Bretlandi hafi mistekist að hefta útbreiðslu sjúkdómsins.

Selja vatn á Bandaríkja- og Bretlandsmarkað

Byrjað verður að reisa vatnsverksmiðju á Rifi á Snæfellsnesi í næsta mánuði og en reiknað er með að hún muni skapa um 50 störf. Vatnið verður flutt út frá Rifi bæði til Bretlands og Bandaríkjanna.

Íslenska loftvarnakerfið undir það evrópska innan nokkurra vikna

Íslenska loftvarnarkerfið verður hluti þess evrópska innan fárra vikna. Íslendingar taka við rekstri fjögurra ratsjárstöðva sem því tengjast úr höndum Bandaríkjamanna í dag. NATO leggur mikla áherslu á að rekstri þess verði haldið áfram líkt og íslensk stjórnvöld hafa ákveðið.

Höfnuðu írsku ferjunni oftar en einu sinni

Sveitarstjóri Grímseyjar segir heimamenn hafa hafnað írsku ferjunni, Oliean Arann, oftar en einu sinni og komið þeim skilaboðum til bæði Vegagerðarinnar og samgönguráðuneytisins. Hann segir fulltrúa Grímseyjar einnig hafa varað báðar stofnanir við því að kostnaður við viðgerð yrði mun meiri en áætlað var - enda hafi skipið litið hrikalega út.

Al-Qaeda grunað um sprengjuárásirnar í Írak

Talið er líklegt að hryðjuverkarsamtökin al-Qaeda standi á bak við sprengjuárásirnar þrjár sem urðu 175 manns að bana í Írak í gær. Enginn hefur lýst yfir ábyrgð á verknaðinum en talsmaður bandaríska hersins sagði á blaðamannafundi í morgun að grunur beindist helst að al-Qaeda.

Hagkaup innkallar leikfangabíla frá Mattel

Hagkaup hefur innkallað ákveðna tegund leikfangabíls sem leikfangarisinnn Mattell framleiddi. Um er að ræða svokallaðan Cars Sarge bíl og eru allir sem keyptu slíkan bíl, bæði stakan og í pakkningu með öðrum bíl á tímabilinu maí til dagsins í dag, beðnir um að skila honum strax í næstu verslun Hagkaupa.

Grunaður um að hafa dreift myndbandi sem sýnir aftöku

Rússneska lögreglan handtók í morgun mann sem grunaður er um að hafa dreift myndbandi sem sýnir tvo menn tekna af lífi. Annar þeirra er afhöfðaður en hinn skotinn. Lögreglan hefur ekki viljað staðfesta hvort aftakan í myndbandinu sé raunveruleg.

Iceland Express flýgur til Barcelona

Iceland Express mun fljúga til Barcelona í vetur og hefst sala á hádegi þann 16. ágúst. Flogið verður tvisvar í viku, á mánudögum og föstudögum, á tímabilinu frá 9. nóvember til loka maí að undanskildu hléi frá miðjum desember fram til 1. febrúar.

Nýtt hátæknifyrirtæki á Akureyri

Ítalska hátæknifyrirtækið Becromal mun hefja starfsemi á Akureyri á næstunni og mun fyrsti áfangi verksmiðjunnar skapa um 40-50 ný störf. Áætlað er að verksmiðjan muni rísa á næstu tveimur árum.

Nafn mannsins sem lést

Maðurinn sem lést í bílslysi á Þorlákshafnarvegi í fyrrakvöld hét Jóhannes Örn Guðmundsson og var til heimilis að Setbergi 12, Þorlákshöfn. Jóhannes var 41 árs og lætur eftir sig tvö börn, 20 ára og 5 ára.

Sýslumenn kostuðu meir en gert var ráð fyrir

Á fundi fjárlaganefndar síðdegis í dag verður rætt um skýrslu Ríkisendurskoðunar um framkvæmd fjárlaga fyrir árið 2006. Þar kemur fram hvernig ríkisstofnanir hafa haldið sig innan fjárlaga. Gunnar Svavarsson formaður fjárlaganefndar segir að nýlundan í skýrslunni sé væntanlega sú að dómsmálaráðuneytið fari nokkuð framúr fjárlögum og sé það einkum sökum þess að sameining og breytingar á sýslumannsembættum hafi kostað meir en gert var ráð fyrir á síðasta ári.

Kvikmyndagerðarmenn vilja fund með útvarpstjóra

Hjálmtýr Heiðdal formaður Félags kvikmyndagerðarmanna segir að FK vilji fá fund með útvarpstjóra hið fyrsta. Á fundi FK í vikunni var m.a. rætt um þjónustusamning þann sem menntamálaráðherra gerði við RUV um framleiðslu á innlendu efni. Á fundinum kom fram að félagsmenn FK telja ófært að óvissa ríki um útfærslu á samningnum og eftirlit með honum.

Keilir afhenti fyrstu íbúðirnar í morgun

Keilir afhenti tilvonandi nemendum sínum fyrstu íbúðirnar á háskólasvæðinu í morgun. Skólastarf hefst þann 27. ágúst næstkomandi. Þegar hafa verið leigðar út um 300 íbúðir en 30 nýjum íbúðum hefur verið bætt við þann fjölda síðustu daga og verðum þeim úthlutað á næstunni.

Þrír Þjóðverjar láta lífið í Afganistan

Þrír Þjóðverjar létu lífið og einn særðist í Afganistan í morgun þegar sprengja sprakk við bíl mannanna á veg skammt frá Kabul, höfuðborg landsins. Mennirnir voru í hópi þýskra sendiráðsstarfsmanna sem voru að heimsækja Nato-herstöð í nágrenninu.

Tók ekki eftir því að fóturinn færi af við hné

Japanskur ökumaður mótorhjóls sem keyrði utan í öryggisgirðingu tók ekki eftir því að fótur hans hefði skorist af í árekstrinum, og keyrði í tæpa tvo kílómetra með blæðandi stubbinn.

Fleiri en HB Grandi hafa áhuga á Norðurgrandalóðinni

Það eru fleiri fyrirtæki en HB Grandi sem hafa sýnt því áhuga að fá endalóðina á Norðurgranda til umráða. Gísli Gíslason hafnarstjóri Faxaflóahafna segir að fjórir aðilar hafi sýnt lóðinni áhuga á síðustu mánuðum, þar á meðal tvö fiskvinnslufyrirtæki.

Ljósmyndir af íslenskum börnum misnotaðar - lögreglan getur lítið gert

Lögreglan athugar nú meinta misnotkun á ljósmyndum af íslenskum börnum sem upphaflega voru settar inn á vefsíðuna barnaland.is. Ljósmyndirnar enduðu á rússneskri heimasíðu þar sem meðal annars má finna barnaklám. Lögreglan segist hins vegar geta gert lítið í málinu þar sem rússneska síðan sé fyrir utan lögumráðasvæði hennar.

Uxa- og bóndaganga á Austfjarðatröllinu

Aflraunakeppnin Austfjarðatröllið 2007 hefst á morgun, fimmtudag og eru átta kraftakarlar skráðir til leiks. Auk hefðbundinna aflrauna munu keppendur keppa í nýstárlegum kraftgreinum eins og uxagöngu og bóndagöngu. Keppt verður víða á Austfjörðum en keppnin hefst á Vopnafirði á hádegi.

Sjá næstu 50 fréttir