Olíuhreinsistöð er lífsspursmál fyrir framtíð byggðar 15. ágúst 2007 21:50 Ragnar Jörundsson, bæjarstjóri Vesturbyggðar.
Ragnar Jörundsson, bæjarstjóri Vesturbyggðar segir að olíuhreinsunarstöð í landi Hvestu í Arnarfirði myndi hafa gríðarlega mikla þýðingu fyrir samfélagið á Vestfjörðum. Í dag samþykkti bæjarstjórn Vesturbyggðar að breyta skipulagi svæðisins þannig að leyfilegt er að byggja olíuhreinsistöð í Arnarfirði. Hann segir að 520 störf skapist verði stöðin byggð og með afleiddum störfum gætu um 1000 störf skapast. Ragnar segir í samtali við Vísi að eins og staðan sé í dag komi tveir staðir til greina á Vestfjörðum til þess að reisa stöðina. Annars vegar í landi Hvestu í Arnarfirði, sem er í Vesturbyggð, en hins vegar í Dýrafirði sem heyrir undir Ísafjarðarbæ. Ef Ísafjarðarbær samþykkir að breyta sínu skipulagi líkt og Vesturbyggð hefur gert þá er það Íslensks hátækniðnaðar að taka ákvörðun um hvar stöðin verði byggð, verði hún byggð á annað borð. „Við í Vestubyggð viljum auðvitað fá þetta í Arnarfjörðinn, en það er sama hvoru megin þetta lendir, við munum styðja málið af heilum hug verði Dýrafjörður fyrir valinu," segir Ragnar sem segir byggingu stöðvarinnar vera lífsspursmál fyrir framtíð byggðar á svæðinu. Hann segir 520 störf verða í stöðinni sjálfri auk fjölmargra annara starfa sem skapast í kringum þjónustu við stöðina. Manna þurfi áhafnir öflugra dráttarbáta fyrir olíuskipin og öflugt slökkvilið þarf að vera á svæðinu, svo dæmi séu tekin. „Þegar allt er tekið gætum við verið að tala um þúsund manns sem hefðu atvinnu af olíuhreinsistöðinni, beint og óbeint," segir Ragnar. Bæjarstjórinn segir að ef af verður muni bygging stöðvarinnar taka fjörgur og hálft til fimm ár. Þann tíma gæti bæjarfélagið nýtt sér til þess að efla innviði sína og nauðsynlegar ráðstafanir. „Ég tel að þetta sé upp á líf og dauða fyrir Vestfirði í heild sinni," segir Ragnar og bendir á nýjustu tíðindi af niðurskurði í sjávarútvegi máli sínu til stuðnings. „Við höfum misst 20 prósent íbúa hér á síðustu tíu árum." Ragnar segist ekki óttast að olíuhreinsistöð hafi slæm áhrif á ímynd Vestfjarða. Hann hafi sjálfur verið fullur efasemda um hugmyndina þangað til hann fór og skoðaði svipaðar stöðvar í Evrópu. Þær stöðvar hafi verið mjög snyrtilega úr garði gerðar og engan veginn þær reykspúandi verskmiðjur sem gagnrýnendur hugmyndarinnar hafi látið í veðri vaka. „Ég sé ekki hvers vegna við eigum ekki að njóta þess að skipin fara hér um en 265 olíuskip fóru hér hjá í fyrra," segir Ragnar. „Við höfum setið nógu lengi eftir og okkar tími er einfaldlega kominn. Ef við fáum ekki samþykki ríkisvaldsins fyrir þessari hugmynd þá verða þeir að einfaldlega að koma með eitthvað annað í staðinn." Ef af verður, segir Ragnar, ætti að vera hægt að vinna umhverfismat fyrir stöðina í vetur og þá gætu framkvæmdir í landi Hvestu hafist strax næsta vor.
Mest lesið Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Innlent Gistiheimili Sverris í Grímsnesi innsigluð Innlent Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ Innlent Flutningabíll á hliðinni í Ártúnsbrekku Innlent Meintur Kársnesmorðingi handtekinn í Barcelona Innlent Lýsir áfalli vegna vinnubragða gamla meirihlutans Innlent Fór úr landi af ótta um öryggi dóttur sinnar Innlent Ingunn játar að hluta í Reykholtsmálinu Innlent Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Innlent Með nefið í flugbrautinni eftir harkalega lendingu Innlent Fleiri fréttir Ósammála um ágæti aðildarviðræðna: „Ég sé ekki fyrir mér að geta tekið húsnæðislán“ Heyrist í stelpunum þegar vatnið fer upp á miðja síðu Hnúfubakur á svamli skammt frá Reykjavík „Ég elska að vera hér“ Gestum komið fyrir á öðru hóteli Samfylkingin aftur stærst en ríkisstjórnin stendur í stað Kaup Icelandair og ný fylgiskönnun í kvöldfréttum Sýnar Bandbrjálaðist og hrækti á lögreglumann Bíll og mótorhjól skullu saman við Vaðlaheiðargöng Bandero kyrrsettur að kröfu Hvals hf. „Jafnvel betur undirbúin en margur hver“ „Breytist nánast ekki neitt ef við myndum ganga inn í ESB“ Bein útsending: Málþing um Biskupsmálið „Þetta er auðvitað snilldarmarkaðsbrella“ Bæta umferðaröryggi við gatnamót Miklubrautar og Grensásvegar „Andlitið á honum var skakkt“ Ari orðinn stjórnarformaður Rafleiðni aukist skarpt í Múlakvísl Ákærði hafði afskipti af vitnisburði í gegnum fjarfundarbúnað Fór úr landi af ótta um öryggi dóttur sinnar Kjartan Hreinn aftur aðstoðarmaður Ölmu Tekjulágir borga minna fyrir matinn og borgarfulltrúar meira Hvað ætti ungt fólk að kjósa 29. ágúst? Skóli hefst á ný í Grindavík og þingmenn efast um fullyrðingar Rússa Ókeypis strætó-skutlur á Menningarnótt og tæming frá Sólfarinu Gistiheimili Sverris í Grímsnesi innsigluð Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Ráðast í byltingarkenndar endurbætur í Kvosinni „Tengsl Íslands og Eistlands eiga sér sérstaka sögu“ Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Sjá meira