Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Dóttur bresks verkamanns rænt í Nígeríu Þriggja ára gamalli dóttur verkamanns sem sagður er breskur var rænt af byssumönnum í Nígeríu snemma í morgun. Stúlkan var numin á brott úr bíl á leið hennar í skólann í olíuborginni Port Harcourt. 5.7.2007 10:25
Landlæknir gerir athugasemdir við framgöngu vísindamanna Mistök hjá Landlæknisembættinu urðu þess valdandi að vísindamönnum var veittur aðgangur að gögnum yfir umsóknir um fóstureyðingar. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá embættinu. Í umsókn vísindamannanna var gefið til kynna að nauðsynleg leyfi lægju fyrir en nokkru síðar kom í ljós að svo var ekki. Embættið gerir athugasemdir við framgöngu vísindamannanna. 5.7.2007 10:24
Á þriðja tug létust í sprengingu í Kína 25 manns biðu bana í sprengingu í næturklúbbi í norðausturhluta Kína í gær. Auk þeirra látnu slösuðust 33 að því er kínverskir fjölmiðlar greina frá. Yfirvöld á svæðinu hafa ekkert viljað gefa uppi um mögulegar ástæður sprengingunnar né hve illa haldnir hinir slösuðu séu. Heimildarmenn Reuters á staðnum segja að verið sé að rannsaka hvort sprengingin hafi verið óhapp eða af ásetningi. 5.7.2007 10:16
Rútuslys í Mexíkó Óttast er að að minnsta kosti 40 manns séu látnir eftir að rúta varð undir skriðu í gærmorgun nærri bænum San Miguel Eloxochitlan í Mexíkó. Rútan var á leið um fjalllendi og er talið að skriðan hafi fallið í kjölfar mikillar úrkomu á svæðinu undanfarið. 5.7.2007 09:52
Neðanjarðarlest fór út af sporinu í London Neðanjarðarlest fór út af sporinu í London fyrr í morgun. Óhappið átti sér stað á milli Bethnal Green og Mile End stöðvanna. Óstaðfestar fregnir herma að hundruðir manna hafi verið í lestinni en lögregla segir að ekkert bendi til þess að um hryðjuverk geti verið að ræða. Einn er talinn hafa slasast í óhappinu. 5.7.2007 09:49
Gistinóttum fjölgar á milli ára Gistinóttum á hótelum í síðastliðnum maímánuði fjölgaði um 14 prósent milli ára samkvæmt samantekt Hagstofunnar. Alls voru gistinætur 116 þúsund í maí en á sama tíma í fyrra voru þær um 101 þúsund talsins. Gistinóttum fjölgaði hlutfallslega mest á Suðurnesjum en á Austurlandi stóð fjöldinn í stað milli ára. 5.7.2007 09:38
Landsbankinn fékk jafnréttisviðurkenningu Kópavogsbæjar Landsbanki Íslands í Smáralind hlaut viðurkenningu jafnréttisnefndar Kópavogsbæjar í ár. Afhendingin fór fram í Bóksafni Kópavogs 4. júlí. Við það tækifæri var jafnframt opnuð örsýning um líf og störf Huldu Jakobsdóttur. Hún var fyrsta konan sem gegndi embætti bæjarstjóra á Íslandi. Hún var bæjarstjóri frá 1957-1962. 4.7.2007 22:08
Nýtt myndband frá al Qaida Nýtt myndband með myndum af Ayman al-Zawahri, næstráðenda al Qaida, var birt í dag. Þar hvetur hann múslima til dáða í heilögu stríði. 4.7.2007 21:50
Alltof lág endurgreiðsla Það þarf að breyta gjaldskrá tryggingastofnunar segir Reyni Jónsson tryggingayfirtannlæknir, en fleira þarf að koma til. Hann segir að almennt fái fólk um fjórðungi of lítið endurgreitt vegna þess að gjaldskráin sé úrelt. Allt sem þar bætist ofan á stafi af mismunandi verði hjá tannlæknum. Ísland í dag tók Reyni Jónsson tali. 4.7.2007 20:57
Eldar brenna á Frönsku Riveriunni Eldur braust út á Frönsku Riveriunni í dag og þurftu fjöldamargir ferðamenn að yfirgefa aðsetur sín vegna þeirra. Eldurinn braust út á bílastæði nærri Antibes og breiddist út meðfram hraðbrautinni. 4.7.2007 20:46
Varasamt að setja myndir af börnum á veraldarvefinn Lögreglan í Danmörku varar fólk við því að setja fjölskyldumyndir af fáklæddum börnum úr sumarfríum á veraldarvefinn. Søren Thomassen, yfirmaður hjá tölvuglæpadeild dönsku lögreglunnar, segir í samtali við danska blaðið Politiken að fjölmargir barnaníðingar hafi aðgang að forritum sem geti breytt myndunum með vafasömum hætti. 4.7.2007 20:14
Móta aðgerðir til að mæta kvótaskerðingu Ríkisstjórnarflokkarnir móta nú aðgerðir til að mæta yfirvofandi kvótaskerðingu næsta fiskveiðiárs. Gripið verður til sértækra aðgerða til að styrkja atvinnulífið á stöðum sem hvað verst verða úti. 4.7.2007 20:12
Millilandaflug eykst á milli ára Millilandaflug um Keflavíkurflugvöll jókst um 7,2% á fyrri helmingi þessa árs miðað við sama tíma í fyrra. Flugvélum í almennu flugi fjölgaði um 13% en viðkoma herflugvéla hefur minnkað um 45%. 4.7.2007 20:00
Ekki kúvending segir ráðherra Félagsmálaráðherra lækkaði í gær lánshlutfall íbúðalána Íbúðalánasjóðs en hún gagnrýndi harðlega á síðasta ári samskonar aðgerð ríkisstjórnarinnar. Þetta virðist kúvending en Jóhanna segir margt ólíkt með aðgerðunum því nú verði félagslegur þáttur húsnæðislánakerfisins efldur. 4.7.2007 19:45
Geysir Green Energy vongóðir um að ná stöðu í Hitaveitu Suðurnesja Forráðamenn Geysir Green Energy eru vongóðir um að þeir nái stöðu í Hitaveitu Suðurnesja þrátt fyrir fjaðrafok síðustu daga. Þeir segjast vera 4.7.2007 19:33
Alþingi vill að þingmenn noti þjónustu Símans Alþingi hefur beint þeim tilmælum til þingmanna sem eru í viðskiptum við önnur símafyrirtæki en Símann að þeir færi viðskipti sín til Símans. Forsvarsmenn Vodafone eru ekki par sáttir við tilmælin. 4.7.2007 19:33
Fimmtán ára Reykjavíkurmær heldur sína fyrstu tískusýningu Fimmtán ára Reykjavíkurmær segist ekkert smeyk við að halda sína fyrstu tískusýningu. Hún sýnir á næstunni rúmlega tuttugu samkvæmiskjóla, hettupeysur og pils sem hún hefur saumað undanfarna mánuði. Hún hvetur alla til að láta drauma sína rætast. 4.7.2007 19:11
Aukin vatnsneysla Reykvíkinga jafnast á við neyslu allra í Kópavogi Aukin vatnsnotkun Reykjavíkinga í þurrkunum að undanförnu samsvarar allri vatnsnotkun Kópavogsbúa. Hiti og þurrkur á landinu hafa verið langt yfir meðallagi í júní. Fádæma þurrt hefur verið norðaustanlands og hefur aldrei mælst jafnlítil úrkoma í júní á Akureyri og nú. Í Reykjavík samsvaraði úrkoman helmingi meðalúrkomu. Þessir þurrkar hafa kallað á mikla vatnsnotkun í Reykjavík sem náði hámarki í lok júní þegar rennslið frá vatnstökusvæðum borgarinnar fór í 1,100 lítra á sekúndu. 4.7.2007 19:07
Heimsóknum ungra fíkniefnaneytenda og útlendinga fjölgar á Kaffistofu Samhjálpar Forstöðumaður Samhjálpar segir sláandi hversu mikið af fíkniefnaneytendum undir tvítugu koma á Kaffistofu Samhjálpar við Hverfisgötu til að fá sér að borða. Hann segir einnig æ fleiri útlendinga, aðallega frá Portúgal og Póllandi koma á kaffistofuna. 4.7.2007 19:04
Miklu meira um frjóofnæmi nú en í fyrra Margfalt fleiri ofnæmistilvik hafa komið upp í sumar en á meðalsumri vegna hlýinda og langvarandi þurrka. Grasfrjókorn eru upp í mánuði fyrr á ferðinni en venjulega. 4.7.2007 19:01
Sex kanadískir hermenn létust Sex kanadískir liðsmenn hersveita NATO létust þegar sprengja sprakk í Afganistan í dag. Mennirnir sex og afganskur túlkur létust þegar bifreið þeirra keyrði á sprengjuna um 20 kílómetrum suðvestur af Kadnahar. Þetta er mannskæðasta árás sem kanadískar sveitir verða fyrir í Afganistan síðan í apríl síðastliðnum. 4.7.2007 19:00
Morgunblaðið sakað um að lána stjórnanda fé Jón Ásgeir Jóhannesson, stjórnarformaður Baugs Group, sakar Morgunblaðið um tvískinnung í blaðinu í dag en hann segir að blaðið haldi því fram að Baugur hafi lánað fé til stjórnenda félagsins á sama tíma og Árvakur, útgefandi Morgunblaðsins hafi lánað einum stjórnenda sinna umtalsverðar fjárhæðir. 4.7.2007 18:55
Evrópusambandið slær í gegn á YouTube Eitt vinsælasta myndbandið á vefveitunni YouTube þessa dagana er myndband frá Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins. Myndbandið fjallar hins vegar ekki um landbúnaðarsáttamála þess heldur er það samantekt af kynlífsatriðum úr evrópskum bíómyndum. 4.7.2007 18:45
Rússar með reiðubúnir með eldflaugar í Kalíníngrad Rússar tilkynntu í dag að þeir myndu að flytja eldflaugasveitir sínar til Kaliningrad ef Bandaríkjamenn setja upp eldflaugavarnarkerfi í Austur-Evrópu. 4.7.2007 18:30
Heimili fyrir heimilislausa opnað á Njálsgötu Velferðarráð Reykjavíkurborgar ákvað formlega í dag að hefja rekstur heimilis fyrir heimilislausa á Njálsgötu í Reykjavík. Ákveðið var að koma til móts við gagnrýnisraddir íbúa á Njálsgötu með því að hafa heimilismenn 8 en ekki 10 4.7.2007 17:41
Sannreynt af hverjum múmía er Ráðist verður DNA próf til sannreyna hvort múmía sem fannst sé af egypska faraónum Tuthmosis fyrsta, eins og talið hefur verið. Efasemdaraddir segja nú að múmían sé af öðrum óþekktum manni. 4.7.2007 17:16
Landsmót UMFÍ sett á morgun Risalandsmót UMFÍ verður sett á Kópavogsvelli á morgun, fimmtudaginn 5. júlí klukkan 20. Mótið er haldið í Kópavogi og stendur yfir dagana 5. - 8. júlí. 4.7.2007 17:10
Íslendingar og Indverjar í samstarf á sviði jarðskjálftarannsókna Íslensk og indversk stjórnvöld hafa gert með sér samkomulag um samstarf á sviði jarðskjálftamælinga. Von er á tveimur indverskum vísindamönnum hingað til lands til að kynna sér tækni á Íslandi á sviði jarðskjálftamælinga. Fyrsti áfangi samkomulagsins var undirritaður í dag milli utanríkisráðuneytisins og Veðurstofu Íslands sem mun sjá um framkvæmd samstarfsins. 4.7.2007 16:26
Myndbandsupptökur af gíslum birtar Uppreisnarmenn í Kólumbíu hafa birt myndbandsupptökur af sjö gíslum sem sumir hafa verið í haldi í nærri áratug. Í upptökunum biðja gíslarnir ríkisstjórn Kólumbíu um að ræða við gíslatökumennina en vara við því að hernaðaraðgerðum verði beitt við björgun. 4.7.2007 16:23
Utanríkisráðherra fundar með ráðherrum Afríkuríkja Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, utanríkisráðherra, tók þátt í setningu 9. leiðtogafundar Afríkusambandsins í Accra, höfuðborg Gana, um síðustu helgi. Áður hafði ráðherra sótt framkvæmdaráðsfund sambandsins dagana þar á undan. Ráðherra fundaði meðal annars með utanríkisráðherrum Eritreu, Eþíópíu, og Búrúndí. 4.7.2007 16:22
Miklar tjörublæðingar á Þingvallavegi skapa hættu fyrir ökumenn Miklar tjörublæðingar eru nú á Þingvallavegi frá Vinaskógi að Grafningsvegamótum og hefur Vegagerðin gefið út aðvörun til ökumann vegna þessa. Fyrirhugaðri viðgerð á vegarkafla þar skammt frá hefur verið frestað. 4.7.2007 15:52
Veiddu fjóra hákarla í einni ferð Góð hákarlaveiði hefur verið á Vopnafirði undanfarið og í nótt veiddust fjórir hákarlar í einni og sömu ferðinni. Feðgarnir Hreinn Björgvinsson og Björgvin Hreinsson á Eddunni veiddu hákarlana fjóra við norðanverðan fjörðinn á 8 króka línu. 4.7.2007 15:32
Dökkt súkkulaði gegn háum blóðþrýstingi Enn ein rannsókn sem hvetur til súkkulaðineyslu hefur litið dagsins ljós. Vísindamenn við háskólasjúkrahús í Köln halda því fram að munnfylli af dökku súkkulaði á dag lækki blóðþrýsting og dragi úr hættu á hjartaáfalli. 4.7.2007 15:24
Bitnar verst á landsbyggðinni Lækkun hámarkslána íbúðalánasjóðs bitnar nær eingöngu á landsbyggðinni að mati Kristins H. Gunnarssonar, þingmanns Frjálslynda flokksins. Hann segir einboðið að lækkun sjóðsins hafi hverfandi áhrif á höfuðborgarsvæðinu. Vísar Kristinn til þess að landsbyggðarfólk nýti sér mun oftar hámarkslán sjóðsins en íbúar á höfuðborgarsvæðinu. Þá efast Kristinn um að lækkunin komi til með að stuðla að lækkun verðbólgu. 4.7.2007 15:10
Færir Landspítalanum 30 milljónir króna að gjöf Bent Scheving Thorsteinsson hefur fært Landspítalanum-háskólasjúkrahúsi 30 milljónir króna að gjöf sem stofnfé í styrktar- og verðlaunasjóð sem stofnaður hefur verið í hans nafni. Markmið sjóðsins er að veita styrki og verðlaun fyrir vísindaleg afrek, rannsóknir og ritgerðir og skylda starfsemi á sviði hjarta- og lungnalækninga. 4.7.2007 14:49
Brown vill aukið eftirlit með nýráðningum lækna Gordon Brown lofaði í fyrsta fyrirspurnartíma sínum í þinginu í dag að leggja sitt af mörkum til að stuðla að auknu öryggi í ljósi sprengjutilræðanna sem urðu einungis tveimur dögum eftir að hann tók við embætti. 4.7.2007 14:48
Kristín A. Árnadóttir stýrir framboði Íslands til Öryggisráðsins Utanríkisráðuneytið hefur ráðið Kristínu A. Árnadóttur, skrifstofustjóra borgarstjórnar Reykjavíkur, til að stýra framboði Íslands til Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna. Kosningar fara fram á Allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna á næsta ári. 4.7.2007 14:19
Fíkniefnahundar fundu vel falin fíkniefni Fíkniefnahundar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu fundu fíkniefni í fjórum bifreiðum um helgina. Að sögn lögreglunnar voru efnin afar vel falin og hefðu ekki fundist eftir hefðbundna leit lögreglumanna. 4.7.2007 14:14
Ráðgáta um hvarf jökullóns í Chile leyst Komist hefur verið að orsökum dularfulls hvarfs jökullóns í Chile í maí síðastliðnum. Niðurstaða sérfræðinga sem flugu yfir svæðið er sú að jökulveggur við lónið hafi sprungið undan sívaxandi þunga þess og þannig myndast farvegur með fyrrgreindum afleiðingum. Leið vatnsins lá svo inní nærliggjandi fjörð og þaðan til sjávar. Hið upprunalega lón er tekið að fyllast á ný. 4.7.2007 14:12
Eðlilegt að gert sé áhættumat vegna Urriðafossvirkjunar Niðurstaða Flóahrepps um að fresta ákvarðanatöku um aðalskipulag í tengslum við Urriðafossvirkjun kemur formanni samtakanna Sól í Flóa ekki á óvart. Hann segir ljóst að miðað við umfang fyrirhugaðra virkjunaframkvæmda sé eðlilegt að gert sé áhættumat líkt sveitarstjórnin hefur nú ákveðið. 4.7.2007 14:04
Alan Johnston þakkar vestrænum fjölmiðlum Breska fréttamanninum Alan Johnston var sleppt í morgun en hann hafði verið í haldi mannræningja á Gaza í 114 daga. Hann hélt fréttamannafund í Jerúsalem í dag og sagði það stórkostlega tilfinningu að vera frjáls á ný. 4.7.2007 13:55
Breska lögreglan finnur sjálfsmorðsbréf Breska lögreglan hefur fundið sjálfsmorðsbréf í tengslum handtöku tveggja manna sem lögðu sprengjuhlöðnum bíl við flugvöllinn í Glasgow síðastliðinn laugardag, að því er CNN fréttastofan greinir frá. 4.7.2007 13:36
Mikil uppbygging fyrirhuguð í Hveragerðisbæ Samningur Hveragerðisbæjar og verktakafyrirtækisins Kambalands ehf um uppbyggingu íbúðabyggðar vestan við núverandi byggð verður undirritaður á morgun. Kambaland keypti svæðið af bænum á 55 milljónir en þar verða byggðar íbúðir fyrir allt að 680 manns. Bæjarstjóri Hveragerðisbæjar segir áætlanir gera ráð fyrir að íbúafjöldi bæjarins muni aukast um allt að þriðjung á kjörtímabilinu. 4.7.2007 13:24
Geysir Green Energy leitar réttar síns Geysir Green Energy ætlar að leita réttar síns vegna samnings sem fyrirtækið telur að hafi verið komin á um kaup á 10% hlut Grindavíkur í Hitaveitu Suðurnesja. Í bréfi sem fyrirtækið sendi einkavæðingarnefnd í gær er vakin athygli á þessu en Grindvíkingar tilkynntu nefndinni að sveitarfélagið hyggðist nýta sér forkaupsrétt á hlut ríkisins í Hitaveitunni. 4.7.2007 13:10
Flóahreppur frestar ákvarðanatöku um Urriðafossvirkjun Ákvarðanatöku um aðalskipulag Flóahrepps hefur verið frestað um óákveðinn tíma. Oddviti hreppsins segir sveitastjórnina vilja afla frekari upplýsinga um áhættumat og leggja mat á mótvægisaðgerðir Landsvirkjunar. 4.7.2007 12:59