Fleiri fréttir Miklir viðskiptamöguleikar fyrir íslensk fyrirtæki Íslensk fyrirtæki telja mikla möguleika felast í viðskiptum við Suður-Afríku, ekki síst vegna heimsmeistarakeppninnar í knattspyrnu sem þar fer fram árið 2010. Landsvirkjun er á meðal þeirra fyrirtækja sem taka þátt í afrísku útrásinni. 2.3.2007 20:02 Vill greiða fyrir viðskiptum Á fundi Valgerðar Sverrisdóttur, utanríkisráðherra, og Thabo Mbeki, forseta Suður-Afríku, í Höfðaborg í vikunni kom fram gagnkvæmur áhugi á samningum á sviði loftferða og tvísköttunar. Samkomulag um slíkt myndi greiða verulega fyrir viðskiptum landanna. 2.3.2007 19:51 Stálu 5 hundum Fjölskylda, í Los Angeles, varð fyrir heldur óskemmtilegri reynslu í gær þegar vopnaðir glæpamenn réðust inn á heimili hennar og rændu þaðan fimm hundum, þar af fjórum hvolpum sem voru til sölu. Atgangurinn náðist allur á myndband. 2.3.2007 19:21 Aumkunarverðir útúrsnúningar Framsóknar Steingrímur J. Sigfússon kallar það aumkunarverða útúrsnúninga Framsóknar að segja að hann hafi stutt virkjanir í neðri Þjórsá. Hann segir ljóst, nú þegar útfærsla þeirra liggur fyrir, að þær séu enn verri kostur en virtist í fyrra. 2.3.2007 19:12 Siv hótar stjórnarslitum Siv Friðleifsdóttir, heilbrigðisráðherra, hótaði nú síðdegis stjórnarslitum ef Sjálfstæðisflokkurinn stæði ekki við það ákvæði stjórnarsáttmálans að sameign þjóðarinnar á auðlindum verði fest í stjórnarskrá. Þetta kom fram í umræðum á flokksþingi Framsóknarflokksins. 2.3.2007 18:53 Loftslagsbreytingar jafn mikil ógn og stríð Framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna segir loftslagsbreytingar jafn mikla ógn við mannkynið og styrjaldir. Loftslagsmál verði sett á oddinn meðan hann stýri samtökunum. Skrifstofustjóri í umhverfisráðuneytinu segir sjö leiðir hugsanlega færar til lausnar á vandanum. 2.3.2007 18:45 Botnar ekkert í húsleit Samkeppniseftirlitsins Sveit manna frá Samkeppniseftirlitinu birtist fyrirvaralaust í morgun á öllum stærstu ferðaskrifstofum landsins og Samtökum ferðaþjónustunnar. Fyrirtækin eru grunuð um ólögmætt samráð. Framkvæmdastjóri Úrvals-Útsýnar segir samkeppnina aldrei hafa verið grimmari. Framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar segist ekkert botna í húsleitinni. 2.3.2007 18:30 Bílvelta á Hellisheiði Nú rétt í þessu varð bílvelta á Hellisheiði. Um jeppling var að ræða og virðist hann hafa skemmst mikið í veltunni. Að sögn sjónarvotta skreið ökumaðurinn, kona af erlendu bergi brotin, út úr bílnum án aðstoðar og virðist hafa sloppið ómeidd. 2.3.2007 18:23 Tæplega sjö milljarða króna tap hjá 365 á síðasta ári 365 hf, sem áður var Dagsbrún hf. og rekur meðal annars Vísir.is, tapaði sjö milljörðum króna á síðasta ári samkvæmt ársuppgöri sem birt var í dag. Er það mikill viðsnúningur frá árinu 2005 þegar hagnaður Dagsbrúnar var um 700 milljónir króna. 2.3.2007 17:34 18 lögreglumenn myrtir í Írak Hópur uppreisnarmanna í Írak, sem kallar sig „Íslamska ríkið í Írak“ og segist tengjast al-Kaída, skýrði frá því í dag að þeir hefðu rænt og myrt 18 lögreglumenn. Þeir sögðust hafa myrt mennina þar sem stjórnvöld í Írak virtu að vettugi kröfur þeirra. 2.3.2007 17:25 Svíar lána Dönum lögreglubíla Danska lögreglan hefur fengið tuttugu lögreglubíla að láni frá Svíþjóð, vegna átakanna í Kaupmannahöfn í tenglum við rýmingu Ungdómshússins. Sænsku bílarnir eru brynvarðir og ætlaðir til þess að setja í fólk sem er handtekið í óeirðum. Torsten Hesselberg ríkislögreglustjóri Danmerkur, segir þetta til marks um hversu alvarlegt ástandið sé. 2.3.2007 17:11 Mæður gegn Jamie Oliver Sjónvarpskokkurinn Jamie Oliver hefur fengið óvænta andstæðinga í baráttu sinni fyrir því að breskir skólar bjóði nemendum sínum upp á hollan mat. Það eru mæður sem mæta við skólann á matmálstímum og troða hamborgurum og fiski og frönskum í gegnum girðinguna. Hinummegin standa börn þeirra og háma í sig góðgætið. 2.3.2007 17:03 Siv hótar stjórnarslitum vegna auðlindaákvæðis Siv Friðleifsdóttir heilbrigðisráðherra segir að ríkisstjórnin gæti átt erfitt með að lifa það ef ekki næðist samkomulag um að binda í stjórnarskrá ákvæði um sameiginlega eign þjóðarinnar á auðlindum eins og getið sé í stjórnarsáttmála. 2.3.2007 17:00 Stofnfundur vegna framboðs Áhugahópur um málefni eldri borgara, öryrkja og aðstandenda þeirra ætlar að halda opinn stofnfund á Hótel Sögu sunnudaginn 14. mars. Hópurinn telur ríka þörf á sérframboði og að áhugi sé fyrir því meðal allra aldurshópa. 2.3.2007 16:52 Ung kona kærir lögregluna fyrir meint harðræði Nítján ára kona hefur falið lögmanni sínum að leggja inn kæru á hendur lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu vegna meints harðræðis við handtöku. Konan var handtekin aðfaranótt laugardags eftir að hafa sinnast við dyravörð á skemmtistað. 2.3.2007 16:43 Segir gylliboð á Netinu notuð til að fjármagna hryðjuverk Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu varar enn og aftur við gylliboðum á Netinu þar sem jafnvel séu á ferðinni hryðjuverkamenn sem noti þessa leið til að fjármagna starfsemi sína. 2.3.2007 16:25 Segir aðgerðina hefðbundið eftirlit Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins, segir húsleit hafa verið gerða á þremur stöðum í morgun í tengslum við grun um samráð ferðaskrifstofa og að aðgerðin hafi verið liður í hefðbundnu eftirliti. 2.3.2007 16:14 Yfir þrjátíu tónlistaratriði vera á Ísafirði um páskana Alls hafa þrjátíu og eitt atriði staðfest komu sína á tónlistarhátíðina Aldrei fór ég suður – rokkhátíðar alþýðunnar sem haldin verður á Ísafirði um páskana. 2.3.2007 16:09 Snjóflóð felllur á veginn um Hvalnesskriður Vegagerrðin segir veginn um Hvalnesskriður er ófæran eins og er vegna snjóflóðs. Ekki hefur náðst í lögreglu á Höfn í Hornafirði til þess að athuga hvort einhver hafi verið hætti kominn í flóðinu. Þá varar Vegagerðin við hálkublettum víða á Suðurlandi en á Vesturlandi eru vegir auðir nema á heiðum þar sem er lítilsháttar hálka. 2.3.2007 16:05 Fær höllina sína aftur Stjórnvöld í Rúmeníu hafa fallist á að skila aftur þrem höllum sem teknar voru af konungsfjölskyldu landsins skömmu eftir lok síðari heimsstyrjaldarinnar. Kommúnistastjórn landsins sló eign sinni á hallirnar þegar Mikael konungur afsalaði sér konungdómi árið 1947, undir miklum þrýstingi frá Sovétríkjunum. 2.3.2007 15:49 Boða til íbúafundar vegna mengunar í hverfinu Íbúasamtök 3.hverfis, sem eru Hlíðar, Holt og Norðurmýri, hafa boðað til íbúafundar á mánudaginn vegna þess ástands mengunarmála í hverfinu. Er vísað til þess svifryk og önnur loftmengun hafi ítrekað farið hátt yfir hættumörk í hverfinu og telji samtökin það algjörlega óviðunandi. 2.3.2007 15:29 Hillary Clinton er andstyggileg kona Newt Gingrich, fyrrverandi forseti neðri deildar bandaríska þingsins, kallaði Hillary Clinton "andstyggilega konu," í viðtali við dagblaðið New York Post. Hann taldi líklegt að hún verði frambjóðandi demókrata í komandi forsetakosningum. Gingrich bætti því við að enginn kæmist í hálfkvist við Clinton kosningavélina í skítkasti. 2.3.2007 15:13 Dæmdur fyrir vörslu 11 þúsund barnaklámsmynda Héraðsdómur Vesturlands hefur dæmt karlmann í níu mánaða fangelsi, þar af sex skilorðsbundna, fyrir vörslu yfir 11 þúsund ljósmynda af barnaklámi og tíu hreyfimynda. 2.3.2007 15:02 Smitaðist af lifrabólgu C við blóðgjöf Héraðsdómur Reykjavíkur komst í morgun að þeirri niðurstöðu að kona sem smitaðist af lifrarbólgu C við blóðgjöf ætti rétt á bótum frá íslenska ríkinu. Konan greindist með lifrabólgu C árið 1993. Konan smitaðist árið 1990 þegar hún var í meðferð á Landspítala-háskólasjúkrahúsi, þá Ríkisspítalar, vegna nýrnasjúkdóms. 2.3.2007 14:47 Fjöldafangelsanir í Kaupmannahöfn 2.3.2007 14:47 Auðvelda skráningu erlendra fyrirtækja í Kauphöll Viðskiptaráðherra hefur breytt reglugerð sem gefur fyrirtækjum til að mynda í Bandaríkjunum og Færeyjum kleift að sækja um skráningu í Kauphöllina hér á landi. 2.3.2007 14:41 Lét son sinn sofa úr sér í fangageymslu Móðir sextán ára pilts, sem fluttur var á lögrelustöðina við Hverfisgötu eftir slagsmál á balli í gærkvöldi, ákvað að láta piltinn sofa úr sér á stöðinni. 2.3.2007 14:35 Segir rökstuðning ráðherra fyrirslátt Arna Schram, formaður Blaðamannfélags Íslands, segir rökstuðning menntamálaráðherra fyrir því að virða að vettugi tilnefningar félagsins í sérfræðingaráð Norræna blaðamannaskólans og skipa Ólaf Þ. Stephensen, aðstoðarritstjóra Morgunblaðsins, í ráðið, fyrirslátt. 2.3.2007 14:25 Sýknuð af dauða kjörbarns Bresk hjón hafa verið látin laus úr fangelsi og sýknuð af því að hafa eitrað fyrir þriggja ára dreng sem þau vildu ættleiða. Ian og Angela Gay voru dæmd í fimm ára fangelsi í janúar árið 2005 fyrir að vera völd að dauða drengsins. 2.3.2007 14:11 Húsleit hjá öllum ferðaskrifstofum innan SAF Samkeppniseftirlitð gerði í morgun húsleit hjá öllum ferðaskrifstofum sem sem eru innan Samtaka ferðaþjónustunnar, en það eru allar helstu ferðaskrifstofur landsins. Starfsmenn eftirlitsins eru enn á skrifstofunum og hafa starfsmenn ferðaskrifstofunna aðstoðað þá við öflun gagna. 2.3.2007 13:55 Prodi aftur forsætisráðherra - barði þingmenn til hlýðni Romano Prodi er aftur orðinn forsætisráðherra Ítalíu, eftir að hann vann traustsyfirlýsingu á þingi, í dag. Prodi sagði af sér í síðasta mánuði, eftir að ríkisstjórn hans tapaði í atkvæðagreiðslu um utanríkisstefnu landsins. Það voru vinstri sinnaðir þingmenn sem felldu stjórnina vegna andstöðu við veru ítalskra hermanna í Afganistan. 2.3.2007 13:48 Formaður Framsóknarflokksins varar við eftirlíkingum Varist ódýrar eftirlíkingar en menn frá hægri og vinstri eru að laumast inn á miðjuna og blekkja fólk til fylgis við sig sagði Jón Sigurðsson, formaður Framsóknarflokksins, í ræðu sinni á flokkþingi Framsóknarflokksins sem hófst í dag. 2.3.2007 13:47 Hitaveita Suðurnesja hagnast um 2,3 milljarða Hitaveita Suðurnesja hagnaðist um rúma 2,3 milljarða króna á síðasta ári samkvæmt uppgjör sem birt er á vef Kauphallar Íslands. Hagnaður félagsins var tæpir 1,6 milljarðar í fyrra og því eykst hann um 700 milljónir milli ára. 2.3.2007 13:40 Húsleit hjá Terra Nova og Heimsferðum vegna gruns um samráð Samkeppniseftirlitð gerði í morgun húsleit hjá ferðaskrifstofunum Heimsferðum og Terra Nova í Skógarhlíð. Eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá ferðaskrifstofunum höfðu starfsmenn Samkeppniseftirlitsins með sér úrskurð þar sem kemur fram að rannsakað sé hvort samráð hafi átt sér stað milli ferðaskrifstofa innan Samtaka ferðaþjónustunnar (SAF) sem hafi hamlandi áhrif á samkeppni. 2.3.2007 13:31 Hættuleg efni í höndum grunnskólanema Samkvæmt nýrri könnun á vegum Umhverfisstofnunar og Heilbrigðiseftirlits sveitarfélaga eru ýmis atriði í ólagi varðandi meðhöndlun hættulegra efna í mörgum grunnskólum landsins. Efnin eru ýmist illa merkt eða geymd í ólæstum hirslum auk þess sem loftræsting í smíða- og efnafræðistofum er óviðunandi. 2.3.2007 13:21 Loðnan mokveiðist Mokveiði er hjá loðnuskipunum suður af Snæfellsnesi og eru mörg þeirra að slá botn í vertíðina í ár með því að klára kvóta sína í dag. 2.3.2007 13:15 Ósáttur við seljanda radarvara Engum hjáleiðum virðist vera að treysta þegar kemur að því að fara á svig við lög, eins og seinheppni ökumaðurinn komst að fullkeyptu í gærkvöldi. 2.3.2007 13:00 Framsókn ætlar að skerpa sína sérstöðu Framsóknarmenn ætla að skerpa á sérstöðu sinni á flokksþingi, sem Jón Sigurðsson formaður setti á Hótel Sögu í morgun. Þar verður kosningastefnuskrá mótuð sem og áherslur flokksins í komandi kosningabaráttu. 2.3.2007 12:30 Séra Pétur Þórarinsson látinn Séra Pétur Þórarinsson, sóknarprestur í Laufási, er látinn fimmtíu og fimm ára að aldri. Hann lést á Landspítalanum í gær. Árið 1996 kom út bókin Lífskraftur, baráttusaga Séra Péturs og Ingu í Laufási. Þar var farið yfir lífssögu Péturs sem barðist nær alla ævi við skæða sykursýki, sem hann greindist með á barnsaldri. 2.3.2007 12:30 Ísfirðingar illa sviknir af Marel Marel hefur greitt atvinnulífi Ísafjarðar þungt högg, segir bæjarstjórnin, með ákvörðun um að hætta starfsemi fyrirtækisins á Ísafirði í haust. Þá missa um tuttugu og fimm manns vinnuna. Bæjarfulltrúi Í-listans segir bæjarbúa illa svikna. 2.3.2007 12:17 Ýmsir tregðast við að lækka matarverð Söluturnar, veitingastaðir, kvikmyndahús og mötuneyti eru þau fyrirtæki sem síst virðast ætla að lækka verð ef marka má þær kvartanir sem borist hafa Neytendasamtökunum í gær og dag. Síminn hefur verið rauðglóandi hjá samtökunum sem hyggjast innan tíðar birta nöfn þeirra fyrirtækja sem ekkert lækka hjá sér verð. 2.3.2007 12:12 Leftist Greens Growing 2.3.2007 12:04 Hertóku skrifstofur Sósíaldemókrata Ungir mótmælendur í Kaupmannahöfn hafa hertekið skrifstofur Sósíaldemókrata við Sveasvej í Fredriksberg. Í yfirlýsingu frá hópnum sem hertók skrifstofurnar segir að það hafi greinilega ekki síast inn í höfuð stjórnmálamannana að vandamálin sem skapast hafa vegna Ungdomshússins séu stjórnmálalegs eðlis. 2.3.2007 11:31 Vill nýta geimverutækni gegn gróðurhúsaáhrifum Fyrrum varnarmálaráðherra Kanada, Paul Hellyer, sagði í gær að þjóðir heims þyrftu að deila með sér upplýsingum sínum um farartæki geimvera sem brotlent hefðu á jörðinni til þess að sporna við áhrifum loftslagsbreytinga. 1.3.2007 23:28 Enn ófremdarástand í Nörrebro Átökin í Kaupmannahöfn hafa nú breiðst út um Nörrebro. Ungmenni hafa kveikt elda víða um hverfið, reist vegatálma og tekið sér bólsetu í gömlum skóla. Lögregla notar nú táragas. Fólk á staðnum segir að stríðsástand ríki þar sem það er ástandið er hvað verst. 1.3.2007 23:09 Sjá næstu 50 fréttir
Miklir viðskiptamöguleikar fyrir íslensk fyrirtæki Íslensk fyrirtæki telja mikla möguleika felast í viðskiptum við Suður-Afríku, ekki síst vegna heimsmeistarakeppninnar í knattspyrnu sem þar fer fram árið 2010. Landsvirkjun er á meðal þeirra fyrirtækja sem taka þátt í afrísku útrásinni. 2.3.2007 20:02
Vill greiða fyrir viðskiptum Á fundi Valgerðar Sverrisdóttur, utanríkisráðherra, og Thabo Mbeki, forseta Suður-Afríku, í Höfðaborg í vikunni kom fram gagnkvæmur áhugi á samningum á sviði loftferða og tvísköttunar. Samkomulag um slíkt myndi greiða verulega fyrir viðskiptum landanna. 2.3.2007 19:51
Stálu 5 hundum Fjölskylda, í Los Angeles, varð fyrir heldur óskemmtilegri reynslu í gær þegar vopnaðir glæpamenn réðust inn á heimili hennar og rændu þaðan fimm hundum, þar af fjórum hvolpum sem voru til sölu. Atgangurinn náðist allur á myndband. 2.3.2007 19:21
Aumkunarverðir útúrsnúningar Framsóknar Steingrímur J. Sigfússon kallar það aumkunarverða útúrsnúninga Framsóknar að segja að hann hafi stutt virkjanir í neðri Þjórsá. Hann segir ljóst, nú þegar útfærsla þeirra liggur fyrir, að þær séu enn verri kostur en virtist í fyrra. 2.3.2007 19:12
Siv hótar stjórnarslitum Siv Friðleifsdóttir, heilbrigðisráðherra, hótaði nú síðdegis stjórnarslitum ef Sjálfstæðisflokkurinn stæði ekki við það ákvæði stjórnarsáttmálans að sameign þjóðarinnar á auðlindum verði fest í stjórnarskrá. Þetta kom fram í umræðum á flokksþingi Framsóknarflokksins. 2.3.2007 18:53
Loftslagsbreytingar jafn mikil ógn og stríð Framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna segir loftslagsbreytingar jafn mikla ógn við mannkynið og styrjaldir. Loftslagsmál verði sett á oddinn meðan hann stýri samtökunum. Skrifstofustjóri í umhverfisráðuneytinu segir sjö leiðir hugsanlega færar til lausnar á vandanum. 2.3.2007 18:45
Botnar ekkert í húsleit Samkeppniseftirlitsins Sveit manna frá Samkeppniseftirlitinu birtist fyrirvaralaust í morgun á öllum stærstu ferðaskrifstofum landsins og Samtökum ferðaþjónustunnar. Fyrirtækin eru grunuð um ólögmætt samráð. Framkvæmdastjóri Úrvals-Útsýnar segir samkeppnina aldrei hafa verið grimmari. Framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar segist ekkert botna í húsleitinni. 2.3.2007 18:30
Bílvelta á Hellisheiði Nú rétt í þessu varð bílvelta á Hellisheiði. Um jeppling var að ræða og virðist hann hafa skemmst mikið í veltunni. Að sögn sjónarvotta skreið ökumaðurinn, kona af erlendu bergi brotin, út úr bílnum án aðstoðar og virðist hafa sloppið ómeidd. 2.3.2007 18:23
Tæplega sjö milljarða króna tap hjá 365 á síðasta ári 365 hf, sem áður var Dagsbrún hf. og rekur meðal annars Vísir.is, tapaði sjö milljörðum króna á síðasta ári samkvæmt ársuppgöri sem birt var í dag. Er það mikill viðsnúningur frá árinu 2005 þegar hagnaður Dagsbrúnar var um 700 milljónir króna. 2.3.2007 17:34
18 lögreglumenn myrtir í Írak Hópur uppreisnarmanna í Írak, sem kallar sig „Íslamska ríkið í Írak“ og segist tengjast al-Kaída, skýrði frá því í dag að þeir hefðu rænt og myrt 18 lögreglumenn. Þeir sögðust hafa myrt mennina þar sem stjórnvöld í Írak virtu að vettugi kröfur þeirra. 2.3.2007 17:25
Svíar lána Dönum lögreglubíla Danska lögreglan hefur fengið tuttugu lögreglubíla að láni frá Svíþjóð, vegna átakanna í Kaupmannahöfn í tenglum við rýmingu Ungdómshússins. Sænsku bílarnir eru brynvarðir og ætlaðir til þess að setja í fólk sem er handtekið í óeirðum. Torsten Hesselberg ríkislögreglustjóri Danmerkur, segir þetta til marks um hversu alvarlegt ástandið sé. 2.3.2007 17:11
Mæður gegn Jamie Oliver Sjónvarpskokkurinn Jamie Oliver hefur fengið óvænta andstæðinga í baráttu sinni fyrir því að breskir skólar bjóði nemendum sínum upp á hollan mat. Það eru mæður sem mæta við skólann á matmálstímum og troða hamborgurum og fiski og frönskum í gegnum girðinguna. Hinummegin standa börn þeirra og háma í sig góðgætið. 2.3.2007 17:03
Siv hótar stjórnarslitum vegna auðlindaákvæðis Siv Friðleifsdóttir heilbrigðisráðherra segir að ríkisstjórnin gæti átt erfitt með að lifa það ef ekki næðist samkomulag um að binda í stjórnarskrá ákvæði um sameiginlega eign þjóðarinnar á auðlindum eins og getið sé í stjórnarsáttmála. 2.3.2007 17:00
Stofnfundur vegna framboðs Áhugahópur um málefni eldri borgara, öryrkja og aðstandenda þeirra ætlar að halda opinn stofnfund á Hótel Sögu sunnudaginn 14. mars. Hópurinn telur ríka þörf á sérframboði og að áhugi sé fyrir því meðal allra aldurshópa. 2.3.2007 16:52
Ung kona kærir lögregluna fyrir meint harðræði Nítján ára kona hefur falið lögmanni sínum að leggja inn kæru á hendur lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu vegna meints harðræðis við handtöku. Konan var handtekin aðfaranótt laugardags eftir að hafa sinnast við dyravörð á skemmtistað. 2.3.2007 16:43
Segir gylliboð á Netinu notuð til að fjármagna hryðjuverk Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu varar enn og aftur við gylliboðum á Netinu þar sem jafnvel séu á ferðinni hryðjuverkamenn sem noti þessa leið til að fjármagna starfsemi sína. 2.3.2007 16:25
Segir aðgerðina hefðbundið eftirlit Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins, segir húsleit hafa verið gerða á þremur stöðum í morgun í tengslum við grun um samráð ferðaskrifstofa og að aðgerðin hafi verið liður í hefðbundnu eftirliti. 2.3.2007 16:14
Yfir þrjátíu tónlistaratriði vera á Ísafirði um páskana Alls hafa þrjátíu og eitt atriði staðfest komu sína á tónlistarhátíðina Aldrei fór ég suður – rokkhátíðar alþýðunnar sem haldin verður á Ísafirði um páskana. 2.3.2007 16:09
Snjóflóð felllur á veginn um Hvalnesskriður Vegagerrðin segir veginn um Hvalnesskriður er ófæran eins og er vegna snjóflóðs. Ekki hefur náðst í lögreglu á Höfn í Hornafirði til þess að athuga hvort einhver hafi verið hætti kominn í flóðinu. Þá varar Vegagerðin við hálkublettum víða á Suðurlandi en á Vesturlandi eru vegir auðir nema á heiðum þar sem er lítilsháttar hálka. 2.3.2007 16:05
Fær höllina sína aftur Stjórnvöld í Rúmeníu hafa fallist á að skila aftur þrem höllum sem teknar voru af konungsfjölskyldu landsins skömmu eftir lok síðari heimsstyrjaldarinnar. Kommúnistastjórn landsins sló eign sinni á hallirnar þegar Mikael konungur afsalaði sér konungdómi árið 1947, undir miklum þrýstingi frá Sovétríkjunum. 2.3.2007 15:49
Boða til íbúafundar vegna mengunar í hverfinu Íbúasamtök 3.hverfis, sem eru Hlíðar, Holt og Norðurmýri, hafa boðað til íbúafundar á mánudaginn vegna þess ástands mengunarmála í hverfinu. Er vísað til þess svifryk og önnur loftmengun hafi ítrekað farið hátt yfir hættumörk í hverfinu og telji samtökin það algjörlega óviðunandi. 2.3.2007 15:29
Hillary Clinton er andstyggileg kona Newt Gingrich, fyrrverandi forseti neðri deildar bandaríska þingsins, kallaði Hillary Clinton "andstyggilega konu," í viðtali við dagblaðið New York Post. Hann taldi líklegt að hún verði frambjóðandi demókrata í komandi forsetakosningum. Gingrich bætti því við að enginn kæmist í hálfkvist við Clinton kosningavélina í skítkasti. 2.3.2007 15:13
Dæmdur fyrir vörslu 11 þúsund barnaklámsmynda Héraðsdómur Vesturlands hefur dæmt karlmann í níu mánaða fangelsi, þar af sex skilorðsbundna, fyrir vörslu yfir 11 þúsund ljósmynda af barnaklámi og tíu hreyfimynda. 2.3.2007 15:02
Smitaðist af lifrabólgu C við blóðgjöf Héraðsdómur Reykjavíkur komst í morgun að þeirri niðurstöðu að kona sem smitaðist af lifrarbólgu C við blóðgjöf ætti rétt á bótum frá íslenska ríkinu. Konan greindist með lifrabólgu C árið 1993. Konan smitaðist árið 1990 þegar hún var í meðferð á Landspítala-háskólasjúkrahúsi, þá Ríkisspítalar, vegna nýrnasjúkdóms. 2.3.2007 14:47
Auðvelda skráningu erlendra fyrirtækja í Kauphöll Viðskiptaráðherra hefur breytt reglugerð sem gefur fyrirtækjum til að mynda í Bandaríkjunum og Færeyjum kleift að sækja um skráningu í Kauphöllina hér á landi. 2.3.2007 14:41
Lét son sinn sofa úr sér í fangageymslu Móðir sextán ára pilts, sem fluttur var á lögrelustöðina við Hverfisgötu eftir slagsmál á balli í gærkvöldi, ákvað að láta piltinn sofa úr sér á stöðinni. 2.3.2007 14:35
Segir rökstuðning ráðherra fyrirslátt Arna Schram, formaður Blaðamannfélags Íslands, segir rökstuðning menntamálaráðherra fyrir því að virða að vettugi tilnefningar félagsins í sérfræðingaráð Norræna blaðamannaskólans og skipa Ólaf Þ. Stephensen, aðstoðarritstjóra Morgunblaðsins, í ráðið, fyrirslátt. 2.3.2007 14:25
Sýknuð af dauða kjörbarns Bresk hjón hafa verið látin laus úr fangelsi og sýknuð af því að hafa eitrað fyrir þriggja ára dreng sem þau vildu ættleiða. Ian og Angela Gay voru dæmd í fimm ára fangelsi í janúar árið 2005 fyrir að vera völd að dauða drengsins. 2.3.2007 14:11
Húsleit hjá öllum ferðaskrifstofum innan SAF Samkeppniseftirlitð gerði í morgun húsleit hjá öllum ferðaskrifstofum sem sem eru innan Samtaka ferðaþjónustunnar, en það eru allar helstu ferðaskrifstofur landsins. Starfsmenn eftirlitsins eru enn á skrifstofunum og hafa starfsmenn ferðaskrifstofunna aðstoðað þá við öflun gagna. 2.3.2007 13:55
Prodi aftur forsætisráðherra - barði þingmenn til hlýðni Romano Prodi er aftur orðinn forsætisráðherra Ítalíu, eftir að hann vann traustsyfirlýsingu á þingi, í dag. Prodi sagði af sér í síðasta mánuði, eftir að ríkisstjórn hans tapaði í atkvæðagreiðslu um utanríkisstefnu landsins. Það voru vinstri sinnaðir þingmenn sem felldu stjórnina vegna andstöðu við veru ítalskra hermanna í Afganistan. 2.3.2007 13:48
Formaður Framsóknarflokksins varar við eftirlíkingum Varist ódýrar eftirlíkingar en menn frá hægri og vinstri eru að laumast inn á miðjuna og blekkja fólk til fylgis við sig sagði Jón Sigurðsson, formaður Framsóknarflokksins, í ræðu sinni á flokkþingi Framsóknarflokksins sem hófst í dag. 2.3.2007 13:47
Hitaveita Suðurnesja hagnast um 2,3 milljarða Hitaveita Suðurnesja hagnaðist um rúma 2,3 milljarða króna á síðasta ári samkvæmt uppgjör sem birt er á vef Kauphallar Íslands. Hagnaður félagsins var tæpir 1,6 milljarðar í fyrra og því eykst hann um 700 milljónir milli ára. 2.3.2007 13:40
Húsleit hjá Terra Nova og Heimsferðum vegna gruns um samráð Samkeppniseftirlitð gerði í morgun húsleit hjá ferðaskrifstofunum Heimsferðum og Terra Nova í Skógarhlíð. Eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá ferðaskrifstofunum höfðu starfsmenn Samkeppniseftirlitsins með sér úrskurð þar sem kemur fram að rannsakað sé hvort samráð hafi átt sér stað milli ferðaskrifstofa innan Samtaka ferðaþjónustunnar (SAF) sem hafi hamlandi áhrif á samkeppni. 2.3.2007 13:31
Hættuleg efni í höndum grunnskólanema Samkvæmt nýrri könnun á vegum Umhverfisstofnunar og Heilbrigðiseftirlits sveitarfélaga eru ýmis atriði í ólagi varðandi meðhöndlun hættulegra efna í mörgum grunnskólum landsins. Efnin eru ýmist illa merkt eða geymd í ólæstum hirslum auk þess sem loftræsting í smíða- og efnafræðistofum er óviðunandi. 2.3.2007 13:21
Loðnan mokveiðist Mokveiði er hjá loðnuskipunum suður af Snæfellsnesi og eru mörg þeirra að slá botn í vertíðina í ár með því að klára kvóta sína í dag. 2.3.2007 13:15
Ósáttur við seljanda radarvara Engum hjáleiðum virðist vera að treysta þegar kemur að því að fara á svig við lög, eins og seinheppni ökumaðurinn komst að fullkeyptu í gærkvöldi. 2.3.2007 13:00
Framsókn ætlar að skerpa sína sérstöðu Framsóknarmenn ætla að skerpa á sérstöðu sinni á flokksþingi, sem Jón Sigurðsson formaður setti á Hótel Sögu í morgun. Þar verður kosningastefnuskrá mótuð sem og áherslur flokksins í komandi kosningabaráttu. 2.3.2007 12:30
Séra Pétur Þórarinsson látinn Séra Pétur Þórarinsson, sóknarprestur í Laufási, er látinn fimmtíu og fimm ára að aldri. Hann lést á Landspítalanum í gær. Árið 1996 kom út bókin Lífskraftur, baráttusaga Séra Péturs og Ingu í Laufási. Þar var farið yfir lífssögu Péturs sem barðist nær alla ævi við skæða sykursýki, sem hann greindist með á barnsaldri. 2.3.2007 12:30
Ísfirðingar illa sviknir af Marel Marel hefur greitt atvinnulífi Ísafjarðar þungt högg, segir bæjarstjórnin, með ákvörðun um að hætta starfsemi fyrirtækisins á Ísafirði í haust. Þá missa um tuttugu og fimm manns vinnuna. Bæjarfulltrúi Í-listans segir bæjarbúa illa svikna. 2.3.2007 12:17
Ýmsir tregðast við að lækka matarverð Söluturnar, veitingastaðir, kvikmyndahús og mötuneyti eru þau fyrirtæki sem síst virðast ætla að lækka verð ef marka má þær kvartanir sem borist hafa Neytendasamtökunum í gær og dag. Síminn hefur verið rauðglóandi hjá samtökunum sem hyggjast innan tíðar birta nöfn þeirra fyrirtækja sem ekkert lækka hjá sér verð. 2.3.2007 12:12
Hertóku skrifstofur Sósíaldemókrata Ungir mótmælendur í Kaupmannahöfn hafa hertekið skrifstofur Sósíaldemókrata við Sveasvej í Fredriksberg. Í yfirlýsingu frá hópnum sem hertók skrifstofurnar segir að það hafi greinilega ekki síast inn í höfuð stjórnmálamannana að vandamálin sem skapast hafa vegna Ungdomshússins séu stjórnmálalegs eðlis. 2.3.2007 11:31
Vill nýta geimverutækni gegn gróðurhúsaáhrifum Fyrrum varnarmálaráðherra Kanada, Paul Hellyer, sagði í gær að þjóðir heims þyrftu að deila með sér upplýsingum sínum um farartæki geimvera sem brotlent hefðu á jörðinni til þess að sporna við áhrifum loftslagsbreytinga. 1.3.2007 23:28
Enn ófremdarástand í Nörrebro Átökin í Kaupmannahöfn hafa nú breiðst út um Nörrebro. Ungmenni hafa kveikt elda víða um hverfið, reist vegatálma og tekið sér bólsetu í gömlum skóla. Lögregla notar nú táragas. Fólk á staðnum segir að stríðsástand ríki þar sem það er ástandið er hvað verst. 1.3.2007 23:09