Fleiri fréttir

D-listi á móti rekstri opinberra leikskóla?

Þrír frambjóðendur á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík eru á móti rekstri opinberra leikskóla og opinberum framlögum til menningar- og menntamála. Þessu heldur frambjóðandi Samfylkingarinnar í borginni fram.

Rússíbanar í bana stuði

Tónlistarunnendur létu ekki veðrið hafa áhrif á mætingu sína á tónleikar Rússíbananna og Kolbeins Ketilssonar í Íslensku óperunni í kvöld. Bekkirnir í óperunni voru þéttsetnir aðdáendum hljómsveitarinnar.

Hjallastefnan tekin upp á Hraunborg

Hjallastefnan ehf. mun taka við rekstri leikskólans Hraunborgar á Bifröst frá og með 1. ágúst næstkomandi. Fréttavefurinn Skessuhorn.is, greinir frá því að samningur þess efnis hafi verið undirritaður í dag.

Grillveisla hjá Skammtímavistun einhverfra barna

Margt var um manninn í grillveislu Skammtímavistunar fyrir einhverf börn í Hólabergi í kvöld. Snorri Idolstjarna söng fyrir hópinn og Latabæjarveggurinn svokallaði var vígður.

Þrjú verkalýðsfélög sameinast

Félagar í þremur verkalýðsfélögum á Vesturlandi hafa samþykkt sameiningu félaganna undir nafni Verkalýðsfélags Vesturlands. Félögin eru Verkalýðsfélag Borgarness, Verkalýðsfélagið Hörður í Hvalfirði og Verkalýðsfélagið Valur í Búðardal.

Sjálfstæðismenn til valda í Kópavogi

Sjálfstæðisflokkurinn næði meirihluta í bæjarstjórn Kópavogs ef kosið yrði nú, samkvæmt nýrri skoðanakönnun Félagsvísindastofnunar fyrir NFS. Sjálfstæðismenn fengju 46,8 prósent atkvæða og það dygði þeim til að fá sex bæjarfulltrúa af ellefu í Kópavogi.

Kosningavaka NFS og Stöðvar 2 allt þar til yfir lýkur

Áhersla verður lögð á skjótar, áreiðanlegar og skýrar upplýsingar á kosningavöku NFS, Stöðvar tvö og tengdra miðla sem fram fer að kvöldi kjördags. Kosningavakan hefst strax að loknum fréttum á laugardag og stendur þar til öll úrslit liggja fyrir.

Gjaldskyld bílastæði við Landspítalann

Þeir sem heimsækja Landspítalann við Hringbraut eða í Fossvogi á næstu vikum mega eiga von á stöðumælasekt ef þeir leggja í stæði nærri aðalbyggingunum án þess að greiða fyrir. Framkvæmdastjóri Bílastæðasjóðs segir stöðumælum komið þar upp að ósk stjórnenda spítalans sem vilja tryggja sjúklingum og aðstandendum þeirra betra aðgengi að spítalanum.

Hægt að lækka lyfjaútgjöld um 160 milljónir með einu lyfi

Tryggingastofnun ríksins gæti sparað um 160 milljónir króna í lyfjakostnað á ári ef hægt væri að kaupa samheitalyfið Sivacor, sem lækkar blóðfitu, á sama verði og í Danmörku. Hlutur sjúklinga yrði þá einnig tíu þúsund krónum lægri.

Tvískinnungur rauði þráðurinn

Árið 2005 var mótsagnakennt í mannréttindamálum í heiminum, því þótt margt hafi áunnist, grófu áhrifamiklar ríkisstjórnir undan væntingum um aukin mannréttindi. Þetta er í stuttu máli niðurstaða ársskýrslu mannréttindasamtakanna Amnesty International.

Vonskuveður víða um land

Hálka og skafrenningur er á Holtavörðuheiði og hálkublettir eru á Bröttubrekku og á Fróðárheiði. Vonskuveður er á Klettshálsi og vegurinn þungfær. Á Steingrímsfjarðarheiði er hálku og skafrenningur, hálkublettir eru á Ströndum og ófært er norðan Bjarnafjarðar. Í Húnavatnssýslum er víðast snjóþekja eða krapi á vegum og þæfingsfærð er fyrir Vatnsnes. Þá er sömuleiðis þæfingsfærð á Þverárfjalli, snjóþekja er á Siglufjarðarvegi og þungfært er í Fljótum.

Loftsteinn á leið til jarðar

Loftsteinn fellur á jörðina nú á fimmtudaginn ef marka má kenningar sem nú ganga ljósum logum á netinu.

Gæsluvarðhald stytt

Hæstiréttur stytti í dag gæsluvarðhaldsúrskurð yfir karlmanni sem handtekinn var fyrir að hafa í félagi við tvo aðra veist að manni, sett hann í farangursgeymslu bifreiðar og farið með hann upp í Heiðmörk.

Segir marga bresti hafa myndast í íslensku velferðarkerfi

Mikil aukning hefur verið meðal þeirra sem þurfa að leita aðstoðar Fjölskylduhjálpar Íslands á síðustu árum. Allt starf samtakanna er unnið í sjálfboðastarfi en um 60 fyrirtækjum, sem stutt hafa við Fjölskylduhjálpina, voru veitt þakkarbréf í Ráðherrabústaðnum í dag.

Dönsku fjölmiðlarnir gefa út fríblað

Fréttir hafa borist af því að Politiken og Jyllandsposten ætli að gefa út fríblað í Kaupmannahöfn líkt og Dagsbrúnarliðar. Blaðið mun bera nafnið Nyhederavisen, eða Fréttablaðið, upp á ástkæra ylhýra. Forstjóri 365 miðla í Danmörku segist ekki óttast samkeppnina.

20 prósent dýrara en yfirvinna Íslendinganna

Það verður 20 prósent dýrara að fá danska hjúkrunarfræðinga til starfa á Landspítalanum en að fá íslenska hjúkrunarfræðinga til að manna vaktirnar í yfirvinnu. Stjórnendur spítalans segja þetta hins vegar tryggja mönnun á þeim vöktum sem Danirnir eru ráðnir á meðan á sumarfríum starfsmanna stendur.

Kveikt var í sinu við Egilshöll

Kveikt var í sinu við Egilshöll á fjórða tímanum í dag. Að sögn Slökkviliðsins þá er ekki um stóran bruna að ræða en mikill reykur var á staðnum. Sinan var kveikt á opnu svæði fyrir aftan Egilshöll og eru slökkviliðsmenn á staðnum.

Landhelgisgæslan fjölgar þyrlum sínum

Ákveðið hefur verið að fjölga þyrlum Landhelgisgæslunnar um tvær. Þetta var ákveðið á fundi ríkisstjórnarinnar í morgun en leigja á tvær þyrlur, sambærilegar þeim sem nú er í rekstri hjá Landhelgisgæslunni, til viðbótar þeim sem fyrir eru. Miðað er við að þyrlurnar verði komnar til landsins eigi síðar en í september á þessu ári. Samhliða verður unnið að því að fjölga starfsfólki hjá Landhelgisgæslunni svo unnt sé að halda úti tveimur þyrluvöktum allan sólarhringinn allt árið.

Heildarkostnaður RÚV 19 milljónir

Heildarkostnaður Ríkisútvarpsins við þátttöku og útsendingar frá undanúrslitum og úrslitum Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva í Aþenu nam um 19 milljónum króna segir í tilkynningu frá Ríkisútvarpinu.

Eimskip eykur umsvif sín

Eimskip hefur gengið frá kaupum á helmings hlut í Kursia Linija, sem er eitt stærsta skipafélag í Eystarsaltsríkjunum í einkaeign. Heildartekjur fyrirtækisins á síðasta ári voru tæpir 4,3 milljaðrar króna.

Greiningardeild Glitnis mælir með KB banka

Greiningardeild Glitnis hefur uppfært verðmat sitt á KB banka. Verðmatsgengi á KB banka hefur verið lækkað úr 1.014 í 979 kr. á hlut. Í ljósi verðmatsins mælum við með að fjárfestar kaupi bréf í KB banka.

Áttundi þjóðmálafundur NFS í beinni útsendingu

Áttundi þjóðmálafundur NFS í beinni útsendingu vegna komandi sveitarstjórnarkosninga, verður haldinn í Kópavogi í kvöld. Þar situr nú meirihluti Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks, en klukkan fimm í dag birtum við fyrstu niðurstöður nýrrar skoðanakönnunar Félagsvísindastofnunar, sem sýnir hvort breyting er að verða á því.

Framtíðarskipulag Vatnsmýrarinnar stöðvuð

Samkeppni Reykjavíkurborgar um framtíðarskipulag Vatnsmýrarinnar hefur verið stöðvuð af kærunefnd útboðsmála. Um 18 arkitektastofur kærðu útboðið til nefndarinnar. Niðurstaða kærunefndarinnar kemur á óvart segir borgarstjóri.

Éljagangur og vetrarfæri er á Vestfjörðum

Éljagangur og vetrarfæri er á Vestfjörðum, Norður- og Norðausturlandi og víða hálka. Sums staðar hefur verði þæfingsfærð í morgun og eru vegagerðarmenn að störfum á öllum þessum svæðum við að hreinsa snjó af vegum.

Stór byggingakrani sporðreistist í Öskjuhlíð

Stór byggingakrani sporðreistist á byggingarsvæði við Keiluhöllina í Öskjuhlíð í morgun. Verið er að byggja við Keiluhöllina og mun kranastjórinn hafa teygt um of á bómu kranans með þeim afleiðingum að hann reis upp á endann. Engin slys urðu á fólki. Talið er að það þurfi tvo svipaða krana til að rétta kranann við.

Auglýstu störf á Íslandi og í Svíþjóð sem ekki voru fyrir hendi

Hátt í þrjátíu manns á Filippseyjum hafa höfðað mál á hendur fyrirtæki þar í landi fyrir að auglýsa störf á Íslandi og í Svíþjóð sem ekki voru fyrir hendi. Talið er að fyrirtækið hafi haft nærri níu milljónir króna af fólkinu með svikastarfsemi. Fyrirtækið sem um ræðir nefnist Cebu Manpower Corporation.

Samningar hafa náðst milli Félags hjúkrunarfræðinema og Landspítalans

Samningar hafa náðst milli Félags hjúkrunarfræðinema og Landspítalans að því er heimildarmenn fréttastofu herma. Samningurinn verður kynntur á blaðamannafundi síðar í dag en upphaflega ætluðu nýútskriftaðir hjúkrunarfræðingar ekki að ráða sig til starfa við spítalann vegna launanna.

TF-LÍF enn biluð

Stóra þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-LÍF, er enn biluð og hefur þá verið frá í viku, að minnsta kosti. Litla þyrlan, TF SIF, er enn í Noregi, þar sem unnið er að endurbótum á henni. Þyrlur Gæslunnar hafa verið óflughæfar samtímis fimmta hvern dag frá áramótum. Þá daga hefur þurft að treysta alfarið á þyrlur varnarliðsins eða dönsku strandgæslunnar.

Yfirdráttarlán heimilanna aukist um milljarð á mánuði

Yfirdráttarlán heimilanna hafa aukist um milljarð á mánuði síðastliðna tólf mánuði. Þau bera hærri vexti en þekkjast í öllum vestrænum hagkerfum og greiða íslensk heimili nú um það bil 15 milljarða króna í yfirdráttarvexti á ári.

Efling veiðarfærarannsókna á Ísafirði

Kynningarfundur um veiðarfærarannsóknir við Ísland var haldinn föstudaginn 19. maí í Háskólasetri Vestfjarða á Ísafirði, þar sem miðstöð rannsóknanna er á vegum Hafrannsóknastofnunarinnar. Á fundinum var ráðinn nýr veiðarfærasérfræðingur að stofnuninni, Ólafur Arnar Ingólfsson.

VÍS dæmt til að greiða konu skaðabætur

Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi Vátryggingafélag Íslands í morgun til að greiða konu tæplega 1,2 miljónir króna í bætur vegna umferðarslyss sem hún lenti í nóvember í árið 1995.

Mörgæsir snúa til síns heima

Nítján afrískættaðar mörgæsir fengu að snúa aftur til síns heima í New Orleans í gær. Mörgæsirnar voru á sædýrasafninu í New Orleans þegar fellibylurinn Katrína reið yfir á síðasta ári. Þeim var bjargað þaðan og hafa þær dvalið á sædýrasafni í Kaliforníu síðan í september á síðast ári. FedEx sá um flutninginn á mörgæsunum og lentu þær í New Orleans í gær og uppskáru hátíðlega athöfn.

Ölvuð á Miklubraut

Ölvuð 17 ára stúlka á Vespu mótorhjóli var stöðvuð á Miklubraut undir morgun og færð í blóðprufu. Ferðir Vespu á þessum tíma sólarhirngs vöktu athygli lögreglumanna , sem ákváðu að kanna málið nánar og kom þá hið sanna í ljós

Einn af leiðtogum Hamas handtekinn

Einn af meintum herskáum leiðtogum Hamas-hreyfingarinnar var handekinn í morgun. Ísraelski herinn segir hermenn hafa farið inn í bæinn Ramallah þar sem þeir hafi náð Ibrahim Hammad.

Létu greipar sópa á hugleiðslunámskeiði

Þjófar létu greipar sópa um yfirhafnir fólks, sem var á hugleiðslunámskeiði í menningarmiðstöðinni Gerðubergi í Breiðholti í gærkvöldi og stálu mörgum bíllyklum, veskjum og greiðslukortum. Einn lyklanna gekk að svörtum Bens, sem stóð fyrir utan, og stálu þjófarnir honum. Bíllinn og þjófarnir eru ófundnir en hugleiðslufólkið lét þegar loka öllum reikningum sínum, svo kortin yrðu ekki misnotuð. Málið er í rannsókn.

Handtóku háttsettan meðlim al-Qaida

Jórdönsk yfirvöld segjast hafa handtekið ónefndan háttsettan leiðtoga innan al-Qaida hreyfingarinnar í Írak. Samkvæmt fréttavef BBC fréttastofunnar er um að ræða einn helsta aðstoðarmann Abu Musab Al Zarqawi leiðtoga al-QWaida í Írak. Jórdönsk yfirvöld segja manninn sem handtekinn var eftirlýstan meðal annars fyrir mannrán og morð.

Þæfingur og krapi víða um land

Talsverð ofankoma var víða um norðanvert landið og Vestfirði í nótt, þannig að hálka og jafnvel þæfingur er víða á fjallvegum, en krapi og blota-snjór í byggð. Þannig er það til dæmis á Akureyri eftir talsverða snjókomu í nótt. Hinsvegar er komið sumar í höfuðstöðvum Veagerðarinnar þannig að engin hefur verið á vakt í morgun til að miðla færðarfréttum.

Niðurstöður kosninga í svartfjallalandi standa líklega

55,5 prósent kjósenda í Svartfjallalandi samþykktu aðskilnað frá Serbíu á sunnudag og mun Evrópusambandið að öllum líkindum viðurkenna niðurstöður kosninganna . Þetta er gert þrátt fyrir að sambandssinnar hafi krafist endurtalningar.

Reyna að dæla vatni úr námunni

Björgunarsveitarmenn í Kína reyna nú að dæla vatni úr kolanámunni þar sem 57 námumenn hafa verið fastir en vatn flæddi inn á námuna fyrir fimm dögum með fyrrgreindum afleiðingum. Lítil von er á að einhverjir finnist á lífi í námunni en vegna tæknilegra erfiðleika var ekki hægt að byrja að dæla vatni úr námunni fyrr. Dælurnar sem notaðar eru við dælinguna vinna mjög hægt og það getur því tekið björgunarmenn nokkra daga að tæma hana. Þetta er mannskæðasta námuslys í Kína á þessu ári.

Hálka víða um land

Hálka og vond færð er víða á þjóðvegum landsins. Á Holtavörðuheiði er hálka og hálkublettir eru á Bröttubrekku. Á Vestfjörðum er Þorskafjarðarheiði ófær, hálka og skafrenningur á Steingrímsfjarðarheiði en snjóþekja eða hálkublettir víðar.

Nýtt bóluefni við fuglaflensu

Vísindamenn hafa þróað bóluefni sem gæti orðið handhægt tæki í baráttunni við H5N1 fuglaflensu. Þeir segja þó rétt að geta þess að efnið gagnist mannfólkinu ekki til að forðast smit.

Breyting Íbúðalánasjóðs gegn sáttmála

Það brýtur í bága við stjórnarsáttmála að leggja Íbúðalánasjóð niður í núverandi mynd, í það minnsta meðan bankarnir bjóða ekki 90 prósenta lán, segir Kristinn H. Gunnarsson, þingmaður Framsóknarflokksins.

Lordi-torg í Rovaniemi

Finnar ráða sér vart af kæti yfir árangri finnsku þungarokkshljómsveitarinnar Lordi í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva um helgina. Borgaryfirvöld í Rovaniemi, heimabæ hljómsveitarinnar, hafa ákveðið að nefna torg í miðri borginni í höfuðið á henni. Þetta er í fyrsta sinn sem Finnar vinna sigur í þessari keppni og hafa þeir oft hlotið fremur háðuglega útreið og jafnan rekið lestina. Það má því segja að Finnar hafi fengið uppreisn æru, og vel það, þegar skrímslarokkssveitin Lordi fór með sigur af hólmi í keppninni í Aþenu á laugardaginn, og það með fáheyrðum fjölda stiga sem voru nærri því þrjú hundruð. Finnar hafa fagnað árangrinum en voru margir hverjir með nokkrar áhyggjur af því hvað áhrif flutningur Lordanna á laginu Hard Rock Hallelujah myndi hafa á ímynd landsins. Bæði Tarja Halonen, forseti Finnlands, og Matti Vanhanen, forsætisráðherra, hafa óskað rokkurunum til hamingju með árangurinn. Borgarstjórinn í Rovaniemi í Lapplandi sagði í dag að borgaryfirvöld vildu heiðra þessa frægu syni sína með því að nefna torg í miðborginni eftir hljómsveitinni. Torgið verður hluti af nýrri borgarmynd sem er verið að skipuleggja en auk Lordanna státar Rovaniemi sig af raunverulegu heimili jólasveinsins.

Sambandssinnar vilja endurtalningu

Sambandssinnar í Svarfjallalandi krefjast þess að atkvæði verði talin að nýju í þjóðaratkvæðagreiðslu þar sem Svartfellingar samþykktu með naumum meirihluta í gær að segja sig úr lögum við Serba. Kosningaeftirlitsmenn segja ekkert við framkvæmd kosninganna sem þeir geri athugasemd við.

Sjá næstu 50 fréttir