Fleiri fréttir

Markmiðið að koma í veg fyrir fjölgun innflytjenda

Ásgeir Hannes Eiríksson, sem hvatt hefur til stofnunar þjóðernisflokks á Íslandi, með það að markmiði að koma í veg fyrir fjölgun innflytjenda til Íslands, segist hafa fengið mjög jákvæð viðbrögð fólks við tillögu sinni. Skoðanakönnun Gallups sýnir að ríflega 32% þjóðarinnar væru reiðubúin að kjósa slíkan flokk.

Íslenskur maður enn í gæsluvarðhaldi í Burnley

Máli íslensks karlmanns, sem grunaður er um að hafa tælt enska stúlku á netinu, hefur verið vísað á æðra dómstig í Englandi. Maðurinn hefur setið í gæsluvarðhaldi frá því í febrúar.

Dóná vex enn

Meira en fimmtíu þúsund hektarar lands eru nú alveg á kafi í Austur-Evrópu eftir vatnavextina í Dóná. Þúsundir manna hafa yfirgefið heimili sín undanfarna daga í Rúmeníu, þar sem nærri tvö hundruð hús eru gjörónýt eftir vatnselginn.

Mótmælendur láta í sér heyra í Washington

Falun Gong-liðar komust í dag nær Kínaforseta í Bandaríkjunum heldur en þegar forseti landsins kom til Íslands árið 2002. Einn mótmælenda náði að setja fund forseta Kína og Bandaríkjanna úr skorðum um stund í Washington í dag.

Viktoríuvatn að hverfa

Stærsta stöðuvatn Afríku gæti þornað upp á næstu áratugum ef fram heldur sem horfir. Vatnsborð Viktoríuvatns hefur ekki verið lægra í heil áttatíu ár.

Ferðastyrkjum úr Vildabörnum úthlutað

25 börn og fjölskyldur þeirra fengu í dag ferðastyrk úr sjóðnum Vildarbörn Icelandair og hefur aldrei verið úthlutað til jafn maargra. Flestar fjölskyldurnar eru íslenskar en nú fær tvær fjölskyldur, frá Danmörku og Englandi, styrk úr sjóðnum.

Fluttur á Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri

Óskað var eftir aðstoð björgunarsveita vegna vélsleðaslyss sem varð í Gjástykki suður af Húsavík kl. 11 í morgun. Karlmaður fór þar á vélsleða sínum fram af klettavegg. Hann reyndist illa brotinn á handlegg og var fluttur á Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri þar sem hann gengst undir aðgerð á hendi.

Listi yfir nöfn fanga gerður opinber

Bandarísk stjórnvöld hafa gert opinberan lista yfir nöfn þeirra fanga sem eru í haldi í Guantanamo fangelsinu. Á listanum eru meira en fimmhundruð fangar frá fjörutíu og einu landi og sumir hafa verið í haldi í meira en fjögur ár.

Efling ályktar til stuðnings ófaglærðum á hjúkrunarheimilum

Fjölmennur félagsfundur Eflingar-stéttarfélags beindi því í gærkvöldi til samninganefndar hjúkrunarheimila og heilbrigðis- og fjármálaráðuneytis að ganga þegar í stað að kröfum launafólks á vinnustöðunum til að koma í veg fyrir fjöldauppsagnir ófaglærðra starfsmanna.

Skotbardagar og óeirðir í Nepal

Allt logar í óeirðum í höfuðborg Nepals, þar sem skotbardagar geysuðu í morgun á milli lögreglu og mótmælenda úr röðum stjórnarandstæðinga í landinu. Tugþúsundir manna hafa virt útgöngubann í höfuðborginni að vettugi.

Aðeins tímaspursmál að þjóðernisflokkur yrði stofnaður

Dósent í stjórnmálafræði segir að það komi ekki á óvart að menn hyggi á að stofna þjóðernisflokk hér á landi líkan þeim sem þekkjast í nágrannalöndunum, slíkt hafi aðeins verið tímaspursmál. Hann segir að frekar beri að nýta kraft nýrra Íslendinga en að efna til ófriðar við þá.

Hátíðahöld víða um land í tilefni sumarkomu

Ætla má að brúnin sé farin að lyftast á flestum landsmönnum því sumartíð með blóm í haga er framundan. Fyrsti dagur sumars er einmitt í dag og verður hann haldinn hátíðlegur víða um land. Vetur og sumar frusu saman í nótt sem sagt er að boði hlýtt sumar.

Örlög Varnarliðsins ráðin þegar Davíð hætti

Örlög Varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli voru ráðin þegar Davíð Oddsson gekk úr ríkisstjórninni, því að mati Bandaríkjamanna var Bush forseti þá ekki lengur bundinn af persónulegum loforðum við Davíð, segir John Vinocur dálkahöfundur The New York Times.

Kappakstur á Akureyri

Lögreglan á Akureyri batt enda á kappakstur tveggja sautján ára ökumanna á Hörgárbraut upp úr miðnætti í nótt. Annar var á 115 kílómetra hraða en hinn á 103 kílómetra hraða þar sem hámarkshraði er 50. Þá stöðvaði lögreglan í Keflavík ökumann á 166 kílómetra hraða á Reykjanesbraut í gærkvöldi.

BÍ mótmælir frumvarpi dómsmálaráðherra

Aðalfundur Blaðamannafélags Íslands í gærkvöldi mótmælti harðlega fyrirætlunum um að þrengja starfsskilyrði blaðamanna sem fram koma í frumvarpi dómsmálaráðherra um breytingar á lögum um dómstóla.

Vélsleðaslys í Gjástykki

Óskað var eftir aðstoð björgunarsveita vegna vélsleðaslyss sem varð í Gjástykki suður af Húsavík kl. 11 í morgun. Karlmaður fór þar á vélsleða sínum fram af klettavegg og samkvæmt upplýsingum frá lögreglu mun hann hafa handleggsbrotnað.

Mannskæður eldur í Moskvu

11 létust og 4 slösuðust í miklum eldi sem braust út í gámum byggingaverkamanna rétt utan við Moskvu í Rússlandi. Verkamennirnir voru sofandi þegar eldurinn braust út og þeir sem létust vöknuðu aldrei og reykeitrum varð þeim að bana.

Vetur og sumar frusu saman í nótt

Sumardagurinn fyrsti verður haldinn hátíðlegur víða um land í dag, þar á meðal í flestöllum hverfum Reykjavíkur. Þess má geta að vetur og sumar frusu saman í nótt sem sagt er að boði hlýtt sumar.

Heimsmarkaðsverð á olíu rauk upp í gær

Heimsmarkaðsverð á olíu rauk upp þriðja daginn í röð í gær. Verðið á tunnu endaði í rúmlega 72 bandaríkjadölum í New York í gær og hækkaði um nærri einn dal frá deginum áður.

Ringulreið ríkir í Nepal

Algjör ringulreið ríkir í Katmandu, höfuðborg Nepals, þar sem skotbardagar geysuðu í morgun á milli lögreglu og mótmælenda úr röðum stjórnarandstæðinga í landinu. Mótmælendurnir krefjast þess að Gyanendra konungur afsali sér einræðisvaldi sem hann tók sér fyrir rösku ári.

Fólskuleg árás í Laugardal

Maður réðst fólskulega á fimmtán ára stúlku og sló hana í höfuðið með hafnarboltakyldu í Laugardal í gærkvöld. Mannsins er enn leitað.

Kemur ekki á óvart að menn hyggi á þjóðernisflokk

Dósent í stjórnmálafræði segir að það komi ekki á óvart að menn hyggi á að stofna þjóðernisflokk hér á landi líkan þeim sem þekkjast í nágrannalöndunum, slíkt hafi aðeins verið tímaspursmál. Hann segir að frekar beri að nýta kraft nýrra Íslendinga en að efna til ófriðar við þá.

Ættu að taka 3X Stál sér til fyrirmyndar

Íslendingar ættu að horfa til fyrirtækja eins og Þriggja Ex Stáls í umræðunni um byggðastefnu landsins. Þetta sagði Ólafur Ragnar Grímsson við afhendingu Útflutningsverðlauna forseta Íslands á Bessastöðum í dag.

Engin ákvörðun um legu Sundabrautar fyrir kosningar

Ekki verður tekin ákvörðum um hvar Sundabraut á að liggja fyrir borgarstjórnarkosningarnar í vor. Málið er nú í samráðsnefnd en niðurstöðu hennar er ekki að vænta fyrr en í fyrsta lagi í sumar.

Enn hækkar verð á bensíni

Verð á bensíni heldur áfram að hækka og hefur lítrinn af 95 oktana bensíni hækkað um rúmar 16 krónur frá áramótum. Ekki er útlit fyrir að verðið eigi eftir að lækka í bráð þar sem heimsmarkaðsverð heldur áfram að hækka og krónan að veikjast.

Áslaug og Sigrún hlutu barnabókaverðlaun menntaráðs

Áslaug Jónsdóttir og Sigrún Árnadóttir hlutu í dag barnabókaverðlaun menntaráðs Reykjavíkur fyrir árið 2006. Verðlaunin voru veitt við hátíðlega athöfn í Höfða í dag, en þetta var í þrítugasta og fjórða sinn sem það er gert.

Steingrímur aftur til starfa á þingi

Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs, sneri aftur til starfa á þingi í dag þegar þingið kom saman eftir viku páskafrí. Eins og kunnugt er slasaðist Steingrímur töluvert í bílslysi í Húnavatnssýslu um miðjan janúar þegar bíll hans valt í Bólstaðarhlíðarbrekku.

Sagðir selja líffæri úr dauðadæmdum föngum

Kínverjar selja líffæri úr þúsundum dauðadæmdra fanga á hverju ári, án samþykkis þeirra. Þetta fullyrða bresk samtök sem hafa eftirlit með líffæraflutningum. Kínversk stjórnvöld neita ásökununum.

Stefna á meirihluta í bæjarstjórn

Sjálfstæðismenn á Akranesi vonast til að ná meirihluta í bæjarstjórn í fyrsta skipti í meira en 60 ár. Til að auka möguleika sína á því hafa þeir fengið Gísla S. Einarsson, fyrrum þingmann Samfylkingarinnar, til að vera bæjarstjóraefni sitt.

Blása í herlúðra gegn hlutafélagavæðingu RÚV

Samfylkingin blés í dag í herlúðra til baráttu gegn frumvarpi ríkisstjórnarinnar um hlutafélagavæðingu Ríkisútvarpsins. Frumvarpið var tekið til annarrar umræðu á þingi í dag en öll stjórnarandstaðan er efnislega á móti frumvarpinu. Búast má við miklum ræðuhöldum um málið fram á miðnætti og þegar þingið kemur aftur saman á föstudag.

Forysta Framsóknarflokksins gengur ekki í takt

Kristinn H. Gunnarsson og það að flokksforystan gengur ekki í takt er helsti vandi Framsóknarflokksins í dag segir Hjálmar H. Árnason, formaður þingflokks Framsóknar. Skoðanakannanir sýna að flokkurinn tapar miklu fylgi í hverju sveitarfélaginu á fætur öðru.

Flugvöllurinn burt og göng um Öskjuhlíð

Öskjuhlíðargöng, Sundabraut, gjaldfrjáls leikskóli og þjónustutrygging fyrir aldraða eru meðal kosningaloforða Samfylkingarinnar í Reykjavík fyrir komandi kosningar. Þá verði flutningur flugvallarins undirbúinn á kjörtímabilinu.

Gengið hrapar

Íslenska krónan hefur fallið um rúm þrjátíu prósent frá áramótum. Gengisfall krónunnar hélt áfram í dag sem og gengi bréfa í Kauphöll Íslands, mest í FL Group eða um fimm komma fimm prósent.

Umferðarslys á Reykjanesbraut

Tveir vörubílar rákust saman á Reykjanesbrautinni rétt um klukkan fimm í dag. Bílarnir komu úr gagnstæðum áttum og voru bílstjórar þeirra fluttir á slysadeild þar sem þeir eru nú í rannsókn. Samkvæmt vakthafandi lækni á Slysadeild eru mennirnir ekki í bráðri lífshættu. Mikil umferðarteppa myndaðist við slysstað og var veginum lokað um tíma. Reykjanesbrautin er enn lokuð til norðurs og býst lögreglan í Hafnarfirði við því að hann verði opnaður aftur um klukkan sjö.

Fundarhlé á Alþingi vegna þingflokksfunda

Nú er fundarhlé á Alþingi þar sem hefðbundnir þingflokksfundir standa yfir. Þeim lýkur klukkan sex en þá halda væntanlega áfram heitar umræður um frumvarp ríkisstjórnarinnar um hlutafélagavæðingu Ríkisútvarpsins.

Hæstiréttur staðfestir gæsluvarðhaldsúrskurð

Hæstiréttur staðfesti rétt í þessu gæsluvarðhaldsúrskurð yfir tveimur mönnum sem handteknir voru í tengslum við fíkniefnamál sem kom upp á skírdag. En mennirnir voru úrskurðaðir í gæslunarðhald til 5 maí.

Hestamaður liggur þungt haldinn á gjörgæslu

Maður féll af hestbaki í Fljótshlíðinni síðastliðin laugardag og liggur hann enn þungt haldinn á gjörgæsludeild Landspítala-Háskólasjúkrahúss, með mikla áverka á hálsi. Að sögn vakthafandi læknis er ástand hans stöðugt en honum er haldið í öndunarvél. Ekki er vitað enn hvort hann hefur beðið varanlegan skaða af fallinu.

Heilsa hf. innkallar Liðaktin úr verslunum

Heilsa hf hefur innkallað Liðaktin úr verslunum tímabundið vegna vísbendinga um framleiðslugalla. En við skoðun á einni sendingu af Liðaktini hefur komið fram vísbendingar um að ekki sé tilskilið magn af Glucosamin HCL og Chondroitin Sulfat í töflunum miðað við þær upplýsingar sem framleiðandi gefur upp.

Sjá næstu 50 fréttir