Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Minnst 40 féllu í sprengjuárás í Pakistan Að minnsta kosti 40 féllu og fjölmargir særðust þegar öflug sprengja sprakk í garði í hafnarborginni Karachi í Pakistan í dag. Múslimar höfðu safnast þar saman til að fagna fæðingardegi Múhameðs spámanns. 11.4.2006 16:00
Daggjöld verða að hækka Daggjöld verða að hækka til að samningar geti náðst við ófaglært starfsfólk dvalar- og hjúkrunarheimila. Þetta segir formaður Samtaka fyrirtækja í heilbrigðisþjónustu. Hagfræðingur Eflingar hefur sagt að til fjöldauppsagna komi fá starfsfólkið ekki leiðréttingu á kjörum sínum á næstu vikum. 11.4.2006 15:52
Ráðlagt að sniðganga fundi með Hamas-liðum Sameinuðu þjóðirnar hafa ráðlagt yfirmönnum hjálparsamtaka á þeirra vegum að sniðganga fundi með stjórnmálaleiðtogum Hamas-samtakanna. Þeir er einnig ráðið frá því að eiga samskipti við forystumenn palestínsku heimastjórnarinnar sem Hamas-liðarnir fara fyrir. 11.4.2006 15:30
29 ákærðir vegna hryðjuverkanna í Madríd 29 menn voru í dag ákærðir fyrir aðild að sprengjuárásunum í Madríd á Spáni í mars 2004 sem urðu hátt í 200 manns að bana. Rúmlega 1700 manns særðust í hryðjuverkaárásinni en herskáuum múslimum hefur verið kennt um. 11.4.2006 15:15
LSH dæmt til að greiða bætur Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt Landspítalann Háskólasjúkrahús til að greiða manni sem gekkst undir aðgerð á hné rúmar sex milljónir í bætur vegna varanlegrar örorku sem hann hlaut vegna hennar. 11.4.2006 15:00
Prodi fagnar sigri talskir stjórnmálamenn eru búnir að vera í sannkallaðri rússíbanaferð í nótt. Eftir að Romano Prodi hafði þegar fagnað sigri í gærkvöldi, missti Ólívubandalag hans meirihlutann í öldungadeildinni. Síðustu atkvæðin utan úr heimi færðu því meirihlutann aftur, en tæpara getur það ekki staðið. 11.4.2006 14:45
Fjöldauppsagnir óumflýjanlegar Hagfræðingur Eflingar segir fjöldauppsagnir óumflýjanlegar á dvalar- og hjúkrunarheimilum ef samninganefnd Samtaka fyrirtækja í heilbrigðisþjónustu bregst ekki jákvætt við kröfum starfsfólksins. 11.4.2006 12:41
Davíð vill stýrivexti í 16 % Ef Seðlabankinn hækkar stýrivexti sína í 16 prósent myndu vextir bankanna af yfirdráttarlánum og raðgreiðslusamningum hækka um allt að 25 prósent. Það þýðir að af 500 þúsund króna yfirdrætti yrðu vextir rúm 127 þúsund krónur á ári. 11.4.2006 12:38
Jón Gerald bar ljúgvitni gegn Jóhannesi Lögmaður Jóhannesar Jónssonar í Bónus segir Jón Gerald Sullenberger hafa borið ljúgvitni gegn Jóhannesi hjá lögreglu og á þeirri lygi hafi ákæra gegn honum verið byggð í Baugsmálinu. Jóhannes hefur kært Sullenberger til ríkislögreglustjóra. Þá hefur hann kvartað undan yfirmanni efnahagsbrotadeildar lögreglunnar og ríkislögreglustjóra við umboðsmann Alþingis. 11.4.2006 12:12
Heróín fannst í fyrsta skipti á farþega á Keflavíkurflugvelli Heróín fannst í fyrsta skipti á farþega á Keflavíkurflugvelli á sunnudag, þegar karlmaður á fimmtugsaldri reyndi að smygla efninu innvortis til landsins. Hann var að koma frá Amsterdam og þótti lögreglu og tollgæslu tilefni til að skoða hann nánar. 11.4.2006 11:11
Ítalska lögreglan handtók í morgun yfirmann mafíunnar Ítalska lögreglan handtók í morgun Bernardo Provenzano yfirmann mafíunnar á Sikiley. Hann hafði verið á flótta í meira en fjörutíu ár, en þrátt fyrir ítarlega leit tókst lögreglunni ekki að hafa hendur í hári hans fyrr en nú. 11.4.2006 10:56
Mál gegn fyrrverandi ritstjórum DV tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur Í dag var tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur mál manns sem lagður var inn á Landspítalann vegna hermannaveiki, gegn Jónasi Kristjánssyni og Mikael Torfasyni, fyrrverandi ritstjórum DV vegna umfjöllunar blaðsins um málið. 11.4.2006 10:48
Gistinóttum hérlendis fjölgar um 4,8% Heildarfjöldi gistinátta á Íslandi var 2.232.911 árið 2005 sem er 4,8% aukning frá fyrra ári. Gistinóttum fjölgaði frá árinu 2004 á hótelum og gistiheimilum um 6,8%, orlofshúsabyggðum um 25,7%, í skálum í óbyggðum um 3,4% og á farfuglaheimilum um 0,2%. 11.4.2006 10:25
Hestahvíslarinn Monty Roberts kominn til landsins Einn þekktasti hestahvíslari heims, Monty Roberts er kominn til landsins. Monty er kominn hingað til lands til að sýna íslendingum hvernig hann nálgast og temur hross á sinn einstaka hátt. Sýning þessa meistara verður haldin á skírdag í Reiðhöllinni í Víðidal og er bara um eina sýningu að ræða. 11.4.2006 09:36
Sóley Sigurjóns KE fékk á sig brotsjó Togbáturinn Sóley Sigurjóns KE fékk á sig brotsjó þegar hann var staddur út af Reykjanesi um miðnæturbil. Höggið var svo mikið að einn skipverja kastaðist til og hlaut skurð á höfði og högg á bakið. 11.4.2006 09:32
Vill ekki verða forseti Frakklands Dominique du Villepin, forsætisráðherra Frakklands, sagði í sjónvarpsviðtali í gær að hann hefði engan áhuga á að verða forseti landsins eins og haldið hefur verið fram. Þá sagðist hann ekki vera fallinn í ónáð hjá Jacques Chirac forseta landsins í kjölfar umdeildrar atvinnulöggjafar stjórnarinnar sem dregin var til baka vegna mikillar óánægju námsmanna og verkalýðsfélaga. 11.4.2006 09:00
Krefjast úrbóta í málefnum innflytjenda Hundruð þúsunda tóku þátt í mótmælagöngum víða um Bandaríkin í gær og kröfðust úrbóta í málefnum innflytjenda. Mjög skiptar skoðanir eru um hvernig taka skal á þessu máli en talið er að á milli ellefu til þráttán milljónir ólöglegra innflytjenda búi í landinu. Í síðustu viku benti margt til að öldungadeild Bandaríkjaþings hefði náð samkomulagi um nýja tillögu 11.4.2006 08:45
Boða viku setuverkfall Starfsfólk á dvalar- og hjúkrunarheimilum sem verið hafa í aðgerðum undanfarnar tvær vikur, samþykktu á fundi í gær að boða til viku setuverkfalls, sem tekur gildi 21. apríl. Boðaður hefur verið fundur starfsfólksins með forstöðumönnum hjúkrunarheimilisins þann 19. apríl. Ef samkomulag næst ekki eða ef fyrirhugaðar aðgerðir bera ekki árangur, er boðað að gripið verði til fjöldauppsagna. 11.4.2006 08:30
Fyrrum forstjóri Enron segist saklaus Jeffrey Skilling, fyrrverandi yfirframkvæmdastjóri bandaríska orkusölufyrirtækisins Enron, lýsti sig saklausan er hann bar vitni við réttarhöldin í máli sínu og Kenneths Lays, fyrrverandi forstjóra Enron, í Houston í gær. Skilling og Lay eru ákærðir fyrir að hafa leynt raunverulegri fjárhagsstöðu fyrirtækisins fyrir fjárfestum áður en það varð gjaldþrota árið 2001. Skilling sagði í gær að hann myndi berjast fyrir sakleysi sínu til dauðadags. 11.4.2006 08:15
Prodi fagnar sigri Miðvinstri-fylkingin, undir forystu Romanos Prodis, sigraði í þingkosningunum á Ítalíu sem fram fóru á sunnudag og í gær. Fylkingin fékk til neðri deildarinnar 49,8 prósent atkvæða en hægri fylking Berlusconis forsætisráðherra fékk 49,7 prósent. Munurinn var því einungis 0,07 prósent eða um 25 þúsund. 11.4.2006 07:54
Lést í snjóflóði Vélsleðamaðurinn sem lenti í snjóflóði í Hoffellsdal, fyrir ofan Fáskrúðsfjörð í kvöld, er látinn. Hann var á þrítugsaldri en ekki er hægt að greina frá nafni hans að svo stöddu. 10.4.2006 23:20
Hundur fann vélsleðamanninn Vélsleðamaðurinn sem lenti í snjóflóði í Hoffellsdal við Reyðarfjörð fannst upp úr klukkan átta í kvöld, um það bil tveimur klukkustundum eftir að hann lenti í flóðinu. Farið var með hann á sjúkrahús í flýti en ekki er hægt að greina frá afdrifum hans að svo stöddu. 10.4.2006 22:11
Ekki kemur til greina að taka upp vegtoll Hugmyndir um vegtoll um Suðurlandsveg eru algjörlega óásættanlegar að mati Björgvins G. Sigurðssonar, þingmanns Samfylkingarinnar. Tryggingafélagið Sjóvá vill endurbyggja Suðurlandsveg með tveimur akreinum í hvora átt og en forstjóri fyrirtækisins segir að jafnvel megi fjármagna framkvæmdirnar með vegtolli. 10.4.2006 23:19
Pólitísk framtíð forsætisráðherra Frakklands óráðin Jacques Chirac Frakklandsforseti tilkynnti í dag að umdeildar breytingar á atvinnulöggjöf landsins yrðu afnumdar. Pólitísk framtíð Dominique de Villepin, forsætisráðherra, þykir óljós en hann barðist fyrir lögunum með oddi og egg. 10.4.2006 23:00
Bush vísar fréttum á bug Bush Bandaríkjaforseti vísar alfarið á bug fréttum í fjölmiðlum um nýliðna helgi þess efnis að Bandaríkjamenn ætli að ráðast gegn hernaðarlegum skotmörkum í Íran með kjarnorkuvopnum. Hann segir bandarísk stjórnvöld stefna að því að semja um lausn á kjarnorkudeilunni við stjórnvöld í Teheran. 10.4.2006 22:45
Nokkuð um hraðakstur í nágrenni Blönduós Átta ökumenn voru stöðvaðir fyrir of hraðan akstur í umdæmi lögreglunnar á Blönduósi í kvöld. Grunur leikur á að einn ökumannanna hafi verið undir áhrifum áfengis. Sá sem ók hraðast mældist á rúmlega 120 km hraða en eins og kunngut er, þá er 90 km hámarkshraði á þjóðvegum landsins. 10.4.2006 22:32
Magnea Þorkelsdóttir biskupsfrú látin Magnea Þorkelsdóttir biskupsfrú, eiginkona Sigurbjarnar Einarssonar biskups, er látin, 95 ára að aldri. Fréttavefur Morgunblaðsins greindi frá þessu í kvöld. 10.4.2006 22:31
Má vart á milli sjá Lokaspretturinn í ítölsku þingkosningunum hefur verið hörkuspennandi en svo virðist sem stjórn Silvio Berlusconis, forsætisráðherra, ætli að halda naumum meirihluta í efri deild þingsins en missa hann naumlega í neðri deild. Fyrr í dag bentu útgönguspár til þess að stjórnin væri fallin og bandalag vinstri flokkana, með Romano Prodi í broddi fylkingar, hefði náð meirihluta. 10.4.2006 22:11
Mótmæla stóriðjuframkvæmdum Enn fjölgar þeim hópum í samfélaginu sem eru á móti stóriðjuframkvæmdum. Samtök ferðaþjónustunnar og unglingar í Austurbæjarskóla hafa nú stigið fram gegn stóriðjuframkvæmdum stjórnvalda. 10.4.2006 22:06
Maðurinn fundinn Maðurinn sem leitað hefur verið að eftir snjóflóð í Hoffellsdal fyrir ofan Fáskrúðsfjörð er fundinn. Ekki er vitað um ástand hans að svo stöddu. 10.4.2006 21:18
18 mánaða dómur fyrir að rjúfa skilorð Héraðsdómur Reykjaness dæmdi í dag karlmann á þrítugsaldri í eins og hálfs árs óskilorðsbundið fangelsi fyrir að stela seðlaveski. Með brotinu sem dæmt var fyrir í dag rauf hann skilorðið og var því fyrri dómur tekinn upp. 10.4.2006 21:00
Fyrstu björgunarsveitarmenn komnir Fyrstu björgunarsveitarmenn eru komnir í Hoffelsdal við Fáskrúðsfjörð en eins manns er saknað eftir að snjóflóð féll þar undir kvöldið. Leit er hafin og björgunarsveitarmenn notast við leitarhunda. Tveir vélsleðamenn voru á ferð þegar snjóflóðið féll og lenti annar mannanna í flóðinu. 10.4.2006 20:04
Óvíst hverjir fá meirihluta í ítölsku þingkosningunum Allt stefni í hörkuspennandi lokasprett í ítölsku þingkosningunum en fyrstu tölur benda til þess að stjórn Silvio Berlusconis, forsætisráðherra, haldi naumum meirihluta í báðum deildum þingsins. Fyrr í dag bentu útgönguspár til þess að stjórnin væri fallin og bandalag vinstri flokkana, með Romano Prodi í broddi fylkingar, hefði náð meirihluta. 10.4.2006 19:58
Chirac skarst í leikinn Jacques Chirac Frakklandsforseti tilkynnti í dag að umdeildar breytingar á atvinnulöggjöf landsins yrðu afnumdar. Pólitísk framtíð Dominique du Villepin forsætisráðherra þykir óljós en hann barðist fyrir lögunum með oddi og egg. 10.4.2006 19:02
Enn á neyslufylleríi þrátt fyrir viðvörunarbjöllur Vöruinnflutningur jókst um ríflega þriðjung, í krónum talið, í síðasta mánuði. Hluti skýringarinnar liggur í lækkun krónunnar, en að sama skapi má ætla að þrátt fyrir viðvörunarbjöllur sé þjóðin enn á neyslufylleríi. 10.4.2006 19:00
Vísa orðum Hersh á bug Bandarísk stjórnvöld neita því alfarið að þau íhugi að gera kjarnavopnaárás á írönsk kjarnorkuver eins og fullyrt er í tímaritinu New Yorker. Þau útiloka þó ekki að beita Írana hervaldi haldi þeir kjarnorkuáætlun sinni til streitu. 10.4.2006 18:54
Kirkjukrytur í Reykjanesbæ Yfirgnæfandi meirihluti kosningabærra manna í Reykjanesbæ hefur óskað eftir því að Sigfús B. Ingvason verði sóknarprestur í Keflavíkursókn. Málið er nú í höndum kirkjumálaráðherra. 10.4.2006 18:45
Byggingu samgöngumiðstöðvar á Reykjavíkurflugvelli mótmælt Forsvarsmenn samtakanna Flugkef, sem berjast fyrir því að innanlandsflugið verði flutt til Keflavíkurflugvallar, gagnrýna harðlega fyrirhugaða byggingu samgöngumiðstöðvar á Reykjavíkurflugvelli. Hver á að borga? Spyrja þeir. 10.4.2006 18:45
Náið samstarf við NATO Náið samstarf verður haft við Atlantshafsbandalagið um framtíð öryggis- og varnarmála Íslands, þegar Bandaríkjamenn hafi lagt fram útfærslu á því hvernig þeir hyggist halda í heiðri ákvæði varnarsamningsins. Þetta segir Halldór Ásgrímsson, forsætisráðherra, og jafnframt að framkoma Bandaríkjamanna í garð Íslendinga geri það að verkum að samstarf þjóðanna verði aldrei hið sama. Forsætisráðherra er ekki bjartsýnn á framahald samningaviðræðna við Bandaríkjamenn um varnir landsins og útilokar ekki að það komi til uppsagnar varnarsamningsins. Þetta kom fram í erindi sem hann flutti í Háskóla Íslands í dag um framtíðarstefnu Íslendinga í öryggis- og varnarmálum. Jafnframt að hvergi verði hvikað frá því að varnir Íslands séu sýnilegar og öflugar þótt erfitt væri að sjá hvernig það mætti vera án þess að herþotur væru hér. Því hafi Bandaríkjmenn haldið fram og nú væri beðið eftir því að þeir bæru fram frekari útskýringar. Forsætsráðherra segir Bandaríkjamenn þurfa að uppfylla stefnu Atlantshafsbandalagsins um loftvarnir og náið samstarf verði haft við bandalagið og þá sérstaklega framkvæmdastjóra þess, Jaap de Hoop Scheffer, þegar áætlun Bandaríkjamanna liggur fyrir. Enga launung væri á því að framkoma bandarískra stjórnvalda varðandi brottflutning héðan hafi skapað vantraust milli þjóðanna. Í ljósi breyttra aðstæðna sagði forsætisráðherra að þátttaka íslendinga innan Öryggis- og samvinnustofnun Evrópu, Atlantshafsbandalagsins og Sameinuðu þjóðanna yrði efld. Sömu sögu væri að segja um samstarf á vettvangi Schengen, jafnframt því sem þátttaka okkar í friðargæslu, þróunarhjálp og þróunarsamvinnu yrði efld. Utanríkisþjónustan þroskuð og möguleikar til þátttöku í alþjóðasamstarfi. Tækjabúnaðaður Landhelgisgæslunnar yrði stórefldur og einnig Víkingasveit lögreglunnar. Starfið yrði aukið í takt við auknar þjóðartekjur. 10.4.2006 18:45
Eins er saknað eftir að snjóflóð féll í Hoffellsdal Eins manns er saknað eftir að snjóflóð féll í Hoffellsdal í nágrenni Fáskrúðsfjarðar fyrir síðdegis í dag. Björgunarsveitir eru á leið á staðinn frá Reyðarfirði, Eskifirði og Neskaupsstað. 10.4.2006 18:16
Nagladekkin að lenda á bannlista Þeir sem eru enn á nagladekkjum ættu að huga að því að skipta um dekk hið fyrsta. Frá og með páskadegi er óheimilt að vera á negldum dekkjum á götum Reykjavíkur. 10.4.2006 17:45
Hugmyndasamkeppni hleypt af stað Heildar verðlaunafé í hugmyndasamkeppni um framtíðarskipulag Vatnsmýrinnar er jafnvirði rúmra 65 milljóna íslenskra króna. Átta teymi verða valin og fá þau tækifæri til að vinna að ítarlegri útfærslu hugmynda sinna. 10.4.2006 17:17
Hafísinn þokast nær landi Hafístunga er aðeins um tuttugu sjómílur norðaustur af Straumnesi. Ísinn þekur ýmis fiskimið úti af Vestfjörðum en lokar ennþá engum siglingaleiðum. 10.4.2006 17:00
Snjósleðamaður í vanda norður af Gæsafjöllum Lögreglan á Húsavík hefur verið kölluð til að aðstoða snjósleðamann sem mun hafa orðið fyrir óhappi í dag norðan Mývatns, nánar tiltekið norður af Gæsafjöllum. Lögreglumenn eru á leið á vettvang en ekki liggur fyrir hversu alvarlega maðurinn er slasaður. 10.4.2006 16:56
Stýrivextir gætu farið í 16 prósent Stýrivextir Seðlabankans geta farið í allt að sextán prósent að því er fram kemur í viðtali viðskiptavefsins Bloomberg við Davíð Oddsson Seðlabankastjóra. Davíð segist reiðubúinn að hækka stýrivexti verulega ef þess gerist þörf til að halda aftur af verðbólgu. 10.4.2006 16:49
„Þetta eru báðir mjög alvarlegir atburðir“: Eldislaxar í Haukadalsá og gat á sjókví í Dýrafirði Innlent