Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Dánarorsok Milosevic líklega hjartaáfall Slobodan Milosevic, fyrrverandi forseti Júgóslavíu, lést úr hjartaáfalli samkvæmt bráðabirgðaniðurstöðum krufningar. Krufningin var gerð af hollenskum réttarlæknum að tveimur serbneskum réttarlæknum viðstöddum. Saksóknarar segja að eiturefnafræðileg rannsókn verði samt sem áður gerð þótt dánarorsökin liggi fyrir. Bosníu Serbar hafa lýst yfir efasemdum um dauða Milosevic og telja að eitrað hafi verið fyrir honum. 13.3.2006 07:15
Uppselt í sólina um páskana Að minnsta kosti fjögur þúsund og fimm hundruð Íslendingar munu baða sig á sólgylltum ströndum um páskana. Skipulagðar sólarlandaferðir fyrir páskafríið eru hvarvetna löngu uppseldar. Þá eru ótaldir þeir sem ferðast á eigin vegum. 12.3.2006 20:30
Apple trúir ekki fjöldatölum ipodspilara á Íslandi Ekki fæst lengur gert við ipodspilara sem keyptir eru í útlöndum nema kassakvittun sé framvísað, vegna þess að í höfuðstöðvum Apple eru menn vantrúaðir á að svo margir ipodar geti verið á Íslandi miðað við íslenskar sölutölur. 12.3.2006 20:00
Sauðfé rúið Mikið líf og fjör var í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum í dag. Þar fylgdust börn og fullorðnir með því þegar sauðféð í garðinum var rúið og fengu að sjá hvað verður um ullina. Guðmundur Hallgrímsson ráðsmaður á Hvanneyri mætti til að rýja fé en það hefur hann gert síðustu ár. 12.3.2006 19:33
Fögnuðu 90 ára afmæli Alþýðuflokkurinn og Alþýðusamband Íslands fögnuðu í dag 90 ára afmæli sínu. Í tilefni af því voru hátíðarhöld í Ráðhúsi Reykjavíkur. Sá staður er valinn þar sem stofnfundurinn var á sínum tíma haldinn í Bárubúð sem þá stóð þar. Leiðtogar jafnaðarmanna frá ýmsum tímum héldu ávörp í tilefni dagsins. 12.3.2006 19:27
Fræða ungmenni um kynlíf Læknanemar fara í yfir 200 heimsóknir á þessu ári í menntaskóla til að fræða ungmenni um kynlíf. Um er að ræða sjálfboðaverkefni sem staðið hefur í nokkur ár og er árangurinn að þeirra mati góður. Læknanemar hafa staðið fyrir kynfræðslu meðal menntaskólanema í nokkur ár. 12.3.2006 19:13
Viðvörunarljós blikka í fjármálaheiminum Öll viðvörunarljós eru farin að blikka í efnahagslífinu á Íslandi að mati sérfræðings hjá Fitch Rating. Mikil lántaka bankanna hér á landi var umfjöllunarefni norsks viðskiptablaðs um helgina en blaðið velti því upp hvort að ekki stefni í kreppu í íslenskum fjármálaheimi. 12.3.2006 19:00
Botnvörpur valda umhverfisspjöllum Sjómenn, sem gert hafa mynd um skaðsemi botnvörpunnar á lífríkið, segja botninn umhverfis Ísland stórskemmdan. Þeir vilja láta loka ákveðnum svæðum fyrir botnvörpu. 12.3.2006 18:19
Glitnir tekur við af Íslandsbanka Íslandsbanki hefur skipt um nafn og heitir nú Glitnir. Þetta er gert vegna aukinnar alþjóðlegrar starfsemi bankans. Um þúsund starfsmönnum, íslenskum, norskum, frá Bretlandi og Lúxembúrg, hafði verið stefnt í Háskólabíó klukkan 6 í gær til að kynna þeim breytingar á starfseminni. 12.3.2006 18:15
Bachelet sver embættiseið Michelle Bachelet sór í dag embættiseið sem forseti Chile. Hún er fyrst kvenna til að gegna þessu embætti í landinu og þriðja kvenforsetinn í Suður-Ameríku. Hún fer í broddi fylkingar vinstri- og miðjumanna sem hafa stjórnað Chile í 16 ár. 12.3.2006 17:28
Órói vegna kosninga í Kólumbíu Kólumbíumenn ganga til þingkosninga í dag við stranga öryggisgæslu. Óttast er að vopnaðar sveitir öfgamanna bæði á hægri og vinstri væng stjórnmálanna reyni að trufla eðlilegan gang kosninganna. 12.3.2006 17:10
Fuglaflensa greinist í Kamerún Banvæna afbrigði fuglaflensunnar, H5N1, hefur nú greinst í önd í Kamerún í Vestur-Afríku. Kamerún er fjórða Afríkuríkið þar sem þetta afbrigði sjúkdómsins greinist en áður hafði hún fundist í Nígeríu, Níger og Egyptalandi. 12.3.2006 16:59
Engin heimild fyrir tónlistarhúsi Einar Oddur Kristjánsson alþingismaður og varaformaður fjárlaganefndar Alþingis segir að nauðsynlegt sé að fresta stórframkvæmdum. Hann sagði í Silfri Egils á NFS í dag að engin heimild væri í fjárlögum fyrir milljarðaútgjöldum vegna byggingar tónlistarhúss og að ótækt væri að skuldbinda ríkið til áratuga án þess að haft sé samráð við fjárlaganefnd. 12.3.2006 16:55
Skálmöld í Írak Átök stigmagnast í Bagdad, þar sem slegið hefur í brýnu milli sjía og súnnímúslima. Fjörutíu manns hafa látið lífið í bílasprengingum í dag við útimarkað í borgarhluta sjíamúslima. Tíu létu lífið í sprengju- og skotárásum í nótt og í morgun og er tala látinna því komin upp í fimmtíu síðasta sólarhringinn. 12.3.2006 16:29
Sameining samþykkt í A-Húnavatnssýslu Íbúar Húnavatnshrepps og Áshrepps í Austur- Húnavatnssýslu samþykktu í atkvæðagreiðslu í gær sameiningu sveitarfélaganna tveggja. Húnavatnshreppur er ekki nema ársgamall en hann varð til þann 1. janúar 2006 þegar sameining Bólstaðarhlíðarhrepps, Svínavatnshrepps, Torfalækjarhrepps og Sveinsstaðahrepps tók gildi. Áshreppur bætist nú í þennan hóp. 12.3.2006 14:38
Merkur fornleifafundur í Egyptalandi Hópur egypskra og þýskra fornleifafræðinga rakst fyrir tilviljun á merkilegan fund. Þegar unnið var að viðgerðum á hofinu Amenhotep í borginni Luxor fundust sex líkneski af Sekhmet, fornri egypskri gyðju með ljónshöfuð og kvenmannslíkama. 12.3.2006 14:30
Grímuklædd reiðsýning Grímuklæddir knapar og hestar sýna glæsilega tilburði á fjölskylduhátíð sem haldin er í reiðhöllinni nú um helgina. Það eru sjö hestamannafélög á höfuðborgarsvæðinu sem standa að sýningunni í samvinnu við Landsbankann. 12.3.2006 14:15
Grasalyf gegn fuglaflensu Íslenskur vísindamaður er að þróa bóluefni gegn fuglaflensu úr plöntum. Fréttablaðið greinir frá þessu í dag. Efnaverkfræðingurinn Örn Aðalsteinsson fer fyrir hópi vísindamanna, en hann er forstjóri InB:Biotechnologies í Bandaríkjunum. 12.3.2006 13:28
Merki Glitnis hengt upp á Kirkjusandi Í morgun var verið að setja nýtt nafn og merki fyrrum Íslandsbanka, nú Glitnis, við Kirkjusand. Glitnir er með 25 útibú víða um land og væntanlega verða þau merkt á næstu dögum. Heimasíða bankans er orðin rauð og þeir sem fara inn á heimabankann sem isb.is eru sendir beint á veffangið glitnir.is. 12.3.2006 13:24
Serbar kenna stríðsglæpadómstólnum um dauða Mílósevits Niðurstöður úr krufningu á líki Mílósevitsberast í kvöld eða fyrramálið, og og þar með verður dánarorsökin vætanlega ljós. Serbneskur réttarlæknir verður viðstaddur krufninguna að kröfu Serba, sem telja Stríðsglæpadómstólinn bera ábyrgð á dauða hans. 12.3.2006 13:17
Flugvél snúið til Keflavíkur vegna bilunar Flugvél frá flugfélaginu New Sealand var snúið til Keflavíkurflugvallar þegar uppgötvaðist að einhver ólestur var á kælingu tækja. Vélin var þá stödd 514 sjómílur í suðvestur af Íslandi og lenti vélin heilu og höldnu í Keflavík í morgun. 12.3.2006 13:05
Opið í Bláfjöllum Fannfergið í nótt dugði til svo að loks mætti opna aftur í Bláfjöllum eftir að lyfturnar höfðu staðið óhreyfðar í tæpa tvo mánuði. Það má því búast við löngum röðum í lyfturnar í dag enda margir óþreyjufullir að komast á skíði. 12.3.2006 12:00
Bretar þróa nýja kjarnaodda Blaðið Sunday Times hefur eftir leynilegum uppljóstrurum í utanríkisþjónustu Bretlands að Bretar séu að þróa nýja tegund kjarnaodda. Stefnt er að því að ekki þurfi að prófa kjarnaoddana með sprengingu, þar sem það myndi brjóta í bága við núgildandi bann við kjarnorkuprófunum, heldur vonast menn til að geta látið tilraunir á rannsóknastofum duga. 12.3.2006 11:57
Sumarbústaður alelda Gamall sumarbústaður í Norðlingaholti varð alelda í nótt. Bústaðurinn er í rjóðri rétt fyrir utan nýja hverfið. Slökkviliðið var kallað út klukkan rúmlega þrjú og stóð slökkvistarf í einn og hálfan klukkutíma. Fara þurfti aftur á staðinn í morgun til að slökkva í glóðum. 12.3.2006 11:08
Fannfergi í Reykjavík Blautum snjó kyngdi niður á höfuðborgarsvæðinu í nótt og margir hafa væntanlega komið að bílum sínum freðnum. Þá er bara að munda sköfurnar og muna að hreinsa ísinn almennilega af rúðunum. Frá Vegagerðinni berast þær upplýsingar að snjóþekja sé víða í Árnes- og Rangárvallasýslu, hálka og þoka á Hellisheiði og í Þrengslum, snjóþekja víða á Vesturlandi og hálka á Snæfellsnesi. Á Vestfjörðum er hálka eða hálkublettir og snjóþekja er víða á Austurlandi. Mokstur stendur yfir. 12.3.2006 11:04
Giftingarhringar og farsímar í páskaeggjum Ótrúlegust hlutir geta leynst í páskaeggjum en á síðustu árum hafa giftingarhringir og gsm símar verið meðal þess sem þar hefur mátt finna. Páskaeggin byrja að streyma í verslanir eftir helgi. 12.3.2006 11:02
Íslandsbanki heitir nú Glitnir Íslandsbanki, sem slíkur, er ekki lengur til. Glitnir er hið nýja nafn bankans. Forstjórinn segir að Íslandsbanki hafi verið eitt besta nafn sem hægt var að nota, en hið nýja henti betur fyrir starfsemina í dag. 12.3.2006 11:00
Tævanir mótmæla vopnakaupum Tugþúsundir Tævana gengu fylktu liði um götur Tæpei í dag til þess að mótmæla því að nefnd um sameiningu við Kína hafi verið lögð niður. 12.3.2006 10:50
Tíu létust í Bagdad Í það minnsta tíu létu lífið í árásum í Bagdad í nótt og morgun. Bílsprengja sprakk við erilsama götu í Vestur-Bagdad og varð sex manns að bana en tólf manns slösuðust. Sprengjunni var beint að lögreglubíl í hverfi súnnímúslima og létust þrír af lögreglumönnunum sem í honum voru. 12.3.2006 10:02
Íslandsbanki verður Glitnir Íslandsbanki veitir þjónustu sína héðan í frá undir nafninu Glitnir. Þetta var tilkynnt á fundi bankans í dag. Samhliða nýju nafni tekur bankinn upp nýtt merki og útlit. Dótturfélög bankans og skrifstofur í fimm löndum heita einnig framvegis Glitnir. 11.3.2006 19:20
Valgerður sakar Styrmi um óvild í sinn garð Iðnaðar- og viðskiptaráðherra sakar ritstjóra Morgunblaðsins um óvild í sinn garð. Hún telur ritstjórann jafnvel eiga erfitt með að eiga eðlileg samskipti við konur án þess að tala niður til þeirra. 11.3.2006 19:18
Vatnalög til iðnaðarnefndar Iðnaðarnefnd Alþingis kemur saman til fundar á mánudag, meðal annars til að ræða hugsanlega réttaróvissu vegna Kárahnjúka í tengslum við vatnalög. Umræðu um frumvarpið umdeilda var frestað í dag. Iðnaðarráðherra segir þingmenn Vinstri grænna hafa reynt að falsa ummæli hennar um málið. 11.3.2006 18:50
Mikill viðbúnaður vegna væntanlegs Kötlugoss Ef Katla gýs gæti fylgt gosinu gríðarstórt jökulhlaup sem talið er geta verið nærri sjö sinnum stærra en hlaupið á Skeiðarársandi árið 1996. Undirbúningsvinna vegna væntanlegrar rýmingar stendur yfir en rýma gæti þurft svæðið frá Þykkvabæ og austur fyrir Meðalland. 11.3.2006 18:45
07.07.07 vinsæll brúðkaupsdagur Flestir laugardagar yfir sumartímann eru vinsælir til þess að ganga í það heilaga. Einn laugardagur virðist þó ætla að verða öðrum vinsælli en það er sjöundi júlí á næsta ári og eru dæmi um að kirkjur séu uppbókaðar á þessum tíma. 11.3.2006 18:45
París á suðupunkti Óttast er að upp úr sjóði í París í kvöld líkt og í gærkvöldi, þegar óeirðalögregla réðst gegn námsmönnum sem höfðu lagt undir sig Sorbonne-háskóla. Íslendingar í París segja að andrúmsloftið minni einna helst á stúdentaóeirðirnar 1968. 11.3.2006 18:25
Umræðum um vatnalög frestað fram á mánudag Umræðum á Alþingi um umdeild vatnalög var frestað laust fyrir klukkan fjögur. Það var gert að ósk Birkis Jóns Jónssonar formanns iðnaðarnefndar, en fundur í nefndinni um málið hefur verið boðaður á mánudag. 11.3.2006 15:58
Símkerfið gaf sig undan álagi Fullkomið brúðkaup, leikritið sem sló öll aðsóknarmet á Akureyri í vetur, er að endurtaka leikinn í Borgarleikhúsinu í Reykjavík. Símkerfi leikhússins sprakk í morgun og á fyrsta degi miðasölu í gær seldust fjögur þúsund miðar. Sýningar hefjast í lok apríl. 11.3.2006 15:51
Marteinn leiðir í Mosfellsbæ Tillaga uppstillingarnefndar að framboðslista framsóknarmanna til sveitarstjórnarkosninga í Mosfellsbæ var samþykktur einróma á fjölmennum félagsfundi í gær. Marteinn Magnússon, markaðsstjóri skipar fyrsta sæti listans. 11.3.2006 14:38
Spólað í skíðabrekkunni Óprúttinn ökumaður skemmdi gróður og skíðafæri fyrir börnum í Grafarvogi í morgun eða nótt með því að spóla í hringi í skíðabrekkunni við Dalshús. 11.3.2006 14:30
Sól og þoka á alpamóti Bikarmót í alpagreinum 15 ára og eldri fer fram í Tungudal á Ísafirði nú um helgina. Færi er með besta móti og veður stillt að sögn Jakobs Tryggvasonar hjá Skíðafélaginu. Um 60 þátttakendur taka þátt í mótinu. 11.3.2006 13:50
Milosevic látinn Slobodan Mílósevits, fyrrverandi forseti Júgóslavíu, fannst látinn í fangaklefa sínum í Haag í morgun, þar sem réttað hefur verið yfir honum vegna stríðsglæpa síðan árið 2002. 11.3.2006 12:30
Tvennar sameiningarkosningar Tvennar kosningar um sameiningu sveitarfélaga fara fram í dag. Annars vegar í Strandasýslu þar sem kosið er um sameiningu Broddaneshrepps og Hólmavíkurhrepps og hins vegar í Austur- Húnavatnssýslu þar sem kosið verður um sameiningu Áshrepps og Húnavatnshrepps. 11.3.2006 12:25
Getur hækkað verð fyrirtækja Ný raforkulög sem tóku gildi um áramótin hafa töluverð áhrif á mörg iðnfyrirtæki. Verði hækkunum velt út í verðlagið geta þær numið yfir 20%. 11.3.2006 12:20
Ungir og aldnir tefla til sigurs Mona Khaled sigraði Lárus Ara Knútsson, sér langtum stigahærri skákmann, í fimmtu umferð Reykjavíkurskákmótsins í gær, en Mona er Arabameistari kvenna í skák, aðeins ellefu ára að aldri. Bjarni Magnússon, sem á níræðisaldri hefur sjaldan verið sterkari, gerði jafntefli við sterkan alþjóðlegan meistara frá Bandaríkjunum, Ylon Schwarz. 11.3.2006 11:51
Ráðist inn í Sorbonne Til óeirða kom í París í nótt þegar óeirðalögregla réðst gegn námsmönnum sem höfðu ráðist inn í Sorbonne-háskóla til að mótmæla frumvarpi um ný atvinnulög fyrir ungmenni. 11.3.2006 11:33