Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Byggja íbúðarhúsnæði á reit gömlu Hraðfrystistöðvarinnar Íbúðarhúsnæði fyrir allt á annað hundrað manns mun rísa á reit gamla Hraðfrystistöðvarhússins við Mýrargötu. Framkvæmdir hefjast væntanlega í vor en byrjað var að rífa húsið í morgun 16.2.2006 13:15
Spáir hruni í mjöl- og lýsisiðnaði Helsti sérfræðingur Norðmanna í mjöl- og lýsisiðnaði spáir því að fiskimjölsverksmiðjum muni stórfækka á Íslandi á næstunni vegna kreppu í greininni. Kolbjörn Giskeödegård sagði þetta á ráðstefnu í tengslum við sjávarútvegssýninguna í Lilleström í Noregi, sem nú stendur yfir og greinir Fiskaren frá þessu. 16.2.2006 13:00
Preval forseti Bráðabirgðaríkisstjórn Haítí hefur lýst René Preval sigurvegara í forsetakosningum sem fram fóru í landinu í síðustu viku. 16.2.2006 12:59
Mun skaða Bandaríkin meira Það mun skaða Bandaríkjamenn mun meira en Íran, ráðist þeir á landið. Þetta segir varnarmálaráðherra Írans og lofar auknu hatri í garð Bandaríkjamanna og bandamanna þeirra láti þeir verða af árásum. 16.2.2006 12:55
Atlantsolía lækkar verð Atlantsolía hefur lækkað verð á bensíni um eina krónu en eftir nokkuð langt hækkunartímabil hefur verð farið lækkandi undanfarna daga í Rotterdam þaðan sem Atlantsolía fær eldsneyti sitt frá. Ekkert annað olíufyrirtæki hefur tilkynnt um lækkun að svo stöddu 16.2.2006 12:45
Kröfur allt að 50 milljónir króna á hendur ríkinu Fyrrverandi ráðuneytisstjóri í viðskipta- og iðnaðarráðuneytinu krefur ríkið um rúmlega fimmtíu milljónir króna vegna meintrar ólögmætrar framgöngu ráðherra í hans garð, en ráðuneytisstjórinn hefur ekki fengið að snúa aftur til starfs síns í áratug. Málið var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. 16.2.2006 12:45
Allt að 140 milljónir gætu dáið Um eitt hundrað og fjörutíu milljónir manna gætu dáið úr fuglaflensu í heiminum ef hún breytist í alvarlegan inflúensufaraldur. Þá er talið að efnahagslegt tap í heiminum gæti numið um 4,4 billjónum dala sem jafngildir ársframleiðslu í Japan. 16.2.2006 12:36
Rannsókn á morði Jóns Þórs ólokið Lögreglan í El Salvador vinnur nú hörðum höndum að því að rekja slóð Jóns Þórs og Brendu sem myrt voru á hrottafenginn hátt á sunnudag til að reyna að komast að því hver ber ábyrgð á morðinu. Að því er fram kemur í DV í dag er rannsókn málsins mjög erfið vegna þess að glæpaklíkan sem grunuð er um morðið fylgist grannt með rannsókninni og hefur í hótunum við vitni. 16.2.2006 12:30
Landsbanka ber að afhenda skjöl Hæstiréttur hefur úrskurðað að Landsbanka Íslands sé skylt að afhenda efnahagsbrotadeild lögreglunnar afrit af skjölum varðandi færslur á bankareikningum tveggja manna. Þar með staðfestir Hæstiréttur úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur frá 26. janúar síðastliðinn. 16.2.2006 12:15
Ófært víða um land Ekkert flug hefur verið frá Reykjavík til Akureyrar og Ísafjarðar í morgun vegna óveðurs á þeim stöðum. Víða hefur verið ófært norðvestanlands vegna snjókomu eða blindandi skafrennings, og af þeim sökum hefur skólahaldi verið aflýst í mörgum skólum á svæðinu 16.2.2006 12:11
Gæti dregið 142 milljónir manna til dauða Allt að 142 miljónir manna eiga á hættu að deyja úr fuglaflensu, stökkbreytist H5N1-veiran. CNN hefur þetta eftir sérfræðingum Lowy stofnunarinnar, álitsgjafa í Ástralíu. Fuglaflensan er komin til Ungverjalands en flensan fannst í þremur svönum sem drápust þar. Verið er að greina hvort veiran sé af gerðinni H5N1. 16.2.2006 11:00
Mikil ófærð víða um land Ekkert flug hefur verið frá Reykjavík til Akureyrar og Ísafjarðar í morgun vegna óveðurs á þeim stöðum, en veðurskilyrði verða könnuð nánar nú á tólfta tímanum. Skólahaldi hefur verið aflýst í nokkrum skólum á Norðvesturlandi vegna ófæðrar og óveðurs og helstu fjallvegir á Vestfjörðum eru ófærir vegna snjóa. 16.2.2006 10:50
Cheney segist bera fulla ábyrgð á slysaskoti Dick Cheney, varaforseti Bandaríkjanna, hefur viðurkennt að hann beri fulla ábyrgð á óhappinu sem varð í veiðiferð hans og félaga hans, milljarðamæringsins Harrys Whittingtons, um síðustu helgi. Cheney særði þá Whittington í andliti og á bringu. 16.2.2006 10:30
Tap á flugrekstri FinnAr Tap finnska flugfélagsins Finnair nam 220 milljónum króna á síðasta ársfjórðungi. Á sama tímabili árið 2004 var um 250 milljóna króna hagnaður af starfseminni. Í tilkynningu frá félaginu segir að hátt eldsneytisverð og aukinn launakostnaður séu aðal ástæður fyrir tapi en sölutekjur jukust um 7,5% milli ára. 16.2.2006 10:30
René Preval lýstur sigurvegari Bráðabirgðaríkisstjórn Haítí hefur lýst René Preval sigurvegara í forsetakosningum sem fram fóru í landinu í síðustu viku. Áður hafði hún fyrirskipað endurskoðun á úrslitum talningar atkvæða eftir að Préval hélt því fram að umfangsmikil kosningsvik hefðu átt sér stað og útfylltir kjörseðlar fundist í sekkjavís á sorphaugum. 16.2.2006 10:30
Hröktum manni komið til hjálpar Lögreglan í Keflavík kom manni til hjálpar sem hafði fallið fyrir utan veitingahús og skorist í andliti þannig að það fossblæddi úr honum. 16.2.2006 10:15
FL Group kaupir bjórfyrirtæki FL Group, móðurfélag Flugleiða til skamms tíma, hefur keypt tæp ellefu prósent í danska ölgerðarfyrirtækinu Royal Unibrew, sem er næst stærsta fyrirtæki sinnar tegundar á Norðurlöndum. Fyrirtækið rekur sex verksmiðjur í Danmörku, Eistlandi og Lettlandi, með tvö þúsund og þrjú hundruð starfsmönnum. Það flytur afurðir sínar til 65 landa, einkum í Evrópu, Ameríku og Afríku 16.2.2006 10:15
Ætla að brenna danska fánann fyrir knattspyrnuleik Arabískir knattspyrnuáhangendur í Ísrael ætla að brenna danska fánann fyrir vináttuleik Dana og Ísraela sem fram fer í Ísrael eftir um tvær vikur. Er þetta gert til þess að mótmæla skopteikningunum af Múhameð spámanni sem birtust fyrst í Jótlandspóstinum. 16.2.2006 10:00
Alheimssamtök lyðheilsustöðva stofnuð Alheimssamtök opinberra lýðheilsustöðva, International Association of National Public Health Institutes (IANPHI) hafa verið stofnuð og fór stofnfundurinn fram í Ríó de Janeiro í Brasilíu, dagana 29. janúar til 1. febrúar sl. með þátttöku forstjóra flestra opinberra lýðheilsustöðva sem nú eru starfandi í löndum víðs vegar um heiminn. Þeirra á meðal var Anna Elísabet Ólafsdóttir, forstjóri Lýðheilsustöðvar Íslands. 16.2.2006 10:00
Kínverjar drepnir í Pakistan Þrír kínverskir verkfræðingar og bílstjóri þeirra voru skotnir til bana af manni á mótorhjóli í suðvestur Pakistan í gær. Aðeins þrír dagar eru þar til forseti Pakistan fer í opinbera heimsókn til Kína. Mikill fjöldi Kínverja vinnur í Pakistan en Kína er einn helsti bandamaður landsins og hefur skaffað þeim vopn og peninga í mörg ár. 16.2.2006 09:45
Afkoma botnfiskveiða versnaði Afkoma botnfiskveiða versnaði frá árinu 2003 til ársins 2004 en afkoma botnfiskvinnslu batnaði á sama tímabili. Þetta kemur fram í hefti Hagstofunnar, Sjávarútvegur, sem nú er komið út. Hreinn hagnaður botnfiskveiða reiknaður samkvæmt árgreiðsluaðferð minnkaði úr 10,2% af tekjum í 7,5 prósent á meðan hagnaður af botnfiskvinnslu jókst úr 3,5% af tekjum í 4,5%. 16.2.2006 09:45
Strætó á Ísafirði Ísafjarðarbær mun ganga til samningaviðræðna við Teit Jónasson, um samgöngur innan Ísafjarðarbæjar auk leiðanna milli Ísafjarðar annars vegar og Þingeyrar, Flateyrar og Suðureyrar hins vegar. Teitur Jónasson átti næstlægsta tilboðið en lægstbjóðandi skilaði ekki inn fullnægjandi gögnum. Þetta kom fram á vefsvæði Bæjarins Besta. 16.2.2006 09:30
Vill endurskoða lög um sóknargjöld Ágúst Ólafur Ágústsson, varaformaður allsherjanefndar og þingamður Samfylkingarinnar segir tímabært að endurskoða lög um sóknargjöld til trúfélaga og jafnframt lífsskoðunarfélaga. Siðmennt, félag siðrænna húmanista á Íslandi, hefur þrívegis farið þess á leit við allsherjanefnd að fá jafna stöðu á við eiginleg trúfélög í landinu. 16.2.2006 09:30
Haglél veldur óhöppum Haglél varð til þessa að fimm umferðaróhöpp voru með skömmu millibili síðdegis í dag á Akureyri. Að sögn lögreglu byrjaði að snjóa og gekk á með éljum sem varð til þess að hálka myndaðist fljótt á vegum sem kom ökumönnum í opna skjöldu með fyrrnefndum afleiðingum. Engin slys urðu þó á fólki. 16.2.2006 09:30
Víða ófært Óveður er á Hellisheiði og á Kjalarnesi en sjólaust. Svipaða sögu er að segja af Vesturlandi en á Vestfjörðum er ófært um Klettsháls, Eyrarfjall og Steingrímsfjarðarheiði. Stórhríð er á Norðvesturlandi og ekkert ferðaveður, ófært á milli Blönduóss og Skagastrandar, á þverárfjalli og á milli Hofsóss og Siglufjarðar. Hálka er víða á Austurlandi , þæfingsfærð á Vopnafjarðarheiði og ófært um Öxi. 16.2.2006 09:15
Fundu ólöglega stera, E-töflur og fleira Hundrað pillur af ólöglegum sterum, tuttugu og tvær E- pillur og eitthvað af Marijúana fannst við húsleit í Keflavík í gærkvöldi. Lögreglan stöðvaði eigandann í umferðinni, vegna gruns um fíkniefnamisferli, en ekkert fannst í bílnum. Var þá gerð húsleit á heimili hans með fyrrnefndum árangri. 16.2.2006 09:15
Féll fyrir utan veitingahús Lögreglan í Keflavík kom manni til hjálpar, sem hafði fallið fyrir utan veitingahús og skorist í andliti þannig að það foss blæddi úr honum. Ekki var fyrr búið að gera að sárum hans á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja , en að hann var sendur í ofboði með sjúkrabíl á Slysadeild Landsspítalans í nótt,til að láta dæla upp úr honum, vegna gruns um að hann hefði gleypt einhverja ólyfjan. Þar er hann enn og er hrakförum hans að líkindum lokið. 16.2.2006 09:00
Lögreglan aðvarar ökumenn Lögreglumenn í Reykjavík límdu viðvörunarmiða á yfir eitt hundrað bíla í nótt, sem ekki hafa verið færðir til skoðunar eða eru með útrunnar tryggingar. Þar með er búið að líma miða á að minnstakosti 200 bíla á tveimur nóttum og verða lögreglumenn á ferðinni í sömu erindum alveg fram að helgi. 16.2.2006 08:45
Enn haldið sofandi eftir alvarlegt umferðarslys Stúlkunni, sem varð fyrir bíl í Garðarbæ síðegis í gær, er enn haldið sofandi í öndunarvél og er líðan hennar óbreytt að sögn vakthafandi læknis á gjörgæsludeild Landspítalans í morgun. Ekið var á stúlkuna þegar hún var á leið yfir gangbraut á Bæjarbrautinni. 16.2.2006 08:15
Harma myndbirtingu ástralskrar sjónvarpsstöðvar Bandarísk yfirvöld harma að ástralska sjónvarpsstöðin SBS hafi sýnt nýjar myndir af misþyrmingum á íröskum föngum sem áttu sér stað í Abu Graib fangelsinu árið 2003. Myndirnar væru olía eld núverandi ástands og gætu leitt til ofbeldis. 16.2.2006 08:15
Tímabært að endurskoða lög um sóknargjöld til trú- og lífsskoðunarfélaga Ágúst Ólafur Ágústsson, varaformaður allsherjanefndar og þingamður Samfylkingarinnar segir tímabært að endurskoða lög um sóknargjöld til trúfélaga og jafnframt lífsskoðunarfélaga. 16.2.2006 08:00
Úrslit í forsetakosningum á Haítí endurskoðuð Bráðabirgðaríkisstjórn Haítí hefur fyrirskipað endurskoðun á úrslitum talningar í forsetakosningum sem fram fóru í landinu í síðustu viku. Stjórnin ákvað þetta eftir að René Préval, sá frambjóðandi sem flest atkvæði hlaut, hélt því fram að umfangsmikil kosningsvik hefðu átt sér stað og útfylltir kjörseðlar fundist í sekkjavís á sorphaugum. 16.2.2006 08:00
Samningur við Eykt samþykktur í bæjarstjórn Hveragerðis Meirihluti bæjarstjórnar Hveragerðis samþykkti á fundi sínum í gærkvöldi umdeildan samning bæjarins við verktakafyrirtækið Eykt um að það fái að byggja allt að 900 íbúðir á 80 hektara landssvæði bæjarins, án útboðs. 16.2.2006 07:45
Árás skaði Bandaríkjamenn meira en Írana Ef Bandaríkjamenn ráðast á Íran, mun það skaða þá meira en okkur. Þetta sagði varnarmálaráðherra Írana á blaðamannafundi í Teheran, höfuðborg Írans, í gær. Hann sagði Bandaríkjamenn aðeins vera að reyna að hræða íranskan almenning með yfirlýsingum sínum um árásir á landið. 16.2.2006 07:30
Grunaður morðingi framseldur til Bandaríkjanna Breti sem grunaður er um að hafa myrt bandaríska eiginkonu sína og níu mánaða barn þeirra í úthverfi Boston í Bandaríkjunum og síðan flúið til Bretlands, var í gær framseldur til Boston þar sem hann sætir morðákæru. Neil Entwistle, sem er 27 ára að aldri, neitar allri sök en kona hans og barn fundust látin eftir að hafa verið skotin á heimili þeirra þann 20. janúar síðastliðinn. 16.2.2006 07:23
Fuglaflensa í ellefu Evrópuríkjum Fuglaflensan er komin til Ungverjalands. Þrír svanir þar í landi hafa drepist úr fuglaflensu. Verið er að greina hvort veiran sé af gerðinni H5N1. Þar með hefur veiran greinst í ellefu Evrópuríkjum. Þá hafa yfir 200 dauðir fuglar sem fundist hafa víða um Danmörku verið sendir til rannsóknar í Árósum en það kemur líklega ekki í ljós fyrr en á morgun hvort þeir hafi drepist úr fuglaflensu. 16.2.2006 07:13
Íslendingum fækkar á Kárahnjúkasvæðinu Íslendingum sem starfa við framkvæmdir við Kárahnjúka hefur fækkað á undanförnu ári. Yfirtrúnaðarmaður á svæðinu telur að vaktafyrirkomulag hjá stærsta verktakafyrirtækinu á svæðinu spili þar stóran þátt. 16.2.2006 00:09
Dagsbrún gefur út fréttablað í Danmörku Dagsbrún hefur ákveðið að hefja útgáfu á dagblaði í Danmörku næstkomandi haust en Dagsbrún er móðurfyrirtæki 365 prent- og ljósvakamiðla sem meðal annars rekur NFS. Blaðinu verður dreift frítt inn á öll heimili þar í landi. 15.2.2006 20:37
Horfið frá því að sameina leikskóla? Ekki er víst að leikskólar Vestmannaeyjabæjar verði sameinaðir eins og til stóð. Ákveðið var í skólamálaráði bæjarins í gær að leggja það til við bæjarrstjórn að frestað verði að sameina yfirstjórnir leikskóla Vestmanneyjabæjar. 15.2.2006 22:36
Frumvarp um RÚV samræmist enn ekki reglum EES Frumvarp menntamálaráðherra um Ríkisútvarpið samræmist enn ekki reglum EES. Þessu halda Samtök atvinnulífsins fram. 15.2.2006 22:22
Cheney segist bera fulla ábyrgð á slysaskotinu Dick Cheney, varaforseti Bandaríkjanna, sagði í dag að hann bæri fulla ábyrgð slysaskotinu sem særði Harry Whittington. Cheney tjáði sig í fyrsta sinn í dag opinberlega um slysaskotið. Cheney vildi ekki ræða um hvað hefði orðið til þess að hann skaut Whittington en sagði þó við engan að sakast nema hann sjálfan. 15.2.2006 22:18
Gagnrýnir vændisfrumvarp dómsmálaráðherra Ágúst Ólafur Ágústsson, þingamaður Samfylkingarinnar, gagnrýnir dómsmálaráðherra fyrir frumvarp sem hann kynnti fyrir ríkisstjórninni í gær, þar sem hvorki kaup né sala vændis er refsiverð. Ágúst vill að kaupendum vændis verði refsað, ekki seljendum. 15.2.2006 21:56
Haldið sofandi eftir slys í Garðabæ Stúlkan sem ekið var á í Garðabæ nú síðdegis er haldið sofandi í öndunarvél á Landsspítala Háskólasjúkrahúss. Ekið var á stúlkuna þegar hún var að ganga yfir gangbraut á Bæjarbraut síðdegis í dag. Haldið sofandi eftir slys í Garðabæ 15.2.2006 21:12
Steingrímsfjarðarheiði ófær Ófært er um Klettsháls, Eyrarfjall og á Steingrímsfjarðarheiði einnig er óveður í Langadal og ófært um Lágheiði. Hálka er víða á Austurlandi og þæfingur á Öxi. Óveður og ekkert ferðaveður er á leiðinni milli Djúpavogs og Víkur í Mýrdal og víða er hálka og éljagangur á Norðausturlandi. 15.2.2006 20:14
Lenti vegna gruns um bilun í hreyfli Þota frá bandaríska flugfélaginu Delta lenti á Keflavíkurflugvelli á fimmta tímanum í dag vegna gruns um bilun í hreyfli. Samkvæmt upplýsingum Flugmálastjórnar á Keflavíkurflugvelli var vélin, sem er af gerðinni Boeing 767, á leiðinni frá Frankfurt vestur um haf með 77 farþega og áhöfn um borð. 15.2.2006 19:55