Fleiri fréttir Setti svefnlyf í bananatertu Tæplega fertug kona í Óðinsvéum hefur verið handtekin fyrir tilraun til manndráps en hún stakk sextán ára son sinn með hníf í brjóstið. Konan hefur ítrekað reynt að myrða son sinn, meðal annars hefur hún sett svefnlyf í bananatertu og pottrétt. 7.12.2005 07:15 Þurfa að skríða til Reykjavíkur "Ef flugvöllurinn fer og þá allur aðflugsbúnaður með er væntanlega ekkert annað að gera en að fljúga aðflugið til Keflavíkur og skríða svo til Reykjavíkur í sjónflugi," segir Jón K. Björnsson, flugrekstrarstjóri hjá Þyrluþjónustunni í Reykjavík. 7.12.2005 07:15 Enn óljóst hvað olli brunanum á Ísafirði Ekki liggur enn fyrir hvað olli eldsvoða í íbúðarhúsi við Aðalstræti á Ísafirði í fyradag, þar sem einn íbúi hússins fórst. Lögreglumenn frá Ísafirði ásamt tæknimönnum frá lögreglunni í Reykjavík unnu að rannsókn málsins fram á kvöld í gærkvöldi, en niðurstaða liggur ekki fyrir. 7.12.2005 07:15 Rúmensk stjórnvöld hafa ekkert að fela Forseti Rúmeníu, Traian Basescu, segir engin fangelsi á vegum bandarísku leyniþjónustunnar, CIA, hafa verið í landinu. Sagði forsetinn að hann myndi leyfa utanaðkomandi rannsókn til að sanna að þarlens stjórnvöld hefðu ekkert að fela. 7.12.2005 07:02 Fengu lægri laun en lofað var 7.12.2005 07:00
Sjá næstu 50 fréttir
Setti svefnlyf í bananatertu Tæplega fertug kona í Óðinsvéum hefur verið handtekin fyrir tilraun til manndráps en hún stakk sextán ára son sinn með hníf í brjóstið. Konan hefur ítrekað reynt að myrða son sinn, meðal annars hefur hún sett svefnlyf í bananatertu og pottrétt. 7.12.2005 07:15
Þurfa að skríða til Reykjavíkur "Ef flugvöllurinn fer og þá allur aðflugsbúnaður með er væntanlega ekkert annað að gera en að fljúga aðflugið til Keflavíkur og skríða svo til Reykjavíkur í sjónflugi," segir Jón K. Björnsson, flugrekstrarstjóri hjá Þyrluþjónustunni í Reykjavík. 7.12.2005 07:15
Enn óljóst hvað olli brunanum á Ísafirði Ekki liggur enn fyrir hvað olli eldsvoða í íbúðarhúsi við Aðalstræti á Ísafirði í fyradag, þar sem einn íbúi hússins fórst. Lögreglumenn frá Ísafirði ásamt tæknimönnum frá lögreglunni í Reykjavík unnu að rannsókn málsins fram á kvöld í gærkvöldi, en niðurstaða liggur ekki fyrir. 7.12.2005 07:15
Rúmensk stjórnvöld hafa ekkert að fela Forseti Rúmeníu, Traian Basescu, segir engin fangelsi á vegum bandarísku leyniþjónustunnar, CIA, hafa verið í landinu. Sagði forsetinn að hann myndi leyfa utanaðkomandi rannsókn til að sanna að þarlens stjórnvöld hefðu ekkert að fela. 7.12.2005 07:02
Gera ekki samninga í Eystrasaltsríkjum Rúmlega tíu prósent af starfsfólki íslenskra fyrirtækja í Eystrasaltslöndunum eru í stéttarfélögum og þá helst starfsmenn matvælafyrirtækja. Kjarasamningar eru fátíðir. Forystumenn þriggja landssambanda hittast í dag til að ákveða aðgerðir. 7.12.2005 07:00
Tillögu Breta illa tekið Það hitnaði í kolunum í fjárlagadeilu Evrópusambandsins er breska stjórnin, sem fer nú með formennskuna í sambandinu, lagði fram tillögu sína að fjárhagsáætlun þess fyrir tímabilið 2007-2013. Samkvæmt tillögunni á að skera útgjöld úr sameiginlegum sjóðum sambandsins niður um 24 milljarða evra, andvirði um 1.800 milljarða króna. 7.12.2005 06:45
Ekki konungleg hátign Nýfæddur sonur norska krónprinsins Hákons og Mette-Marit prinsessu hefur fengið nafnið Sverre Magnus eða Sverrir Magnús upp á íslensku. Hann fær hins vegar ekki titilinn hans konunglega hátign, að því er greint var frá í norskum fjölmiðlum. 7.12.2005 06:30
Á annað hundrað létust Í það minnsta 128 manns biðu í gær bana í flugslysi í Teheran í Íran. Talið er að vélarbilun hafi valdið því að herflugvél rakst utan í fjölbýlishús og hrapaði til jarðar. Mikið öngþveiti skapaðist á slysstaðnum. 7.12.2005 06:30
Þurfa að borga tæpa milljón Skipstjóri á Suðurnesjum og starfsmaður útvegsfyrirtækis hafa verið dæmdir til að greiða 400.000 krónur hvor um sig fyrir fiskveiðibrot. Skipstjórinn lét hjá líða að færa í afladagbók afla úr veiðiferð sem farin var í byrjun maí frá Grindavík og passaði ekki upp á að 431 kíló af löngu yrði viktað með öðrum afla á hafnarvigt. 7.12.2005 06:15
185 milljónum veitt í erfðafræðirannsóknir og örtækni Hundrað áttatíu og fimm milljónum var veitt til erfðafræðirannsókna og örtækni í dag. Þau verkefni sem fengu styrk snúa meðal annars að stofnfrumrannsóknum, arfgengu heilablóðfalli, sem er séríslenskur sjúkdómur, og lyfjagjöf í bakhluta auga. 6.12.2005 23:41
Ástæða til að kanna fákeppni á matvælamarkaði Forstjóri Samkeppniseftirlitsins telur ástæðu til að kanna hvort ráðandi staða eins aðila á matvælamarkaði sé misnotuð í ljósi þess að þar ríki fákeppni. Eigandi Fjarðarkaups segir styrk Baugs yfirþyrmandi, svo mjög að smáu fyrirtækin séu undir hælnum á heildsölum sem aftur eru undir hælnum á Baugi. 6.12.2005 23:28
Rottugangur við leikskóla á Seltjarnarnesi Rottugangur er við leikskólann Mánabrekku á Seltjarnarnesi og vinna meindýraeyðar og starfsmenn bæjarins að úrbótum. Rotturnar virðast hafa sótt í sandkassa við leikskólann sem nú hafa verið fjarlægðir. 6.12.2005 23:17
Sagði dómurunum að fara til fjandans Gríðarlegur viðbúnaður er vegna réttarhalda yfir Saddam Hussein, fyrrverandi forseta Íraks. Réttahöldin héldu áfram í dag en í gær strunsuðu lögfræðingar hans út úr réttarsalnum eftir að hafa verið meinað að tjá sig um réttmæti réttarhaldanna. 6.12.2005 23:05
Mannskæður dagur í Írak Að minnsta kosti fjörutíu manns féllu í sjálfsmorðsárás í Írak í dag. Sjálfsmorðsárásum virðist ekki ætla að linna í landinu en samtökin al-Qaida hafa sagt að þannig verði það, uns Bandaríkjamenn séu á bak og burt og samtökin hafi náð völdum í landinu. 6.12.2005 23:01
Menntamálaráðherra harðlega gagnrýndur Þriðja umræða um fjárlögin fór fram á Alþingi í dag. Fjárlagafrumvarpið hefur ekki tekið breytingum frá annarri umræðu en minnihlutinn hefur þó lagt til fjölmargar breytingatillögur. Menntamálaráðherra var harðlega gagnrýndur við upphaf þingfundar í dag fyrir að hafa tjáð sig í fjölmiðlum um nýtt frumvarp um Ríkisútvarpið, áður en því var dreift í þinginu. 6.12.2005 22:46
130 látnir eftir flugslysið í Íran Að minnsta kosti eitt hundrað og þrjátíu manns fórust í flugslysinu í Íran í dag þegar herflugvél skall á íbúðabyggingu í Teheran, höfuðborg landsins. Óttast er að tala látinna eigi eftir að hækka enn frekar en fjölmargir eru slasaðir. 6.12.2005 22:22
Aðstandendur samkynhneigðra skora á Alþingi FAS, Samtök foreldra og aðstandenda samkynhneigðra, afhentu forseta Alþingis áskorun í dag þar sem skorað er á þingið að breyta hjúskaparlögum nr. 31/1993 á þann veg að þau þjóni bæði gagnkynhneigðu og samkynhneigðu fólki. 6.12.2005 19:08
Rafmagnslaust í hluta Garðabæjar Rafmagnslaust er í hluta Garðabæjar vegna háspennubilunar og eru Flatir og Móar nú myrkvuð, sem og verslunarmiðstöðin Garðatorg og íþróttamiðstöðin. Viðgerð stendur yfir, samkvæmt upplýsingum Orkuveitunnar. 6.12.2005 18:47
Vatnsskortur í austurhluta Mosfellsbæjar Aðalvatnslögn fyrir austurhluta Mosfellsbæjar fór í sundur fyrir skömmu vegna jarðvinnuframkvæmda. Íbúar á svæðinu gætu því orðið vatnslausir eitthvað fram á kvöld en viðgerð stendur yfir. Vonast er til að vatnslögnin verði komin í samt lag síðar í kvöld. 6.12.2005 17:58
Óska eftir stuðningi stjórnvalda Samtök íslenskra líftæknifyrirtækja vilja að stjórnvöld leggist á árárnar með íslenskum hátækniiðnaði og sprotafyrirtækjum til að tryggja áhugaverð störf og arðbæran rekstur hér á landi. Þetta kemur fram í tilkynningu sem SÍL sendi frá sér í dag vegna uppsagnanna hjá Hjartavernd og líftæknifyrirtækinu Urður, Verðandi, Skuld á dögunum en fyrirtækin eru meðal stærstu félaga SÍL. 6.12.2005 17:45
Varast ber að hagga við grundvallarþáttum ÖSE Varast ber að hagga við grundvallarþáttum sem ÖSE, Öryggis- og samvinnustofnun Evrópu, byggist á og þá einkum sjálfstæði hennar á sviði mannréttindamála. Þetta sagði Geir H. Haarde utanríkisráðherra í ræðu sinni á fundi utanríkisráðherra aðildarríkja ÖSE í Ljubljana, höfuðborg Slóveníu, í dag. 6.12.2005 17:11
Enn óljóst um eldsupptök á Ísafirði Enn er óljóst hvað olli brunanum í tvíbýlishúsi á Ísafirði í gær þar sem karlmaður á sextugsaldri fórst. Tveir lögreglumenn frá Ríkislögreglustjóra komu til Ísafjarðar fyrir hádegi til að aðstoða lögregluna þar við að rannsaka eldsupptök. Að sögn varðstjóra á vakt er ómögulegt að segja til um hvenær rannsókn lýkur. 6.12.2005 16:34
Cameron kjörinn leiðtogi Íhaldsflokksins í Bretlandi David Cameron hefur verið kjörinn leiðtogi Íhaldsflokksins í Bretlandi. Hann hlaut meira en sextíu og fimm prósent greiddra atkvæða og meira en helmingi fleiri atkvæði en David Davis sem var í framboði gegn honum. 6.12.2005 15:28
Tryggingamiðstöð fær vottun fyrir nýjan vef Tryggingarmiðstöðin hlaut í dag vottun frá Sjá ehf. og Öryrkjabandalagi Íslands fyrir nýjan vef fyrirtækisins, fyrir að standast kröfur um aðgengi fyrir fatlaða. Vefurinn fær bæði vottun fyrir forgang 1 og 2 og er TM fyrsta einkafyrirtæki á Íslandi til að fá slíka vottun. Dæmi um breytingar sem orðið hafa á vef TM eru að nú geta blindir og sjónskertir notað talgerfla og sérhönnuð lyklaborð með síðunni eða stækkað letrið. 6.12.2005 15:22
Fimm sprengjur í vegköntum nærri Madríd Að minnsta kosti fimm sprengjur sprungu í vegköntum í nágrenni Madrídar á Spáni fyrir stundu. Ekki hafa borist fréttir af manntjóni en fyrstu fregnir herma að sprengingarnar hafi verið minniháttar. 6.12.2005 15:12
Leikskólagjöld lækka um áramót Leikskólagjöld fyrir áttastunda dag lækka um fimm þúsund krónur á mánuði í Reykjavík frá næstu áramótum og niðurgreiðsla á þjónustu dagforeldra verður aukin. 6.12.2005 14:35
Þarf hugsanlega að loka deildum aftur í Kópavogi Hugsanlegt er að loka þurfi deildum á ný í leikskólum Kópavogsbæjar eftir að ástandið hafði batnað allnokkuð frá því sem það var snemma í haust. Enn vantar í starfsfólk í nokkur stöðugildi og þá hafa nokkrir starfsmenn sagt upp frá og með áramótum. 6.12.2005 14:30
Jacob Zuma ákærður fyrir nauðgun Jacob Zuma, fyrrverandi varaforseti Suður-Afríku, hefur verið ákærður fyrir nauðgun. Zuma mætti fyrir rétt vegna málsins í dag en ekki var greint frá ákærunni fyrr en þá. 6.12.2005 14:14
Að minnsta kosti 94 látnir eftir flugslys Talsmaður lögreglunnar í Teheran hefur staðfest að allir farþegarinar 94 sem voru í herflugvél sem brotlenti á tíu hæða íbúðablokk í borginni í morgun hafi látist. Engar fregnir hafa enn borist af því hvort einhver hafi látist í blokkinni þegar flugvélin lenti á henni, en yfirvöld segja um 250 manns hafa búið þar. 6.12.2005 13:46
Hryðjuverkamenn hafi verið fluttir frá leynifangelsum Ellefu hryðjuverkamenn úr samtökum al-Qaida voru fluttir í snarhasti úr leynifangelsum í Austur-Evrópu þegar fréttir af fangelsunum birtust í fjölmiðlum. Þetta hefur fréttastöðin ABC eftir núverandi og fyrrverandi starfsmönnum leyniþjónustunnar, sem fullyrða að fangelsin hafi enn verið starfrækt fyrir mánuði síðan. 6.12.2005 13:37
Svifryksmengun 20 sinnum yfir heilsuverndarmörk í ár Svifryksmengun hefur fimm sinnum farið yfir heilsuverndarmörk í Reykjavík upp á síðkastið, síðast á laugardaginn. Þar með hefur hún farið tuttugu sinnum yfir mörkin í ár og þar sem til stendur að lækka mörkin til muna getur þetta orðið viðvarandi ástand af og til. 6.12.2005 12:45
Santander-flugvöllur rýmdur vegna sprengjuhótunar Aðskilnaðarsamtökin ETA segjast hafa komið fyrir sprengju á alþjóðaflugvellinum í Santander á Spáni. Lögregla hefur rýmt flugvöllinn og sent sprengjusérfræðinga á svæðið. 6.12.2005 12:30
Óttast að allir farþegar herflugvélar hafi farist Óttast er að allir farþegar hafi farist þegar herflugvél með meira en níutíu farþega brotlenti á tíu hæða íbúðablokk í Teheran höfuðborg Írans rétt fyrir ellefu. Ekki liggur enn fyrir hvort mannfall hafi orðið meðal íbúa blokkarinnar. 6.12.2005 12:15
Menntamálaráðherra efins um framhaldið Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra, sagði á Alþingi í morgun, að samræmd próf í núverandi mynd, í framhaldsskólum heyri líklega sögunni til, hún var þó ekki reiðubúin að slá þau af fyrr en að höfðu samráði við fagaðila. 6.12.2005 12:05
Ráðherra gerir alvarlegar athugasemdir við öryrkjaskýrslu Heilbrigðisráðherra mun í dag gera alvarlegar athugasemdir við skýrslu Stefáns Ólafssonar prófessors um hag öryrkja á Íslandi í samanburði við hag öryrkja annars staðar á Norðurlöndum. Stefán hefur nú þegar gert lítið úr athugasemdum forsætisráðherra, sem sagði að niðurstöður Stefáns væru rangar í mörgum meginatriðum. 6.12.2005 12:00
Héraðsdómshús landsins plástruð í dag Plástrar verða settir á héraðsdómshús landsins í dag í því augnamiði að vekja athygli á vanheilsu réttarkerfisins eins og það er orðað. Að plástruninni standa þau samtök og þær stofnanir sem standa að 16 daga átaki gegn kynbundnu ofbeldi undir yfirskriftinni: Heilsa kvenna, heilsa mannskyns: stöðvum ofbeldið. 6.12.2005 11:45
Ráðist á lögregluskóla í Írak í morgun Minnst tuttugu og sjö manns létust í sjálfsmorðsárás í lögregluskóla í Írak í morgun. Tvær konur gengu inn í skólastofu í skólanum hlaðnar sprengiefni og sprengdu sig í loft upp. Meira en þrjatíu slösuðust í árásinni. 6.12.2005 11:39
Barn lést í skjálftanum í A-Afríku Barn lést og nokkrir eru slasaðir eftir jarðskjálftann sem reið yfir Austur-Afríku í gærdag. Skjálftinn mældist 6,8 á Richter og nokkur hús hrundu í Kongó. Í einu húsanna varð barn undir braki og lést. Það var lán í ólani að upptök skjálftans voru á dreifbýlu svæði og því urðu afleiðingarnar minni en óttast var í fyrstu. 6.12.2005 11:30
Útskrifaður af gjörgæsludeild eftir bílslys Maðurinn sem sem slasaðist alvarlega í hörðum árekstri jeppa og fólksbíls á mótum Akrafjallsvegar og Akranesvegar í fyrrakvöld, er enn á gjörgæsludeild en verður líklega útskrifaður þaðan síðar í dag og fluttur á almenna deild, að sögn vakthafandi læknis á gjörgæsludeild. 6.12.2005 11:15
Herflugvél brotlenti í Teheran Herflugvél með áttatíu farþega brotlenti í Tehran, höfuðborg Írans, nú rétt í þessu. Svo virðist sem flugvélin hafi flogið beint á byggingu, en frekari upplýsingar liggja ekki fyrir að svo stöddu. 6.12.2005 11:09
Aukinn búðarþjófnaður um jólin Búðarþjófnaður tvöfaldast í desembermánuði á ári hverju. Mikið af fólki eru þá í verslunum og nýta þjófarnir sér það, sem sumir hverjir eru mjög bíræfnir. 6.12.2005 10:45
Fimmti hver Dani óttast hryðjuverk í háloftunum Fimmti hver Dani óttast að verða fórnarlamb hryðjuverka í flugvélum eða flugstöðvum samkvæmt nýrri könnun sem Flugmálastjórn Danmerkur hefur gert. Þar kemur einnig fram að fjórði hver Dani flýgur sjaldan eða aldrei og það er fólk í þeim hópi sem segist óöruggast í flugi. 6.12.2005 10:30
Langflestir búa enn í skýlum og búðum Næstum ári eftir að flóðbylgjan skall á löndum við Indlandshaf búa enn langflestir þeirra sem misstu heimili sín í hamförunum í neyðarskýlum eða tjaldbúðum. Þetta er niðurstaða bandarískrar könnunar sem gerð var í Indlandi, á Srí Lanka og norðurhluta Súmötru í Indónesíu sem varð einna verst úti. 6.12.2005 10:15
Enn á gjörgæsludeild eftir bruna Annar drengjanna sem brenndust illa þegar þeir voru fikta við eldfiman vökva í Grafarvogi fyrir rúmum tveimur vikum er enn á gjörgæslu, að sögn vakthafandi læknis. Ástand drengsins er stöðugt en óljóst er hvenær hann verður fluttur á almenna deild þar sem félagi hans dvelur nú, en hann brenndist ekki eins illa. 6.12.2005 10:15