Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Rice reynir að stöðva ofbeldisöldu Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, er komin til Miðausturlanda, til að reyna að stöðva ofbeldisölduna sem þar hefur gengið yfir undanfarna daga. 22.7.2005 00:01
Umsækjendur orðnir 23 Umsækjendur um stöðu útvarpsstjóra eru nú orðnir 23 en Kjartan "Vídó" Ólafsson, 23 ára verslunarmaður, bættist í hópinn í morgun þegar umsókn hans barst menntamálaráðuneytinu í pósti. Enn er möguleiki á að fleiri umsóknir berist í pósti seinna í dag eða eftir helgi. 22.7.2005 00:01
Götu lokað í Lundúnum Vopnaðir lögregluþjónar lokuðu fyrir stundu Harrow Road í Lundúnum. Þeir sögðu íbúum að halda sig innan dyra og einn íbúi telur sig hafa séð fjarstýrt sprengjuleitartæki. 22.7.2005 00:01
Dýra og plöntulíf í Surtsey Á vef Náttúrfræðistofnunar er sagt frá árlegum sumarleiðangri líffræðinga stofnunarinnar í Surtsey sem farinn var 18 - 25 júli, þar sem kannað var bæði plöntu- og dýralíf á eynni. Einnig voru sett upp sjálfvirk mælitæki sem skrá munu loft- og jarðvegshita næsta árið. 22.7.2005 00:01
Fjögurra enn leitað Lögreglan í Bretlandi hefur staðfest að maðurinn sem hún skaut til bana á járnbrautarstöð í Lundúnum í morgun tengdist árásunum í gær. Hún leitar einnig fjögurra annarra manna sem tengjast árásinni. 22.7.2005 00:01
Polanski vann meiðyrðamál Kvikmyndaleikstjórinn Roman Polanski vann meiðyrðamál sem hann höfðaði gegn tímaritinu Vanity Fair. Málssóknina höfðaði hann vegna greinar sem Vanity Fair birti í júlí 2002. Þar greindi tímaritið frá því að á leiðinni í jarðarför eiginkonu sinnar, sem var myrt á hrottalegan hátt af Charles Manson árið 1969, hafi Polanski reynt að taka konu á löpp á veitingahúsi í New York. 22.7.2005 00:01
Slys í Hvalvatnsfirði Maður slasaðist alvarlega þegar hann hrapaði á annað hundrað metra í skriðum við Hvalvatnsfjörð. Björgunarsveitir frá Grenivík, Húsavík og Akureyri voru kallaðar á svæðið sem og sérþjálfaðir fjallabjörgunarmenn og er læknir og björgunarmenn komnir til mannsins en beðið er eftir þyrlu Landhelgisgæslunnar. Skyggni er slæmt þar sem töluverð þoka er á svæðinu. 22.7.2005 00:01
Sprengjugrín á Kastrup Rýma varð öryggiseftirlitssvæði Katstrup flugvallar fyrr í dag vegna spaugsemi flugfarþega. Maðurinn sem er 44 ára Dani skellti handfarangri sínum á færibandið og tilkynnti um leið að hann innihéldi sprengju. 22.7.2005 00:01
Aðeins heillaóskir ennþá "Það hefur enginn haft samband við mig af þessu óánægða fólki," segir Fríða Regína Höskuldsdóttir, nýr skólastjóri í Landakotsskóla um deilurnar sem þar hafa verið. "Enn sem komið er hef ég ekkert annað fengið en hamingjuóskir." Hún segist ekki taka þeirri gagnrýni sem komið hefur fram í fjölmiðlum persónulega. 22.7.2005 00:01
Próflaus á 176 kílómetra hraða Tvítugur ökuréttindalaus piltur, ók bifreið á 176 kílómetra hraða á Reykjanesbraut við Smáralind í nótt. Lögreglan í Reykjavík var látin vita og mældi hraða bifreiðarinnar skömmu síðar á Sæbraut. 22.7.2005 00:01
Fjármálaeftirlit með athugasemdir Fjármálaeftirlitið gerir alvarlega athugasemd við að stjórn Sameinaða Lífeyrissjóðsins hafi ekki verið kunnugt um starfslokakjör Jóhannesar Siggeirssonar fyrrum framkvæmdastjóra og fellst ekki á þá skoðun stjórnarinnar að formaður og varaformaður hafi haft umboð til að gera viðauka við samninginn. 22.7.2005 00:01
Ferðamaður féll í hver í Reykjadal Um hálf fjögur leytið var tilkynnt um að erlendur ferðamaður hefði fallið í heitan hver í Reykjadal ofan við Hveragerði. Björgunarsveitir á Selfossi, Eyrabakka, og í Hveragerði voru kallaðar til að bera manninn til byggða, ef með þyrfti, en um fimm kílómetra leið er að veginum. Þær komu á staðinn rétt fyrir hálf fimm og hlúðu að manninum. 22.7.2005 00:01
Íslendingar á Bok og Bibliotek Ísland tekur þátt í evrópsku bókaráðstefnunni, Bok og Bibliotek, sem haldin verður í Gautaborg í haust. Rithöfundar frá 25 löndum koma að ráðstefnunni. Sjón verður meðal þeirra sem fara fyrir Íslands hönd en hann hlaut bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs í vetur fyrir bók sína Skugga-Baldur. 22.7.2005 00:01
Vopnahlé í hættu Vopnahlé Ísraela og Palestínumanna er talið í mikilli hættu. Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, er enn komin til Miðausturlanda, til að reyna að miðla málum.Vopnahléið er forsenda brottflutning 22.7.2005 00:01
Vörubílstjórar mótmæla hækkun Atvinnubílstjórar hóta því að valda algeru umferðaröngþveiti á mótum Suðurlandsvegar og Vesturlandsvegar fyrir verslunarmannahelgina. Þeir krefjast þess að verð á dísilolíuverði lækkað og þungaskattur afnuminn. Gatnamótunum verður lokað seinnipartinn á fimmtudag eða föstudag í næstu viku. Forsvarsmaður hópsins segir það ólíðandi hvernig atvinnubílstjórar skuli hafa látið hækkun olíugjaldsins yfir sig ganga, en ofan á hækkun olíugjaldsins þurfa þeir einnig að greiða þungaskatt. 22.7.2005 00:01
Skjóta til að drepa Ótti og spenna ríkir í Lundúnum, eftir að grunaður hryðjuverkamaður var skotinn til bana á lestarstöð í dag. Einn maður hefur verið handtekinn og birtar hafa verið myndir af fjórum öðrum mönnum sem grunaðir eru um sprengjutilræðin í borginni í gær. Lögreglan hefur skipanir um að skjóta til að drepa ef talið er að menn séu með sprengiefni á sér. 22.7.2005 00:01
Föðurlandslögin framlengd Bandaríkjaþing hefur samþykkt, með miklum meirihluta, að framlengja Föðurlandslögin svokölluðu, sem gefa lögreglunni rýmri starfsheimildir í baráttunni við hryðjuverkamenn. 22.7.2005 00:01
Lögmæti sölu stofnfjár enn skoðað Sex komu inn og fimmtán fóru úr hópi stofnfjáreigenda í Sparisjóði Hafnarfjarðar í gærkvöld. Ný stjórn styrkti stöðu sína en Fjármálaeftirlitið er enn að skoða lögmæti verslunar með stofnfé. 22.7.2005 00:01
Árni vissi ekki betur Pétur Blöndal, þingmaður Sjálfstæðisflokks, spáir nýrri holskeflu af uppgreiðslum hjá Íbúðalánasjóði þar sem líklegt sé að vextir lækki innan tveggja ára. Hann segir umhugsunarefni af hverju Íbúðalánasjóður hafi einungis kosið að sýna félagsmálanefnd Alþingis einn af þeim lánasamningum sem gerðir voru. 22.7.2005 00:01
Gangstéttarakstur Sjónarvottar héldu að það stefndi í stórslys þegar maður ók á bíl á gangstéttinni við skemmtistaðina Torvaldsen og Kaffi París við Austurvöll í gærkvöldi. Maður sem sótt hafði tvo gesti á Kaffi Austurstæti færði til útiborð og stóla með bíl sínum á gangstétt við Austurvöll sem ekki er ætluð umferð. 22.7.2005 00:01
Strætó akreinar Nýtt leiðakerfi strætó verður tekið í gagnið í fyrramálið og hafa strætisvagnarnir fengið þrjár nýjar sérakreinar til að aka á. Þannig er vonast til að strætó verði vinsælli ferðamáti þegar vagnarnir hafa eitthvað fram yfir almenna umferð. 22.7.2005 00:01
Lögregla skýtur grunaðan mann Lögregla í Lundúnum handtók í gærkvöld mann í Stockwell í suðurhluta borgarinnar í tengslum við rannsóknina á hinum misheppnuðu sprengjutilræðum á fimmtudag. Óljóst var af fyrstu fréttum af handtökunni hvort hún tengdist atviki sem varð á Stockwell-jarðlestarstöðinni í gærmorgun, en þá skaut lögregla þar mann til bana sem hagaði sér grunsamlega. 22.7.2005 00:01
Féll 150 metra í skriðum Fertugur maður slasaðist þegar hann féll um það bil 150 metra niður skriðu um miðjan dag í gær við Hvalvatnsfjörð sem er á nesinu milli Skjálfanda og Eyjafjarðar. 22.7.2005 00:01
Segir aðför hlægilega Heilbrigðiseftirlitið á Akranesi kannaði í gær húsakynni fimm pólskra verkamanna sem starfa hjá fyrirtækinu Sputnikbátum og samþykkti það án athugasemda að sögn Gunnars Leifs Stefánssonar framkvæmdastjóra fyrirtækisins. "Enda er þetta fyrirtaks húsakostur," segir hann. 22.7.2005 00:01
Smáhveli strandaði á Siglufirði Um tveggja metra langur blettahnýðir, smáhveli af höfrungaætt, strandaði í tvígang á Siglufirði síðastliðinn miðvikudag. Í bæði skiptin losnaði hann af sjálfsdáðum en virtist vankaður eftir síðara strandið; synti í hringi og hvarf loks sjónum Siglfirðinga. 22.7.2005 00:01
Orkuveita Stykkishólms seld Orkuveita Reykjavíkur hefur samið við Stykkishólmsbæ um kaup á vatns- og hitaveitu bæjarins og hefur samningurinn í för með sér 35 prósenta verðlækkun á heitu vatni í bænum. Samningurinn var undirritaður í gær en Orkuveita Stykkishólms er metin á 615 milljónir króna. 22.7.2005 00:01
Vill Bush færa réttinn til hægri? Öllum að óvörum tilnefndi Bush Bandaríkjaforseti íhaldssaman, hvítan karl í embætti dómara við Hæstarétt Bandaríkjanna í gær. Talið er að með þessu vilji hann hnika réttinum til hægri en sumir íhaldsmenn efast um að sá útvaldi sé jafnmikill íhaldsmaður og hermt er. 21.7.2005 00:01
Tryggingabætur öryrkja skerðast Öryrkjar sem hafa lagt fyrir viðbótarlífeyrissparnað missa hluta af tryggingabótum sínum óski þeir eftir að fá hann útborgaðan. Þegar skatturinn hefur einnig tekið sinn toll er ávinningurinn af sparnaðinum nær enginn. Öryrki sem fréttastofan ræddi við segir þetta ekkert annað en þjófnað. 21.7.2005 00:01
Yfirvofandi í töluverðan tíma Allri vinnslu í fiskvinnslufyrirtækinu Suðurnesjum var hætt í dag og öllum fjörutíu og fimm starfsmönnum fyrirtækisins sagt upp. Stefánía Valgeirsdóttir, framkvæmdastjóri fyrirtækisins, segir lokunina hafa verið yfirvofandi í töluverðan tíma. Reynt hafi verið að bjarga fyrirtækinu en það ekki gengið eftir. 21.7.2005 00:01
Gerir grein fyrir samningunum Guðmundur Bjarnason, forstöðumaður Íbúðalánasjóðs, er þessa stundina að gera félagsmálanefnd Alþingis grein fyrir umdeildum samningum Íbúðalánasjóðs við banka og sparisjóði, sem hafa farið leynt. Fjórir starfsmenn sjóðsins eru með Guðmundi. 21.7.2005 00:01
Sjö verið handteknir í Pakistan Lögreglan í Pakistan hefur handtekið sjö menn sem taldir eru tengjast hryðjuverkunum á London á einn eða annan hátt. Einn mannanna, sem handtekinn var í gær, er talinn hafa rætt við einn árásarmannanna aðeins fáeinum klukkutímum fyrir árásirnar. 21.7.2005 00:01
Þrír úrskurðaðir í gæsluvarðhald Þrír piltar af þeim fimm sem lögreglan í Reykjavík handtók á mánudag, grunaða um ýmis afbrot, hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald til 26. júlí. Hinum tveimur var sleppt eftir ítarlegar yfirheyrslur. 21.7.2005 00:01
Geta ekki séð um öryggi landsins Írakskar öryggissveitir eru engan vegin í stakk búnar til að sjá sjálfar um öryggi landsins. Þetta kemur fram í nýrri leyniskýrslu frá Pentagon sem dagblaðið <em>New York Times</em> greinir frá í dag. 21.7.2005 00:01
Piltur missti meðvitund Tólf ára piltur missti meðvitund þegar hann féll út af trampolíni í Keflavík í gærkvöldi og féll á höfuðið til jarðar. Hann var fluttur með sjúkrabíl á slysadeild Landspítalans þar sem hann komst til meðvitundar en dvelur þar enn til eftirlits. 21.7.2005 00:01
Fimm féllu í sjálfsmorðsárás Fimm írakskir hermenn féllu í sjálfsmorðsárás suður af Bagdad í morgun. Maður ók bíl upp að eftirlitssveit hermannanna og sprengdi sig í loft upp. Árásin var gerð á svæði sem kallað hefur verið „þríhyrningur dauðans“ undanfarið. Ellefu særðust í árásinni, þeirra á meðal lítið barn. 21.7.2005 00:01
Vara við geymslu olíu Almenningur er varaður við þeirri hættu sem af því getur skapast að geyma birgðir af dísilolíu í og við íbúðarhús í tilkynningu frá Ríkislögreglustjóra, Brunamálastofnun og Umhverfisstofnun. 21.7.2005 00:01
Mótmælaganga stöðvuð á Gaza Tuttugu þúsund lögreglumenn og hermenn stöðvuðu í nótt mótmælagöngu við Gaza-svæðið. Sex þúsund manns tóku þátt í göngunni sem er ætlað að tefja brottfluttning Ísraela frá svæðinu. 21.7.2005 00:01
Hjónabönd samkynhneigðra lögleidd Kanada varð í gærkvöldi fjórða landið í heiminum til að lögleiða hjónabönd samkynhneigðra. Öldungadeild kanadíska þingsins samþykkti þetta á þriðjudagskvöldið og í gærkvöldi skrifaði svo forseti hæstaréttar landsins undir lögin. 21.7.2005 00:01
2 létust í sprengingu í Danmörku Karlmaður og barn týndu lífi og fjórir slösuðust, þar af einn alvarlega, þegar kraftmikil sprenging varð í húsi í Óðinsvéum í morgun. Sprengingin var svo mikil að þakið lyftist af og þaksteinar flugu í allar áttir. 21.7.2005 00:01
Brotthvarfinu hugsanlega flýtt Hugsanlegt er að brotthvarfi Ísraelsmanna frá hernumdum svæðum Palestínumanna frá Gaza-ströndinni verði flýtt. Þetta segir Ehud Olmert, varaforsætisráðherra Ísraels. 21.7.2005 00:01
Rice öskuill út í Súdana Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, er öskuill og krefst þess að stjórnvöld í Súdan biðjist afsökunar. Ástæðan er sú að súdanskir embættismenn tóku harkalega á bandarískum blaðamönnum og embættismönnum á fundi í Khartoum í gær. 21.7.2005 00:01
Ráða hverjum hleypt inn í landið "Við fylgjumst með þegar svona atvik eiga sér stað og berist kvartanir tökum við þær alltaf alvarlega," segir Illugi Gunnarsson, aðstoðarmaður utanríkisráðherra. 21.7.2005 00:01
Tveir með 300 kíló af mat Mikið af matvælum fannst í erlendum rútubíl sem kom með Norrænu til Seyðisfjarðar í morgun en aðeins einn ökumaður og einn farþegi voru skráðir þar um borð. Við fyrstu athugun fundust hátt í 300 kíló af ýmsum mat og er verið að leita nánar í bílnum og yfirheyra ferðalangana tvo. 21.7.2005 00:01
Ráða hverjum hleypt inn í landið "Við fylgjumst með þegar svona atvik eiga sér stað og berist kvartanir tökum við þær alltaf alvarlega," segir Illugi Gunnarsson, aðstoðarmaður utanríkisráðherra. 21.7.2005 00:01
Lestarstöðvar í Lundúnum rýmdar Neðanjarðarlestarstöð í Lundúnum var rýmd rétt í þessu og má sjá reyk leggja frá lest, samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu í borginni. SKY greinir nú frá því að röð atvika hafi átt sér stað í borginni á síðustu mínútum en ekki er ljóst hvað gerðist. 21.7.2005 00:01