Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Minni losun gróðurhúsalofttegunda Heildarútstreymi gróðurhúsalofttegunda minnkaði um rúmt prósent milli áranna 2002 og 2003. Helstu ástæður lækkunarinnar eru minna útstreymi frá sjávarútvegi og landbúnaði en útstreymi frá samgöngum, iðnaði og byggingarstarfsemi jókst milli ára. 12.7.2005 00:01
Íslensk börn fá ekki nóg D-vítamín Hátt hlutfall íslenskra barna fær ekki nægilega mikið D-vítamín dag hvern að sögn Ingu Þórsdóttur næringarfræðings, sem rannsakað hefur D-vítamínneyslu íslenskra barna. 12.7.2005 00:01
Foreldrarnir vilja áfrýjun Foreldrar stúlku sem beið bana þegar ekið var á hana við Bíldudal í fyrra vilja að málinu verði áfrýjað til Hæstaréttar. Héraðsdómur Vestfjarða vísaði bótakröfu þeirra frá þar sem ekki hafi verið um stórfellt gáleysi að ræða. 12.7.2005 00:01
Enginn lýst ábyrgð á sprengingunni Einn lögreglumaður særðist lítillega þegar sprengja sprakk við kaffihús menningarstofnunar Ítalíu í Barcelona á Spáni í morgun. Talið er að ítalskir stjórnleysingjar standi á bak við atvikið en enn sem komið er hefur enginn lýst ábyrgð á því. 12.7.2005 00:01
Bendir allt til sjálfsmorðsárása Talið er að fjórir tilræðismenn hafi verið meðal þeirra sem létu lífið í hryðjuverkaárásunum í Lundúnum síðastliðinn fimmtudag. Breska lögreglan greindi frá þessu síðdegis og bendir allt til þess að um sjálfsmorðsárásir hafi verið að ræða. 12.7.2005 00:01
PFS vill skýringar á viðgerðartöf Póst- og fjarskiptastofnun hefur ritað forsvarsmönnum Farice sæstrengsins bréf þar sem óskað er eftir skýringum á óhóflegu rofi á þjónustunni fyrir um hálfum mánuði síðan. 12.7.2005 00:01
Grunur um morð á Íslendingi Lík af manni á fertugsaldri sem fannst í Suður-Afríku um helgina er sagt kunna vera af íslendingi sem búið hefur í Jóhannesarborg í um tíu ár. Yfirvöld hér heima hafa sent lögreglu í Suður-Afríku fyrirspurnir vegna málsins, en ekki er vitað af hverjum líkið er. 12.7.2005 00:01
Kvaðir lagðar á símafyrirtæki Póst- og fjarskiptastofnun ætlar að leggja nýjar kvaðir á bæði Símann og Og Vodafone í tengslum við greiningu markaða í farsímarekstri, en slíka greiningu segist stofnunin eiga að framvæma lögum samkvæmt. 12.7.2005 00:01
Öryggismyndavél með símkorti Hafin er sala á nýrri eftirlitsmyndavél frá Nokia sem sögð er geta hentað fyrir heimili og eins til að hafa auga með sumarbústöðum. 12.7.2005 00:01
Ólafur 19 - Davíð 17 Skothríð hélt áfram við Reykjavíkurhöfn í dag, þriðja daginn í röð. Skipverjar á rússneskan herskipinu Lesjenkó aðmíráli skutu nítján heiðursskotum í loftið, Ólafi Ragnari Grímssyni, forseta Íslands, til heiðurs en hann skoðaði skipið í dag. Forsetinn fékk tveimur heiðursskotum meira en Davíð Oddsson utanríkisráðherra sem var á sömu slóðum í gær. 12.7.2005 00:01
Norskur fjársvikari fyrirfór sér Norski fjársvikarinn Ole Christian Bach skaut sig í bifreið sinni á flótta undan sænsku lögreglunni á mánudagskvöld. Mikil umræða var um málið í skandinavískum fjölmiðlum í gær og hefur lögmaður Bach óskað eftir rannsókn á dauða hans. 12.7.2005 00:01
Fyrrum forsætisráðherra í rannsókn Saksóknarar í Rússlandi hófu á mánudag rannsókn á meintum fjársvikum Mikhail Kasyanov, sem var forsætisráðherra Rússlands árin 2000-2004. Eftir að Pútín Rússlandsforseti rak hann úr embætti á síðasta ári gerðist Kasyanov einn harðasti gagnrýnandi Pútins. 12.7.2005 00:01
Sjálfsmorðsárás í Ísrael Átján ára gamall Palestínumaður framdi sjálfsmorðssprengjuárás utan við verslunarmiðstöð í bænum Netanía í gær. Tvær konur létust og þrjátíu særðust í árásinni. Þetta er önnur sjálfsmorðsárásin síðan vopnahlé var samþykkt fyrir fimm mánuðum. 12.7.2005 00:01
Húsleit hjá Intel <font face="Helv">S</font>amkeppnisyfirvöld í Evrópu leituðu í gær óvænt samtímis á skrifstofum Intel í Bretlandi, Þýskalandi, Spáni og Ítalíu. Intel er stærsti framleiðandi tölvuörgjörva í heiminum með 90 prósent markaðshlutdeild, 12.7.2005 00:01
Líklega sjálfsmorðsárásir Breska lögreglan rannsakar nú hvort fjórir meintir sjálfsmorðsárásarmenn hafi verið meðal þeirra látnu í hryðjuverkaárásunum í Lundúnum. Í gærkvöld sagðist hún hafa sannanir fyrir því að í það minnsta einn sprengjumaður hafi látist og verið væri að kanna hvort svo hefði verið um þá alla. 12.7.2005 00:01
Sló mann með brotinni glerflösku Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í gær tvítugan karlmann í sex mánaða fangelsi fyrir líkamsárás á menningarnótt árið 2003. Fimm mánuðir eru skilorðsbundnir. Þá skal hann greiða ákæranda 60.000 krónur í skaðabætur og lögmannskostnað. Hann sló ítrekað til kæranda með brotinni flösku og olli alvarlegum, en þó ekki lífshættulegum, áverkum. 12.7.2005 00:01
Loftbrú frá Íslandi í sextíu ár Íslendingar hafa síðustu sextíu árin notið þess að tengjast öðrum löndum með reglubundnu áætlunarflugi. Þessum tímamótum var fagnað á flugvellinum í Glasgow í gær þar sem gamli og nýi tíminn í fluginu mættust í bókstaflegri merkingu. 12.7.2005 00:01
Konum á gæsluvöllum sagt upp Össur Skarphéðinsson segir að verið sé að brjóta loforð með því að segja upp tuttugu og tveimur konum á gæsluvöllum borgarinnar. Guðlaugur Þór Þórðarson segir konunum sýnt virðingarleysi. 12.7.2005 00:01
Útkall vegna eldri manns Allar björgunarsveitir á höfuðborgarsvæðinu voru kallaðar út um níuleytið í gærkvöld vegna 65 ára manns sem hafði ekki skilað sér af Esjunni. Maðurinn hafði farið að heiman um hádegið og búist var við honum síðdegis. 12.7.2005 00:01
Grunur um morð á Íslendingi Grunur leikur á að Íslendingur hafi verið myrtur í Suður-Afríku og líki hans komið fyrir í tunnu fullri af steypu. Tvennt er í haldi lögreglunnar vegna málsins. 12.7.2005 00:01
Sprenging í verslunarmiðstöð Sprenging varð í verslunarmiðstöð í bænum Netanya í Ísrael fyrir stundu. Að sögn útvarpsins á staðnum eru margir látnir. Nánari upplýsingar um sprenging<font face="Courier New">una</font> liggja ekki fyrir að svo stöddu. 12.7.2005 00:01
Hella de Islandia Þó aðeins séu fimmtán Chílebúar skráðir sem íbúar á Hellu er þetta samfélag mun stærra. Fjölmargir hafa færst sig um set og búa nú á Hvolsvelli en eru í góðum tengslum við granna sína og landa á Hellu. 12.7.2005 00:01
Öryggisgæsla í hámarki Öryggisgæsla í London hefur enn verið hert og er nú í algjöru hámarki þar sem mennirnir sem frömdu hryðjuverkin á fimmtudaginn eru enn á lífi og undirbúa aðra árás. Þessu er haldið fram í breska dagblaðinu <em>Times</em> í morgun. 11.7.2005 00:01
Rúta vó salt á vegkanti Skelfing greip um sig í hópi þrjátíu erlendra ferðamanna sem voru um borð í rútu sem var rétt farin út af veginum á Steingrímsfjarðarheiði í gær. Vegkantur gaf sig og fór rútan hálf út af veginum og vó þar salt. 11.7.2005 00:01
Sjö Írakar myrtir í morgun Hópur uppreisnarmanna myrti í morgun sjö írakska hermenn nærri höfuðborginni Bagdad. Uppreisnarmennirnir óðu inn í eftirlitsstöð hersins og skutu þar á allt sem fyrir varð. Fimm manns særðust í skotbardögunum sem stóðu í um hálfa klukkustund. 11.7.2005 00:01
Falast eftir 130 milljarða aðstoð Ríkisstjórnin í Ísrael ætlar að falast eftir ríflega tveggja milljarða dollara aðstoð, eða rúmlega 130 milljarða króna, frá Bandaríkjunum vegna fyrirhugaðs brottfluttnings frá Gasa ströndinni. Frá þessu greinir ísraelskt dagblað í morgun og þar segir jafnframt að stefnt sé að því að hefja brottfluttninginn strax í næsta mánuði. 11.7.2005 00:01
Ræningjarnir yfirheyrðir í dag Mennirnir tveir sem rændu lyfjum úr apótekinu í Austurveri í gær og peningum á Dominos Pizzu í Spönginni, vopnaðir hnífi og skrúfjárni, eru enn í haldi lögreglu og verða yfirheyrðir nánar í dag. Meðal annars verður kannað hvort þeir hafi fleiri afbrot á samviskunni. 11.7.2005 00:01
Fellibylurinn Dennis geysist áfram Fellibylurinn Dennis geysist nú um Suðausturströnd Bandaríkjanna á meira en fimmtíu metrum á sekúndu. Yfirvöld hafa hvatt nærri tvær milljónir manna til að yfirgefa heimili sín vegna fellibylsins. Nú þegar hafast um tíu þúsund manns við í neyðarskýlum og hótel á Suðausturströndinni eru þétt setin. 11.7.2005 00:01
Bakijev kjörinn forseti Kirgistans Kurmanbek Bakijev hefur verið kjörinn forseti Kirgistans. Þegar búið var að telja nærri öll atkvæði í morgun hafði Bakijev hlotið nærri áttatíu og níu prósent talinna atkvæða og því unnið kosningarnar með algjörum yfirburðum. 11.7.2005 00:01
Fékk veiðarfærin í skrúfuna Fiskibátur sem var að veiðum skammt frá Vestmannaeyjum í nótt fékk veiðarfærin í skrúfuna og varð við það vélarvana og stjórnlaus. Skipstjóri kallaði á Lóðsinn í Eyjum til aðstoðar sem dró bátinn til hafnar í Eyjum. 11.7.2005 00:01
Pamplona: 4 töluvert slasaðir Fjórir menn slösuðust töluvert í hinu árlega nautahlaupi í borginni Pamplona á Spáni í morgun. Meðal þeirra var einn öryggislögreglumaður sem var á vakt. Nautahlaupið fer fram dagana 7. til 14. júlí og er hluti af sumarhátíð í borginni. 11.7.2005 00:01
22 námuverkamenn létust í Kína Minnst tuttugu og tveir létust í sprengingu í kolanámu í vesturhluta Kína í nótt. Rúmlega sextíu manns eru enn fastir inni í námunni en þegar hefur tekist að bjarga sex námuverkamönnum út. Öryggi í kínverskum kolanámum er mjög ábótavant og í fyrra létust meira en sex þúsund manns vegna sprenginga í námum landsins. 11.7.2005 00:01
Minnast hinna myrtu í Srebrenica Þúsundir komu saman í bænum Srebrenica í Bosníu í morgun til að minnast þeirra átta þúsund karlmanna úr röðum múslima sem voru myrtir af Bosníu-Serbum í Bosníu-deilunni fyrir tíu árum. 11.7.2005 00:01
Búið að ná öllum líkum Búið er að ná öllum líkum úr neðanjarðarlestunum sem sprengdar voru í hryðjuverkaárásunum í Lundúnum síðastliðinn fimmtudag. Öryggisgæsla hefur enn verið hert í borginni þar sem mennirnir sem frömdu hryðjuverkin í síðustu viku eru enn á lífi og eru taldir undirbúa aðra árás. 11.7.2005 00:01
Ók á 150 þegar hann sá stúlkuna Tæplega nítján ára piltur var í Héraðsdómi Vestfjarða dæmdur í eins mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir manndráp af gáleysi. Hann ók á fjórtán ára stúlku á Bíldudalsvegi síðasta sumar. Sjálfur segist hann hafa verið á 150 kílómetra hraða þegar hann sá stúlkuna. 11.7.2005 00:01
Framtíð R-listans að ráðast Það gæti ráðist á fundi viðræðunefndar Samfylkingarinnar, Framsóknarflokksins og Vinstri grænna í dag hvort R-lista flokkarnir bjóða áfram sameiginlega fram fyrir næstu sveitarstjórnarkosningar. 11.7.2005 00:01
Vopnað rán í Domus Medica Vopnað rán var framið í Lyf og heilsu í Domus Medica við Egilsgötu fyrir stundu. Maður með klút fyrir andlitinu og hníf í hendi kom inn í apótekið og ógnaði starfsfólki. Ræninginn beitti hnífnum þó ekki en hafði lítilræði af lyfjum á brott með sér. 11.7.2005 00:01
16 létust í gassprengingu Sextán manns létu lífið þegar öflug gassprenging varð í verslun í bænum Ukhta í norðausturhluta Rússlands fyrir stundu. Verslunin er á tveimur hæðum og er önnur hæðin nánast ónýt. 11.7.2005 00:01
Lýstu yfir fullu trausti Allir starfandi læknar á kvennadeild Landspítalans sögðust í yfirlýsingu í mars á síðasta ári bera fullt traust til þess fæðingarlæknis sem Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi á föstudag fyrir stórfellt gáleysi. Yfirmaður lækninga á kvennadeild vildi ekki tjá sig um málið þegar fréttastofan leitaði eftir því en læknamistökin urðu til þess að ungbarn lést. 11.7.2005 00:01
Fyrstu hettusóttartilfellin í 6 ár Hettusótt, sem ekki hefur greinst hér á landi síðan árið 1999, greindist nýverið í þremur einstaklingum. Tveir þeirra sem sýktust höfðu ekki verið bólusettir gegn hettusótt að því er fram kemur í farsóttarfréttum frá Landlæknisembættinu. 11.7.2005 00:01
Niðurskurður kynntur starfsmönnum Niðurskurður í starfsemi Ríkisútvarpsins verður að öllum líkindum kynntur starfsmönnum RÚV á fundi síðar í vikunni. 11.7.2005 00:01
Skoða rússneska kafbátaskipið Til stendur að Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, og Davíð Oddsson utanríkisráðherra heimsæki rússneska kafbátaskipið Aðmírál Levchenko í dag. Skotið verður úr fallbyssum til heiðurs þeim við komu þeirra um borð. 11.7.2005 00:01
Harður árekstur í Húnavatnssýslu Harður árekstur varð í Húnavatnssýslu á Þjóðvegi eitt á móts við bæinn Vatnshorn rétt fyrir klukkan eitt. Einn hlaut beinbrot en aðrir slösuðust minniháttar. 11.7.2005 00:01
Tveir létust á flugsýningu Tvær litlar flugvélar flugu hvor á aðra á flugsýningu í Kanada í gær með þeim afleiðingum að báðir flugmennirnir létust samstundis. Flugvélarnar voru að líkja eftir orrustum í fyrri heimsstyrjöldinni en ekki vildi betur til en svo að önnur vélin flaug upp undir hina. 11.7.2005 00:01
Kúabændur fari yfir skipulagið Landsamband Kúabænda hvetur kúabændur til að fara yfir framleiðsluskipulag búa sinna þar sem framleiða þarf meiri mjólk. Samkvæmt bráðabirgðauppgjöri afurðastöðva var mjólkurframleiðslan í júní 9,9 milljónir lítra en í júní í fyrra var hún 10,1 milljón lítra. 11.7.2005 00:01