Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Sumarsólstöður í kaldara lagi Í dag eru sumarsólstöður og því lengsti dagur ársins. Ekki virðist sem sólin og hitastigið láti það hafa áhrif á sig því samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofunni er í kaldara lagi miðað við seinni hluta júní. 21.6.2005 00:01
Reynt að koma Pólverjum úr landi Alþýðusamband Íslands vinnur nú í því að tryggja stöðu tólf Pólverja sem búið hafa við slæmar aðstæður og unnið hér á landi á ósæmandi kjörum. ASÍ telur að fyrirtækið sem flutti Pólverjana hingað til lands hafi reynt að koma þeim úr landi svo þeir gætu ekki borið vitni. 21.6.2005 00:01
Gott að ránum hafi ekki fjölgað Afbrotafræðingur hjá Ríkislögreglustjóranum segir ánægjulegt að úttekt sýni að ránum hafi ekki fjölgað þrátt fyrir breytta samfélagsmynd. 36 rán eru framin á Íslandi á ári samkvæmt athugun félagsfræðinema við Háskóla Íslands. 21.6.2005 00:01
Gagnrýna samtryggingu stjórnmála Ungir jafnaðarmenn, ungliðahreyfing Samfylkingarinnar, harma hvernig staðið er að skipun sendiherra fyrir Íslands hönd og segja ljóst að samtrygging íslenskra stjórnmálamanna liggi í sumum tilvikum þvert á flokkslínur. 21.6.2005 00:01
Vilja nágrannavörslu í Reykjavík Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokks og frjálslyndra og óháðra lögðu til við borgarstjórn Reykjavíkur á fundi fyrir stundu að að óskað yrði eftir samstarfi við lögregluna í Reykjavík. Vilja þeir að það verði gert til að efla innbrotsvarnir í þágu almennings og koma á fót skipulagðri nágrannavörslu í öllum hverfum Reykjavíkur, en árlega verða þúsundir Reykvíkinga fyrir fjárhagslegu og tilfinningalegu tjóni af völdum innbrota í hús og bifreiðar. 21.6.2005 00:01
Alþjóðadagur MND-félaga í dag Lækning hefur ekki enn fundist við MND-sjúkdómnum sem þrír til fimm einstaklingar greinast með á Íslandi á hverju ári. Formaður MND-félagsins vill að rannsóknir á sjúkdómnum verði hafnar af fullum krafti hér á landi. Í dag er alþjóðadagur MND-félaga um allan heim. 21.6.2005 00:01
Kosið um sameiningu Ölfuss og Flóa Hafin er vinna að undirbúningi um sameiningu Ölfuss og Flóa en kosið verður um sameiningu í byrjun október. Farið verður í kosningarnar í framhaldi af samstarfsverkefni Sambands íslenskra sveitarfélaga og félagsmálaráðuneytisins um eflingu sveitarstjórnarstigsins. Kosið verður um sameiningu Árborgar, Hraungerðishrepps, Hveragerði, Gaulverjabæjarhrepps, Villingaholtshrepps og Ölfuss. 21.6.2005 00:01
SMÁÍS fær verðlaun fyrir baráttu Alheimssamtök Kvikmyndaframleiðenda veitti Samtökum myndrétthafa á Íslandi verðlaun fyrir framúrskarandi árangur í baráttunni gegn ólöglegri dreifingu á síðasta ári. Verðlaunin voru veitt framkvæmdastjóra SMÁÍS við formlega athöfn á í Flórens á Ítalíu í síðustu viku. Verðlaun sem þessi eru veitt þeim löndum sem sýna framúrskarandi árangur gegn ólöglegri dreifingu myndefnis og er þetta í fyrsta sinn sem eitt af norrænu ríkjunum hlýtur þessi verðlaun. 21.6.2005 00:01
Íslenskt félag flutti inn Pólverja Í ljós hefur komið að íslenskt fyrirtæki hefur flutt tólf Pólverja hingað til lands á fölskum forsendum, einungis í þeim tilgangi að leigja þá út. Þetta kemur fram í tilkynningu frá ASÍ. Laun og kjör mannanna voru langt undir lámarkskjörum sem kjarasamningar og íslensk lög kveða á um. Í samningi sem fyrirtækið gerði við Pólverjana sagði að þeir hefðu 480 krónur á tíma í jafnaðarkaup og að þeir þyrftu að vinna 250 vinnustundir á mánuði. 21.6.2005 00:01
Lenti í þyrluslysi á afmælisdaginn Sex manns, þar á meðal hundrað ára gamall maður, slösuðust þegar þyrla hrapaði nærri Sala norðvestur af Stokkhólmi í Svíþjóð í morgun. Verið var að sækja öldunginn á hjúkrunarheimili í bænum Heby og hugðist hann fagna afmæli sínu fjölskyldu sinni á eyju í grenndinni. Þegar þyrlan hóf sig á loft slógust þyrluspaðarnir í rafmagnsstaur með þeim afleiðingum að þyrlan fór á hliðina. 21.6.2005 00:01
10 milljarða tjón í Reykjavík Samkvæmt útreikningum Sjóvár var heildarkostnaður vegna slysa í umferðinni í Reykjavík ekki undir 10 milljörðum króna á síðasta ári. Gatnamót Miklubrautar og Grensásvegar eru orðin tjónahæstu gatnamótin og taka við þeim vafasama titli af gatnamótum Kringlumýrarbrautar og Miklubrautar sem hafa verið tjónahæst í mörg ár. 21.6.2005 00:01
Falsaði undirskrift á skuldabréfi Fertugur maður var í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag dæmdur í sex mánaða fangelsi fyrir skjalafals. Þrír mánuðir af refsingunni eru skilorðsbundnir til þriggja ára. Maðurinn hefur játað að hafa greitt starfsmönnum bílaumboðs með skuldabréfi með falsaðri undirskrift. Skuldabréfið hljóðaði upp á rúma 1,3 milljónir króna. 21.6.2005 00:01
Sigrún eini umsækjandinn Sigrún Stefánsdóttir sótti ein um laust starf dagskrárstjóra Rásar 2 og landshlutastöðva Ríkisútvarpsins, en umsóknarfrestur rann út á sunnudag. 21.6.2005 00:01
Ekki viðrað til róðurs Kjartan Hauksson ræðari er nú úti fyrir miðju Norðurlandi. Hann tók land á Höfðaströnd á Tröllaskaga á laugardag og hefur þurft að halda þar kyrru fyrir vegna veðurs. 21.6.2005 00:01
Athuga staðarval vegna álvers Fulltrúar Fjárfestingarstofu, Alcoa, sveitarfélaga Skagafjarðar, Húsavíkurbæjar og Akureyrarkaupstaðar ásamt fulltrúum Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar og Atvinnuþróunarfélags Þingeyinga undirrituðu í gær samkomulag um áætlun um staðarvalsathuganir vegna hugsanlegs álvers á Norðurlandi. 21.6.2005 00:01
Alfreð forseti borgarstjórnar Alfreð Þorsteinsson var kjörinn forseti borgarstjórnar á fundi borgarstjórnar í dag. Hann mun gegna starfinu til loka kjörtímabilsins. Alfreð tekur við af Árna Þór Sigurðssyni, sem gengt hefur forsetastarfi frá 2002, en í leyfi hans hefur Stefán Jón Hafstein gegnt forsetastörfum undanfarna mánuði. Þeir Árni Þór og Stefán Jón voru kjörnir varaforsetar. 21.6.2005 00:01
RKÍ og Sjóvá semja um vátryggingar Rauði kross Íslands og Sjóvá-Almennar hafa skrifað undir samstarfssamning um vátryggingaviðskipti. Samningurinn felur meðal annars í sér að Sjóvá tryggir sjúkrabíla Rauða krossins og sendifulltrúa við hjálparstörf erlendis á vegum félagsins. Jafnframt mun Sjóvá styrkja starfsemi Rauða krossins á næstu árum. 21.6.2005 00:01
Sænskur gísl frelsaður í Írak Sænskur gísl sem verið hefur í haldi mannræningja í Írak í rúma tvo mánuði hefur verið frelsaður. Frá þessu greindi utanríkisráðuneyti Svíþjóðar í dag. Ekki hafði verið greint frá því að manninum, hinum 63 ára Ulf Hjertström, hefði verið rænt en hann segist í samtali við <em>Aftonbladet</em> hafa verið í haldi frá því á föstudaginn langa. 21.6.2005 00:01
Úthlutað úr minningarsjóði 61 milljón króna hefur verið úthlutað úr Minningarsjóði Margrétar Björgólfsdóttur til 178 verkefna. Féð fór til menningarmála, forvarna, heilbrigðismála, íþrótta, menntamála og námsstyrkja. Sjóðnum bárust samtals umsóknir. Björgólfur Guðmundsson er formaður sjóðsstjórnar. Markmið sjóðsins er að auka almannaheill og bæta mannlíf á Íslandi. 21.6.2005 00:01
Þjónustusamningur í endurskoðun Þjónustusamningur heilbrigðisráðuneytis og Reykjalundar er nú til endurskoðunar, að sögn Jóns Kristjánssonar heilbrigðisráðherra. 21.6.2005 00:01
Heilsugæslan neydd á brott Hafinn er undirbúningur að flutningi Heilsugæslunnar úr gömlu Heilsuverndarstöðinnni við Barónsstíg. Þá þarf að flytja miðstöð heimahjúkrunar við Grensásveg. Það er leiguhúsnæði sem nú hefur verið selt og verður tekið til annarra nota 21.6.2005 00:01
Alvarlegt lestarslys í Ísrael Að minnsta kosti fimm létust og hundrað særðust þegar farþegalest ók á vöruflutningabíl í Ísrael í dag. Lestin var að koma frá Tel Aviv í suðurhluta landsins og á leið til Beersheba þegar hún skall á flutningabílnum sem var að flytja alifugla. Ísraelskar útvarpsstöðvar greina frá því að svo virðist sem bíllinn hafi bilað á leið sinni yfir lestarteinana. Áreksturinn var svo harður að lestin fór út af teinunum og köstuðust farþegar út úr vögnum lestarinnar. Björgunarmenn reyna nú að ná fólki sem er fast í flaki vagna sem fóru út af sporinu en óttast er að tala látinna kunni að hækka. 21.6.2005 00:01
Segir félag ekki hafa greitt gjöld Efling - stéttarfélag segir sautján atvinnuleyfi frá fyrirtækinu Geymi ehf. hafa komið til umsagnar félagsins en þeim hafi verið hafnað. Lögreglan og ASÍ vinna nú að málum Geymis ehf. vegna tólf Pólverja sem höfðu laun langt undir lágmarkssamningum og bjuggu við óviðunandi aðstæður. Ástæður þess voru þær að Geymir hefur ekki greitt lögbundin gjöld af starfsmönnum sínum, svo sem í lífeyrissjóð og önnur gjöld. 21.6.2005 00:01
Yfirbuguðu talibana í Kandahar Afgönsk lögregla hefur aftur náð landsvæði í Suður-Afganistan á sitt vald sem talibanar lögðu undir sig í síðustu viku. Lögreglan lét til skrarar skríða gegn uppreisnarmönnum í morgun og með stuðningi bandarískra hersveita voru 32 menn drepnir og 15 teknir höndum. 21.6.2005 00:01
Sakfelldur fyrir að myrða þrjá Félagi í bandarísku samtökunum Ku Klux Klan var í dag sakfelldur fyrir að hafa drepið þrjá mannréttindaforkólfa árið 1964. Edgar Ray Killen, sem nú er áttræður, er sagður hafa verið leiðtogi samtakanna og látið drepa þá Michael Schwerner, Andrew Goodman og James Chaney, en þeir höfðu aðstoðað blökkumenn í Mississippi-ríki við að komast á kjörskrá. 21.6.2005 00:01
Þjóðaratkvæði frestað í Póllandi Pólverjar munu fresta fyrirhugaðri kosningu um stjórnarskrá Evrópusambandsins í óákveðinn tíma að því er Aleksander Kwasniewski, forseti landsins, greindi frá í dag. Til stóð að Pólverjar greiddu atkvæði um sáttmálann í október en vegna þeirrar óvissu sem ríkir um sáttmálann eftir að Frakkar og Hollendingar höfnuðu honum telja pólsk yfirvöld ekki ástæðu til að leggja hann í dóm þjóðarinnar. 21.6.2005 00:01
Stirt andrúmsloft á leiðtogafundi Ísraelar ætla að standa við sinn hluta vopnahléssamkomulagsins við Palestínumenn taki þeir síðarnefndu uppreisnarmenn fastari tökum. Þetta kom fram á leiðtogafundi Ariel Sharon og Mahmoud Abbas í gær. 21.6.2005 00:01
Hlutleysið rannsakað Danska ríkisstjórnin ætlar að verja rúmum fimmtíu milljónum íslenskra króna í að rannsaka hvort fréttastofur danska ríkisútvarpsins rísi undir ábyrgð sinni að flytja "fjölbreyttar, hlutlausar og óháðar fréttir." 21.6.2005 00:01
Mamman í fangelsi Emily Price, táningsstúlka frá Cheltenham á Englandi hefur heldur betur komið móður sinni í klandur með því að hlaða niður tónlist með vinsælum hljómsveitum á tölvu sína. Þar sem móðirin, Sylvia að nafni, er ábyrgðarmaður stúlkunnar hefur henni verið send sekt upp á hálfa milljón króna fyrir athæfi dótturinnar. 21.6.2005 00:01
Ljónin björguðu lífi telpunnar Þrjú ljón björguðu tólf ára gamalli eþíópískri telpu úr klóm mannræningja sem hugðust neyða hana í hjónaband. 21.6.2005 00:01
Forsætisráðuneytið mest Tuttugu prósent fjárheimilda forsætisráðuneytisins koma af aukafjárlögum að meðaltali og er það hlutfallslega mest allra ráðuneyta. Iðnaðarráðuneyti og Hagstofa Íslands fara mest fram úr fjárheimildum að meðaltali. </font /></b /> 21.6.2005 00:01
Samið um álversrannsóknir nyrðra Samkomulag hefur tekist milli Alcoa, þriggja sveitarfélaga á Norðurlandi og iðnaðarráðuneytis um undirbúningsrannsóknir vegna álvers norðan heiða. Stefnt er að því að eftir átta mánuði verði unnt að ákveða staðsetningu verksmiðjunnar. 21.6.2005 00:01
Baðst afsökunar á liðhlaupi Bandaríkjamaðurinn Charles Jenkins baðst afsökunar í gær á liðhlaupi sínu árið 1965 áður en hann fór frá Bandaríkjunum til Japan, þar sem hann býr nú. 21.6.2005 00:01
Annað morðið í mánuðinum Stjórnarandstæðingurinn George Hawi, leiðtogi líbanskra kommúnista, beið bana í bílsprengjuárás í gær. 21.6.2005 00:01
Saddam saknar Reagan Saddam Hussein segist enn vera forseti Íraks og bauð bandarísku hermönnunum sem gæta hans að heimsækja sig í Írak þegar hann hefði náð völdum þar á ný. Hann saknar gömlu góðu daganna þegar Ronald Reagan seldi honum vopn á tímum Íransstríðsins, þvær sér oft um hendurnar og kann vel að meta Doritos-flögur. 21.6.2005 00:01
Bush hrósar Víetnömum Phan Van Khai, forsætisráðherra Víetnams, hitti George Bush í Hvíta húsinu í gær. Leiðtogarnir ræddu um áhuga Víetnams á aðild að Alþjóðaviðskiptastofnuninni WTO, viðskipti og mannréttindamál. 21.6.2005 00:01
Afganir ósáttir við Pakistana Stjórnvöld í Afganistan þrýsta nú á Pakistana að herða aðgerðir gegn hryðjuverkamönnum í Pakistan. Afganar telja þá ekki leggja sig fram og segja að það verði aldrei friður í Afganistan nema ríkisstjórnir beggja landa taki höndum saman í baráttunni við hryðjuverkamenn. 21.6.2005 00:01
Handsamaðir við Grikkland Gríska landhelgisgæslan hefur síðustu daga handsamað yfir fimmtíu ólöglega innflytjendur á Eyjahafi. Talið er að átt hafi að smygla þeim frá Tyrklandi til Grikklands. Ekki liggur fyrir hvaðan þeir eru. 21.6.2005 00:01
Barnaníður fær tíu ár í Kambódíu Hollenskur karlmaður var í gær dæmdur í tíu ára fangelsi í Kambódíu fyrir að beita sex kambódíska drengi kynferðislegu ofbeldi. 21.6.2005 00:01
Bolton veldur enn vandræðum Repúblikönum í bandarísku öldungadeildinni mistókst á mánudagskvöld að knýja í gegn samþykki tilnefningar John Bolton sem fastafulltrúa Bandaríkjanna hjá Sameinuðu þjóðunum. Demókratar hafa beitt málþófi til að hindra tilnefninguna. 21.6.2005 00:01
Dæmdur 41 ári síðar Bandaríkjamaðurinn Edgar Ray Killen, sem nú er áttatíu ára, var í gær dæmdur fyrir að hafa átt aðild að morði á þremur mönnum í Mississippi af hópi Klu Klux Klan-manna árið 1964. 21.6.2005 00:01
Segja málflutning ASÍ rangan Dularfullt, íslenskt fyrirtæki fékk erlenda verkamenn hingað til lands á fölskum forsendum og braut á þeim lög og kjarasamninga, að mati ASÍ. Þeir nutu engra réttinda og voru látnir búa við aðstæður sem uppfylla engan veginn íslenskar kröfur. Rangur og villandi málflutningur, segja talsmenn fyrirtækisins. 21.6.2005 00:01
Segjast vera á slóð kortasvikara Sérfræðingar í tölvuglæpum telja sig komna á slóð tölvusvikaranna sem náðu upplýsingum af um fjörutíu milljónum krítarkorta nýverið, þar á meðal af um 140 íslenskum kortum að því talið er. 21.6.2005 00:01
Niðurstaða í Suður-Kóreu vonbrigði "Þessi niðurstaða er auðvitað vonbrigði. Við vorum að vonast til þess að niðurstaðan myndi miða eitthvað í áttina," sagði Árni Mathiesen sjávarútvegsráðherra eftir að ljóst var að tillaga Japana á ársfundi Alþjóðahvalveiðiráðsins um að hafnar yrðu hvalveiðar í atvinnuskyni, var felld. 21.6.2005 00:01
Fylgst náið með barnaníðingum Dómsmálaráðherrar iðnveldanna skera á alþjóðlegt tengslanet barnaníðinga með því að setja á laggirnar sameiginlegan gagnagrunn með upplýsingum um þá og framleiðendur barnakláms. Lögreglan á Íslandi fagnar þessu framtaki og telur að það muni auðvelda rannsókn slíkra mála hér á landi. 21.6.2005 00:01