Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
VG vill ekki álver í Helguvík Vinstri-grænir í stjórn Orkuveitu Reykjavíkur ætla ekki að fallast á að fyrirtækið selji raforku til fyrirhugaðs álvers í Helguvík í landi Reykjanesbæjar. Fulltrúi sjálfstæðismanna segir málið dæmi um vandræðagang R-listans. 24.5.2005 00:01
Ráðherra rauf heimsókn til Japans Wu Yi, varaforsætisráðherra Kína, rauf skyndilega opinbera heimsókn sína til Japans á mánudag og afboðaði fund sem þá stóð til að hún ætti með Junichiro Koizumi, forsætisráðherra Japans. Innt eftir skýringum á þessu tilgreindi Kínastjórn í gær reiði vegna heimsókna japanskra ráðamanna í hof þar sem minning japanskra herforingja er heiðruð. 24.5.2005 00:01
NATO býður aðstoð í Darfur Jaap de Hoop Scheffer, framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins, greindi frá því í gær að bandalagið hefði ákveðið að bjóða Afríkusambandinu (AU) ýmsa aðstoð við friðargæsluverkefni þess í Darfur-héraði í Súdan. 24.5.2005 00:01
Lafontaine genginn úr SPD Oskar Lafontaine, sem var lengi einn helsti forystumaður þýska jafnaðarmannaflokksins SPD, hefur sagt sig úr flokknum og hyggst bjóða sig fram fyrir klofningsframboð vinstrisinna í boðuðum kosningum til Sambandsþingsins. 24.5.2005 00:01
Tugir segja sig úr Samfylkingunni Allt að þrjátíu félagsmenn hafa sagt sig úr Samfylkingunni að loknum landsfundi flokksins um síðustu helgi. Ingvar Sverrisson, framkvæmdastjóri Samfylkingarinnar, segir töluna ekki nákvæma og ómögulegt sé að ráða í ástæður fólks fyrir úrsögn. 24.5.2005 00:01
Málflutningi lokið í Jackson-máli Verjendur Michaels Jackson luku málflutningi sínum fyrir rétti í gær, eftir að hafa kallað 50 vitni fyrir hann á þremur vikum. Síðasta vitnið var leikarinn Chris Tucker. Næstsíðastur var spjallþáttastjórnandinn frægi Jay Leno, sem mætti fyrir réttinn á þriðjudag. 24.5.2005 00:01
Krafist bankaábyrgðar Bæjaryfirvöld í Mosfellsbæ kröfðu þá sem sóttu um byggingalóðir í Tröllateigshverfi árið 2003 um bankaábyrgð. Ragnheiður Ríkharðsdóttir bæjarstjóri segir ánægju hafa ríkt um þessa ákvörðun. 24.5.2005 00:01
Fisi lent við Litlu kaffistofuna Lögreglunni á Selfossi barst í gærkvöld tilkynning um að svonefndu fisi, vélknúinni svifflugvél, hefði verið lent við Litlu kaffistofuna. Að sögn lögreglu mátti gera ráð fyrir að vélinni hefði verið lent þarna í neyð, en þegar lögregla kom á staðinn var vélin á bak og burt.Virtist sem flugmaðurinn hefði lent til að taka bensín. 24.5.2005 00:01
Yfir hundrað þúsund fyrir rauðvín Karlmaður á fertugsaldri, sem pantaði sér rauðvínsflösku á Kaffi Reykjavík í janúar á þessu ári, hefur verið dæmdur fyrir að borga ekki flöskuna. 24.5.2005 00:01
Sprengingar í bíóum í Nýju-Delí Að minnsta kosti tveir létu lífið og tugir slösuðust þegar tvær sprengjur sprungu í tveimur kvikmyndahúsum í Nýju-Delí, höfuðborg Indlands, í morgun. Sprengjurnar sprungu með fimmtán mínútna millibili en verið var að sýna sömu myndina í bíóunum tveimur, umdeilda trúarmynd sem fordæmd hefur verið af trúarleiðtogum sikha. 23.5.2005 00:01
Sprengjuárás á bæjarskrifstofu Að minnsta kosti fimm létust og 18 særðust þegar sprengja sprakk fyrir utan skrifstofu bæjarstjóra í bænum Tuz Khurmatu í Írak í morgun. Sprengjunni hafði verið komið fyrir í bíl sem lagt hafði verið fyrir framan bæjarstjórnarskrifstofurnar en bæjarstjórann sjálfan sakaði þó ekki. 23.5.2005 00:01
Ráðgjafi al-Jaafaris drepinn Ráðgjafi Ibrahims al-Jaafaris, forsætisráðherra Íraks, var skotinn til bana í morgun. Bílstjóri hans dó einnig. Uppreisnarmenn hafa í auknum mæli gert írakska embættismenn að skotmörkum sínum eftir að tilkynnt var um nýja ríkisstjórn í landinu í síðasta mánuði. Þá dóu þrír bandarískir hermenn í gær tveimur árásum uppreisnarmanna. 23.5.2005 00:01
Starfsmenn BBC í verkfall Fréttamenn og aðrir starfsmenn breska ríkisútvarpsins, BBC, hófu í morgun sólarhringsverkfall til að mótmæla fækkun starfsfólks hjá stofnuninni. Til stendur að fækka störfum um fimmtung eða um alls fjögur þúsund. Verkfallið þýðir að ýmsir þættir sem eru í beinni útsendingu hjá BBC falla niður. 23.5.2005 00:01
Skildu síamstvíburasystur að Læknar í Singapúr skildu í morgun að indónesískar tvíburasystur sem voru samvaxnar á mjöðm. Þeir segja ástand þeirra stöðugt. Systurnar voru með ýmis sameiginleg líffæri og voru með samtals þrjá fætur. Þær eru tæplega eins og hálfs árs en aðgerðin tók tíu klukkustundir. 23.5.2005 00:01
Fuglaflensa dregur einn til dauða Yfirvöld í Víetnam tilkynntu í morgun um að 46 ára gamall maður hefði látist af völdum fuglaflensu þar í landi. Alls hafa nú alls 54 manns látist af völdum veikinnar í Víetnam. Maðurinn veiktist mjög skyndilega og var lagður inn á sjúkrahús og þremur þremur dögum síðar lést hann. 23.5.2005 00:01
N-Kóreumenn við samningaborðið Norður-Kórea hefur staðfest að hafa átt í viðræðum við Bandaríkin um kjarnorkuvopnaframleiðslu. Vonast til að viðræðurnar geti leitt til þess að Norður-Kórea hætti við áform sín um að hefja framleiðslu á slíkum vopnum. Lönd í kringum Norður-Kóreu hafa verið áhyggjufull að undanförnu yfir því að Norður-Kóreumenn hefji prófanir á kjarnorkuvopnum en yfirvöld í Pyongyang hafa lýst því yfir vilja til þess. 23.5.2005 00:01
Laura Bush fékk óblíðar móttökur Ekki voru allir jafn hrifnir af Lauru Bush, forsetafrú Bandaríkjanna, þegar hún heimsótti helga staði gyðinga og múslíma í Jerúsalem í gær. Þegar hún stakk bréfmiða í Grátmúrinn kröfðust mótmælendur þess að Ísraelsmaðurinn Jonathan Pollard, sem setið hefur í fangelsi í Bandaríkjunum frá árinu 1987 fyrir njósnir, yrði látinn laus. 23.5.2005 00:01
Vetrarfærð fyrir norðan og austan Vorið virðist víðs fjarri á Norðaustur- og Austurlandi því samkvæmt Vegagerðinni er vetrarfærð þar víða, hálka eða hálkublettir, einkum á heiðum. Á Vestfjörðum eru hálkublettir á Steingrímsfjarðarheiði og verið að moka Þorskafjarðarheiði. Á Tröllatunguheiði er þæfingur. 23.5.2005 00:01
Stemma stigu við ofdrykkju Breskum krám og börum verður bannað að vera með svokallað <em>happy hour</em> til að koma í veg fyrir að viðskiptavinirnir verði ofurölvaðir. <em>Happy hour</em> er nokkurs konar útsala á ákveðnum drykkjum á ákveðnum tímum en við slíkar aðstæður freistast margur gesturinn til að drekka meira en hann þolir. Slík ofdrykkja er orðin að meiri háttar vandamáli í Bretlandi og hefur hún leitt til þess að ákveðin svæði í miðborgum eru þannig að aðrir koma ekki þangað á þessum tíma. 23.5.2005 00:01
Sturla frá vegna uppskurðar Sturla Böðvarsson, samgönguráðherra, gekkst undir aðgerð á Landsspítala-Háskólasjúkrahúsi á föstudaginn var vegna brjóskloss í baki. 23.5.2005 00:01
Leitar samkomulags meðal iðnríkja Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, hyggst freista þess fyrir fund átta helstu iðnríkja heims í júlí að ná samkomulagi meðal þeirra um stuðning við Afríku og baráttu gegn veðurfarsbreytingum. Frá þessu greindi skrifstofa forsætisráðherrans í dag. Í vikunni mun hann heimsækja Ítali í þessum tilgangi og þá hyggur hann einnig á ferð til Moskvu og Washington. 23.5.2005 00:01
Alifuglar bólusettir í Kína Kínversk stjórnvöld hafa flutt meira en þrjár milljónir skammta af bóluefni gegn fuglaflensu til afskekkts svæðis í landinu eftir að farfuglar fundust dauðir af völdum veirunnar. 23.5.2005 00:01
Fjölmiðlavald fjöldans Fjölmiðlajöfurinn Rupert Murdoch segir að rafrænir miðlar sogi til sín æ meira af auglýsingatekjum dagblaðanna. Dagblöð verði að skilja hlutverk sitt sem fréttaveitur óháð gömlu leiðunum til að dreifa fréttum á pappír. Murdoch telur fullvíst að valdið yfir fréttunum, fréttamatinu og því sem fréttamiðlar kalla staðreyndir sé með fínlegum og lúmskum hætti að flytjast frá fjölmiðlunum til almennings. 23.5.2005 00:01
Guðmundur Árni verður sendiherra Guðmundur Árni Stefánsson, þingmaður Samfylkingarinnar, verður sendiherra og hættir á Alþingi eftir því sem háttsettar heimildir fréttastofu Byllgjunnar í stjórnkerfinu herma. Talið er að Guðmundur Árni verði sendiherra í Svíþjóð og taki við af Svavari Gestssyni. Hann er sagður flytjast til Danmerkur. Guðmundur Árni hefur ekki viljað tjá sig um málið og svaraði öllum spurningum fréttamanna með því að segja að hann kæmi af fjöllum. 23.5.2005 00:01
Ekki einfalt að flýta kosningum Gerhard Schröder, kanslari Þýskalands, kastar sprengju inn í þýsk stjórnmál með því að fara fram á að kosningar til Sambandsþingsins fari fram ári fyrr en áætlað var. Það eru þó ýmis ljón í veginum fyrir þeim áætlunum. 23.5.2005 00:01
Hálkublettir víða um land Þrátt fyrir að sumarið sé að ganga í garð er ekki sjálfgefið að sumarveðrið fylgi með; samkvæmt Vegagerðinni eru hálkublettir víða um land. Þar á meðal eru hálkublettir á Mývatnsöræfum á Norðausturlandi. Þá er einnig hálka á heiðum á Norðausturlandi, á Fjarðarheiði og á leiðinni til Norðfjarðar yfir Oddsskarð og á Steingrímsfjarðarheiði. 23.5.2005 00:01
Sérframboð leiði til falls Gunnar Helgi Kristinsson stjórnmálafræðingur segir að bjóði flokkarnir í R-listasamstarfinu fram sér falli að líkindum meirihlutinn. Borgarfulltrúi R-listans sagði um helgina að það væru helmingslíkur á því að Framsóknarflokkurinn byði fram sér í næstu borgarstjórnarkosningum. 23.5.2005 00:01
Vilja afnema stimpilgjöld Tæplega 95 prósent þáttakenda í vefkönnun sem fram hefur farið á vef Neytendasamtakanna telja að afnemi eigi stimpilgjöld og lýsa samtökin undrun yfir að tillaga um slíkt hafi ekki hlotið brautargengi á Alþingi í vetur. 23.5.2005 00:01
Hreyfing og hollmeti lykillinn Hundruðum milljóna króna er varið á hverju ári í að finna út hvert leyndarmálið að háum aldri sé. Það kemur eflaust ekki á óvart að hollur matur og nægileg hreyfing sé rétta svarið en í þorpinu Bama í Kína, þar sem þessi tvö atriði eru í hávegum höfð, eru yfir 70 manns yfir eitt hundrað ára gamlir. 23.5.2005 00:01
Bílsprengja sprakk við veitingahús Bílsprengja var sprengd við veitingastað í Norður-Bagdad í dag með þeim afleiðingum að fjórir létust og yfir hundrað særðust. Sprengjan sprakk um hádegisbil að staðartíma þegar fjölmargir gestir snæddu þar hádegisverð, en hann er vinsæll meðal sjíta. 23.5.2005 00:01
Gíslum fagnað við heimkomu Það urðu gríðarlegir fagnaðarfundir hjá þremur rúmenskum blaðamönnum og fjölskyldum þeirra í dag þegar blaðamennirnir sneru til síns heima eftir að hafa verið í haldi uppreisnarmanna í Írak í tæpa tvo mánuði. Þremenningunum, sjónvarpsfréttamanni, kvikmyndatökumanni og blaðamanni, var rænt í Bagdad 28. mars ásamt túlki sínum og þess krafist að Rúmenar kölluðu herlið sitt frá Írak, annars yrði fólkið tekið af lífi. 23.5.2005 00:01
Álagning kaupmanna vel rífleg "Þessar niðurstöður koma mér á óvart og sýna að innflytjendur hafa verið ríflegir í allri álagningu sinni," segir Jóhannes Gunnarsson, formaður Neytendasamtakanna. Nýbirt verðkönnun hagstofu Evrópusambandsins, Eurostat, sýnir að tugprósentamunur var á verðum á fatnaði og skóm hérlendis samanborið við þjóðir innan ESB. 23.5.2005 00:01
Hyggjast stofna Vestfjarðaakademíu Til stendur að stofna félag fræðimanna á Vestfjörðum um næstu mánaðamót og hefur það fengið vinnuheitið Vestfjarðaakademían. Að stofnun félagsins standa Ólína Þorvarðardóttir, rektor Menntaskólans á Ísafirði, og Anna Guðrún Edvardsdóttir hjá Náttúrustofu Vestfjarða. 23.5.2005 00:01
Gömul íbúð páfa til sölu á eBay Íbúð sem nýkjörinn páfi, Benedikt sextándi, leigði fyrir um 40 árum nærri borginni Bonn í Þýskalandi er nú boðin til sölu á uppboðsvefnum eBay. Joseph Ratzinger, sem tók sér nafnið Benedikt sextándi eftir páfakjör, bjó í íbúðinni á árunum 1959-1963 þegar hann kenndi guðfræði við háskóla þar í borg. 23.5.2005 00:01
Betra að reykja en vera of þungur Dómsmálaráðuneytið óskar eftir sérstökum heilsufarsupplýsingum séu umsækjendur um ættleiðingu yfir ákveðnum þyngdarstuðli. Er það sagt vegna hættu á æða- og hjartasjúkdómum. Einskis er spurt þótt umsækjandi reyki að sögn kjörföður. </font /></b /> 23.5.2005 00:01
Schröder lætur reyna á stuðning Gerhard Schröder, kanslari Þýskalands, hyggst láta reyna á stuðning við ríkisstjórn sína á þýska Sambandsþinginu fyrir 1. júlí næstkomandi, en fyrir þann tíma verður kosið um vantraustsyfirlýsingu sem lögð verður fram. Ákvörðun hans má rekja til stórtaps Jafnaðarmannaflokksins í héraðskosningum í Nordhrein-Westfalen í gær, en þar hefur flokkurinn verið við völd í nærri fjóra áratugi. 23.5.2005 00:01
Upplýsingar fyrir alla Tekið hefur til starfa Upplýsingamiðstöð Heilsugæslunnar. Veitt er ráðgjöf í síma 1700 á dagvinnutíma alla virka daga. 23.5.2005 00:01
Golfvellir flestir þokkalegir "Korpan hefur aldrei komið jafn illa undan vetri og núna auk þess sem veðráttan í maí hefur verið afar slæm," segir Margeir Vilhjálmsson, framkvæmdastjóri Golfklúbbs Reykjavíkur. 23.5.2005 00:01
Ekki launaskrið Ekki er um launaskrið að ræða, þótt laun hafi hækkað um 6,7 prósent síðastliðna tólf mánuði og kaupmáttur vaxið um 2,3 prósent, segir Alþýðusamband Íslands. 23.5.2005 00:01
Laura Bush lofar gjörðir Mubaraks Laura Bush, forsetafrú Bandaríkjanna, hrósaði í dag Hosni Mubarak, forseta Egyptalands, fyrir að breyta lögum um forsetakjör í landinu. Frú Bush er nú á ferðalagi um Miðausturlönd og heimsótti Egyptaland í dag. Þar lauk hún lofsorði á stjórnarskrárbreytingu sem Egyptar kjósa um á miðvikudaginn og kveður á um að fleiri en einn geti boðið sig fram til forseta. 23.5.2005 00:01
Flúðaskóli hreppti verðlaunin Fjórði bekkur Flúðaskóla hreppti 100 þúsund krónur í verðlaun í teiknimyndsamkeppni meðal fjórðu bekkinga í grunnskólum landsins. 23.5.2005 00:01
Segir launaskrið ekki hafið Alþýðusamband Íslands segir að ekkert bendi til þessað mikið launaskrið sé hafið. Launavísitalan hækkaði um 0,5 prósent milli apríl og maí og síðustu tólf mánuði hafa laun hækkað um 6,7 prósent en á sama tíma hækkaði verðlag um 4,3 prósent. ASÍ segir að enn gæti áhrifa af tvennum kjarasamningsbundnum launahækkunum á almennum markaði, þ.e. við gildistöku nýrra kjarasamninga í mars og apríl í fyrra ásamt hækkunum um þrjú prósent um síðustu áramót. 23.5.2005 00:01
Mikið af gasi fannst við Noreg Gífurlegt magn af gasi hefur fundist undan ströndum Noregs. Er talið að um 60 milljarða rúmmetra sé að ræða og er þetta einn mesti gasfundur sem um getur á þessum slóðum. 23.5.2005 00:01
Skallinn erfist frá mömmu Sköllóttir karlmenn geta nú kennt mæðrum sínum um skallann. Ný rannsókn þýskra vísindamanna sýnir að það eru gen móðurinnar sem ráða því hvort karlmenn fá skalla eður ei en ekki föðurins eins og áður hefur verið talið. 23.5.2005 00:01
Svíar andvígir NATO aðild <font face="Helv"> </font>Andstæðingum þess að Svíþjóð sæki um aðild að Atlantshafsbandalaginu fer fjölgandi. Ný könnun sýnir að tæpur helmingur sænskra kjósenda er andvígur aðild en fylgjendur eru ekki nema 20 af hundraði og hefur fækkað um tvö prósentustig frá 2003. 23.5.2005 00:01