Fleiri
Rúmenarnir komnir heim 23.5.2005 00:01 Karpað um kjarnorkumálin Utanríkisráðherrar Evrópusambandsríkjanna hvöttu í gær Írana til að sýna sveigjanleika við samningaborðið í viðræðum um kjarnorkumál sem haldnar verða síðar í vikunni. 23.5.2005 00:01 Á fimmta tug beið bana í gær Flugumenn al-Kaída í Írak réðu hátt settan embættismann af dögum í Bagdad í gær. Auk þess beið á fimmta tug Íraka bana í árásum víðsvegar um landið. Í Rúmeníu fögnuðu menn hins vegar frelsun þarlendra blaðamanna sem haldið hafði verið í gíslingu í tæpa tvo mánuði. 23.5.2005 00:01 Ný forystusveit í Samfylkingunni Nánast algerlega ný forystusveit tekur nú við stjórnartaumunum í Samfylkingunni eftir úrslit kosninga á landsfundi flokksins í gær. Auk nýs formanns, Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur, og nýs varaformanns, Ágústs Ólafs Ágústssonar, var Ari Skúlason kjörinn gjaldkeri. 22.5.2005 00:01 Talsvert slasaður eftir bílveltu Ökumaður flutningabíls, sem valt skammt frá Þverá í Þjórsárdal snemma í morgun, slasaðist talsvert. Maðurinn gekk á sokkaleistunum um tveggja og hálfs kílómetra leið að bænum Fossnesi til að láta vita af sér. 22.5.2005 00:01 Útlit fyrir afhroð Schröders Allt útlit er fyrir að flokkur Gerhards Schröders, kanslara Þýskalands, Jafnaðarmannaflokkurinn, bíði afhroð og tapi í kosningum sem fram fara í dag í þýska sambandsríkinu Nordrhein-Westfalen en flokkurinn hefur verið þar við völd í tæpa fjóra áratugi. 22.5.2005 00:01 Erill hjá lögreglu í nótt Það voru víða Evróvisjón-partý í nótt og töluvert að gera í lögregluumdæmum í kringum landið vegna hávaðaútkalla. Lögreglan í Reykjavík var kölluð nokkuð oft út vegna hávaða í heimahúsum sem víða stóð fram yfir miðnætti. Þá voru þrettán ökumenn stöðvaðir í Reykjavík grunaðir um ölvun við akstur. 22.5.2005 00:01 Frostnætur tíðar í maí Það sem af er þessum maímánuði hafa frostnætur verið alltíðar. Lætur nærri að í innsveitum hafi mælst frost aðra hverja nótt í mánuðinum samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofunni. Í Reykjavík hefur næturfrost einnig verið oftar en venja er til eða átta sinnum líkt og á Akureyri. 22.5.2005 00:01 Ný stjórn Samkeppniseftirlits Viðskiptaráðherra hefur skipað í stjórn Samkeppniseftirlitsins. Í stjórnina voru skipuð Gylfi Magnússon, dósent við Háskóla Íslands sem jafnframt er formaður, Jóna Björk Helgadóttir, aðstoðarmaður hæstaréttardómara, og Jóhann R. Benediktsson, sýslumaður á Keflavíkurflugvelli. 22.5.2005 00:01 Kominn tími á kynslóðaskipti Gísli Marteinn Baldursson sjónvarpsmaður segir kominn tíma á kynslóðaskipti í hugmyndum sjálfstæðismanna í borgarstjórn. Hann ætlar að bjóða sig fram í prófkjöri flokksins í borginni og segist sækjast eftir sæti ofarlega á lista. Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í dag. 22.5.2005 00:01 S.þ. fordæma meintar pyntingar Sameinuðu þjóðirnar fordæmdu í morgun meintar pyntingar bandarískra hermanna á afgönskum stríðsföngum í herstöð skammt frá Kabúl árið 2002. Samtökin krefjast þess að málið verði rannsakað. 22.5.2005 00:01 Úr takti við almenna flokksmenn? Baldur Þórhallsson, stjórnmálafræðingur og dósent við Háskóla Íslands, segir úrslitin í kjöri í embætti innan Samfylkingarinnar í gær benda til þess að forystusveit flokksins og þingmenn hafi verið úr takti við hinn almenna flokksmann. Það hljóti að mega túlka niðurstöðurnar sem kröfu um breyttan stjórnunarstíl og vinnubrögð innan flokksins. 22.5.2005 00:01 Steingrímur væntir góðs samstarfs Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri - grænna, óskar Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur til hamingju með mjög afgerandi sigur í formannskjöri í gær. Hann fagnar því sérstaklega að nýr formaður vilji stilla saman strengi stjórnarandstöðunnar og fella núverandi ríkisstjórn. Steingrímur væntir góðs samstarfs og er bjartsýnn á árangursríkt samstarf. 22.5.2005 00:01 Sjö unglingsstúlkur drukknuðu Að minnsta kosti sjö unglingsstúlkur drukknuðu undan ströndum Suður-Afríku í dag eftir að hafa farið að synda áður en strandverðir voru mættir á svæðið. Stúlkurnar voru á ferðalagi með skólafélögum og kennurum við austurströnd landsins. 22.5.2005 00:01 Ný framkvæmdastjórn kjörin Ný framkvæmdastjórn Samfylkingarinnar var kjörin síðdegis á landsfundinum sem fram fer í Egilshöll. Þau sem náðu kjöri eru Sigríður Jóhannesdóttir, Sigrún Grendal, Tryggvi Felixson, Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir, Karl V. Matthíasson og Ingileif Ástvaldsdóttir. 22.5.2005 00:01 Sjá næstu 50 fréttir
Elgir valda vandræðum í Þrándheimi Tveir elgir ollu nokkrum usla í morgunumferðinni í Þrándheimi í dag en svo virðist sem dýrin hafi villst inn í borgina. Samkvæmt <em>Aftenposten</em> fékk lögreglan í Þrándheimi fjölmargar tilkynningar frá fólki snemma í morgun um ferðir elganna tveggja á vegum sunnan miðbæjarins og munaði minnstu nokkrum sinnum að ekið yrði á þá. 23.5.2005 00:01
Byggingarstjóri er ekki skrautblóm "Byggingarstjóri ber mikla ábyrgð og ef fram koma gallar á húsnæði þá þarf hann að svara fyrir sig. Við höfum ekki mörg dómafordæmi en það eru að koma upp mörg mál núna," segir Sigurður Helgi Guðjónsson, hæstaréttarlögmaður og formaður Húseigendafélagsins. 23.5.2005 00:01
Frábær aðsókn "Ég er að undirbúa mig fyrir næstu lotu. Þetta hefur gengið afskaplega vel og það er mikið um að vera," segir Guðrún Kristjánsdóttir, kynningarstjóri Listahátíðar í Reykjavík. 23.5.2005 00:01
Vanefndir í Hveragerði Verktakafyrirtækið, sem annaðist framkvæmdir á fjölbýlishúsinu í Grafarholti, hefur nú verið tekið til gjaldþrotaskipta og hefur Guðjón Ægir Sigurjónsson lögmaður verið skipaður skiptastjóri í þrotabúinu. 23.5.2005 00:01
Tjónþolar fá hlut sinn bættan Tryggingafélögin eru bótaskyld ef byggingarstjórar vanrækja skyldur sínar og gerast sekir um brot í starfi. Íbúar í fjölbýlishúsi í Grafarholti segjast hafa orðið fyrir tjóni sem þeir rekja til vanefnda verktakanna sem byggðu húsið og byggingarstjóri gerði ekki athugasemdir við. 23.5.2005 00:01
Fannst á lífi í ruslagámi Átta ára stúlka í Flórída, sem hafði verið beitt kynferðislegu ofbeldi og grafin undir grjóti í ruslagámi, fannst á lífi í dag. Lögregluþjónn sá glitta í hönd stúlkunnar og fótlegg undir grjóthrúgu í gámnum en þá voru sjö klukkustundir liðnar frá því að tilkynnt var um hvarf hennar. Ofbeldismaðurinn, sem hefur viðurkennt glæp sinn, er sautján ára unglingur sem amma stúlkunnar hafði skotið skjólshúsi yfir. 23.5.2005 00:01
Sagðir á leið í sendiherrastörf Guðmundur Árni Stefánsson er að hætta sem alþingismaður til að gerast sendiherra. Sterkur orðrómur er einnig um að Markús Örn Antonsson útvarpsstjóri verði skipaður sendiherra. Heimildarmenn búast við að tilkynnt verði um skipan þeirra nú um mánaðamótin. Báðir segjast hins vegar koma af fjöllum. 23.5.2005 00:01
Rífa hús við Borgartún 17 Þessa dagana er unnið við að rífa niður hús sem stendur við Borgartún 17 en til stendur að tvöfalda höfuðstöðvar Kaupþings banka. Í húsinu voru verkfræði- og arkitektaskrifstofur og í fyrstu stóð til að gera brú á milli hússins og núverandi höfuðstöðva. Húsið sem er 27 ára þykir hins vegar barn síns tíma en lofthæðin þykir ekki næg fyrir tilhlýðilegt loftræstikerfi. 23.5.2005 00:01
Verðlaun afhent Fræðslu- og hvatningarverkefninu Hjólað í vinnuna er nú formlega lokið og voru þeim sem stóðu sig best afhent verðlaun í Fjölskyldu- og Húsdýragarðinum í gær við hátíðlega athöfn. 23.5.2005 00:01
Ný stjórn Samkeppniseftirlitsins Valgerður Sverrisdóttir viðskiptaráðherra hefur skipað nýja stjórn Samkeppniseftirlitsins sem tekur til starfa samkvæmt nýjum lögum þann 1. júlí. 23.5.2005 00:01
Hart sótt að Schröder Jafnaðarmannaflokkur Gerhards Schröders, kanslara, beið afhroð í fylkiskosningum í Nordrhein-Westfalen á sunnudaginn en flokkurinn hefur haldið þar um stjórnartaumana síðan 1966. 23.5.2005 00:01
Starfsmenn BBC í verkfalli Ellefuþúsund frétta- og tæknimenn breska ríkisútvarpsins BBC lögðu niður störf í sólarhring í gær til að mótmæla fyrirhuguðum niðurskurði og einkavæðingu hluta stofnunarinnar. Til stendur að segja upp um 4 þúsund starfsmönnum og spara með því móti rúmlega 350 milljónir pund árlega. 23.5.2005 00:01
Engin gleðistund Breskir bjórsvelgir eiga ekki von á góðu núna. Hópur sem kemur fram fyrir hönd um helmings breskra kráa hefur lýst því yfir að nú eigi að hætta að vera með svokallaðan "Happy-Hour" eða gleðistundir. Þetta er gert í kjölfarið á miklum þrýsingi frá stjórnvöldum sem vilja ekki að almenningur drekki jafn mikið og gert er. 23.5.2005 00:01
Alífuglar bólusettir í Kína Kínversk stjórnvöld hafa ákveðið að bólusetja þrjár milljónir alífugla í Quinghai-héraði í vesturhluta landsins eftir að næstum 200 gæsir fundust þar dauðar líklega að völdum fuglaflensu. Enn hefur þó enginn maður látist vegna fuglaflensu í Kína. 23.5.2005 00:01
Nýr forseti Mongólíu Nambariin Enkhbayar er nýkjörinn forseti Mongólíu. Hann er bókmenntafræðingur að mennt og sótti menntun sína til Bretlands. Hann kemur úr Byltingarflokki alþýðunnar sem er gamli kommúnistaflokkurinn í þessu fyrrverandi leppríki Sovétríkjanna. 23.5.2005 00:01
Laura Bush í Mið-Austurlöndum Laura Bush, forsetafrú Bandaríkjanna er nú á ferðalagi um Mið-Austurlönd. Hópur fólks mótmælti komu hennar harðlega þegar hún var á ferð í Jerúsalem. 23.5.2005 00:01
Úsbeskir flóttamenn aftur heim Stjórnvöld í Kirgisistan hafa meinað flóttamönnum frá Úsbekistan að koma inn í landið en þeir leituðu þar hælis eftir að átök brutust út í Andijan og nálægum borgum í síðustu viku. Flóttamennirnir ætla því sjálfviljugir aftur til Andijan og taka þar þátt í uppreisninni gegn stjórn Islam Karimov. 23.5.2005 00:01
Fannst grafin lifandi Átta ára stúlka fannst grafin lifandi í endurvinnslugámi í Lake Worth í Flórída í gær. Lögrelgumaður sá móta fyrir hönd hennar í gámnum og gróf hana því upp. Telpan hafði verið misnotuð kynferðislega og ljóst að hún var skilin eftir til að deyja. Því má telja kraftaverki líkast að hún hafi fundist. 23.5.2005 00:01
Fuglar geti borið flensu hingað Óttast er að farfuglar sem ferðast heimsálfa á milli beri fuglaflensu landa á milli og jafnvel hingað til lands, segir dýralæknir í alifuglasjúkdómum. 23.5.2005 00:01
Lögeglumaður lenti í árekstri Lögeglumaður viðbeinsbrotnaði eftir að hann lenti í árekstri á bifhjóli sínu við bifreið á gatnamótum Háteygvegsvegi og Stakkahlíðar um fimmleytið í gær 23.5.2005 00:01
Eldur í kjallara fjölbýlishúss Slökkvilið höfuðborgasvæðisins var kallað út eftir að mikils reyks var vart í kjallara í fjölbýlishúsi að Háaleitisbraut um klukkan hálf fimm í gær. Eldur hafði komið upp í þvottavél og þurfti reykkafara til að komast að honum. 23.5.2005 00:01
Deilur um stóriðju innan R-lista Forstjóra Orkuveitu Reykjavíkur var á síðustu stundu meinað að skrifa undir viljayfirlýsingu um álver í Helguvík. Ástæðan er ágreiningur R-listaflokkanna um stóriðjuuppbyggingu. 23.5.2005 00:01
Þrír handteknir á Selfossi Þrír menn voru handteknir á Selfossi á fimmtudaginn eftir að nokkurt magn af amfetamíni, kannabisefnum og -plöntum fannst við húsleit lögreglunnar. 23.5.2005 00:01
Fimm látnir úr hermannaveiki Fimm Norðmenn eru látnir úr hermannaveiki sem blossaði upp í Fredrikstad í Noregi. Tuttugu og fjórir í viðbót hafa greinst með sjúkdóminn. Enn er ekki vitað hvernig hann barst milli manna. 23.5.2005 00:01
Þjást enn af áfallastreitu Tjón af Suðurlandsskjálftunum sumarið 2000 gæti verið helmingi meira en áður var talið. Sérfræðingar telja í nýrri úttekt að rannsaka verði burðarvirki og undirstöður allt að tvö þúsund húsa nærri upptökunum. Fimm árum eftir skjálftana er talið að allt að þúsund manns búi enn við áfallastreitu. 23.5.2005 00:01
Háskólar semja um nemendaskipti Á næstu árum mun íslenskum háskólanemendum fjölga til mikilla muna, en bæði Viðskiptaháskólinn á Bifröst og Háskólinn í Reykjavík hafa náð samningum við skóla í Shanghai um að skiptast á nemendum. 23.5.2005 00:01
Fer ekki út vegna flugfélagsreglna Gylfi Baldursson talmeinafræðingur fékk ekki að kaupa ferð til Króatíu með Heimsferðum. Flugfélagið sem ferðaskrifstofan skiptir við neitaði að útvega honum súrefniskút meðan á ferðinni stæði. Þá var honum meinað að koma með sinn eigin kút. 23.5.2005 00:01
Ryðja þurfti snjó á fjallvegum Vinnuvélar Vegagerðarinnar eru ekki komnar í sumarfrí en ryðja þurfti Þorskafjarðarheiði og hreinsa snjó af fjallvegum á Austurlandi í morgun. 23.5.2005 00:01
Frusu í hel Leit stendur enn yfir í hlíðum Andesfjalla af nítján hermönnum sem talið er að hafi orðið úti í mikilli stórhríð í fjöllunum í síðustu viku. 26 lík félaga þeirra hafa þegar fundist. 23.5.2005 00:01
Frá Siglufirði til borgar á hjóli Tíu starfsmenn Heilbrigðisstofnunar Siglufjarðar hjóluðu til Reykjavíkur til að taka við viðurkenningu í keppninni <em>Hjólað í vinnuna</em>. 23.5.2005 00:01
Karpað um kjarnorkumálin Utanríkisráðherrar Evrópusambandsríkjanna hvöttu í gær Írana til að sýna sveigjanleika við samningaborðið í viðræðum um kjarnorkumál sem haldnar verða síðar í vikunni. 23.5.2005 00:01
Á fimmta tug beið bana í gær Flugumenn al-Kaída í Írak réðu hátt settan embættismann af dögum í Bagdad í gær. Auk þess beið á fimmta tug Íraka bana í árásum víðsvegar um landið. Í Rúmeníu fögnuðu menn hins vegar frelsun þarlendra blaðamanna sem haldið hafði verið í gíslingu í tæpa tvo mánuði. 23.5.2005 00:01
Ný forystusveit í Samfylkingunni Nánast algerlega ný forystusveit tekur nú við stjórnartaumunum í Samfylkingunni eftir úrslit kosninga á landsfundi flokksins í gær. Auk nýs formanns, Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur, og nýs varaformanns, Ágústs Ólafs Ágústssonar, var Ari Skúlason kjörinn gjaldkeri. 22.5.2005 00:01
Talsvert slasaður eftir bílveltu Ökumaður flutningabíls, sem valt skammt frá Þverá í Þjórsárdal snemma í morgun, slasaðist talsvert. Maðurinn gekk á sokkaleistunum um tveggja og hálfs kílómetra leið að bænum Fossnesi til að láta vita af sér. 22.5.2005 00:01
Útlit fyrir afhroð Schröders Allt útlit er fyrir að flokkur Gerhards Schröders, kanslara Þýskalands, Jafnaðarmannaflokkurinn, bíði afhroð og tapi í kosningum sem fram fara í dag í þýska sambandsríkinu Nordrhein-Westfalen en flokkurinn hefur verið þar við völd í tæpa fjóra áratugi. 22.5.2005 00:01
Erill hjá lögreglu í nótt Það voru víða Evróvisjón-partý í nótt og töluvert að gera í lögregluumdæmum í kringum landið vegna hávaðaútkalla. Lögreglan í Reykjavík var kölluð nokkuð oft út vegna hávaða í heimahúsum sem víða stóð fram yfir miðnætti. Þá voru þrettán ökumenn stöðvaðir í Reykjavík grunaðir um ölvun við akstur. 22.5.2005 00:01
Frostnætur tíðar í maí Það sem af er þessum maímánuði hafa frostnætur verið alltíðar. Lætur nærri að í innsveitum hafi mælst frost aðra hverja nótt í mánuðinum samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofunni. Í Reykjavík hefur næturfrost einnig verið oftar en venja er til eða átta sinnum líkt og á Akureyri. 22.5.2005 00:01
Ný stjórn Samkeppniseftirlits Viðskiptaráðherra hefur skipað í stjórn Samkeppniseftirlitsins. Í stjórnina voru skipuð Gylfi Magnússon, dósent við Háskóla Íslands sem jafnframt er formaður, Jóna Björk Helgadóttir, aðstoðarmaður hæstaréttardómara, og Jóhann R. Benediktsson, sýslumaður á Keflavíkurflugvelli. 22.5.2005 00:01
Kominn tími á kynslóðaskipti Gísli Marteinn Baldursson sjónvarpsmaður segir kominn tíma á kynslóðaskipti í hugmyndum sjálfstæðismanna í borgarstjórn. Hann ætlar að bjóða sig fram í prófkjöri flokksins í borginni og segist sækjast eftir sæti ofarlega á lista. Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í dag. 22.5.2005 00:01
S.þ. fordæma meintar pyntingar Sameinuðu þjóðirnar fordæmdu í morgun meintar pyntingar bandarískra hermanna á afgönskum stríðsföngum í herstöð skammt frá Kabúl árið 2002. Samtökin krefjast þess að málið verði rannsakað. 22.5.2005 00:01
Úr takti við almenna flokksmenn? Baldur Þórhallsson, stjórnmálafræðingur og dósent við Háskóla Íslands, segir úrslitin í kjöri í embætti innan Samfylkingarinnar í gær benda til þess að forystusveit flokksins og þingmenn hafi verið úr takti við hinn almenna flokksmann. Það hljóti að mega túlka niðurstöðurnar sem kröfu um breyttan stjórnunarstíl og vinnubrögð innan flokksins. 22.5.2005 00:01
Steingrímur væntir góðs samstarfs Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri - grænna, óskar Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur til hamingju með mjög afgerandi sigur í formannskjöri í gær. Hann fagnar því sérstaklega að nýr formaður vilji stilla saman strengi stjórnarandstöðunnar og fella núverandi ríkisstjórn. Steingrímur væntir góðs samstarfs og er bjartsýnn á árangursríkt samstarf. 22.5.2005 00:01
Sjö unglingsstúlkur drukknuðu Að minnsta kosti sjö unglingsstúlkur drukknuðu undan ströndum Suður-Afríku í dag eftir að hafa farið að synda áður en strandverðir voru mættir á svæðið. Stúlkurnar voru á ferðalagi með skólafélögum og kennurum við austurströnd landsins. 22.5.2005 00:01
Ný framkvæmdastjórn kjörin Ný framkvæmdastjórn Samfylkingarinnar var kjörin síðdegis á landsfundinum sem fram fer í Egilshöll. Þau sem náðu kjöri eru Sigríður Jóhannesdóttir, Sigrún Grendal, Tryggvi Felixson, Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir, Karl V. Matthíasson og Ingileif Ástvaldsdóttir. 22.5.2005 00:01