Innlent

Ný stjórn Samkeppniseftirlits

Valgerður Sverrisdóttir viðskiptaráðherra hefur skipað í stjórn Samkeppniseftirlitsins sem tekur til starfa í byrjun júlí og er ætlað að taka við hlutverki Samkeppnisstofnunar samkvæmt nýjum samkeppnislögum. Í stjórnina voru skipuð Gylfi Magnússon, dósent við Háskóla Íslands sem jafnframt er formaður, Jóna Björk Helgadóttir, aðstoðarmaður hæstaréttardómara, og Jóhann R. Benediktsson, sýslumaður á Keflavíkurflugvelli. Þau koma til með að móta starf Samkeppniseftirlitsins og fylgjast með starfseminni.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×