Erlent

Sjö unglingsstúlkur drukknuðu

Að minnsta kosti sjö unglingsstúlkur drukknuðu undan ströndum Suður-Afríku í dag eftir að hafa farið að synda áður en strandverðir voru mættir á svæðið. Stúlkurnar voru á ferðalagi með skólafélögum og kennurum við austurströnd landsins. Nokkrir nemendanna ákváðu að fá sér sundsprett í morgunsárið en hugðu ekki að miklu útstreymi sem var á svæðinu. Einnar stúlku er enn saknað.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×