Fleiri fréttir

Júlíus Vífill stefnir líka hátt

Gísli Marteinn Baldursson sjónvarpsmaður segir kominn tíma á kynslóðaskipti í hugmyndum sjálfstæðismanna í borgarstjórn. Hann ætlar að bjóða sig fram í prófkjöri flokksins í borginni og segist sækjast eftir sæti ofarlega á lista. Gísli er ekki einn um að daðra við forystuhlutverk í borgarstjórnarflokki sjálfstæðismanna því Júlíus Vífiill Ingvarsson segist vera að kanna bakland sitt í flokknum.

Ólga á landsfundi vegna smölunar

Ólga var á landsfundi Samfylkingarinnar vegna mikillar kappsemi ungliðanna við að smala í varaformannskjöri flokksins. Fullyrt var að rútur hefðu komið á fundinn með börn og unglinga sem komu í þeim tilgangi einum að kjósa Ágúst Ólaf Ágústsson í kosningunni en hann sigraði með yfirburðum.

Gekk beinbrotinn á næsta bæ

Ökumaður sandflutningabíls slapp ótrúlega vel frá veltu í Þjórsárdal í gærmorgun. Maðurinn, sem var beinbrotinn og lemstraður, gekk skólaus um þriggja kílómetra leið á næsta bæ eftir hjálp. </font /></b />

Ísland var í sextánda sæti

Gríska söngkonan Helena bar sigur úr býtum í Evrópusöngvakeppninni á laugardagskvöldið. Íslendingar héldu sig við sextánda sætið enda er nánast komin hefð fyrir því.

Samfélagið þolir ekki meiri bið

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir sagði í lokaávarpi landsfundar Samfylkingarinnar að íslenskt samfélag þyldi ekki lengur meiri bið eftir breytingum. Fundinum var slitið með húrrahrópum.

Á sokkunum að næsta bæ

Ökumaður sem grunaður er um ölvunarakstur velti bifreið sinni á Upphéraðsvegi nálægt Egilsstöðum um níuleytið í gærmorgun. Maðurinn rotaðist og meiddist á fæti, en hafðiekki önnur úrræði þegar hann rankaði við sér en að ganga á sokkaleistunum um þrjá til fjóra kílómetra að Hreiðarsstöðum þar sem hann fékk aðhlynningu.

Langt sjúkraflug

Sækja varð veikan sjómann í gær úr spænska togaranum Hermanos Gandon Quadro sem var á karfaveiðum 220 sjómílur suðvestur af Reykjanesi. Þótti skipverjum allt benda til þess að hann hefði fengið botnlangakast.

Þingkosningum flýtt í Þýskalandi

Gerhard Schröder, kanslari Þýskalands, hefur flýtt almennum þingkosningunum í landinu um eitt ár og boðað þær strax í haust eftir að flokkur hans, þýski Jafnaðarmannaflokkurinn, galt afhroð í kosningum í sambandsríkinu Nordrhein-Westfalen í dag.

Víða ölvaðir ökumenn

Margir keyrðu fullir um helgina að sögn lögreglu víða um land. Tólf ökumenn voru stöðvaðir á höfuðborgarsvæðinu í fyrrinótt.

Kinverjar vilja samstarf

Mikill vilji er hjá yfirvöldum í borginni Qingdao í Kína að starfa með Íslendingum á sviði umhverfismála, bæði milli stofnana og fyrirtækja.

Í hart við skattinn

Bandalag háskólamanna lagði fram stjórnsýslukæru í síðustu viku vegna ákvörðunar skattstórans í Reykjavík í máli eins geislafræðings Landspítalans. Ákvörðunin hefur þau áhrif að skattur er tekinn af ökustyrk mannsins þar sem hann ekur meira en tvö þúsund kílómetra á ári á eigin bifreið til að komast á og af vinnustað í útköllum.

Bannað að bera nakið fram

Kínversk stjórnvöld hafa ákveðið að banna að matur sé borinn fram á nöktum kvenlíkömum á veitingastöðum í landinu. Í tilkynningu frá viðskiptaráðuneytinu í Peking segir að slíkt athæfi sé ósiður sem brjóti í bága við almennt velsæmi.

Heppinn að lifa af

Ökumaður velti bifreið sinni á Borgarhálsi í Hrútafirði í fyrrinótt. Hann var sendur talsvert lemstraður með sjúkrabíl á Heilsugæslustöðina á Hvammstanga.

Miklir sinueldar í dag

Miklir sinueldar hafa logað á höfuðborgarsvæðinu í dag og þurfti meðal annars dælubíla frá slökkviliðinu til að slökkva eldana. Veðurfarið á stóran þátt í auknum sinueldum því upp á síðkastið hefur verið mjög kalt og þurrt.

Bráðaaðgerðir gegn fuglaflensu

Kínversk stjórnvöld hafa fyrirskipað bráðaaðgerðir til að hindra útbreiðslu fuglaflensu, í kjölfar þess að í ljós kom að farfuglar sem fundust dauðir í vesturhluta landsins fyrr í þessum mánuði hefðu verið sýktir af veirunni.

Rúmenskir gíslar lausir í Írak

Þrír rúmenskir fréttamenn og írask-bandarískur túlkur þeirra voru í gær látnir lausir úr gíslingu sem íraskir uppreisnarmenn hnepptu þá í fyrir tveimur mánuðum. Frá þessu greindu talsmenn Rúmeníuforseta.

Trampólín nýjasta æðið

Trampólín eru nýjasta æði Íslendinga og hafa þau selst í hundraðatali upp á síðkastið. Í gær seldust 60 slík tæki þegar ný verslun Húsasmiðjunnar var opnuð í Grafarvogi. En samfara auknu hoppi hefur komum á slysadeildina fjölgað.

Samherji Saddams látinn laus

Yfirvöld í Írak hafa látið lausan úr fangelsi einn þeirra manna sem voru háttsettir í stjórn Saddams Husseins á sínum tíma. Að sögn íraska innanríkisráðherrans er maðurinn, Ghazi Hammud al-Obeidi, dauðvona vegna magakrabbameins.

Skæruliðar felldir í Afganistan

Bandarískar hersveitir í Afganistan felldu tólf skæruliða sem réðust á hermenn í eftirlitsleiðangri við landamærin að Pakistan á laugardag, að því er talsmaður hersins greindi frá í gær. Jafnframt fordæmdi talsmaður Sameinuðu þjóðanna misþyrmingu fanga sem uppvíst hefur orðið að voru stundaðar í herstöð Bandaríkjahers í landinu.

Hermannaveiki á norsku sjúkrahúsi

Staðfest var í gær að banamein þriggja aldraðra sjúklinga á sjúkrahúsi í Fredrikstad í Noregi hefði verið hermannaveiki.

Schröder boðar kosningar í haust

Gerhard Schröder, kanslari Þýskalands, sagðist í gær vilja að kosningum til Sambandsþingsins yrði flýtt um heilt ár, til komandi hausts, í kjölfar mikils ósigurs jafnaðarmannaflokks hans í héraðsþingkosningum í Nordrhein-Westfalen. Kristilegir demókratar unnu þar afgerandi sigur.

Stærsta skip landsins í höfn

"Ég býst að geta skilað einhverjum afla í land," segir Þórður Magnússon, skipstjóri Engeyjarinnar, stærsta skips íslenska flotans. Engey RE 1 lagði að bryggju við Norðurgarð í Reykjavíkurhöfn í gær. Skipið, sem er í eigu HB Granda, er engin smásmíð; 105 metra langt, 20 metra breitt og 7.800 brúttótonn að þyngd.

Samið við austfirsk fyrirtæki

Verktakafyrirtækið Bechtel, sem byggir álver Alcoa–Fjarðaáls við Reyðarfjörð, hefur gert tvenna samninga um flutning á starfsfólki til og frá vinnu. Samningarnir voru gerðir að undangengnu lokuðu útboði í vor.

Krefjast bóta vegna vanrækslu

Talsverðar skemmdir hafa komið fram á nýlegu húsi í Grafarholti. Íbúarnir vilja bætur en lenda í vanda þar sem verktakinn er í gjaldþrotameðferð. Algengt er að byggingarstjórar ræki ekki skyldur sínar, segir byggingarfulltrúi Reykjavíkur. </font /></b />

Sterkasta vígi þýskra krata fallið

Kristilegir demókratar unnu í gær langþráðan sigur í héraðsþingkosningum í Nordrhein-Westfalen, sem með um 18 milljónir íbúa er langfjölmennast þýsku sambandslandanna 16. Þeir stefna á að taka einnig við stjórnartaumunum í Berlín í haust.

Hollendingar á móti ESB-sáttmála

Í það virðist stefna að hollenskir kjósendur hafni stjórnarskrársáttmála Evrópusambandsins með öruggum meirihluta í þjóðaratkvæðagreiðslu 1. júní næstkomandi.

Fox verst gagnrýni á ummæli

Vicente Fox, forseti Mexíkó, reyndi í gær að skýra ummæli sem hann lét falla og fulltrúar bandarískra blökkumanna tóku mjög illa. Fyrr í mánuðinum var haft eftir Fox í útvarpsviðtali að Mexíkanar í Bandaríkjunum tækju þar að sér störf "sem ekki einu sinni svartir vilja".

Björgun æfð á Pollinum

Um 600 manns voru á Akureyri á laugardag og föstudag í tengslum við fimmta landsþing Slysavarnafélagsins Landsbjargar. Þinginu lauk síðdegis á laugardag en fyrr um daginn var björgunaræfing á Akureyrarpolli með þátttöku fimm stórra björgunarskipa, varðskipsins Týs, þyrlu Landhelgisgæslunnar og fjölda smærri björgunarbáta.

Næturfrost dregur úr sprettu

Veðurstofa Íslands segir frostanætur hafa verið alltíðar það sem af er maímánuði, en gróður vex hægar af þeim sökum. "Lætur nærri að í innsveitum hafi mælst frost aðra hverja nótt," segir í tilkynningu Veðurstofunar.

Skipt um alla forystusveitina

Forysta Samfylkingarinnar er gerbreytt og nýtt fólk í trúnaðarstöðum flokksins metur stöðuna á næstunni eftir sögulegan landsfund. Málefnavinnu, sem kynnt var á landsfundinum, verður haldið áfram næstu mánuði og misseri.</font /></b />

Olíufélögin fá á baukinn

Stóru olíufélögin þrjú fá á baukinn í könnun sem tveir nemendur Háskólans í Reykjavík gerðu um ímynd fyrirtækja. Olíufélögin reyndust með afar slæma ímynd. Nemendurnir kenna samráði félaganna þar um.

Gekk beinbrotinn að næsta bæ

Ökumaður sýndi fádæma hreysti eftir að sandflutningabíl sem hann ók hvolfdi á Þjórsárdalsvegi í bítið á sunnudagsmorgun. Bíllinn lenti út af veginum og tættist nánast í sundur. Maðurinn komst út úr sundurtættu flakinu og gekk eftir hjálp tæpa þrjá kílómetra á næsta bæ.

Bíðum ekki lengur eftir breytingum

Klíkuskapur er samtrygging þröngra hópa um eigin hagsmuni án tillits til hagsmuna heildarinnar sagði Ingibjörg Sólrún Gísladóttir nýkjörinn formaður Samfylkingarinnar þegar hún sleit landsfundi flokksins í gær. Hún kvað Samfylkinguna hafa tekið afstöðu gegn klíkum í formannskjöri flokksins.</font /></b />

Sterk staða nýkjörins formanns

"Kjörið var afgerandi. Í kjarna Samfylkingarinnar stóð þetta áreiðanlega tæpar. Umboð hennar er hins vegar mjög skýrt og það þýðir að valdastaða hennar gagnvart öðrum forystumönnum Samfylkingarinnar er sterk," segir Gunnar Helgi Kristinsson stjórnmálafræðiprófessor um kjör Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur sem formanns Samfylkingar.

Vó aðeins 300 grömm við fæðingu

Stúlkubarn sem fæddist rúmum þremur mánuðum fyrir tímann í Bandaríkjunum í síðustu viku vegur aðeins rúmlega þrjú hundruð grömm. Læknar telja góðar líkur á að barnið lifi.

Steingrímur væntir góðs samstarfs

Steingrímur J. Sigfússon formaður Vinstri hreyfingarinnar - Græns framboðs segist vænta góðs af samstarfi við nýjan formann og nýja forystu Samfylkingarinnar.

Nýir tímar í sjávarútvegi

Íslendingar eru í auknum mæli að nýta sér reynslu úr sjávarútvegi til að tryggja sér sæti í efnahagshraðlestinni í Kína. Eva Bergþóra Guðbergsdóttir er í fylgdarliði forsetans í austurvegi.

Atkvæði hafa verið talin

Atkvæði í formannskjörinu á landsfundi Samfylkingarinnar hafa verið talin. Úrslitin verða tilkynnt á hádegi og er Stöð 2 með sérstakan aukafréttatíma vegna þessa klukkan tólf þar sem sýnt verður beint frá fundinum.

Á sex ára fangelsi yfir höfði sér

Fyrrverandi afleysingamaður íslenska kirkjusafnaðarins í Noregi á yfir höfði sér allt að sex ára fangelsisdóm samkvæmt norskum refsilögum. Maðurinn viðurkenndi við yfirheyrslur lögreglu að hafa dregið sér sex milljónir króna úr sjóðum safnaðarins.

Björguðu hollensku skipi

Tvö hundruð og fimmtíu tonna hollensku skipi var bjargað þegar það varð vélarvana um hálfa mílu suðsuðvestur af Garðskaga um sjöleytið í gærkvöldi. Samkvæmt fyrstu heimildum fréttastofunnar var um skip í eigu Grænfriðunga að ræða en svo reyndist ekki vera.

Efnavopna-Ali á baðsloppnum

Myndir sem birtar voru af Saddam Hussein, fyrrverandi forseta Íraks, á nærklæðunum einum fata í breska götublaðinu <em>The Sun</em> í gær hafa vakið hörð viðbrögð. Nýjar myndir voru birtar í blaðinu í dag sem meðal annars sýna einn nánasta samstarfsmann Saddams, Ali Hassan al-Majid, betur þekktan sem „Efnavopna-Ali“, í baðslopp haldandi á handklæði.

Gæsluvarðhald vegna bílainnbrota

Kona og karlmaður voru úrskurðuðí gæsluvarðhald í eina viku vegna innbrota í bíla í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Parið er grunað um að hafa brotist inn í um 30 bíla upp á síðkastið. Þau voru staðin að verki við Rauðavatn í gær og í bifreið þeirra fundust 15 til 20 geislaspilarar og útvarpstæki úr bílum.

Skar liminn af eiginmanninum

Kona á Indlandi skar getnaðarliminn af eiginmanni sínum í gærkvöldi eftir að hann hafði komið drukkinn heim með vændiskonu undir arminum. Hún sætti færis þegar eiginmaðurinn sofnaði værum svefni eftir kvöldskemmtunina, batt hann á höndum og fótum og skar svo hans allra heilagasta af með eldhúshníf.

Ingibjörg Sólrún kjörin formaður

Tilkynnt var um það á landsfundi Samfylkingarinnar rétt í þessu að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir yrði næsti formaður flokksins. Alls bárust 12.015 atkvæði í póstkosningu Samfylkingarinnar um formann flokksins og fékk Ingibjörg Sólrún Gísladóttir 7997 atkvæði, eða tæp 67%, en sitjandi formaður, Össur Skarphéðinsson, hlaut 3970 atkvæði, eða 33% atkvæða.

Þrír í kjöri til varaformanns

Þrír munu verða í framboði til varaformanns Samfylkingar í dag. Heimir Már Pétursson, upplýsingafulltrúi Flugumferðarstjórnar, tilkynnti framboð sitt fyrir stundu. Áður höfðu Ágúst Ólafur Ágústsson og Lúðvík Bergvinsson, þingmenn flokksins, boðið sig fram.

Sjá næstu 50 fréttir