Fleiri fréttir

Tugmilljarða munur á vaxtagreiðslu

Íslenskar fjölskyldur greiða vikulega milljarði meira en norskar vegna verðtryggingar lána, segir Gunnar Örn Örlygsson, þingmaður Frjálslynda flokksins. Á landsþingi flokksins um helgina var samþykkt ályktun sem kvað á afnám verðtryggingar lána. Samskonar ályktun var samþykkt á flokksþingi Framsóknarflokksins fyrir skömmu.

Nemendur hýstir í köldum gámum

Sex fjölskyldur og fjórir einstaklingar við Viðskiptaháskólann á Bifröst búa í tíu svokölluðum húsnæðiseiningum á skólasvæðinu sökum húsnæðisskorts við skólann. Nemendurnir eru ósáttir við aðstæður og segja þessar einingar vera gáma sem séu kaldir og leki auk þess sem þeir telja húsaleiguna of háa.

Færeyingum fækkar á ný

Færeyingum er tekið að fækka á ný eftir að hafa fjölgað samfleytt í níu ár. Þessu skýrði færeyska útvarpið frá í gær. Á síðasta ári fluttu 1390 manns til Færeyja, en brottfluttir voru 1534, sem þýðir að brottfluttir voru 146 fleiri en aðfluttir.

Forysta Frjálslyndra fær það óþvegið

Sigurður Ingi Jónsson, sem skipaði 1. sæti á lista Frjálslynda flokksins í Reykjavíkurkjördæmi norður fyrir síðustu alþingiskosningar, skrifar harðorðan pistil á heimasíðu sína í dag. Sigurður Ingi sendir forystu Frjálsyndra tóninn og segir niðurstöðu nýafstaðins landsþings flokksins öllum, sem að komu, til háðungar. Þá segir Sigurður Ingi að Magnús Þór Hafsteinsson, þingmaður og varaformaður flokksins eigi við drykkjuvandamál að stríða sem orðið hafi honum til háðungar og flokknum til skammar.

Breyttu gamalli hlöðu í reiðskemmu

Það er allt hægt með viljann að vopni. Þetta vita félagar í hestamannafélaginu á Álftanesi sem höfðu enga fjárhagslega burði til að byggja reiðhöll. Í staðinn unnu tugir sjálfboðaliða nótt sem nýtan dag við að breyta gamalli hlöðu í reiðskemmu, svo hægt yrði að kenna yngstu kynslóðinni reiðlistina í skjóli fyrir veðri og vindum.

Grunur um skattsvik á stöðunum

Skattrannsóknarstjóri gerði fyrirvaralausa húsleit hjá hátt í tuttugu vínveitingastöðum í gær og í fyrradag vegna rökstudds gruns um stórfelld skattsvik og aðra glæpi. Þetta er umfangsmesta aðgerð embættisins síðan húsleit var gerð hjá olíufélögunum.

Þingið á suðupunkti á tímabili

Magnús Þór Hafsteinsson var endurkjörinn varaformaður Frjálslynda flokksins með tæplega 70 prósentum atkvæða á landsþingi flokksins í dag. Landsþingið var á suðupunkti síðdegis áður en niðurstaðan fékkst en svo féll allt í ljúfa löð.

Fimmfalt fleiri reyna sjálfsvíg

Ætla má að fjöldi sjálfsvígstilrauna hér á landi hafi nær fimmfaldast síðustu ár samkvæmt tölum sem Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri hefur tekið saman.

Segja ökumann hafa óhlýðnast

Talsmaður Bandaríkjahers segir að ökumaður bíls með ítölskum gísl, sem nýbúið var að leysa úr haldi í Írak, hafi ekki sinnt viðvörunarskotum. Því hafi verið skotið á bílinn með þeim afleiðingum að gíslinn særðist og björgunarmaður hans lést. Bandaríkjaforseti hefur fyrirskipað opinbera rannsókn á málinu.

Fischer sakaður um skattalagabrot

Bandarísk stjórnvöld saka nú Fischer um skattalagabrot og hyggjast ákæra hann 5. apríl. Stuðningsmenn skáksnillingsins telja að brögð séu í tafli og hvetja íslensk stjórnvöld til að afhenda Fischer vegabréf til Íslands áður en Japönum takist að framselja hann til Bandaríkjanna.

1. maí ekki haldinn 1. maí?

Fyrsta maí kröfugangan gæti heyrt sögunni til. Hún er barn síns tíma og stendur ekki undir væntingum að mati miðstjórnar Rafiðnaðarsambands Íslands. Verði stjórninni að vilja sínum gæti það einnig þýtt að framvegis verði haldið upp á 1. maí þann 3. eða jafnvel 7. maí.

Græddu hendur aftur á mann

Bandarískum læknum tókst á ævintýralegan hátt að græða hendur á mann, sem missti þær í vinnuslysi.

Fjöldi kynnti sér námsleiðir

Fjöldi væntanlegra háskólanema kynnti sér starfsemi sjö háskóla á Stóra háskóladeginum sem haldinn var í Borgarleikhúsinu í gær. Uppákomur sem Listaháskólinn stóð fyrir settu svip á daginn og skemmtu þeim sem komu til að kynna sér starfsemi skólanna.

Magnús endurkjörinn

Magnús Þór Hafsteinsson vann öruggan sigur á Gunnari Örlygssyni í kosningu um varaformannsembættið á landsþingi Frjálslynda flokksins í gær. Tæplega 140 greiddu atkvæði og fékk Magnús Þór 70 prósent gildra atkvæða.

Kuldakast í Danmörku

Hvert kuldametið á fætur öðru hefur fallið undanfarna daga í Danmörku. Frost hefur farið niður fyrir tuttugu gráður sem er það kaldasta sem mælst hefur í átján ár.

Kviknaði í olíuskipi

Þyrla þurfti að bjarga áhöfn norsks olíuflutningaskips eftir að eldur kom upp í því nokkra kílómetra undan strönd Noregs. Eldurinn blossaði upp í vélarrúmi skipsins og fékk áhöfn skipsins, 28 Indverjar, ekkert við eldinn ráðið.

Assad lofar brotthvarfi

Bashar Assad, forseti Sýrlands, hét því í gær að draga hersveitir Sýrlendinga í Líbanon til líbansk-sýrlensku landamæranna.

Töldu sig úr hættu

"Við töldum hættuna að baki eftir að búið var að bjarga mér. Þess í stað lentum við allt í einu í skothríð," sagði Giuliana Sgrena blaðamaður sem haldið var í gíslingu í mánuð í Írak.

17 milljónir í einbýlishúsalóð

Tilboð í lóðir í þriðja hluta Norðlingaholts eru mun hærri en í fyrri hluta hverfisins. Verktakar bjóða andvirði tæpra sjö milljóna króna á hverja íbúð í fjölbýlishúsum. Sá sem hæst bauð í einbýlishús dregur tilboðið til baka. </font /></b />

Tugmilljóna hækkun milli ára

"Þetta eru tilboð upp á fimmtíu prósenta hækkun frá því sem nú er," segir Ragnar Gunnlaugsson á Bakka, formaður veiðifélagsins sem á Víðidalsá, um tilboðin sem bárust í leigu árinnar næsta ár.

Órói vegna veru Ísraela

Það kemst enginn friður á í borgum Palestínumanna á Vesturbakkanum fyrr en Ísraelar fara þaðan með herlið sitt, sagði Mahmoud Abbas, forseti palestínsku heimastjórnarinnar.

Leituðu sannana fyrir skattsvikum

Starfsmenn Skattrannsóknastjóra lögðu hald á mikið magn bókhaldsgagna og tölvubúnað þegar þeir gerðu húsleit á fjölda vínveitingahúsa í Reykjavík á föstudags- og fimmtudagskvöld. Flest vínveitingahúsanna, en þó ekki öll, eru í miðbænum.

Lágmarkslaunin fara í 113 þúsund

Laun félaga í SFR - stéttarfélagi í almannaþágu hækka um átján prósent samkvæmt nýgerðum samningi við fjármálaráðuneytið. Samningurinn verður undirritaður næsta miðvikudag og mun gilda afturvirkt frá 1. febrúar síðastliðnum til 30. apríl 2008.

Eldur í togaranum Breka í gærkvöld

Talsverður eldur kom upp í togaranum Breka KE í Njarðvíkurhöfn á níunda tímanum í gærkvöldi. Miklar skemmdir urðu vegna eldsins í svokallaðri stakkageymslu eða þar sem yfirhafnir áhafnar eru geymdar. Allt tiltækt lið Brunavarna Suðurnesja var kallað út og tókst reykköfurum að ráða niðurlögum eldsins á skömmum tíma.

Mótmæla banni við mótmælum

Þúsundir manna söfnuðust saman á götum úti í Beirút, höfuðborg Líbanons, í nótt til þess að mótmæla fyrirhuguðu banni stjórnvalda við opinberum mótmælum. Bannið, sem á að taka gildi í dag, var ákveðið eftir að ljóst var að andstæðingar og stuðningsmenn stjórnvalda höfðu boðað til mótmæla á sama tíma og sama stað í höfuðborginni.

Fagna nýrri stefnu varðandi ESB

Félag ungra framsóknarmanna í Reykjavíkurkjördæmi suður fagnar því að stefna flokksins í Evrópumálum hafi verið endurskoðuð á flokksþingi Framsóknarflokksins sem lauk í gær. Ungir framsóknarmenn telja þetta mikilvægan áfanga í átt að nánara sambandi Íslands við Evrópusambandið og þeir segja líklegt að jákvæð afstaða Framsóknarflokksins verði til þess að Ísland hefji aðildarviðræður við ESB á næsta kjörtímabili.

Fagna eflingu jafnréttis

Landssamband framsóknarkvenna telur að djúp spor hafi verið mörkuð í sögu framsóknarkvenna og þar með sögu flokksins með ákvörðun um að efla jafnrétti innan flokksins. Framsóknarkonur telja að þau skref muni án efa leiða Framsóknarflokkinn áfram til aukinna áhrifa og framgöngu í íslenskum stjórnmálum.

Samskipti við ferðamenn í lágmarki

Starfsmönnum í ferðaþjónustu á Kúbu hefur verið skipað að halda samskiptum sínum við erlenda ferðamenn í lágmarki. Ferðamálaráð Kúbu hefur sent frá sér ályktun þar sem starfsmenn þess eru hvattir til þess að minnka samskipti sín við erlenda ferðamenn.

Kynna skuldbreytingar námslána

Menntamálaráðherra og Lánasjóður íslenskra námsmanna hafa boðað til blaðamannafundar í dag til að kynna rétt lánþega til skuldbreytingar námslána í samræmi við lög sem samþykkt voru á Alþingi í desember síðastliðnum. Samkvæmt upplýsingum frá LÍN er rétturinn til að skuldbreyta láni afmarkaður við ákveðinn hóp lánþega, samtals tæplega 27 þúsund manns.

Mannskæð sjálfsmorðsárás í Írak

Að minnsta kosti tuttugu og fimm manns létust þegar bílsprengja sprakk sunnan við Bagdad í Írak snemma í morgun. Maður ók bíl sínum að hópi fólks sem var að sækja um vinnu hjá ríkinu og sprengdi sjálfan sig í loft upp. 28 eru sagðir slasaðir eftir árásina, þar af nokkrir lífshættulega.

Sýrlendingar gripu bróður Saddams

Það voru yfirvöld í Sýrlandi sem handtóku Sabawi Ibrahim Hasan, hálfbróður Saddams Husseins, og afhentu hann yfirvöldum í Írak. Þetta þykir til marks um það að Sýrlendingar séu tilbúnir til samvinnu við Bandaríkjastjórn sem hefur leynt og ljóst haldið því fram að þarlend yfirvöld hafi skotið skjólshúsi yfir uppreisnarmenn í Írak.

Bera fram vantrauststillögu

Stjórnarandstaðan í Líbanon hyggst freista þess á þingi í dag að fá samþykkta vantrauststillögu á hendur ríkisstjórninni vegna deilna í tengslum við morðið á Rafik Hariri, fyrrverandi forsætisráðherra landsins. Mikil óánægja er með ríkisstjórnina, sem er höll undir Sýrlendinga, og hefur stjórnarandstaðan haldið því fram að Sýrlendingar hafi staðið á bak við morðtilræðið fyrir tæpum tveimur vikum.

Mannskæðasta árás frá kosningum

Nú er ljóst að að minnsta kosti 33 létust og 76 særðust í sjálfsmorðsárás í bænum Hilla suðaustur af Bagdad í Írak í morgun. Maður ók bíl sínum inn í hóp fólks, sem var að sækja nafnskírteini vegna starfa á vegum ríkisins, og sprengdi bílinn í loft upp. Þetta er mannskæðasta árás í Írak eftir kosningarnar 30. janúar síðastliðinn en árásin átti sér stað nærri fjölförnu torgi og jók það á tölu látinna og særðra.

Ólga vegna uppsagna

Tinna Gunnlaugsdóttir þjóðleikhússtjóri hefur boðað til blaðamannafundar í Þjóðleikhúsinu í dag, en mikil ólga er meðal leikara sem starfa þar vegna fyrirhugaðra uppsagna tíu leikara frá og með morgundeginum, 1. mars. Leikarar í Þjóðleikhúsinu segja það óverjandi að verðlauna leiksigra með uppsögnum en þjóðleikhússtjóri segir búið að skapa fordæmi fyrir auknum hreyfanleika í yngsta kjarna leikhússins.

Býst við innrás Bandaríkjamanna

Bashar al-Assad, forseti Sýrlands, telur að Bandaríkjamenn hyggist ráðast á landið þar sem stjórnvöld í Washington beiti sér nú á svipaðan hátt gagnvart sýrlenskum yfirvöldum og þau gerðu gagnvart Írökum í aðdraganda innrásarinnar í Írak.

Yfir 100 létust í sprengjuárás

105 létust og 130 særðust í sjálfsmorðsárás í bænum Hilla suðaustur af Bagdad í Írak í morgun. Maður ók bíl sínum inn í hóp fólks, sem var að sækja nafnskírteini vegna starfa á vegum ríkisins, og sprengdi bílinn í loft upp. Þetta er mannskæðasta árás í Írak frá því að Saddam Hussein var komið frá völdum en hún átti sér stað nærri fjölförnu torgi og jók það enn á tölu látinna og særðra.

Forsætisráðherra til Danmerkur

Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra fer í dag í opinbera heimsókn til Danmerkur í boði Anders Foghs Rasmussens, forsætisráðherra Danmerkur. Í heimsókninni mun Halldór hitta marga málsmetandi Dani og einnig forsvarsmenn íslenskra fyrirtækja í Danmörku. Heimsókn forsætisráðherra til Danmerkur lýkur á miðvikudag.

Lifði af tvö skot í höfuðið

Þrjátíu og sex ára gamall maður í Danmörku lifði það af að fá tvö byssuskot í ennið. Maðurinn var á heimili sínu þegar skotið var á hann í gegnum gluggarúðu og gardínu. Lögreglan segir að fyrirstaðan hafi verið nógu mikil til þess að draga úr afli kúlnanna. Maðurinn var fluttur á sjúkrahús þar sem kúlurnar voru fjarlægðar. Lögreglan segist hafa grun um hver skotmaðurinn sé og er hans nú leitað.

Samkeppnisyfirvöld geti áfrýjað

Neytendasamtökin telja að breyta eigi dómsmeðferð samkeppnismála á þann veg að samkeppnisyfirvöld geti áfrýjað dómum líkt og í Svíþjóð. Þar voru í síðustu viku fimm sænsk olíufélög dæmd í sænska markaðsdómstólnum til að greiða tæpan milljarð íslenskra króna fyrir ólöglegt samráð. Markaðsdómstóllinn, æðsta dómsstig Svía í samkeppnismálum, hækkaði þær sektir sem kveðnar höfðu verið upp í undirrétti um ríflega helming.

Legókubbur stóð í dreng

Drengur á sjötta ári varð fyrir því síðdegis á laugardag að gleypa legókubb sem stóð í hálsi hans og olli honum öndunarörðugleikum. Ekki tókst að losa um kubbinn og því var drengurinn fluttur með hraði á slysadeild Landspítalans.

Leikarar verði verkefnaráðnir

Óánægju gætir meðal leikara Þjóðleikhússins eftir að Tinna Gunnlaugsdóttir þjóðleikhússtjóri tilkynnti á fundi í morgun með þeim um uppsagnir tíu fastráðinna leikara af  33. Markmiðið er að verkefnaráða leikara frekar framvegis. Þeim sem skemmst hafa starfað við leikhúsið verður sagt upp.

Bryndís hættir á þingi 1. ágúst

Bryndís Hlöðversdóttir ætlar að hætta þingmennsku til að taka við stöðu deildarforseta lagadeildar Viðskiptaháskólans í Bifröst. Gert er ráð fyrir að hún hætti þingstörfum 1. ágúst. Næsti maður inn á þing er Ingibjörg Sólrún Gísladóttir.

Forseti Íslands fær heiðursorðu

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, verður í dag sæmdur heiðursorðu rússnesku rétttrúnaðarkirkjunnar, orðu heilags Valdimars konungs. Alexei II patríarki ákvað þann 17. febrúar að Ólafur Ragnar skyldi fá orðuna fyrir stuðning sinn við starf safnaðar rétttrúnaðarkirkjunnar á Íslandi og baráttu fyrir því að hér verði byggð kirkja.

Gjaldskrá hækkar ef ekki semst

Gjaldskrá sjálfstætt starfandi sjúkraþjálfara hækkar um þúsundir króna náist ekki nýir samningar við heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið fyrir kvöldið. Deilt er um svokallað afsláttarþak sem sjúkraþjálfarar segja að hafi lamandi áhrif á starfsemina.

Segir blað brotið í sögu flokksins

Formaður Landssambands framsóknarkvenna segir brotið blað í sögu Framsóknarflokksins með ákvörðun um að efla jafnrétti kynjanna innan flokksins. Samkvæmt henni skuli hlutur hvors kyns ekki vera lægri en 40 prósent við skipan í trúnaðar- og ábyrgðarstöður.

Sjá næstu 50 fréttir