Innlent

Legókubbur stóð í dreng

Drengur á sjötta ári varð fyrir því síðdegis á laugardag að gleypa legókubb sem stóð í hálsi hans og olli honum öndunarörðugleikum. Ekki tókst að losa um kubbinn og því var drengurinn fluttur með hraði á slysadeild Landspítalans. Drengurinn var ásamt öðrum dreng að leika sér með kubba í sumarbústað í Grímsnesi og er talið að kubburinn hafi lent í kókglasi og þegar drengurinn fékk sér sopa, fór kubburinn upp í hann og festist í öndunarveginum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×