Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Sýknaður en lögmaðurinn sektaður Karlmaður var sýknaður í Hæstarétti í dag af líkamsárás á skemmtistað fyrir tveimur árum. Héraðsdómur hafði áður dæmt manninn til fimm mánaða fangelsisvistar. Héraðsdómur hafði einnig sektað verjanda mannsins, m.a. fyrir að hafa virt ábendingar dómara að vettugi og gert honum upp skoðanir. 17.2.2005 00:01
Vill meiri þrýsting á Sýrlendinga Sýrlendingar eru úr takt við önnur ríki í Mið-Austurlöndum, sagði George W. Bush Bandaríkjaforseti þegar hann lýsti því yfir að hann vildi vinna með öðrum ríkjum að því að þrýsta á Sýrlendinga um að hverfa með her sinn frá Líbanon. 17.2.2005 00:01
Meiri réttur flugfarþega Flugfarþegar eiga rétt á tugþúsunda króna greiðslum verði þeir af flugi fyrir verknað flugfélagsins sem þeir eiga bókað flug með. Þetta er hluti af nýjum reglum Evrópusambandsins um réttindi flugfarþega sem tóku gildi í gær. 17.2.2005 00:01
Þjálfunarbúðir hryðjuverkamanna Írak er orðið að þjálfunarbúðum fyrir hryðjuverkamenn sem geta beitt reynslu sinni þaðan til árása annars staðar. Þetta kom fram í máli Porter Goss, yfirmanns bandarísku leyniþjónustunnar (CIA) þegar hann svaraði bandarískum þingmönnum. 17.2.2005 00:01
Ekki vitað um 30 kíló af plútóníum Stjórnendur kjarnorkuendurvinnslustöðvarinnar í Sellafield í Bretlandi geta ekki gert grein fyrir því hvað varð af 30 kílóum af plútóníum sem koma ekki fram í tölum um birgðahald. Umhverfisráðherra hefur óskað upplýsinga frá breskum stjórnvöldum. 17.2.2005 00:01
Bið eftir stjórnarmyndun Íraska kjörstjórnin kynnti í gær staðfest úrslit í þingkosningunum en talið er að nokkrar vikur líði áður en ný ríkisstjórn tekur við völdum. Ástæðan er sú að flokkarnir sem sæti eiga á þingi hafa enn ekki komið sér saman um hver verði næsti forsætisráðherra. 17.2.2005 00:01
Vatíkanið kennir andasæringar Háskóli Vatíkansins er farinn að bjóða upp á nýtt námskeið. Hér eftir geta rómversk-kaþólskir klerkar lært hvernig á að særa illa anda úr andsetnu fólki, að því er BBC greindi frá. 17.2.2005 00:01
Krefjast brottreksturs forsetans Foreldrar barna sem létu lífið þegar rússneskir hermenn réðust gegn gíslatökumönnum í skóla í Beslan krefjast þess að forseti Norður-Ossetíu verði rekinn. Þau skrifuðu Vladimír Pútín Rússlandsforseta bréf og báðu hann um að reka Alexander Dzasokhov úr embætti forseta Norður-Ossetíu. 17.2.2005 00:01
Bankarán IRA talið upplýst Írskir lögreglumenn hafa handtekið sjö einstaklinga sem grunaðir eru um bankarán í Belfast og lagt hald á andvirði um 260 milljóna króna. Írska lýðveldishernum hefur verið kennt um bankaránið og það staðið í vegi fyrir friðarsamkomulagi á Norður-Írlandi. 17.2.2005 00:01
Hollendingar íhuga kjarnorku á ný Hollendingar eru á ný farnir að velta því fyrir sér hvort þeir eigi að loka eina kjarnorkuverinu í landinu eða hvort starfrækja eigi það áfram. 17.2.2005 00:01
Svíi biður umhjálp Sænskur ríkisborgari, sem haldið er í gíslingu í Írak, bað Karl Gústaf Svíakonung og Jóhannes Pál II páfa um hjálp við að losna lifandi úr gíslingu sinni. Gíslatökumenn tóku hjálparbeiðni mannsins upp á myndband og sendu það til fjölmiðla. 17.2.2005 00:01
Vilja breytingar á skólastarfi Fjölmargir skólastjórnendur hafa haft samband við Kennarasamband Íslands með í huga að breyta skólastarfi í grunnskólunum. 17.2.2005 00:01
Ísaksskóli hækkar laun og gjöld Tíu kennarar af sextán í Ísaksskóla hafa gert sérsamning um kjör. Kennarasamband Íslands segir samninginn brjóta í bága við lög. Skólastjóri Ísaksskóla segir Kennarasambandið hafa verið með í ráðum. Skólagjöld hækka mest um tæpan þriðjung. </font /></b /> 17.2.2005 00:01
Ólögmæt handtaka á mótmælanda Íslenska lögreglan var í dag fundin sek um að hafa handtekið karlmann með ólögmætum hætti sumarið 2002 og skert tjáningarfrelsi hans. Ríkinu var gert að greiða manninum bætur. Lögmaður hans telur líklegt að þrír menn sem lögreglan handtók við sama tækifæri fái einnig bætur frá ríkinu. 17.2.2005 00:01
Víglína í átökum við Bandaríkin Sýrland er vaxandi vandamál að mati utanríkisráðherra Bandaríkjanna. Tilgangur bandalags Sýrlendinga og Írana er óljós en því er velt upp hvort það sé eins konar víglína í átökum við Bandaríkin. 17.2.2005 00:01
Lögreglustjóri átalinn harðlega Karlmanni voru í dag dæmdar bætur vegna ámælisverðra vinnubragða lögreglunnar í Reykjavík. Hann lá í tvö og hálft ár undir grun um refsiverðan verknað án þess að ákæra væri gefin út. Hæstiréttur átelur lögreglustjórann í Reykjavík harðlega fyrir sleifarlagið og segir þessi vinnubrögð brot á friði mannsins og æru hans. 17.2.2005 00:01
20% söfnunarfjár til símafyrirtækja Símafyrirtækin taka tvær krónur af hverjum tíu í söfnun Hjálparstarfs kirkjunnar. Talsmenn þeirra segja það ekki óeðlilegt. 17.2.2005 00:01
Fengu hundaæðissýkt líffæri Þrír sjúklingar berjast fyrir lífi sínu í Þýskalandi eftir að í þá voru grædd líffæri úr konu sem reyndist hafa verið með hundaæði. Líffæragjafin lést eftir hjartaáfall á síðasta ári og við rannsókn virtist allt í lagi með líffæri hennar. 17.2.2005 00:01
Mjólkursamsalan og MBF sameinast Mjólkursamsalan mun renna inn í Mjólkurbú Flóamanna, samkvæmt tillögu sem stjórnir samvinnufélaganna kynna bændum á næstu dögum. Ekki er áformað að loka neinni af fimm mjólkurstöðvum þeirra í kjölfar sameiningarinnar sem taka á gildi í apríl. 17.2.2005 00:01
Dýrt spaug ef flug tefst Það getur verið þreytandi að bíða tímunum saman á flugvöllum eða jafnvel í flugvélum vegna tafa, en framvegis verður það líka dýrt spaug - fyrir flugfélögin. Nýjar Evrópureglur tóku í dag gildi sem gera ráð fyrir mun hærri greiðslum til farþega sem verða fyrir töfum. 17.2.2005 00:01
Mikið áfall fyrir Fischer Stuðningsmenn Bobbys Fischers eru sárir og reiðir yfir að allsherjarnefnd Alþingis skuli ekki leggja til að hann fái íslenskan ríkisborgararétt. Sæmundur Pálsson segir að þetta verði mikið áfall fyrir Fischer. 17.2.2005 00:01
Strætisvagn skemmdist í eldsvoða Strætisvagn stórskemmdist í eldsvoða í morgun. Afturhluti vagnsins stóð í björtu báli eftir að eldur kom upp í vélarrúminu. Engir farþegar voru um borð en vagnstjórar fá sérþjálfun í hvernig eigi að bregðast við svona óhöppum. 17.2.2005 00:01
Tveir harðir árekstar Tveir harðir árekstrar urðu með skömmu millibili í gærkvöldi í umdæmi lögreglunnar á Selfossi. 17.2.2005 00:01
16 milljónir í bætur vegna slyss Hæstiréttur hefur dæmt Útgerðarfélag Akureyringa til að greiða fyrrum háseta á Hólmadrangi sextán milljónir króna í skaðabætur vegna slyss sem varð um borð í skipinu haustið 1999. Hæstiréttur staðfesti þar með dóm Héraðsdóms Reykjavíkur. 17.2.2005 00:01
Bætur vegna ólöglegrar handtöku Ríkið hefur verið dæmt til að greiða karlmanni 90 þúsund króna bætur vegna ólöglegrar handtöku í tengslum við heimsókn forseta Kína til Íslands sumarið 2002. 17.2.2005 00:01
Fischer fær ekki ríkisborgararétt Á fundi allsherjarnefndar í gærmorgun var ákveðið að mæla ekki með því við Alþingi að bandaríska skákmanninum Bobby Fischer yrði veittur íslenskur ríkisborgararéttur að svo stöddu. 17.2.2005 00:01
Frumvarp um reykingabann Siv Friðleifsdóttir og þrír aðrir þingmenn lögðu í gær fram frumvarp á Alþingi um að reykingar yrðu alfarið bannaðar á veitinga- og skemmtistöðum, sem og við aðrar menningar- og félagssamkomur. 17.2.2005 00:01
Stöndum okkur verr en Írakar Siv Friðleifsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, benti á það í umræðum um kosningarnar í Írak á Alþingi í fyrradag að hlutfall kvenna á íraska þinginu væri hærra en á Alþingi Íslendinga. 17.2.2005 00:01
Bað til guðs - fékk skyldusparnað Viðbrögð þeirra sem eiga óvæntan glaðning í formi skyldusparnaðar hjá Íbúðalánasjóði eru oftast gleði blandin. Einn hafði beðið til guðs, af því að bíllinn hans bilaði. Þá datt bréf inn um lúguna hjá honum. Svíi, sem ekki hafði komið til landsins í 18 - 20 ár, eyddi sínum sparnaði á þjóðhátíð. 17.2.2005 00:01
Ræða þarf stöðu trúarlegra skóla Stefán Jón Hafstein, formaður menntaráðs Reykjavíkurborgar, hefur viðrað ugmyndir um hvernig breyta megi einkareknum skólum í borginni. Sagði hann meðal annars um Suðurhlíðarskóla, sem rekinn er af aðventistum, að hann væri rekinn á trúarlegum forsendum og ræða þyrfti stöðu borgarinnar gagnvart slíkum skólum. 17.2.2005 00:01
Kristinn H. tekinn í sátt Sættir náðust í gærkvöld milli Kristins H. Gunnarssonar og þingflokks Framsóknarflokksins er Kristni voru boðin að nýju sæti í sjávarútvegsnefnd og umhverfisnefnd, sem hann sat í áður en honum var vikið úr nefndum í haust. 16.2.2005 00:01
Milljónahækkanir í hverjum mánuði Formaður félags fasteignasala þvertekur fyrir að fasteignasalar sjálfir haldi íbúðaverði eins háu og þeim er mögulegt. Dæmi er um að íbúðir hafi hækkað um fjórar milljónir á þremur mánuðum. </font /></b /> 16.2.2005 00:01
Kyoto-sáttmálinn orðinn gildur Kyoto-sáttmálinn um losun gróðurhúsalofttegunda tók loks gildi í nótt, sjö árum eftir að hann var samþykktur. Til þess að sáttmálinn tæki gildi þurfti aðild landa sem bæru samanlagt ábyrgð á losun að minnsta kosti 55% prósenta gróðurhúsalofttegunda heimsins. 16.2.2005 00:01
Kalla sendiherra sinn heim Yfirvöld í Líbanon segja yfirgnæfandi líkur á að morðið á Rafik Hariri, fyrrverandi forsætisráðherra, í fyrradag hafi verið sjálfsmorðssprengjuárás. Þrátt fyrir það hafa Bandaríkjamenn kallað sendiherra sinn í Sýrlandi heim í kjölfar árásarinnar. 16.2.2005 00:01
10 mánuðir fyrir röð afbrota Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í gær tuttugu og sjö ára karlmann í tíu mánaða fangelsi og til greiðslu sekta til ýmissa aðilla fyrir óvenju skrautlegan afbrotaferil á skömmum tíma í fyrra. Þeim ferli lauk með því að hann var úrskurðaður í gæsluvarðhald í byrjun desember og hefur setið í því síðan. 16.2.2005 00:01
Bílvelta við Kambana Ökumaðaur jeppa slapp ómeiddur þegar jeppinn rann út af Suðurlandsvegi rétt ofan við Kamba í gærkvöldi og valt. Hálka var á vettvangi og skemmdist jeppinn talsvert. 16.2.2005 00:01
Hellisheiðin lokuð Kolvitlaust veður er nú á Hellisheiði og hefur henni verið lokað. Umferðin rétt mjakast áfram og nokkrir bílar hafa farið út af vegum. Innanlandsflug hjá bæði Íslandsflugi og Landsflugi liggur niðri vegna veðurofsans. 16.2.2005 00:01
Snarpur skjálfti nærri Tókýó Tuttugu og átta manns slösuðust í jarðskjálfta upp á 5,4 á Richter sem varð í grennd við Tókýó snemma í morgun. Engar alvarlegar skemmdir urðu í skjálftanum en nokkur truflun varð á lestarsamgöngum og hlutir féllu úr hillum í verslunum og heimahúsum. 16.2.2005 00:01
Rafmagnstruflanir í Borgarfirði Rafmagnstruflanir urðu í Borgarfirði í gærkvöldi vegna bilunar í svonefndri Mýralínu. Starfsmenn Rafmagnsveitna ríkisins fundu bilun í háspennulínunni og þurfti að taka straum af henni á meðan viðgerð fór fram en allt komst í lag síðar um kvöldið. 16.2.2005 00:01
Gefur Magasin falleinkunn Jóhannes Jónsson í Bónus gefur þjónustunni í Magasin du Nord, sem Baugur keypti nýverið, falleinkun í viðtali við <em>Jótlandspóstinn</em> í gær. Þar lýsir Jóhannes því að hann hafi verið staddur í Kaupmannahöfn og vantað ný föt, og auðvitað farið í Magasin. 16.2.2005 00:01
Þúsundir á götum Beirútar Þúsundir manna hafa safnast saman í Beirút, höfuðborg Líbanon, til þess að fylgjast með því þegar líkkista Rafiks Hariris, fyrrverandi forsætisráðherra landsins, verður flutt í gegnum borgina. Hariri var myrtur í sprengjuárás í fyrradag. Stór hluti þeirra sem safnast hafa saman bera skilti með áletruðum ókvæðisorðum um Sýrlendinga. 16.2.2005 00:01
Langfleygasta farþegavél heims Flugrisinn Boeing afhjúpuðu í gær langfleygustu farþegaflugvél í heimi. Vélin getur ferðast á milli nánast hvaða tveggja borga sem er í heiminum, án þess að millilenda. Þannig verður hægt að ferðast í beinu tuttugu tíma flugi á milli New York og Sidney í Ástralíu svo að dæmi sé tekið. 16.2.2005 00:01
Smástirni fer nærri Jörðu Föstudagurinn þrettándi verður ekki óhappadagur í apríl árið 2029. Þá mun smástirni á stærð við þrjá knattspyrnuvelli fara mjög nærri Jörðinni, án þess þó að rekast á hana. Þetta er mat stjörnufræðinga í Bretlandi. 16.2.2005 00:01
Slæmt ástand á Keflavíkurflugvelli Fjöldi manns bíður um borð í millilandaflugvélum við Flugstöðina á Keflavíkurflugvelli þar sem flugmenn leggja ekki í hann vegna vinds og blindu á vellinum. Sjálfar brautirnar eru hins vegar í lagi. 16.2.2005 00:01
Munu brátt geta smíðað kjarnavopn Ísraelsstjórn heldur því fram að aðeins sé hálft ár þar til stjórnvöld í Íran verði búin að koma sér upp allri þeirri þekkingu sem þau skortir nú til að smíða kjarnorkuvopn. 16.2.2005 00:01