Innlent

Tveir harðir árekstar

Tveir harðir árekstrar urðu með skömmu millibili í gærkvöldi í umdæmi lögreglunnar á Selfossi. Hinn fyrri varð rétt fyrir kvöldmatarleytið í Þrengslunum þar sem tveir bílar rákust á. Voru tveir fluttir á slysadeild í Reykjavík en meiðsl þeirra reyndist ekki alvarleg. Seinni áreksturinn átti sér stað rétt fyrir neðan Litlu kaffistofuna þar sem bifreið á fleygiferð lenti aftan á annarri. Einn var fluttur á slysadeild vegna verkja en meiðsl hans voru heldur ekki alvarleg.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×