Bush vill 5000 milljarða aukalega 25. janúar 2005 00:01
George W. Bush Bandaríkjaforseti mun óska eftir aukafjárveitingu frá bandaríska þinginu að andvirði 5000 milljarða króna til að standa straum af kostnaði af stríðsrekstrinum í Írak og Afganistan. Féhirðir Hvíta hússins kunngjörði þetta í gær. Verði þingið við ósk forsetans verður heildarkostnaður stríðsins gegn hryðjuverkum, sem hófst eftir 11. september 2001, kominn upp í sautján þúsund milljarða króna. Það er tæplega helmingur þess fés sem Bandaríkjamenn eyddu í fyrri heimsstyrjöld og í Víetnam stríðinu reiknað á núvirði og um sexföld þjóðarframleiðsla Íslands. Þrír fjórðu hlutar af aukafjárveitingunni munu renna til heraflans í Írak. Kostnaður vegna stríðsins er löngu farinn framúr áætlun. Á sínum tíma taldi efnahagsráðgjafi Bush að Írakstríðið myndi kosta bandaríska skattgreiðendur sex til tólf þúsund milljarða króna. Talið er líklegt að þingið samþykki aukafjárveitinguna sem verður ekki lögð formlega fyrir það fyrr en eftir að Bush hefur kynnt fjárlagafrumvarp sitt fyrir næsta ár hinn 7. febrúar næstkomandi. Leiðtogi minnihlutans á þingi, demókratinn Nancy Pelosi, segir að það sé ábyrgð þingsins að sjá bandarískum hermönnum fyrir því sem þá vantar en þingmenn munu fara fram á að Bush skýri stefnu sína og markmið í Írak svari hvað hann telji það mun kosta að ná þeim. Þá undrast hún á því að íraskir hermenn gegni ekki veigameira hlutverki við öryggisvörslu í landinu. Bandaríkjaþing hefur þegar veitt rúmlega 12.500 milljarða króna í stríðsið gegn hryðjuverkum. Þar af hafa rúmlega 7500 milljarðar farið í Íraksstríðið en þrjú þúsund milljarðar hafa farið til Afganistan. Þá hefur Bandaríkjaþing samþykkt sérstakar aukafjárveitingar til uppbyggingarstarfs og hafa um 1300 milljarðar króna hafa farið til Írak og 186 milljarðar til Afganistan.
Erlent Fréttir Mest lesið Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Trump hjólar í páfa Erlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Innlent Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Erlent Lágflugið vekur athygli erlendis Innlent Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Innlent Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ Innlent Orbán játar sig sigraðan Erlent Fleiri fréttir Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Augliti til auglitis í fyrsta sinn frá íslömsku byltingunni „Arc de Trump“ rísi í Washington Fullkomin lending eftir sögulega ferð Sakfelldur vegna sjálfsvígs eiginkonunnar Rasmussen setur þrýsting á Frederiksen Orbán gæti enn sigrað þrátt fyrir dökkt útlit í könnunum Hótaði Rutte hefndaraðgerðum í reiðilestri í Hvíta húsinu Enn barist í Líbanon og Trump ósáttur við Írani Hriktir í stoðum MAGA: Trump ævareiður vegna gagnrýni stuðningsmanna sinna Á fjórða hundrað féllu í árásinni á miðborg Beirút Landsstjórn Færeyja hvetur til olíuvinnslu Þvertekur fyrir nokkur tengsl Starfsemi friðarverðlaunahafa dæmd ólögleg í Rússlandi Bretar hvattir til að taka íslenskan þorsk fram yfir breskan Ný landsstjórn boðar óbreytt ríkjasamband við Danmörku Sjá meira