Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Þeir látnu jafnmargir Íslendingum Ljóst þykir að ekki færri en 280 þúsund manns hafi farist þegar flóðbylgjan mikla reið yfir ellefu ríki Asíu og Austur-Afríku á annan dag jóla. Óttast er að tugþúsundir til viðbótar kunni að hafa farist. Til samanburðar má nefna að Íslendingar voru 293 þúsund talsins 1. desember síðastliðinn. 25.1.2005 00:01
Vill fund Guðmundur Árni Stefánsson, Samfylkingunni, skýrði frá því á Alþingi í gær að hann hefði beðið formann utanríkismálanefndar um að halda fund í nefndinni fyrir hvatningu forsætisráðherra. 25.1.2005 00:01
Gaf leyfi til yfirflugs Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra staðfesti á Alþingi í gær að veitt hefði verið leyfi til yfirflugs yfir Ísland þremur vikum áður en ráðist var inn í Írak. Hann segir þetta ekki hafa verið stuðning við stríð. 25.1.2005 00:01
Hættustigi aflýst á Bíldudal Að höfðu samráði við snjóflóðavakt Veðurstofu Íslands hefur verið ákveðið að aflýsa hættustigi vegna snjóflóðahættu á Bíldudal og er íbúum, sem þurftu að rýma heimili sín í gærkvöldi, heimilt að fara heim á ný. 25.1.2005 00:01
Reynt að efla öryggi Falah al-Naqib, innanríkisráðherra Íraks, segir öryggismál landsins vera í nógu góðu horfi til þess að hægt verði að halda kosningar í landinu í lok mánaðarins. Hann kynnti nýjar öryggisráðstafanir, sem fela í sér að alþjóðaflugvöllurinn í Bagdad verður lokaður dagana 29. og 30. janúar. 24.1.2005 00:01
Viðbúnaðarástand á Vestfjörðum Viðbúnaðarástandi vegna snjóflóðahættu var lýst á öllum Vestfjörðum laust fyrir miðnætti. Það var gert með samráði sérfræðinga Veðurstofunnar og lögregluyfirvalda vestra. Hvergi hafa hús þó verið rýmd. Vitað er um að tvö lítil flóð féllu í Óshlíð í nótt. 24.1.2005 00:01
Jarðskjálfti í Indónesíu Þúsundir manna flúðu heimili sín á Sulawesi-eyjum í Indónesíu í morgun í kjölfar jarðskjálfta upp á 6,2 á richter. Einn maður lést í skjálftanum sem einnig skemmdi nokkur hús. Mikil skelfing greip um sig meðal íbúa sem að sögn vitna óttuðust að flóðbylgja kynni að fylgja í kjölfarið. 24.1.2005 00:01
Tíu særðust í sjálfsmorðsárás Að minnsta kosti tíu særðust í sjálfsmorðsárás í Bagdad í morgun sem átti sér stað nærri höfuðstöðvum Iyads Allawis, forsætisráðherra bráðabirgðastjórnarinnar. Sjálfur var Allawi ekki á svæðinu þegar árásin var framan. Svæðið hefur verið girt af og þyrlur sveima yfir vettvangi. 24.1.2005 00:01
Ekki skoðanir verkalýðsmálaráðs Sex menn úr forystu verkalýðshreyfinga og allir fulltrúar í verkalýðsmálaráði Samfylkingarinnar sendu í gærkvöldi frá sér yfirlýsingu þar sem þeir segja að skoðanir Gylfa Arnbjörnssonar, framkvæmdastjóra ASÍ, í hádegisfréttum Ríkisútvarpsins í gær séu ekki skoðanir verkalýðsmálaráðsins. 24.1.2005 00:01
Neyðarástand í Bandaríkjunum Neyðarástandi hefur verið lýst yfir í tveim fylkjum Bandaríkjanna vegna stórhríðar sem gekk yfir norðausturhluta landsins í gær. Í Maccachusetts og New Jersey féll meira en hálfur metri af snjó auk þess sem miklir vindar gengu þar yfir. 24.1.2005 00:01
80 kílómetrum yfir hámarkshraða Lögreglan í Grindavík stöðvaði í gærkvöldi ökumann eftir að hann hafði mælst á hundrað og þrjátíu kílómetra hraða á Víkurbraut þar sem hámarkshraði er aðeins fimmtíu kílómetrar. Hann var því vel yfir tvöföldum hámarkshraða og mun að líkindum missa ökuréttindi og fá háa sekt. 24.1.2005 00:01
Fresturinn framlengdur í Írak Frestur til að kjósa utan kjörfundar í Írak hefur verið framlengdur vegna dræmrar kjörsóknar. Meira en milljón Írakar í fjórtán löndum hafa átt þess kost að kjósa utan kjörstaða síðan í byrjun síðustu viku. Um miðjan dag í gær höfðu aðeins ríflega 130 þúsund, eða í kringum 13%, nýtt atkvæðarétt sinn. 24.1.2005 00:01
214 umsóknir í lóðir í Hveragerði Umsóknir frá níutíu og sex aðilum bárust í þrjátíu og tvær lóðir sem Hveragerðisbær auglýsti lausar nýverið. Sumir lögðu inn fleiri en eina umsókn og voru umsóknirnar alls 214. 24.1.2005 00:01
Hreinsa rústir vegna smithættu Fimmtán hundruð íbúar Srí Lanka sem misstu heimili sín vegna hamfaranna á annan í jólum hafa hafist handa við að hreinsa rústir á strandlengju landsins til þess að koma í veg fyrir hættu á smitsjúkdómum. Sólarorkusérfræðingur frá Alþjóðabankanum, sem kemur frá Srí Lanka, fékk ríflega tuttugu milljóna króna styrk til þess að ráða samlanda sína til verkefnisins. 24.1.2005 00:01
Leitin að bin Laden hert Bandaríkjastjórn mun líklega tvöfalda upphæðina sem sett hefur verið til höfuðs Osama bin Laden í lok febrúar. Tímaritið <em>Time</em> greinir frá þessu og segir upphæðina til höfuðs bin Laden því verða 50 milljónir bandaríkjadala að mánuði liðnum, eða ríflega 3 milljarðar íslenskra króna. 24.1.2005 00:01
Leit hafin að nýju Leit er hafin á nýjan leik að fórnarlömbum flóðbylgjunnar í Khoa Lak í Suður-Taílandi. Ofurstinn sem stýrir leitinni segir í viðtali við <em>Bangkok Post</em> að íbúar svæðisins hafi krafist þess að leitað yrði betur þar sem fjölda vina og aðstandenda væri enn saknað. Tvö hundruð manns með leitarhunda taka þátt í leitinni sem á að standa til 4. febrúar. 24.1.2005 00:01
Þrír létust í snjóflóði Að minnsta kosti þrír skíðamenn létu lífið í snjóflóði sem féll á vinsælum austurrískum skíðastað um helgina. Víða um heim hefur andstyggilegt vetrarveður valdið usla og mannskaða. 24.1.2005 00:01
Öll mismunun máð úr lögum Stjórn Sambands ungra sjálfstæðismanna hvetur þingmenn til þess að má úr lögum alla mismunun á grundvelli kynhneigðar. Stjórn SUS segir lög um staðfesta samvist og lög um tæknifrjóvganir fela í sér mismunun sem byggist á fordómum en ekki rökum. 24.1.2005 00:01
38% aukning innlendra útlána Samkvæmt gögnum sem Seðlabankinn birti síðastliðinn föstudag var aukning innlendra útlána bankanna alls um 305 milljarðar króna á síðasta ári, eða um 38%. Þetta er meira en helmingi hærri aukning en á árinu 2003 þegar hún nam 15%. 24.1.2005 00:01
Reiði Össurar tilefnislaus IMG Gallup er ekki að gera skoðanakönnun fyrir stuðningsmenn Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur, eins og Össur Skarphéðinsson hélt fram í fréttum Stöðvar 2 í gærkvöldi. Varaþingmaður Samfylkingarinnar segir Össur hafa sýnt tilefnislausa reiði með ummælum sínum. 24.1.2005 00:01
Vélsleða enn leitað Lögreglan á Selfossi leitar enn tveggja vélsleða sem hurfu frá Litlu kaffistofunni í Svínahrauni í fyrrinótt. Þeir voru af Ski Doo gerð og tilheyra vélsleðaleigu. Nokkrir vélsleðar voru einnig geymdir við Skíðaskálann í Hveradölum um helgina en þeir voru ekki hreyfðir. 24.1.2005 00:01
Erindi Fischers afhent Alþingi Forseta Alþingis, Halldóri Blöndal, var í morgun afhent erindi frá Bobby Fischer, fyrrverandi heimsmeistara í skák, þar sem hann óskar eftir því að Alþingi veiti honum íslenskan ríkisborgararétt. Það voru Garðar Sverrisson og Sæmundur Pálsson sem afhentu forseta Alþingis erindið fyrir hönd Fischers. 24.1.2005 00:01
Ingimundur hættir sem sendiherra Ingimundur Sigfússon sendiherra lætur af störfum þann 1. febrúar næstkomandi að eigin ósk. Ingimundur var fyrsti sendiherra Íslands með aðsetur í Japan en hann starfaði áður sem sendiherra í Þýskalandi, fyrst í Bonn og síðar í Berlín. Áður var Ingimundur forstjóri Heklu. 24.1.2005 00:01
Norðmenn sækja í barnaklám Sjö þúsund Norðmenn leituðu að barnaklámi á Netinu á einum sólarhring í október í fyrra samkvæmt rannsókn símafyrirtækisins Telenor og norsku lögreglunnar. Könnunin var gerð daginn áður en Telenor setti síur á þær heimasíður þar sem fyrirtækinu var kunnugt um að hægt væri að nálgast barnaklám. 24.1.2005 00:01
Snjóflóðahættan hefur minnkað Snjóflóðahættu var lýst yfir alls staðar á Vestfjörðum rétt fyrir miðnætti en engin íbúðarhús hafa verið rýmd. Snjórinn hefur þjappast mikið sem er góðs viti. Því hefur Veðurstofan ekki miklar áhyggjur einmitt núna en mun fylgjast vel með þróun mála í allan dag og jafnvel fram á nótt. 24.1.2005 00:01
Lykilmaður Al-Zarqawis handtekinn Írakskir þjóðvarnarliðar hafa handtekið lykilmann innan uppreisnarhóps Abu Musabs Al-Zarqawis. Maðurinn, sem kallar sig Abu-Omar al Kurdi, er sakaður um að hafa staðið á bak við þrjátíu og tvær bílsprengjuárásir síðan innrásin í Írak hófst. Hann hefur verið í haldi í rúma viku en ekki var tilkynnt um handtökuna fyrr en í morgun. 24.1.2005 00:01
Hervélmenni notuð í Írak Bandaríkjaher telur sig hafa fundið svarið við því hvernig eigi að ráða niðurlögum írakskra uppreisnarhópa. Verið er að setja saman sérsveit vélmenna sem send verða á vígvöllinn í mars. 24.1.2005 00:01
Uppgröftur á fornminjum Hrafnkels Landsvirkjun hefur óskað eftir tilboði í að grafa upp rústir sem taldar eru vera af seli Hrafnkels Freysgoða, sem uppi var á tíundu öld, en munu fara á kaf í Kárahnjúkalóni. Þetta eru tvær rústir sem hvor um sig er u.þ.b. 18 x 8 metrar að flatarmáli og eru á svonefndum Hálsi við Jökulsá á Brú, sunnan við Kárahnjúka. 24.1.2005 00:01
Júsjenko útnefnir forsætisráðherra Viktor Júsjenko, nýkjörinn forseti Úkraínu, hefur útnefnt Juliu Tymoschenko sem forsætisráðherra landsins. Þingið í Úkraínu verður að samþykkja val Júsjenkos áður en forsætisráðherrann getur formlega tekið til starfa. 24.1.2005 00:01
Tók myndir inni á kvennasalerni Ungur maður á yfir höfði sér sektir fyrir brot á blygðunarsemi en hann var staðinn að því að taka myndir af konu á kvennasalerni á skemmtistað í bænum aðfararnótt sunnudags. Konan varð hans vör og kallaði á lögreglu sem handtók hann á staðnum og lagði hald á minniskubb úr stafrænni myndavél sem hann notaði til verksins. 24.1.2005 00:01
Alþingismönnum afhent virkjanakort Náttúruverndarsamtökin tíu sem standa að útgáfunni „Ísland örum skorið“ afhentu alþingismönnum kort nú á þriðja tímanum þar sem sést hver árif virkjanaframkvæmda á landið verða á næstu fimmtán árum, ef farið verður að stefnu stjórnvalda. 24.1.2005 00:01
Viagra gott við hjartasjúkdómum Getuleysislyfið Viagra gæti komið að notum í baráttunni gegn hjartasjúkdómum samkvæmt niðurstöðum nýrrar rannsóknar. Í rannsókninni var virkni Viagra á hjartastarfsemi músa rannsökuð og í ljós kom að hjarta þeirra músa sem fengu lyfið stækkaði síður en hjartað í öðrum músum. 24.1.2005 00:01
Utanríkismálanefnd má birta gögnin Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra sagði á Alþingi í dag að utanríkismálanefnd mætti sín vegna birta það sem henni sýndist um umræður um aðdraganda stríðsins í Írak. Össur Skarphéðinsson, alþingismaður og formaður Samfylkingarinnar, skoraði á Halldór að hreinsa loftið með því að aflétta trúnaði af eigin ummælum í fundargerðum nefndarinnar. 24.1.2005 00:01
Sendi póstinn sökum þunglyndis Breskur maður sem sendi ættingjum þeirra sem týndust í hamförunum annan í jólum falsaðan tölvupóst var í dag dæmdur í hálfs árs fangelsi. Í tölvupósti sem maðurinn sendi til fjölda manna var sagt staðfest að viðkomandi ættingi sem saknað var hefði látist í hamförunum, þrátt fyrir að maðurinn hefði engar sannanir fyrir því. 24.1.2005 00:01
Húsaleiga hefur margfaldast Gríðarleg aukning á sér stað á húsnæðismarkaði og í byggingu verslunar- og skrifstofuhúsnæðis á Egilsstöðum og hefur verð á húsnæði hækkað gríðarlega. Sama gildir um húsaleigu. </font /></b /> 24.1.2005 00:01
Atvinnuleyfin gefin út í dag Búist er við að í dag liggi fyrir niðurstaða í vinnu ráðuneytisstjóranefndarinnar og í framhaldi af því verði gefin út atvinnuleyfi fyrir hóp erlendra verkamanna til starfa hjá Impregilo. 24.1.2005 00:01
Hlýnunin að verða óumflýjanleg Eftir tíu ár kann að vera orðið of seint að snúa við þeirri þróun sem kennd er við hlýnun jarðar. Afleiðingarnar, ef svo fer, verða gífurlegar og geta meðal annars leitt til bráðnunar Grænlandsjökuls og þess að Golfstraumurinn hætti að ganga en hann gerir Ísland byggilegt. 24.1.2005 00:01
Fyrrum ráðherra í fangelsi Ray Burke, fyrrum dómsmálaráðherra Írlands, var í gær dæmdur í hálfs árs fangelsi fyrir skattsvik. Burke er fyrsti háttsetti stjórnmála- eða embættismaðurinn sem dæmdur er í fangelsi í kjölfar átta ára langrar rannsóknar á spillingu hátt settra stjórnmálamanna. Áður hafa nokkrir þingmenn verið dæmdir í fangelsi. 24.1.2005 00:01
Kráakeðja bannar reykingar Wetherspoons, öldurhúsakeðjan breska, hefur ákveðið að banna reykingar á öllum 650 öldurhúsum sínum frá maí á næsta ári. Reykingabannið tekur þó gildi enn fyrr, eða í maí næstkomandi, á sextíu öldurhúsum Wetherspoons. 24.1.2005 00:01
Kosningarnar þegar tapaðar Helsti ráðgjafi Michaels Howard, leiðtoga íhaldsmanna, vegna komandi þingkosninga í Bretlandi, hefur ráðlagt honum að einbeita sér að því í kosningabaráttunni að minnka forskot Verkamannaflokksins. Ekki þýði að setja markið hærra því kosningarnar séu þegar tapaðar. 24.1.2005 00:01
Júsjenkó heldur til vesturlanda Framtíðarsýn Viktors Júsjenkó fyrir Úkraínu vísar í vesturátt en hann hélt í austur í fyrstu opinberu heimsókn sína eftir að hann tók við embætti forseta Úkraínu. Júsjenkó hélt til fundar við Vladimir Pútín Rússlandsforseta í gær þar sem þeir ræddu samskipti ríkjanna. 24.1.2005 00:01
Hryðjuverkaforingi handtekinn Íraska lögreglan hefur handtekið sprengjugerðarmann sem talinn er hafa staðið að nokkrum mannskæðustu bílsprengjuárásunum í Írak, þeirra á meðal árásinni á höfuðstöðvar Sameinuðu þjóðanna í ágúst 2003 og árás á helgireit í Najaf sem kostaði 85 manns lífið. 24.1.2005 00:01
Spilling í áfengiseinkasölu Norska áfengiseinkasalan hefur ráðið utanaðkomandi lögfræðing til að rannsaka hvort starfsmenn stofnunarinnar hafi þegið mútur af áfengisheildsölum. Fjórtán manns sæta rannsókn á því hvort þeir hafi þegið óeðlilegar gjafir. 24.1.2005 00:01
Órofa tengsl Samskipti verkalýðshreyfingarinnar og Samfylkingarinnar hafa talsvert verið til umræðu. Slík tengsl eiga sér langa sögu í íslenskum stjórnmálum og hafa velflestir flokkar kappkostað við að hafa ítök í launþegahreyfingunum og þær um leið í flokkunum. 24.1.2005 00:01
Stuðningurinn hófst í febrúar 2003 Íslensk stjórnvöld gáfu leyfi til þess í febrúar árið 2003 að herflugvélar gætu flogið um íslenska lofthelgi og haft hér viðdvöl vegna innrásar í Írak. Listi hinna staðföstu þjóða var ekki birtur fyrr en 18. mars. Í millitíðinni töluðu formenn stjórnarflokkanna í austur og vestur í afstöðunni til Íraksdeilunnar. 24.1.2005 00:01