Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Ótryggt ástand í Aceh-héraði Stjórnvöld í Indónesíu hafa bannað hjálparstarfsmönnum að fara án sérstaks leyfis inn á nokkur svæði í Aceh-héraði sem hafa orðið illa úti í hamförunum á annan dag jóla. Herinn segist ekki geta tryggt öryggi fólksins en í Aceh-héraði hefur undanfarna áratugi staðið yfir blóðug barátta stjórnarhersins og sjálfstæðissinna í héraðinu. 11.1.2005 00:01
Enginn póstur mánuðum saman Íbúar Ascenion-eyja í Suður-Atlantshafi hafa nánast engan póst fengið síðan í október. Eyjan heyrir undir Bretland en póstþjónustan þar í landi hefur sent póstinn af misgáningi til Suður-Ameríku, m.a. til höfuðborgar Paragvæ sem heitir Assuncion. 11.1.2005 00:01
Teknir með 10 kíló af hvítu efni Tveir íslenskir sjómenn af togaranum Hauki ÍS hafa verið úrskurðaðir í allt að sex mánaða gæsluvarðhald eftir að u.þ.b. tíu kíló af hvítu fíkiniefni fannst í fórum þeirra í Þýskalandi á fimmtudag. 11.1.2005 00:01
Vilja 400 milljarða í hjálparstarf Sameinuðu þjóðirnar vilja að þjóðir heims leggi fram sem svarar 400 milljörðum íslenskra króna til hjálparstarfs á hamfarasvæðunum í Asíu. Þegar hafa safnast rúmlega 250 milljarðar. Rætt verður í dag hvernig fénu er best varið og hvernig hægt verði að tryggja að það renni raunverulega til hjálparstarfs. 11.1.2005 00:01
Neyðarhjálp úr norðri hefst í dag Landssöfnunin „Neyðarhjálp úr norðri“ fyrir þá sem lifðu af hamfarirnar í Asíu hófst í dag. Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Íslands, er verndari söfnunarinnar. Auk almennings leggja þrjár sjónvarpsstöðvar, þrjár verslunarmiðstöðvar, níu útvarpsstöðvar, þrjú dagblöð, listamenn og fyrirtæki sitt af mörkum til að styðja neyðarstarfið. 11.1.2005 00:01
Snjóflóðahætta liðin hjá Íbúar í tveimur íbúðarhúsum af þremur á bæjum í Reynishverfi í Mýrdal, sem þurftu að yfirgefa heimili sín í gærkvöldi, fengu að snúa aftur heim fyrir stundu. Fólkið rýmdi hús sín að tilmælum Almannavarnanefndar Vestur-Skaftafellssýslu og gistu á öðrum bæjum í nótt. 11.1.2005 00:01
Með kíló af kókaíni innvortis Tæplega þrítugur Ungverji hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald eftir að röntgenmyndataka leiddi í ljós að áttatíu fíkniefnahylki voru í meltingarvegi hans við komuna til landsins frá París þann 30. desember síðastliðinn. Eftir að hylkin voru gengin niður af honum kom í ljós að þau innihéldu tæpt kíló af mjög hreinu kókaíni. 11.1.2005 00:01
Niðurstaða um mánaðamótin Stefnt er að því að niðurstaða áfrýjunarnefndar samkeppnismála vegna verðsamráðs olíufélaganna liggi fyrir um mánaðamótin. Formaður nefndarinnar segir ekkert óvænt hafa komið fram í málinu á tólf tíma löngum fundi með lögmönnum olíufélaganna í gær. 11.1.2005 00:01
Aðallega þörf á peningum Enginn skortur er á hjálpargögnum eða hjálparstarfsmönnum á hamfarasvæðunum á Indónesíu. Fyrst og fremst er þörf á peningum til framtíðaruppbyggingar á hamfarasvæðunum segir Ómar Valdimarsson, sendifulltrúi Rauða krossins. 11.1.2005 00:01
Íslenskur sjávarútvegur viðmiðið Breski Íhaldsflokkurinn hefur tekið upp nýja sjávarútvegsstefnu sem meðal annars byggist á reynslu Íslendinga í sjávarútvegi. 11.1.2005 00:01
Hálka víðast hvar Hálka og vetrafærð er á landinu. Búið er að moka Klettsháls og Ísafjarðardjúp. Þæfingur er á Þverárfjalli, éljagangur á Öxnadalsheiði, á Ausfjörðum er Öxi ófær og snjóþekja og éljagangur er á Suðurlandi. 11.1.2005 00:01
Inflúensa herjar á landsmenn Inflúensa sem fyrst varð vart um miðjan desember er komin á flug hér á landi og er mikið um veikindi meðal landsmanna. Inflúensan er af svokölluðum A-stofni. Helstu einkenni hennar eru að menn veikjast snögglega og henni fylgja meðal annars beinverkir, hálsverkir og hósti og talsvert hefur verið um kviðóþægindi hjá börnum. 11.1.2005 00:01
Sharon ræddi við Abbas Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels, hringdi fyrr í dag í Mahmoud Abbas, nýkjörinn forseta Palestínu, til að óska honum til hamingju með sigurinn í kosningunum á sunnudag. Að sögn palestínsks ráðamanns ræddu þeir saman í um tíu mínútur en hann vildi ekki láta uppi hvert umræðuefnið var. 11.1.2005 00:01
Karl Th. hættur hjá Samfylkingunni Karl Th. Birgisson, framkvæmdastjóri Samfylkingarinnar, hefur sagt starfi sínu lausu frá og með nýliðnum áramótum. Karl hefur verið framkvæmdastjóri flokksins síðan sumarið 2002. 11.1.2005 00:01
17 milljónir í íþróttaverkefni Menntamálaráðherra hefur samþykkt tillögur Íþróttanefndar um tæplega sautján milljóna króna styrkveitingar úr íþróttasjóði til sextíu og fjögurra verkefna fyrir árið 2005. Umsóknarfrestur um styrki úr sjóðnum vegna verkefna á árinu rann út í október síðastliðnum. Alls bárust 113 umsóknir. 11.1.2005 00:01
Safnað fyrir fórnarlömb Tsunami Hljómsveitirnar Manic Street Preachers, Snow Patrol, Embrace og söngvarinn Badly Drawn Boy hafa öll staðfest mætingu á Live-Aid tónleikana á Þúsaldarleikvanginum í Cardiff til styrktar fórnarlömbum hamfaranna í Asíu. Einnig munu Eric Clapton, Feeder og Lemar koma fram á tónleikunum, sem haldnir verða þann 22. janúar. 11.1.2005 00:01
Geðsjúkir rifnir upp með rótum Arnarholti verður lokað um næstu mánaðarmót. Aðstandandi sjúklings þar segir það ómannúðlegt að fólkið skuli rifið upp með rótum og flutt annað, í sparnaðarskyni, jafnvel til bráðabirgða. Enn er eftir að flytja 18 manns af 30. </font /></b /> 11.1.2005 00:01
Miltisbrandur undir Hlemmi Nautgripur sem drapst af miltisbrandi er grafinn undir Hlemmi í Reykjavík. Hann var frá bóndabýlinu Sunnuhvoli í Reykjavík. Fornleifavernd ríkisins hyggst styðjast við gildandi lög um að stöðva framkvæmdir ef grunur leikur á miltisbrandsmengun. </font /></b /> 11.1.2005 00:01
Ríkið sýknað af 11 milljóna kröfu Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði í morgun íslenska ríkið af rúmlega ellefu milljón króna skaðabótakröfu erfingja konu sem svipt var fjárræði. Konan lést árið 2000 en sýslumaður skipaði henni lögráðamann fyrir tólf árum sem hafði dregið sér hluta af fé hennar. 11.1.2005 00:01
Bretunum sleppt frá Guantanamo Bandaríska varnarmálaráðuneytið greindi fá því í dag að ákveðið hefði verið að sleppa fljótlega síðustu fjórum Bretunum, og einum Ástrala, sem verið hafa í haldi í hinu alræmda fangelsi í Guantanamo á Kúbu. Mennirnir hafa verið í haldi vegna gruns um aðild að hryðjuverkjum en það er loks nú, eftir margra mánaða samningaþóf, sem þeim verður sleppt. 11.1.2005 00:01
Fjárhagsáætlunin í uppnámi Fjárhagsáætlun Seltjarnarnesbæjar er í uppnámi eftir að Skipulagsstofnun vísaði aðalskipulagstillögu meirihluta Sjálfstæðismanna heim í hérað á ný. Í fjárhagsáætlun 2005, sem samþykkt var 24. nóvember síðastliðinn með atkvæðum meirihluta sjálfstæðismanna, er ráðgert að selja land Hrólfskálamels og Suðurstrandar og er áætlað söluverð 350 milljónir króna. 11.1.2005 00:01
Nýr heimavarnarráðherra BNA George Bush, forseti Bandaríkjanna, tilnefndi í dag Michael Chertoff í embætti heimavarnarráðherra í stað Toms Ridge. Chertoff hefur starfað sem dómari við bandarískan áfrýjunardómstól og meðal annars tekið þátt í að móta stefnu Bandaríkjastjórnar gagnvart hryðjuverkum í kjölfar hryðjuverkaárásanna í New York og Washington 11. september 2001. 11.1.2005 00:01
Í gæsluvarðhaldi í Þýskalandi Tveir íslenskir sjómenn hafa verið úrskurðaðir í að minnsta kosti sex mánaða gæsluvarðhald eftir að lögreglan í Bremerhaven lagði hald á þrjú og hálft kíló af kókaíni og annað eins af hassi í fórum þeirra. Þeir hafa neitað allri samvinnu við lögreglu. 11.1.2005 00:01
Litlu þorpin verða útundan Mikil áhersla er lögð á að koma ferðamannastöðum á Taílandi í samt lag sem fyrst. Í litlu þorpunum í kring, þar sem engir ferðamenn koma, vinna íbúarnir hins vegar þrekvirki upp á eigin spýtur við að endurreisa þorp sín með lítilli hjálp þar sem hún beinist öll að vinsælu fjölförnu stöðunum. 11.1.2005 00:01
Ráðuneytisstjórar ganga í málið Ákveðið hefur verið að allir ráðuneytisstjórarnir í stjórnarráðinu fari yfir stöðu mála á Kárahnjúkum og gagnrýni verkalýðshreyfingarinnar og komi með tillögur um það hvort og þá hvað mætti fara til betri vegar. 11.1.2005 00:01
Alþjóðlegur stuðningur í glímunni Fulltrúar ítölsku verkalýðsfélaganna og Alþjóða byggingasambandsins koma til Íslands í næstu viku til að styðja íslenska verkalýðshreyfingu. Reynt verður að ná alþjóðlegu samkomulagi við Impregilo. </font /></b /> 11.1.2005 00:01
Ígildi góðrar starfslokagreiðslu Mikill munur er á greiðslu lífeyris til opinberra starfsmanna og launþega á almennum markaði. Munurinn getur verið ígildi 10-20 milljóna króna starfslokagreiðslu. </font /></b /> 11.1.2005 00:01
Skattskyldan er tvímælalaus Enginn vafi leikur á því að portúgalskir leigustarfsmenn Impregilo eigi að borga skatta á Íslandi, að sögn Indriða H. Þorlákssonar ríkisskattstjóra. 11.1.2005 00:01
Mikil loðnuveiði fyrir austan Miklu magni af loðnu hefur verið landað á Austfjörðum undanfarna daga. Fyrstu loðnunni var landað 5. janúar í Neskaupstað. Gunnþór Ingvarsson, aðstoðarmaður forstjóra hjá Síldarvinnslunni, segir að veiðin líti vel út. 11.1.2005 00:01
Tillögur um framkvæmdastjóra Starfshópur á vegum borgarstjóra hefur lagt til að Óskar Dýrmundur Ólafsson, Ragnar S. Þorsteinsson, Hafdís Gísladóttir og Aðalbjörg Traustadóttir verði ráðin framkvæmdastjórar nýrra þjónustumiðstöðva Reykjavíkurborgar. Umsóknarfrestur rann út 28. nóvember og bárust 67 umsóknir. 11.1.2005 00:01
Dýrara í Bláfjöll Íþrótta- og tómstundaráð Reykjavíkur hækkaði um áramótin gjöld fyrir skíðaiðkun í Bláfjöllum. Daggjaldið verður 1.200 krónur á dag fyrir fullorðna og 500 krónur fyrir börn þangað til að ný stólalyfta verður tekin í notkun í febrúar. Þá hækka daggjöld á virkum dögum í 1.300 krónur og í 1.500 krónur um helgar. 11.1.2005 00:01
Tímasetning landsfundar enn óráðin Framkvæmdastjórn Samfylkingarinnar mun ákveða það í kringum næstu mánaðamót hvort landsfundur flokksins fari fram í vor eða haust. Málið var rætt á fundi framkvæmdastjórnarinnar í fyrradag en ákvörðun var frestað til næsta fundar. 11.1.2005 00:01
Farsímanotkun sögð hættuleg börnum Börn yngri en átta ára eiga ekki að nota farsíma að mati William Stewart, formanns breskrar nefndar sem fjallar um geislavarnir. Að hans mati stafar börnum hætta af geislun frá símunum þrátt fyrir að það hafi ekki verið sannað. 11.1.2005 00:01
Hrapaði næstum í sjóinn Bandarískum flugmanni tókst að lenda heilu og höldnu í Keflavík í gærkvöld eftir að flugvél hans missti afl. Hann sveif hátt í fjörutíu sjómílur áður en honum tókst að ræsa mótorinn aftur. Mikill viðbúnaður var vegna atviksins. 11.1.2005 00:01
Gætu fengið fimmtán ára fangelsi Tveir skipverjar Hauks ÍS hafa verið úrskurðaðir í sex mánaða gæsluvarðhald í Þýskalandi. Tuttugu til þrjátíu tollverðir og lögreglumenn með fíkniefnaleitarhunda gerðu innrás í skipið í Bremerhaven þar sem afla skipsins hafði verið landað. </font /></b /> 11.1.2005 00:01
Veit ekki um afdrif margra vina Renuka Perera, starfsmaður Alþjóðahússins, er frá Sri Lanka en hún hefur enn ekki heyrt um afdrif margra ættingja sinna. Systir Renuku og nánasti ættingi á Sri Lanka er á lífi en heimili hennar eyðilagðist í flóðbylgjunni. 11.1.2005 00:01
Íslendingar þekkja hamfarir Neyðarhjálp úr norðri nefnist sameiginlegt átak í landssöfnun sem formlega hófst í gær vegna hamfaranna í Asíu. Vigdís Finnbogadóttir, fyrrum forseti Íslands, er verndari söfnunarinnar. 11.1.2005 00:01
Nefnd skoðar ásakanir á Impregilo Sérstakri nefnd ráðuneytisstjóra verður falið að rannsaka þær ásakanir sem hafa komið fram á verktakafyrirtækið Impreglio. Þetta var samþykkt á ríkisstjórnarfundi í morgun en alls heyra umsvif fyrirtækisins hér á landi undir tíu ráðuneyti. 11.1.2005 00:01
Metútgjöld til heilbrigðismála Bandaríkjamenn hafa aldrei varið hærra hlutfalli af þjóðartekjum í heilbrigðismál en árið 2003. Alls vörðu þeir 1,7 billjónum dollara, andvirði um 108 billjóna (með tólf núllum) króna. Þetta nemur 15,3% af vergri þjóðarframleiðslu og er það í fyrsta skipti sem útgjöld til heilbrigðismála fara yfir fimmtán prósent af vergri þjóðarframleiðslu. 11.1.2005 00:01
Forsetinn brást þjóð sinni Levy Mwanawasa, forseti Afríkuríkisins Sambíu, sagðist í viðtali við BBC hafa brugðist þjóð sinni. Hann ætlar þó ekki að segja af sér. "Því miður gerðu Sambíumenn mistök með því að kjósa mig forseta, þeir sitja uppi með mig," sagði hann í viðtalinu. 11.1.2005 00:01
Abbas og Sharon ætla að hittast Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels, og Mahmoud Abbas, nýkjörinn forseti heimastjórnar Palestínu, ræddust í gær við í síma og samþykktu að funda saman innan skamms. Þó engin dagsetning hafi verið ákveðin er búist við því að fundur þeirra verði haldinn innan hálfs mánaðar. 11.1.2005 00:01
Helftin sátt við Bush Naumur meirihluti Bandaríkjamanna er sáttur við frammistöðu George W. Bush Bandaríkjaforseta samkvæmt nýrri skoðanakönnun sem Gallup gerði fyrir CNN og dagblaðið USA Today. 52 prósent eru ánægð með frammistöðu hans en 44 prósent óánægð. 11.1.2005 00:01
Brown vinsælli en Blair Fylgi breska Verkamannaflokksins myndi aukast verulega ef Gordon Brown fjármálaráðherra tæki við leiðtogahlutverkinu af Tony Blair forsætisráðherra. Þetta er niðurstaða skoðanakönnunar sem gerð var fyrir dagblaðið The Independent og birt var í gær. 11.1.2005 00:01
1,3 milljarðasti Kínverjinn fæddur Kínverjar eru orðnir 1,3 milljarðar talsins og upphófst mikið fjölmiðlafár þegar tímamótabarnið, Zhang Yichi, fæddist síðasta fimmtudag. Í kjölfarið buðu fyrirtæki foreldrum hans gull og græna skóga fyrir að láta hann koma fram í auglýsingum, svo sem fyrir bleyjur og þurrmjólk, að því er BBC greinir frá. 11.1.2005 00:01
Varað við hamfarasvindlurum FBI hefur varað fólk við því að svindlarar hafi sett upp síður til þess að hafa fé af fólki undir því yfirskyni að peningarnir eigi að renna til þeirra sem eiga um sárt að binda vegna náttúruhamfaranna í Asíu, peningarnir nýtist hins vegar aldrei þeim sem á þurfa að halda heldur svindlurunum sem féfletta fólk með þessum hætti. 11.1.2005 00:01