Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Minnast þeirra sem fórust Næsta sunnudag verða liðin tíu ár frá því að fjórtán manns biðu bana í Súðavík þegar snjóflóð féll á bæinn. Af þessu tilefni verður haldin minningarguðsþjónusta í íþróttahúsinu í Súðavík og hefst hún klukkan tvö á sunnudaginn. 11.1.2005 00:01
Gatnamótin færast til norðurs Gatnamót Suðurlandsvegar og Þrengslavegar færast til um 1,5 kílómetra til norðurs þegar byggð verða ný mislæg gatnamót. Þá verður lagður nýr vegkafli í tengslum við breytinguna sem verður um þriggja kílómetra langur. 11.1.2005 00:01
Órólegur snjór miðað við magn Meira hefur verið um snjóflóð á Vestfjörðum undanfarið en snjódýptartölur segja til um, að sögn Trausta Jónssonar, veðurfræðings á Veðurstofu Íslands. 11.1.2005 00:01
Fordæmalaus neyðaraðstoð Þjóðir heims hafa heitið 320 milljörðum íslenskra króna til hjálparstarfs á hamfarasvæðunum. Aðstoð af þessari stærðargráðu á sér ekkert fordæmi og hefur komið í veg fyrir hungur og farsóttir á hamfarasvæðunum, að sögn Sameinuðu þjóðanna. Stærsta áhyggjuefnið er að tryggja að öllu söfnunarfénu verði varið í þágu fórnarlambanna. 11.1.2005 00:01
Óbreyttar veiðiheimildir Botnfiskveiðar Færeyinga við Ísland verða óbreyttar á þessu ári frá því sem verið hefur. Þetta var meðal niðurstaðna viðræðna landstjórnarmannsins Björns Kalsös, sem fer með sjávarútvegsmál í Færeyjum og Árna M. Mathiesens sjávarútvegsráðherra á mánudag, en þeir funduðu í Reykjavík til að ræða fiskveiðisamning Færeyja og Íslands. 11.1.2005 00:01
Fjórir buðu í stálvírinn Fimm tilboð bárust Landsvirkjun í stálvír fyrir Fljótsdalslínur 3 og 4, en þau voru opnuð á mánudag. Hæsta boð kom frá Westfälische Drahtindustrie GmbH upp á 71,4 milljónir króna, en það var það eina sem var yfir kostnaðaráætlun. 11.1.2005 00:01
Hampiðjan til Litháens Hundrað störf hafa verið lögð af í Reykjavík við flutning verksmiðju Hampiðjunnar til Litháens. Þetta er tæpur fjórðungur áætlaðra starfa í álverinu á Reyðarfirði. 11.1.2005 00:01
Ölgerðin kærir Ölgerð Egils Skallagrímssonar hefur kært úrskurð Umhverfis- og heilbrigðisstofu Reykjavíkur vegna banns við dreifingu á drykknum Kristal Plús. 11.1.2005 00:01
Álagning lækkar Á fundi bæjarstjórnar Hafnarfjarðar í gær var ákveðið að halda aukafund á mánudag til að ræða frekar lækkun álagningar fasteignaskatts. Lúðvík Geirsson bæjarstjóri segir að allir hafi verið sammála um að lækka álagningu, en fram á mánudag verði farið yfir tölur um hversu mikið eigi að lækka. 11.1.2005 00:01
Álagning hækkar ekki Á morgun mun Steinunn Valdís Óskarsdóttir borgarstjóri leggja fyrir borgarráð tillögu um að álagningarprósenta fasteignaskatts muni ekki hækka, líkt og gert er ráð fyrir samkvæmt fjárhagsáætlun borgarinnar sem samþykkt var í desember. 11.1.2005 00:01
Segir fjármálin í uppnámi Vegna athugasemda Skipulagsstofnunar við tillögu bæjarstjórnar á Seltjarnarnesi að aðalskipulagi er boðað frekara samráðs við íbúa um skipulagsmál. 11.1.2005 00:01
Sértekjurnar skipta sköpum Samkvæmt rekstraruppgjöri Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri (FSA) fyrir tímabilið janúar til nóvember í fyrra er afkoman í heildina í samræmi við fjárlög. 11.1.2005 00:01
Uppbyggingarstarfið gríðarlegt Ágætlega gengur að koma hjálpargögnum til flestra hamfarasvæðanna í Asíu, en uppbyggingarstarfið sem blasir við er gríðarlegt. Á Srí Lanka þurfa um tvö hundruð þúsund fjölskyldur á aðstoð að halda og enn er verið að grafa látna. Fréttamaður Stöðvar 2, Ingólfur Bjarni Sigfússon, er staddur á eynni. 11.1.2005 00:01
Framkvæmdastjóri hættir Karl Th. Birgisson, framkvæmdastjóri Samfylkingarinnar, hefur sagt upp störfum. "Þetta hefur átt sér alllangan aðdraganda. Ég ætla að láta gamlan draum rætast" segir Karl. 11.1.2005 00:01
Snjóflóðahættu að hluta aflýst Snjóflóðahættu í Reynishverfi við Vík í Mýrdal hefur að hluta verið aflétt. Heimilisfólki á bæjunum Lækjarbakka og Reyni hefur verið leyft að snúa heim. 11.1.2005 00:01
Klórinn ekki mál ráðuneytisins Umhverfisráðuneytið telur ekki ástæðu til að aðhafast vegna vinnslu klórs í Kópavogi án starfsleyfis á þessu stigi málsins. Ráðuneytisstjóri segir að treysta verði Heilbrigðiseftirliti bæjarins til að tryggja öryggi íbúa svæðisins. 11.1.2005 00:01
Kjaraviðræðum ÍJ frestað Ákveðið hefur verið að fresta kjaraviðræðum samninganefnda eigenda og starfsmanna Íslenska járnblendifélagsins á Grundartanga í nokkra daga. 11.1.2005 00:01
FBI varar við fölskum heimasíðum Bandaríska alríkislögreglan, FBI, hefur sent út aðvörun vegna falskra heimasíðna sem gefa sig út fyrir að vera söfnunarsíður til handa fórnarlömbum flóðanna í Asíu. Heimasíðurnar líkjast raunverulegum söfnunarsíðum en ef greiddur er peningur inn á uppgefna staði komast þeir aldrei til skila til þeirra sem þurfa á þeim að halda. 11.1.2005 00:01
Grænmetisframleiðslan í óvissu Að öllu óbreyttu stórhækkar verð á rafmagni til garðyrkjubænda um næstu mánaðamót. Unnið er að lausn málsins því verði ekki að gert mun grænmetisframleiðsla í landinu leggjast af. 10.1.2005 00:01
Látinna Svía minnst Svíar halda í dag minningarathöfn um þá sem létust í kjölfar hamfaranna í Asíu á annan dag jóla. Athöfnin verður haldin í ráðhúsinu í Stokkhólmi klukkan tíu að íslenskum tíma og þar verður konungsfjölskyldan sænska og flestir ráðamenn landsins. 10.1.2005 00:01
Tvær bílveltur í hálkunni Fimm manns sluppu ómeiddir þegar bíll sem fólkið var í valt út af Vesturlandsvegi á móts við afleggjarann að Bröttubrekku síðdegis í gær. Tveir menn sluppu líka þegar bíll þeira valt út af Biskupstungnabraut á móts við Svínavatn síðdegis. Mikil hálka var á báðum stöðum. 10.1.2005 00:01
Aðstoðarlögreglustjóri myrtur Aðstoðarmaður lögreglustjórans í Bagdad var myrtur fyrir utan heimili sitt í morgun. Skæruliðar sátu fyrir manninum og syni hans og skutu þá báða til bana. 10.1.2005 00:01
Ekkert lát á loðnuveiðum Ekkert lát er á loðnuveiðunum norður af Langanesi og er langmest af aflanum fryst til manneldis. Hafrannsóknaskipið Árni Friðrikssson er að kortleggja göngurnar og er þess vænst að niðurstöður liggi fyrir upp úr miðri vikunni og að þá verði aukið verulega við kvótann. 10.1.2005 00:01
Þyrla hrapaði á flóðasvæðunum Bandarísk þyrla með hjálpargögn hrapaði í námunda við flugvöll í Aceh-héraði í Indónesíu í nótt. Tíu manns voru um borð í þyrlunni og sluppu þeir allir með lítilsháttar meiðsli. Ekki er vitað hvað olli því að þyrlan hrapaði til jarðar en engar vísbendingar eru um að skotið hafi verið að henni að sögn hernaðaryfirvalda í Bandaríkjunum. 10.1.2005 00:01
Olíufélögin hjá áfrýjunarnefnd Lögfræðingar olíufélaganna Esso, Olís og Skeljungs mættu til fundar við áfrýjunarnefnd samkeppnismála á Hótel Sögu klukkan níu í morgun. Einnig var fulltrúi samkeppnisstofnunar boðaður á fundinn sem haldinn er vegna áfrýjunar olíufélaganna á úrskurði samkeppnisráðs vegna samráðs olíufélaganna um verðlagningu olíuvara. 10.1.2005 00:01
Saug fé upp úr stöðumælum Lögreglan í Reykjavík handtók í nótt mann sem var með að minnsta kosti kíló af skiptimynt sem hann hafði sogið upp úr stöðumælum með sérútbúinni ryksugu. Það var vaktmaður í bandaríska sendiráðinu sem sá til mannsins og lét lögreglu vita sem gómaði hann þar í grennd. 10.1.2005 00:01
Engar reykingar á almenningsstöðum Frá og með deginum í dag geta Ítalir ekki lengur reykt á kaffihúsum eða öðrum almenningsstöðum. Mörgum hugnast hreint ekki reykingabannið sem gengur í gildi í dag og hefur fjöldi kaffihúsaeigenda hótað því að aðhafast ekkert ef að gestir kveikja sér í vindlingum með kaffibollanum. 10.1.2005 00:01
Loftskip á milli lands og Eyja? Sky-Cat risaloftskip sem Bretar eru að ljúka við að hanna yrði aðeins 45 mínútur á milli Vestmannaeyja og Reykjavíkur. Slíkt loftskip virðist betri lausn á samgöngumálum Vestmannaeyinga en Herjólfur eða aðrar hefðbundnar ferjur. 10.1.2005 00:01
Seinheppinn þjófur handtekinn Seinheppinn þjófur var gripinn fyrir þjófnað síðdegis í gær þegar hann ætlaði að tilkynna um að hann hefði sjálfur lent í þjófnaði. Maðurinn hafði stolið fjórum fartölvum en hélt svo að bílnum sínum hafi verið rænt. 10.1.2005 00:01
Nýtt ferli í Miðausturlöndum Shimon Peres, varaforsætisráðherra Ísraels, segir að sigur Mahmoud Abbas í forsetakosningunum í Palestínu upphafið að nýju ferli í Miðausturlöndum. Útgönguspár benda til þess að Abbas hafi hlotið ríflega tvo þriðju hluta talinna atkvæða. 10.1.2005 00:01
Atvinnuleysi minnkar enn Dregið hefur úr atvinnuleysi undanfarið og líklega mun sú þróun halda áfram á þessu ári, að sögn greiningardeildar Íslandsbanka. Hagvöxtur er mikill um þessar mundir og skilar sér nú í minnkandi árstíðarleiðréttu atvinnuleysi að sögn bankans. 10.1.2005 00:01
Vefur um verkefni sýslumanna Sýslumannafélag Íslands hefur í samstarfi við dóms- og kirkjumálaráðuneytið opnað nýjan vef sem inniheldur upplýsingar um verkefni sýslumanna og ýmsar leiðbeiningar fyrir þá sem til embætta sýslumanna þurfa að leita. Á vefnum er einnig hvert embætti fyrir sig með eigin síðu þar sem helstu upplýsingar um starfsemi þess koma fram. 10.1.2005 00:01
200 þúsund heimili enn án rafmagns Rúmlega 200 þúsund heimili í Svíþjóð eru enn án rafmagns eftir ofsveðrið sem gekk yfir landið sunnanvert um helgina. Þá eru tæplega fjörutíu þúsund dönsk heimili enn án rafmagns. Óveðrið er það versta sem gengið hefur yfir svæðið síðustu þrjátíu og fimm árin og létust að minnsta kosti ellefu manns sökum þess. 10.1.2005 00:01
Powell smeykur um framtíð Íraks Colin Powell segist smeykur um framtíð Íraks að afloknum kosningum sem fara eiga fram í landinu þann þrítugasta þessa mánaðar. Utanríkisráðherrann fráfarandi segir þó nauðsynlegt að kosningarnar fari fram á tilsettum tíma, enda komi það ekki til álita að bráðabirgðastjórnin verði við völd áfram. 10.1.2005 00:01
Gallup svarar ráðherrum Stjórnendur IMG-Gallups á Íslandi sitja nú á fundi til að móta afstöðu til niðrandi ummæla þriggja ráðherra um skoðanakönnun sem félagið gerði nýverið um viðhorf til lista yfir staðföstu ríkin svonefndu. 10.1.2005 00:01
Langur málflutningur olíufélaganna Búist er við að munnlegur málflutningur í olíumálinu fyrir áfrýjunarnefnd samkeppnismála standi fram á kvöld. Lögfræðingar stóru olíufélaganna mættu til fundar nefndarinnar í morgun ásamt fulltrúa Samkeppnisstofnunar. 10.1.2005 00:01
Sýnilegur árangur hjálparstarfsins Minningarathöfn stendur yfir í Stokkhólmi um þá sem létust í hamförunum í Asíu. Hjálparstarf er farið að bera sýnilegan árangur á hamfarasvæðunum og íbúar reyna hvað þeir geta að taka upp eðlilega lífshætti. 10.1.2005 00:01
Fagna yfirlýsingu Davíðs Starfsmannaráð Landspítala - háskólasjúkrahúss fagnar yfirlýsingu Davíðs Oddssonar, formanns Sjálfstæðisflokksins, um ráðstöfun söluandvirðis Símans til uppbyggingar nýs hátæknisjúkrahúss. Ráðið segir yfirlýsinguna styðja við mikið undirbúningsstarf sem stjórnendur og starfsfólk sjúkrahússins hafi innt af hendi með heilbrigðisráðuneytinu. 10.1.2005 00:01
Dómur fyrir innflutning á hassi Þrítugur karlmaður var dæmdur í sjö mánaða fangelsi í Héraðsdómi Reykjaness í morgun fyrir að hafa flutt með sér til landsins rúmlega 190 grömm af hassi. Maðurinn hafði áður hlotið fangelsisdóma, meðal ananrs fyrir rán, tékkasvik, umferðarlagabrot, nytjastuld og meiriháttar eignaspjöll. 10.1.2005 00:01
Landfylling við Gufunes samþykkt Skipulagsstofnun hefur fallist á fyrirhugaða gerð landfyllinga við vestan- og norðanvert Gufunes í Reykjavík með því skilyrði að framkvæmdir við gerð grjótvarnargarðs og þvergarða innan hans verði utan göngutíma laxfiska, þ.e. frá 1. maí til 30. september. 10.1.2005 00:01
Breskum hermönnum í Írak fjölgað Bretar ætla að senda 400 hermenn í viðbót til Íraks vegna kosninganna þar þann 30. janúar næstkomandi. Geoff Hoon, varnarmálaráðherra Bretlands, greindi frá þessu nú síðdegis. Sömuleiðis hefur Leónid Kútsma, fráfarandi forseti Úkraínu, ákveðið að hætta við að kalla herlið landsins heim frá Írak eins og fyrirhugað var. 10.1.2005 00:01
Komið til móts við bændur Drífa Hjartardóttir segir flókið mál að reikna út hækkun raforkuverðs til garðyrkjubænda, en málið verði örugglega leyst og þeir verði ekki látnir sitja uppi með 30-100 prósent hækkun. 10.1.2005 00:01
Fundur ekki ákveðinn Enn er ekki búið að ákveða hvenær viðræður Íslendinga og Bandaríkjamanna um framtíð varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli munu fara fram. 10.1.2005 00:01
Standa við könnun Forsvarsmenn IMG Gallup höfnuðu í gær ávirðingum þriggja ráðherra um skoðanakönnun sem fyrirtækið framkæmdi um stuðning við hernaðaraðgerðir í Írak. 10.1.2005 00:01
Heimsókn til Kína í boði þingsins Halldór Blöndal, forseti Alþingis, mun heimsækja Kína 11.- 18. janúar í boði forseta kínverska þingsins ásamt eiginkonu sinni, Kristrúnu Eymundsdóttur. Með þingforseta í för verða varaforsetarnir Guðmundur Árni Stefánsson og kona hans, Jónína Bjartmarz og eiginmaður hennar, og Sólveig Pétursdóttir ásamt forstöðumanni alþjóðasviðs skrifstofu Alþingis. 10.1.2005 00:01