Fleiri fréttir

Jón Þórisson rekinn

Bjarni Ármannsson forstjóri Íslandsbanka rak í morgun staðgengil sinn og aðstoðarforstjórann, Jón Þórisson. Ástæðan er sögð óbrúanlegur ágreininugr á milli þeirra, en sem kunnugt er lýsti Jón því fyrir nokkru að hann útilokaði ekki möguleikann á sameiningu Íslandsbanka og Landsbankans.

75 prósent Súmötru í rúst

Þrír fjórðu hlutar strandlengjunnar á eyjunni Súmötru í Indónesíu eru í rúst og nokkrir bæir jöfnuðust við jörðu í jarðskjálftanum og flóðbylgjunni á sunnudag að sögn talsmanna indónesíska hersins

Indverjar fá sér viðvörunarbúnað

Indversk yfirvöld hafa tilkynnt að þau ætla að koma sér upp búnaði til að vara við hættulegum flóðbylgjum á borð við þá sem skall á landið á sunnudag. Taíland er eina ríkið af þeim ellefu sem urðu fyrir barðinu á flóðbylgjunni sem býr yfir slíkum búnaði.

Líkin talin í kapp við tímann

Tíminn vinnur ekki með hjálparsveitum í Asíu og talningarmenn keppast við að koma líkunum til greftrunar sem fyrst. Indlandi er gerð grein fyrir hverjum látnum en í Indónesíu eru líkin oft dysjuð áður en hægt er að bera kennsl á þau eða telja. </font /></b />

20 milljónir safnast á Íslandi

Alþjóða Rauði krossinn sendi út stærstu hjálparbeiðni um áratugaskeið í gær en talin er þörf á um þremur milljörðum króna til hjálparstarfs samtakanna á hamfarasvæðunum við Indlandshaf.

Langþráð enduruppbygging

Langþráð endurbygging Suðurstrandarvegar milli Grindavíkur og Þorlákshafnar er að hefjast. Vegagerðin hefur boðið út fyrsta kaflann en óvíst er um framhald verksins þar sem hluti fjárveitingar verður fluttur í mislæg gatnamót í Svínahrauni.

Fundu dýrin hörmungarnar á sér?

Dýrasérfræðingar á Sri Lanka segja engin ummerki um dauð dýr eftir hamfarirnar, sem verður að teljast ótrúlegt með tilliti til þess að yfir tuttugu þúsund manns hafa týnt lífi á Sri Lanka. Þrátt fyrir að ótrúlegur fjöldi villtra dýra finnist á Sri Lanka hefur ekki fundist þar einn einasti dauður fíll, héri eða kanína.

Hækka um tugþúsundir

Höfuðborgarbúar þurfa að greiða tugþúsunda hærri fasteignagjöld eftir áramót. Fasteignamat hækkar allstaðar á landinu um áramótin. Ef við lítum bara á höfuborgarsvæðið þar sem flestir búa hækkar matið á íbúð í fjölbýli um 13% og á sérbýli um 20%. Út frá fasteignamatinu eru reiknuð fasteignagjöldin sem eigendurnir greiða.

Kínverjar í stað Portúgala?

Af tvö hundruð og fimmtíu portúgölskum starfsmönnum Impregilo sem fóru til síns heima fyrir hátíðarnar koma aðeins hundrað til baka. Starfsmenn við Kárahnjúka segja ljóst að yfirmenn fyrirtækisins vilji frekar fá Kínverja til starfa.

Takmarkið að nást

Einungis herslumuninn vantar að nægir fjármunir til þess að borga fyrir auglýsingu Þjóðarhreyfingarinnar í bandaríska dagblaðinu New York Times hafi safnast að sögn Ólafs Hannibalssonar, eins forsvarsmanna hreyfingarinnar.

Koma börnum til hjálpar

Barnaheill - Save the Children hafa komið á fót neyðaraðstoð í þeim löndum sem verst urðu úti í flóðbylgjunni við Indlandshaf á öðrum degi jóla.

Niðurlæging fyrir gamla fólkið

"Það er mikil niðurlæging fyrir gamla fólkið að þurfa að fara með fötin sín í poka til ættingja sinna," segir Jón Fanndal Þórðarson, formaður Félags eldri borgara á Ísafirði.

Símtalið kostar á annað hundrað

Hvert símtal í þjónustunúmerið 118 kostar yfirleitt á bilinu sextíu til 120 krónur. Upphafsgjald fyrir hringingar í númerið eru fimmtíu krónur ef hringt er úr farsíma en er lítið eitt lægra ef hringt er úr heimilissíma. Auk þess kostar hver mínúta sem talað er rétt tæpar sextíu krónur ef hringt er úr farsíma en fimmtíu krónur ef hringt er úr heimasíma.

Sjúkraflug vaxandi þáttur

Þrjú hundruð sjúkraflug hafa verið farin frá Akureyri það sem af er þessu ári. Í fyrra voru þau 271 en 188 árið áður.

Mannskæðustu flóðbylgjur sögunnar

Hamfarirnar í Indlandshafi eru þær mannskæðustu sem orðið hafa af völdum flóðbylgna. Mörg dæmi eru þó um hrikaleg flóð sem hafa dregið tugþúsundir til dauða

Jörðin gæti snúist hraðar

Svo kann að vera að jarðskjálftinn sem átti upptök sín við Súmötru hafi varanleg áhrif á snúning jarðar.

Vinur minn missti konu og bróður

Á Íslandi eru margar fjölskyldur sem eiga ættingja á hamfarasvæðunum í Suð-austur Asíu. Pramod Nair er Indverji sem hefur búið hér á landi ásamt konunni sinni í þrjú ár.

Rafmagnslaust víðsvegar um landið

Margir urðu varir við rafmagnsleysi sem varð víðs vegar um land í fyrrinótt. Orsökina má að hluta til rekja til truflana í veitukerfi Landsvirkjunar. </font />

Ekkert varanlegt tjón

Rafmagn fór af stóriðjunum tveimur á Grundartanga í um klukkustund vegna óveðursins í fyrrinótt.

Tuttugu milljónir hafa safnast

Um tuttugu milljónir króna hafa þegar safnast hér á landi til styrktar þeim sem eiga um sárt að binda vegna flóðanna í Suðaustur-Asíu. Pokasjóður gefur fimm milljónir til hjálparstarfssins, Hjálparstofnun kirkjunnar hefur þegar sent hálfa aðra milljón til hamfarasvæðanna og milljónir hafa safnast í símasöfnun Rauða krossins. Þá ákvað ríkisstjórnin að gefa fimm milljónir.

Síminn leggur sitt af mörkum

Vegna hinna hræðilegu náttúrhamfara í Asíu um jólin sem kostað hafa tugþúsundir mannslífa hafa Síminn og starfsmenn fyrirtækisins ákveðið að leggja sitt af mörkum til að aðstoða þolendur í þessum fjarlæga heimshluta. Starfsfólk Símans er að hrinda af stað fjársöfnun innan fyrirtækisins.

Látinn hætta vegna ágreinings

Jón Þórisson, aðstoðarforstjóri Íslandsbanka, var rekinn úr starfi í dag og látinn hætta strax vegna óleysanlegs ágreinings milli hans og Bjarna Ármanssonar forstjóra.

Tók sjálf þátt í atkvæðagreiðslu

Hansína Ásta Björgvinsdóttir, nýráðinn bæjarstjóri í Kópavogi, tók sjálf þátt í atkvæðagreiðslu um ráðningarsamning sinn í bæjarstjórn. Hún segir að vel megi vera að hún hafi átt að sitja hjá.

Yfir 100 þúsund látnir?

Talið er að yfir eitt hundrað þúsund manns hafi farist í hamförunum í kjölfar jarðskjálftans á Indlandshafi, þar af um þriðjungur börn. Ingólfur Bjarni Sigfússon fréttamaður Stöðvar 2, er staddur á Phuket-eyju í Taílandi, sem varð sérstaklega illa úti. Hann segir ástandið óljóst, en vitað sé að um 1600 hafi farist á Taílandi.

2700 saknað frá Norðurlöndunum

Alls tvö þúsund og sjö hundruð Norðurlandabúa er saknað á hamfarasvæðunum í Asíu, þar af um fimmtán hundruð Svía og tæplega fimm hundruð Norðmanna. Ef fer sem horfir stefnir í eitt mesta mannfall sænskra og norskra ríkisborgara á friðartímum.

Ekki vitað um afdrif 10 Íslendinga

Nú eru liðnir tæplega þrír og hálfur sólarhringur frá jarðskjálftanum, og enn hefur ekkert heyrst frá tíu Íslendingum á svæðinu. Enn er leitað upplýsinga um fimm manna íslenska fjölskyldu sem var stödd á Balí þegar síðast var vitað, en þetta eru hjón með þrjú börn. Þá hefur ekkert spurst til fimm einstaklinga sem ætluðu að vera í Tælandi, það eru annarsvegar hjón með eitt barn, og hinsvegar par.

Eyjar færðust tugi metra

Risajarðskjálftinn olli því að eyjar færðust til um marga kílómetra á hnettinum. Möndulhreyfingar jarðarinnar breyttust einnig, svo dagurinn hefur lengst. Stöðugt berast nýjar jarðfræðilegar upplýsingar frá skjálftasvæðinu. Nú hefur komið í ljós að smáeyjar við upptök hans hafa færst til um ótrúlegar vegalengdir í vesturátt, og hafa verið nefndar tölur allt upp í tugi og jafnvel hundruði metra.

Biskup hvetur til samhugs

Biskup Íslands hvetur presta til að minnast fórnarlamba hamfaranna í Asíu í guðsþjónustum um áramótin.

Hætta ekki með 100% lán

KB-banki telur hækkanir á fasteignamarkaði óeðlilegar og óttast afleiðingarnar sem kunni að leiða til þess að fólk festist í skuldafjötrum. Bankinn telur þó ekki tímabært að hætta að bjóða hundrað prósenta íbúðalán, eins og Landsbankinn hefur ákveðið.

Nöfn Íslendinganna ekki gefin upp

Íslendingur á Pattaya í Taílandi undrast að stjórnvöld sem leita Íslendinga í landinu hafi ekki spurst fyrir um ferðir fólksins meðal þeirra rúmlega eitt hundrað Íslendinga sem þar séu. Ekki hefur verið haft upp á fimm Íslendingum í Taílandi eftir flóðbylguna í sunnanverðir Asíu auk fimm sem talið er að séu á Balí.

Niðurgreiðsla afnumin

Fólk með meira en tvö hundruð þúsund krónur í mánaðartekjur fær enga niðurgreiðslu vegna vistunnar barna hjá dagmæðrum í Reykjanesbæ frá og með fyrsta mars. Árni Sigfússon, bæjarstjóri, segir málið enn í skoðun.

Enn engar upplýsingar

Engar nýjar upplýsingar hafa borist lögreglunni í Kópavogi um brottnám níu ára stúlku í Kópavogi í nóvember að sögn Friðriks Smára Björgvinssonar yfirlögregluþjóns í Kópavogi.

Vara við evrópskri svikamyllu

Samtök verslunar og þjónustu vara fyrirtæki við því að borga reikninga frá European City Guide (ECG) ef þau telja sig ekki hafa efnt til skuldarinnar. Sigurður Jónsson, framkvæmdastjóri SVÞ, segir fimm til sex íslensk fyrirtæki hafa haft samband við SVÞ á skömmum tíma vegna málsins.

Bæjarstjóri Kópavogs fær biðlaun

Bæjarfulltrúar Samfylkingarinnar í Kópavogi gagnrýna að Hansína Ásta Björgvinsdóttir, nýr bæjarstjóri í Kópavogi, skuli fá greiddan einn mánuð í biðlaun. Gunnar I. Birgisson, formaður bæjarráðs, segir ómaklega vegið að Hansínu.

Skattrannsókn á fjármálum Baugs

Skattayfirvöld þurfa að taka ákvörðun um endurálagningu skatta á Baug í síðasta lagi á morgun annars fyrnist hluti af málinu sem snýr að ríkisskattstjóra.

Sjö Íslendingar á hættusvæðum

Utanríkisráðuneytið hefur ekki upplýsingar um 26 Íslendinga stadda í Asíu. Aðeins sjö þeirra eru taldir hafa verið á hættusvæði vegna jarðskjálftans við Súmötru. Fólk af taílenskum ættum hefur óskað aðstoðar Rauða krossins við að hafa uppi á ættingjum. </font /></b />

Landnemar láta undan

Tuttugu fjölskyldur í ísraelskri landnemabyggð hafa lýst sig viljugar til að flytjast frá hinu umdeilda Gasa-svæði. Þetta er fyrsta fólkið til að fallast á fyrirætlanir Ariels Sharons, forsætisráðherra Ísraels, um brottflutning Ísraela frá Gasa svæðinu og hluta Vesturbakkans.

Inflúensan færist í aukana

Þrjú inflúensutilfellið af A stofni höfðu greinst með vissu á landinu í gær, samkvæmt upplýsingum frá landlæknisembættinu. Því má búast við að inflúensan færist í aukana á næstu vikum.

Umfangsmesta hjálparstarf sögunnar

Umfangsmesta hjálparstarf í sögu Sameinuðu þjóðanna er hafið á hamfarasvæðunum í Suðaustur-Asíu þar sem talið er að allt að sextíu þúsund manns hafi farist. Hundruð flugvéla frá löndum í öllum heimshornum eru væntanleg til svæðanna í dag með hjálpargögn en nú er talið hvað brýnast að koma í veg fyrir útbreiðslu drepsótta og hungursneyð.

13 írakskir lögreglumenn drepnir

Skæruliðar felldu þrettán írakska lögreglumenn og særðu tvo í geysiharðri árás sem þeir gerðu á lögreglustöð í borginni Tíkrit í Írak í morgun. Margskonar vopnum var beitt og reyndu lögreglumennirnir að verjast en ekki fer sögum af mannfalli í röðum skæruliða.

20 Íslendinga enn saknað

Ekki er enn vitað um afdrif 20 Íslendinga, sem að líkindum eru á hamfarasvæðunum, en í fyrstu var ekki vitað um afdrif 55 Íslendinga. Að mati utanríkisráðuneytisins, sem grafist hefur fyrir um afdrif Íslendinga á svæðinu, eru flestir þeirra sem ekki hefur náðst til á tiltölulega hættulitlum svæðum.

Bensínverðið lækkað um tvær krónur

Stóru olíufélögin þrjú lækkuðu lítrann á bensíni um tvær krónur í gær og verð lækkaði einnig á sjálfsafgreiðslustöðvum dótturfélaga þeirra. Lítrinn kostar nú 105,60 krónur á stöðvum með fullri þjónustu og allt niður í 97,40 krónur hjá Orkunni.

Þjófurinn skilaði veskinu

Veski sem stolið var af konu í Bónusversluninni í Hafnarfirði fyrir jól og innihélt meðal annars mikilvæg læknisgögn um ungan son hennar er komið í leitirnar. 35 ára kona sem stal því kom á lögreglustöðina í Hafnarfirði í gærkvöldi og skilaði því ásamt kortum, skilríkjum, síma og öðrum verðmætum sem voru í veskinu.

Janúkovítsj leitar til Hæstaréttar

Úkraínski forsætisráðherrann Viktor Janúkovítsj neitar að játa sigur Viktors Júsjenkos í forsetakosningunum sem fram fóru í landinu í fyrradag. Hann hefur lýst því yfir að hann muni leita til Hæstaréttar Úkraínu til þess að fá úrslitunum hnekkt. Janúkovítsj hefur lagt inn í kringum fimm þúsund kvartanir yfir því hvernig staðið var að talningu atkvæða.

Vesturlandsvegi lokað vegna slyss

Vesturlandsvegi ofan við Borgarnes var um tíma lokað í gærkvöldi vegna þess að þrír bílar lentu þar í árekstri í afleitu veðri og grafa fór út af veginum þar skammt frá. Engan sakaði alvarlega í árekstrinum sem varð með þeim hætti að ökumaður bíls nam staðar þegar hann sá ekki lengur neitt út.

Sjá næstu 50 fréttir