Fleiri fréttir

Auglýsing tekin úr umferð

Forráðamenn Smáralindar ákváðu í gær að taka úr umferð auglýsingu þar sem barn er vafið inn í jólaseríu sem kveikt er á.

Endurgreiðslum TR að ljúka

Flestallir þeirra tæplega 24 þúsund lífeyrisþega sem áttu inneign hjá Tryggingastofnun ríkisins hafa nú fengið endurgreiðslu.

Árásin í Mosul sjálfsmorðsárás?

Ekki er víst að flugskeyti hafi hæft matsal bandarískrar herstöðvar eins og í fyrstu var talið. Samtökin Ansar al-Sunnah segja að um sjálfsmorðsárás hafi verið að ræða. Verið er að rannsaka málið.

Annan vill að deilum ljúki

Sameinuðu þjóðirnar og Bandaríkin verða að finna leið til að binda enda á deilur sínar og byrja að vinna saman á ný. Þetta sagði Kofi Annan, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna í gær.

Fimmtungur án fæðingavottorðs

Fimmtungur þeirra barna sem fæddust í Brasilíu í fyrra hefur ekkert fæðingarvottorð og eru þau þar með í raun ekki til, samkvæmt hinu opinbera.

Nýjar dýrategundir í Indónesíu

Vísindamenn hafa uppgötvað fjölda nýrra dýrategunda á afskekktum stað í Kalimantan-héraði í Indónesíu. Meðal þeirra eru áður óþekktar fisktegundir, ný kakkalakkategund, tvær sniglategundir sem aldrei hafa sést og plöntur.

Blair vill fund um Palestínu

Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, hefur lagt til að haldin verði eins dags alþjóðleg ráðstefna í London í mars um málefni palestínsku stjórnarinnar. Blair, sem heimsótti bæði Ísrael og Palestínu í gær, vill að rætt verði hvernig hægt sé að styrkja stjórnina og bæta og endurvekja með því friðarviðræðurnar.

Gætu fengið sex ára fangelsi

Forsvarsmenn Baugs og Gaums gætu átt yfir höfði sér allt að sex ára fangelsi og gætu þurft að greiða allt að tífalda þá fjárhæð sem grunur leikur á að ekki hafi verið greiddur skattur af, verði þeir sakfelldir fyrir þau brot sem skattrannsóknastjóri hefur sent ríkislögreglustjóra til rannsóknar.

Atvinnurógur af verstu tegund

Landmælingar Íslands vísa því á bug að upplýsingar frá stofnuninni séu ónákvæmar og rangar. Allt tal um slíkt sé atvinnurógur af verstu tegund. 

4 ára fangelsi fyrir kynferðisbrot

Sigurbjörn Sævar Grétarsson, fyrrverandi lögreglumaður á Patreksfirði, var í dag dæmdur í fjögurra ára fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn fimm piltum. Auk þess var hann dæmdur til að greiða þeim samanlagt 2,4 milljónir króna í miskabætur.

Norsku leið Símans lokað

Síminn á ekki lengur greiða leið að neti Og Vodafone í gegnum Noreg, segir Eva Magnúsdóttir upplýsingafulltrúi Símans. Pétur Pétursson, forstöðumaður upplýsinga- og kynningarmála hjá Og Vodafone, samsinnir því. Hann segir flutningsleið símtala til landsins takmarkaða og því hafi leiðinni verið lokað.

Georg ráðinn

Georg Kr. Lárusson forstjóri Útlendingastofu var í gær skipaður forstjóri Landhelgisgæslu Íslands frá og með 1. janúar.

Útgerðin krefur olíufélögin bóta

Stjórn Landssambands íslenskra útvegsmanna hefur farið fram á viðræður við olíufélögin um skaðabætur vegna verðsamráðs þeirra. Þetta var ákveðið á fundi stjórnarinnar fyrir skömmu þar sem álit lögfræðings á möguleikum útgerðarmanna á skaðabótum var lagt fram.

Dæmdur fyrir kynferðisbrot

Rúmlega þrítugur karlmaður, Sigurbjörn Sævar Grétarsson, var í gær dæmdur í fjögurra ára fangelsi í Héraðsdómi Vestfjarða fyrir kynferðisbrot gegn fimm drengjum á aldrinum tólf til fjórtán ára. 

Kosið eftir 28 ára hlé

Palestínumenn á Vesturbakkanum munu í dag kjósa í fyrsta sinn til sveitarstjórnarkosninga síðan 1976. Um 150 þúsund Palestínumenn geta gengið til kosninga í 26 þorpum og bæjum. Sveitarstjórnarkosningum mun ljúka á næsta ári.

Hafnfirðingum fjölgar mest

Búist er við fjögurra prósenta fjölgun íbúa í Hafnarfirði á þessu ári og því næsta. Þetta kemur fram í langtímaáætlun bæjarins fyrir árin 2006 til 2008 sem samþykkt var á fundi bæjarstjórnar í vikunni.

Gríðarleg hækkun á sundkortum

Afsláttarkort í sundlaugar Reykjavíkur hafa hækkað langt umfram verðlagsþróun á undanförnum árum. Þannig hafa tíu miða barnakort hækkað um 88 prósent en almennt verðlag um 23 prósent.

Versnandi geðheilsa Íslendinga

Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra hefur þungar áhyggjur af versnandi geðheilsu Íslendinga og mikilli notkun þunglyndislyfja. Hann telur ástæðu til að skoða hvers vegna fólk á aldrinum 60 til 64 ára notar mest af þess konar lyfjum.

Varðskýli lögreglu ófullnægjandi

Vinnueftirlitið hefur lokað varðskýli lögreglumanna við Grænás á Keflavíkurflugvelli þar sem það uppfyllir ekki sett skilyrði. Sýslumaður segir að ráðist verði í úrbætur. 

Fátækt aukist á Suðurlandi

Fátækt virðist hafa aukist mest á Suðurnesjum og Suðurlandi miðað við óskir um matargjafir sem borist hafa Hjálparstarfi kirkjunnar fyrir þessi jól.

Mikil spenna í Mósúl

Mikil spenna er í borginni Mósúl í Írak sem er í herkví eftir að tuttugu og tveir létust þar í sjálfsmorðssprengjuárás í gær. Óttast er að uppreisnarmenn hyggi á nýja hrinu árása.

Frelsun Fischers á næsta leiti

Frelsun Bobbys Fischers úr japönsku fangelsi er sóknarskák sem lýkur innan tíðar með fullnaðarsigri, segja stuðningsmenn hans hér á landi. Japanska dómsmálaráðuneytið hefur fengið málið til meðferðar en þar gæti það legið í langan tíma. 

Mesta hækkunin til deildarstjóra

Félag leikskólakennara og Launanefnd sveitarfélaga skrifuðu undir kjarasamning í gærkvöld. Ef samningurinn verður samþykktur í atkvæðagreiðslum mun hann gilda til 30. september 2006. Atkvæðagreiðslum þarf að vera lokið fyrir lok janúar.

Lungnakrabbamein arfgengt

Afkomendur þeirra sem fengið hafa lungnakrabbamein, jafnvel systkinabörn, eru líklegir til að erfa sjúkdóminn samkvæmt tímamótarannsókn vísindamanna Íslenskrar erfðagreiningar, Landspítalans og Hjartaverndar. Reykingar eru eftir sem áður langstærsti áhættuþátturinn.

Leikskólakennarar semja

Félag leikskólakennara og Launanefnd sveitarfélaga skrifuðu fyrir stundu undir nýjan kjarasamning. Samningurinn gildir til loka september 2006 og færir deildarstjórum allt að 20% hækkun á samningstímanum.

Rætt um kjör í Alcan

Kjaraviðræður eigenda og starfsmanna Alcan, álversins í Straumsvík, standa yfir. Samtök atvinnulífsins fyrir eigendurna og fulltrúar sex verkalýðsfélaga starfsmanna hafa setið á fundum frá því seinni part nóvember.

Kennarar fá laun leiðrétt

Grunnskólakennarar í Reykjavík fá greidda yfirvinnu og leiðréttingar samkvæmt nýjum kjarasamningi í gær. Kennarar á eftirágreiddum launum fá auk þess mánaðarlaun fyrir desember greidd.

Stenst hnífstungur

Japanskt öryggisfyrirtæki hefur sett á markað fatnað fyrir skólabörn sem stenst hnífstungur. Fatnaðurinn er gerður úr sömu trefjum og skotheld vesti bandarískra hermanna í Írak.

Afhöfðaður fyrir smygl

Íraskur maður sem handtekinn var í Sádi-Arabíu fyrir að reyna að smygla ótilgreindu magni af hassi var afhöfðaður í borginni Arar í gær.

Með 850 grömm af kókaíni

Brasilísk kona hefur verið úrskurðuð í þriggja vikna gæsluvarðhald fyrir að reyna að smygla til landsins 850 grömmum af kókaíni.

Farsælla að bjóða fram sér

Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra segir að R-lista samstarfið gagnist stjórnarandstöðuflokkunum betur en Framsóknarflokknum. Hann telur almennt að farsælla sé að bjóða fram sér. </font /></b />

Endurgreiðslum TR að ljúka

Flestallir þeirra tæplega 24 þúsund lífeyrisþega sem áttu inneign hjá Tryggingastofnun ríkisins hafa nú fengið endurgreiðslu.

Á slysadeild eftur útafakstur

Einn var fluttur á slysadeild með háls- og bakáverka eftir útafakstur skammt frá Selfossi á öðrum tímanum í gærdag. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Selfossi var ökumaður einn í fólksbifreið og ók eftir Vorsabæjarvegi þegar hann missti stjórn á bílnum í hálku og keyrði útaf.

Flutningabíll ók út af

Bílstjóri slapp ómeiddur þegar flutningabifreið sem hann ók fór út af við Lækshraun austan við Kirkjubæjarklaustur klukkan hálfellefu á þriðjudagskvöld.

Nær þriðjungur af asískum uppruna

Nýjum Íslendingum af asískum uppruna, sem leita sér aðstoðar hjá Mæðrastyrksnefnd hefur farið stórfjölgandi að undanförnu, að sögn Ragnhildar Guðmundsdóttur formanns nefndarinnar.

Óvíst um lyktir Evrópudraums Tyrkja

Leiðtogar ESB ákváðu í vikulokin að bjóða Tyrkjum að hefja formlegar viðræður á næsta ári um aðild að sambandinu. Þar með er hafið ferli sem gæti gerbreytt Evrópusambandinu. Hvernig því lyktar er þó opið, eins og Auðunn Arnórsson rekur hér. </font /></b />

Strandafréttir á vefnum

Nýr héraðsfréttavefur fyrir Strandasýslu hefur verið opnaður. Það er fyrirtækið Sögusmiðjan á Kirkjubóli sem á frumkvæði að gerð vefjarins og ritstjóri er Jón Jónsson þjóðfræðingur.

Engin vettlingatök

Forsetaframbjóðendurnir tveir í Úkraínu, Viktor Júsjenkó og Viktor Janúkóvitsj tókust á í kappræðum í gærkvöldi. Júsjenkó sakaði þar keppinaut sinn um að hafa reynt að stela síðustu kosningum í nóvember, þegar kosningaeftirlitsmenn sögðu mikið hafa verið svindlað.

Meirihluti á móti stríðinu

Stríðið í Írak er ekki þess virði að standa í því. Þetta er skoðun meirihluta Bandaríkjamanna, samkvæmt könnun sem birt var í gærkvöldi. 56 prósent aðspurðra í könnun ABC og Washington Post telja kostnaðinn við stríðið vera meiri en það sem græðist á því, og að réttast væri að hætta því.

Sjö handteknir í nótt

Lögreglan í Reykjavík handtók í nótt sjö menn eftir að talsvert af þýfi úr ýmsum innbrotum og eitthvað af fíkniefnum fanst í íbúð, sem þeir voru saman í. Upphaflega fór lögreglan á vettvang um hálf þrjú leitið í nótt, þar sem nágrannar höfðu kvartað undan hávaða. Við nánari athugun fanst þýfið og fíkniefnin þannig að allir voru handteknir.

Hingað en ekki til Bandaríkjanna

Lögfræðingur Bobbys Fischers mun eiga fund með fulltrúum útlendingastofnunar í Japan fyrir hádegi að íslenskum tíma, þar sem formlega verður óskað eftir því að ef Fischer verði vísað úr landi, þá verði honum vísað til Íslands en ekki Bandaríkjanna.

Morðingi óléttrar konu fyrir rétt

Meintur morðingi konu sem myrt var í Bandaríkjunum í síðustu viku kom í gær fyrir rétt, sakaður um að hafa rist kvið konunnar upp og stolið þaðan ófæddu barni hennar. Morðinginn, Lisa Montgomery, sýndi síðan fjölskyldunni sinni barnið og sagði það sitt. Það þykir ótrúlegt að barnið skuli hafa lifað harmleikinn af.

Kjarasamningur samþykktur

Félagar í Sambandi íslenskra bankamanna hafa samþykkt nýgeraðan kjarasamning við Samtök atvinnulífsins með rúmlega 62 prósentum atkvæða, en 35 prósent vildu fella hann. Tæplega 83% félagsmanna tóku þátt í atkvæðagreiðslunni en hátt í fjögur þúsund manns eru í félaginu, allt starfsmenn hjá bönkum og verðbréfafyrirtækjum.

Eldur í heyhlöðu

Eldur kviknaði í heyhlöðu, áfastri við fjós að bænum Vorsabæjarhóli í Gaulverjabæjarhreppi í gærkvöldi. Heimafólk varð vart við reyk frá hlöðunni um klukkan ellefu og kallaði þegar á slökkvilið. Það var fljótt á vettvang og hafði eldurinn ekki náð útbreiðslu þegar það kom og gekk slökkvistarf vel. Kýr í fjósinu voru ekki í hættu.

Kona og barn fórust í eldsvoða

Kona og barn fórust þegar eldur kviknaði í Hótel Continent á Nörrebrogötu í Kaupmannahöfn í nótt. Að minnsta kosti fjórir slösuðust og þar af einn alvarlega. Eldurinn virðist hafa kviknað í herbergi á fimmtu hæð, ef til vill út frá jólaskreytingu og barst reykur víða um hótelið.

Sjá næstu 50 fréttir