Innlent

Gætu fengið sex ára fangelsi

Forsvarsmenn Baugs og Gaums gætu átt yfir höfði sér allt að sex ára fangelsi og gætu þurft að greiða allt að tífalda þá fjárhæð sem grunur leikur á að ekki hafi verið greiddur skattur af, verði þeir sakfelldir fyrir þau brot sem skattrannsóknastjóri hefur sent ríkislögreglustjóra til rannsóknar. Lögreglurannsókn á Baugi hófst árið 2002 eftir að Jón Gerald Sullenberger kærði forsvarsmenn fyrirtækisins. Ríkislögreglustjóri sendi skömmu síðar gögn til skattrannsóknarstjóra vegna gruns um að skattalög hefðu verið brotin. Í framhaldinu var húsleit gerð hjá Baugi og fjárfestingarfélaginu Gaumi og í vor aflaði lögreglan frekari gagna hjá Kauþingi í Lúxemborrg. Í síðasta mánuði sendi skattrannsóknarstjóri hluta rannsóknarinnar til ríkislögreglustjórans, sem gert er ef grunur leikur á að sérlegastórfelld og alvarleg brot hafi verið framin. Ekki náðist í stjórnarformann Baugs í dag en Kristín Jóhannesdóttir, framkvæmdastjóri Gaums, staðfesti í dag að ákveðin atriði hefðu verið send lögreglu en sagði ekki hvers eðilis þau væru eða hversu alvarleg. Hún segir slæmt að embættin sem að málinu komi rjúfi þagnarskyldu varðandi rannsóknina og tímasetningin sé sérkennileg, en eins og kunngt er eru Baugur og fleiri að yfirtaka Big Food Group sem er gríðarleg fjárfesting. Samkvæmt heimildum Stöðvar 2 leikur grunur á að meint brot hafi verið framin á bilinu 1998 til 2002. Ekki hafi verið um mörg tilvik að ræða en frekar háar fjárhæðir hafi þar verið á ferðinni. Heimildir Stöðvar 2 herma að grunur leiki á að brotið hafi verið gegn 1. málsgrein 109. greinar laga um tekju- og eignaskatt en viðurlög við broti gegn þeirri grein eru sekt sem er að lágmarki tvöföld sú fjárhæð sem svikin var undan og að hámarki tíföld upphæð. Þá varði stórfellt brot gegn þessari grein við 1. málsgrein 262. greinar hegingarlaga þar sem viðurlög eru allt að sex ára fangelsi.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×