Erlent

Afhöfðaður fyrir smygl

Íraskur maður sem handtekinn var í Sádi-Arabíu fyrir að reyna að smygla ótilgreindu magni af hassi var afhöfðaður í borginni Arar í gær. Sádi-Arabía framfylgir islömskum lögum og samkvæmt túlkun þeirra á þeim eru menn sem fundnir eru sekir um glæpi eins og fíkniefnasmygl, morð, nauðgun eða rán teknir af lífi. Á þessu ári hefur 31 maður verið afhöfðaður í konungsríkinu. Glæpamenn eru afhöfðaðir af böðli með sveðju á opinberum vettvangi. Fjöldi fólks fylgdist með þegar Írakinn var tekinn af lífi.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×