Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Verðbólgan étur upp launahækkun Verðbólgan hefur tekið tvo þriðju af launahækkunum síðustu tólf mánaða. Á því tímabili hafa laun hækkað um 5,4% en verðbólgan verið 3,8%, samkvæmt greiningardeild Íslandsbanka. Þrátt fyrir miklar launahækkanir hefur kaupmáttur launa því ekki aukist nema um 1,6% á síðustu tólf mánuðum. 21.12.2004 00:01
Stórtjón á bæ við Hvolsvöll Stórtjón varð á bænum Stíflu í Eyjahverfi austan við Hvolsvöll í morgun þegar vélageymsla brann þar til kaldra kola og allar heyvinnuvélar eyðilögðust meðal annars. Eldsins varð vart um klukkan tíu og voru slökkviliðsmenn og bílar sendir frá Hvolsvelli og Hellu og tók þá um klukkustund að ráða niðurlögum eldsins. 21.12.2004 00:01
Verðum 300 þúsund árið 2007 Íslendingar eru orðnir rúmlega 293 þúsund og ef frjósemi helst áfram eins og hún hefur verið að undanförnu, verða þeir 300 þúsund árið 2007, samkvæmt útreikningum Hagstofunnar. Landsmönnum hefur fjölgað um 0,95 prósent á árinu, sem er nokkurn veginn í meðaltali. 21.12.2004 00:01
47 milljarðar í nóvember Íslendingar tóku út tæplega 47 milljarða með debet- og kreditkortum sínum í nóvember, og jókst veltan um tæp 20% frá sama tíma í fyrra. Um er að ræða verulega veltuaukningu sem gefur til kynna óvenjumikla jólaverslun í ár, segir greiningardeild Íslandsbanka. Heimilin virðast vera í gleðigírnum og er vöxtur útgjalda þeirra nokkuð umfram vöxt tekna. 21.12.2004 00:01
Hetjur sem hætta lífi sínu Tony Blair, forsætisráðherra Breta, er í óvæntri heimsókn í Bagdad í Írak til að sýna þarlendum yfirvöldum stuðning nú í aðdraganda forsetakosninganna. Blair sat fyrir stundu blaðamannafund með Iyad Allawi sem gegnir stöðu forsætisráðherra Íraks til bráðabirgða. 21.12.2004 00:01
Japanskir embættismenn smeykir Enn er ekki ljóst hvort og hvenær Bobby Fischer kemur til landsins. Töluverðs taugatitrings gætir meðal japanskra embættismanna vegna beiðni Bandaríkjamanna um að boð um dvalarleyfi hér á landi verði dregið til baka, segir Sæmundur Pálsson, vinur Fischers. 21.12.2004 00:01
Flest börn send heim á Ísafirði Allir ófaglærðir starfsmenn fjögurra leikskóla í Ísafjarðarbæ tilkynntu sig veika í dag og voru flest börn send heim aftur þegar þau mættu í morgun. Með þessu eru starfsmennirnir að mótmæla því sem þeir kalla seinagang bæjaryfirvalda við að greiða út leiðréttingu á launum. 21.12.2004 00:01
Snjótittlinga í landgræðslu Þúsundir snjótittlinga eru nú notaðir til landgræðslu, með því að fóðra þá á tólg sem berjum hefur verið hnoðað saman við. Þannig bera smáfuglarnir fræin um landið eins og þúsundir lítilla landgræðsluflugvéla. 21.12.2004 00:01
Slapp eftir fataskipti Sænskum karlmanni, sem sat í fangelsi í Stokkhólmi fyrir árás og rán, tókst að flýja úr fangelsinu í gær eftir að hann hafði fataskipti við tvíburabróður sinn sem var í heimsókn. Eftir að seki tvíburabróðirinn var flúinn af hólmi sagði sá saklausi fangavörðum frá því að nú væru þeir með rangan mann í haldi. 21.12.2004 00:01
Eiríkur og Elna Katrín áfram Formaður og varaformaður Kennarasambands Íslands verða sjálfkrafa endurkjörin á þingi sambandsins í mars þar sem ekki kom neitt mótframboð á tilskyldum tíma. 21.12.2004 00:01
Alltaf eitthvað um falsanir Svava Johansen, kaupmaður í Sautján, segist verða töluvert vör við að fölsuð merkjavara sé flutt inn og seld hér á landi. 21.12.2004 00:01
Minnst 22 látnir í Mosul Nú hefur verið staðfest að að minnsta kosti 22 eru látnir í Mósúlborg í norðurhluta Íraks eftir miklar sprengjuárásir þar eftir hádegið. Minnst fimmtíu eru særðir. Árásunum var beint að bandarískri herstöð í borginni. Ekki er vitað um þjóðerni þeirra sem létust, né hefur fengist staðfest hver ber ábyrgð á árásunum. 21.12.2004 00:01
2,5 miljörðum rænt Bankaræningjar rændu sem svarar 2,5 milljörðum íslenskra króna úr banka í miðborg Belfast í gærkvöldi, og er þetta er stærsta bankarán í sögu Norður Írlands. Upphaflega var talið að upphæðin væri vel á fjórða milljarð króna, en svo var ekki. 21.12.2004 00:01
Heitir að auka öryggi Jaques Chirac Frakklandsforseti hefur heitið því að auka öryggi á sjúkrahúsum landsins eftir morð á tveimur hjúkrunarfræðingum um helgina. Annar hjúkrunarfræðinganna var afhöfðaður og hinn skorinn á háls og segir Chirac að nú verði allir að leggjast á eitt til þess að vinna betur að öryggismálum á sjúkrahúsum, ekki síst þar sem geðsjúkir dvelja. 21.12.2004 00:01
Vilja 20 milljarða dollara í bætur Forsvarsmenn olíurisans Yukos ætla að fara fram á 20 milljarða dollara í skaðabætur fyrir að hafa neyðst til að selja sína stærstu framleiðslueiningu á sunnudaginn. Forsvarsmenn Yukos viðurkenna að salan verði ekki tekin til baka, en segjast ekki munu láta eignina af hendi fyrr en upplýst verður hver stendur að baki hinu óþekkta fjárfestingarfyrirtæki Baikal, sem stóð að kaupunum. 21.12.2004 00:01
Lok, lok og læs á háannatíma Bókasafninu á Akranesi var lokað á laugardaginn og opnar ekki aftur fyrr en á mánudag. Skipta þarf um gólfefni í anddyri og útlánasal, en sama filtteppið hafði verið á gólfunum í 32 ár. 21.12.2004 00:01
Tveir handteknir vegna morða Franska lögreglan handtók í gær tvo fyrrverandi vistmenn á geðsjúkrahúsinu í Pau í Suður-Frakklandi. Þeir eru grunaðir um að hafa myrt tvo hjúkrunafræðinga á hrottalegan hátt á laugardag. Önnur konan var afhöfðuð og höfuð hennar stillt upp á sjónvarpstæki. 21.12.2004 00:01
Fleiri ásakanir um pyntingar Bandaríska varnarmálaráðuneytið rannsakar um þessar mundir nýjar ásakanir um að fangar í Guantánamo-flóa séu pyntaðir og að hermenn villi á sér heimildir við yfirheyrslur. Bandarísku frelsissamtökin hafa sýnt tölvupóst frá Alríkislögreglunni þar sem fram kemur að FBI misbjóði að hermenn í Guantánamo villi á sér heimildir við yfirheyrslur. 21.12.2004 00:01
4 dæmdir fyrir smygl á kannabis Fjórir menn fengu í dag fjögurra til tuttugu mánaða fangelsisdóm í Héraði fyrir innflutning á samtals um 15 kílóum af kannabisefnum. Þrír þeirra eru 22 ára að aldri, en sá fjórði er tæplega fimmtugur. Mennirnir keyptu efnin í Danmörku og fluttu þau inn meðal annars í bíldekkjum. 21.12.2004 00:01
Blair óvænt til Bagdad Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, fór í óvænta heimsókn til Bagdad í gær og fundaði með Iyad Allawi, forsætisráðherra bráðabirgðastjórnar landsins. Þetta var þriðja heimsókn Blairs til Íraks og sú fyrsta síðan Saddam Hussein var handtekinn fyrir ári síðan. 21.12.2004 00:01
Dæmd fyrir stuld úr 10-11 Kona á sextugsaldri var í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag dæmd í 90 daga fangelsi fyrir búðarhnupl. Hún stal matvöru fyrir 5600 krónur úr 10-11 við Lágmúla og leðurjakka og skyrtum fyrir átján þúsund úr Vera Moda. Konan játaði undanbragðalaust, og hefur leitað sér læknishjálpar. 21.12.2004 00:01
Ófaglærðir skrá sig veika Tæplega 40 ófaglærðir starfsmenn á fjórum af sex leikskólum hjá Ísafjarðarbæ skráðu sig veika og mættu ekki til vinnu í gær í mótmælaskyni. 21.12.2004 00:01
Samkeppni um tónlistarhús hafin Útboðslýsingar voru afhentar fulltrúum fjögurra hópa í gær sem taka þátt í samkeppni um réttinn til að hanna, byggja, fjármagna og reka tónlistarhús og telst samkeppnin því formlega hafin. Hóparnir voru valdir í sérstöku forvali og eiga frumhugmyndir þeirra að liggja fyrir eftir mánuð og fyrstu tilboð í byrjun maí. 21.12.2004 00:01
Yfir 20 létust í sprengjuárás 22 létust og rúmlega 50 særðust í sprengjuárás á bandaríska herstöð í borginni Mosul í norðurhluta Íraks í gær.Samtökin Ansar al-Sunnah hafa lýst yfir ábyrgð á árásinni, en þau eru sögð vilja koma álíka stjórnarfari á í Írak og talibanar höfðu í Afganistan. 21.12.2004 00:01
Blaðamönnum sleppt úr haldi Tveimur frönskum blaðamönnum sem andspyrnumenn í Írak hafa haldið sem gíslum hefur verið sleppt. Þeim hefur verið haldið síðan 20. ágúst, þegar þeim var rænt á leið sinni til Najaf. 21.12.2004 00:01
Feðgar dæmdir til refsingar Tuttugu og tveggja ára maður var, í Héraðsdómi Reykjavíkur á þriðjudag dæmdur í tuttugu mánaða fangelsi fyrir innflutning á fimmtán kílóum af hassi í félagi við föður sinn og tvo jafnaldra sína. Efnin flutti maðurinn í þremur skipaferðum frá Danmörku. 21.12.2004 00:01
Kókaínhylki sótt með skurðaðgerð Náð var í um sextíu kókaínhylki í görn fíkniefnasmyglara með skurðaðgerð á mánudag. Smyglarinn, sem er Íslendingur um þrítugt, var handtekinn við komuna til landsins á sunnudag og leiddi röntgenskoðun í ljós að hann væri með aðskotahluti innvortis. 21.12.2004 00:01
Grunaður um íkveikju Öryggisvörður er grunaður um að hafa kveikt í lyftara við Rúmfatalagerinn á Smáratorgi í Kópavogi aðfaranótt laugardags. Maðurin tilkynnti sjálfur um eldinn og slökkti hann, en myndir úr eftirlitsmyndavél urðu til þess að maðurinn er grunaður um verknaðinn. 21.12.2004 00:01
Sjö handteknir vegna þýfis Sjö menn voru handteknir í íbúð í Vogahverfi í Reykjavík um klukkan hálf þrjú í fyrrinótt eftir að þýfi fannst í íbúðinni. Einnig fannst lítilræði af fíkniefnum í neyslupakkningum, kannabis og annað hvort amfetamín eða kókaín. 21.12.2004 00:01
Náðu fljótt tökum á eldinum Eldur kom upp í hlöðu á bænum Vorsabæjarhóli í Gaulverjabæjarhreppi um klukkan ellefu í fyrrakvöld. Eldurinn logaði í heyi í hlöðunni sem er áföst fjósi. Hvorki mönnum né skepnum var meint af og gekk slökkvistarf vel. 21.12.2004 00:01
Gísli í Fjölbrautaskólann í Ármúla Menntamálaráðherra hefur skipað Gísla Ragnarsson í embætti skólameistara Fjölbrautaskólans við Ármúla til fimm ára frá áramótum. Gísli hefur starfað sem aðstoðarskólameistari við Fjölbrautaskólann í Garðabæ frá 1985. Tíu umsóknir bárust um embættið. 21.12.2004 00:01
Pyndingar héldu áfram lengi Komið hefur í ljós að pyndingar bandarískra hermanna á írökskum föngum héldu áfram löngu eftir að Abu Ghraib hneykslið varð opinbert. Svo virðist sem þessar pyndingar hafi bæði verið víðtækari og að fleiri háttsettir embættismenn í Washington hafi vitað um málið, en áður var talið. 21.12.2004 00:01
Skorinn upp þegar dóp sat fast Rúmlega tvöhundruð grömm af kókaíni voru fjarlægð með skurðaðgerð úr ungum íslenskum karlmanni á Landspítalanum í gær. Maðurinn var í hættu þar sem fíkniefnin voru föst í maga hans og um margfaldan banaskammt var að ræða. 21.12.2004 00:01
Feðgar dæmdir fyrir hasssmygl Fjórir karlmenn voru dæmdir í fjögurra til tuttugu mánaða fangelsi í dag fyrir innflutning á fimmtán kílóum af hassi. Tveir hinna dæmdu eru feðgar. Hassið var flutt til landsins í þremur ferðum. 2 kíló komu í varadekki bíls sem kom með Norrænu. 21.12.2004 00:01
Manhunt var tekinn úr verslunum Fjöldi verslana í Lundúnum tók tölvuleikinn Manhunt, sem fjallað var um í fréttum í gær, úr sölu eftir hryllilegt morð sem talið var að tengdist spilun leiksins. Lítið mál er að nálgast leikinn hér á landi. 21.12.2004 00:01
22 létust í Mosul Að minnsta kosti 22 liggja í valnum eftir sprengjuárás á bandaríska herstöð í nágrenni Mosul í Írak í dag. Mannskæðar sprengjuárásir af þessu tagi eru að verða daglegt brauð nú í aðdraganda þingkosninganna og Tony Blair, forsætisráðherra Breta, þótti því sýna nokkra fífldirfsku með því að dúkka óvænt upp í heimsókn í Bagdad í morgun. 21.12.2004 00:01
Bændur saka ríkið um yfirgang Fjármálaráðherra kynnti í liðinni viku kröfur ríkisins til þjóðlendna á Norðausturlandi. Svæðið er það fjórða sem Óbyggðanefnd hefur til úrskurðar. Landeigendur undrast kröfugerð ríkisins og telja að farið sé offari, meðan fjármálaráðuneytið segist bara uppfylla lögboðnar skyldur. 21.12.2004 00:01
Blásið á brot gegn viðskiptabanni Baldur Þórhallsson, dósent í stjórnmálafræði, telur að ígrunda hefði átt betur ákvörðunina um að bjóða Bobby Fischer landvistarleyfi. Hann telur málið ekki munu skaða samskipti Íslands, Bandaríkjanna og Japans. Lögmaður Fischers fundar með japanska utanríkisráðuneytinu. 21.12.2004 00:01
Ekki verið að senda skilaboð Getgátur eru uppi um að landvistarboð íslenskra stjórnvalda til handa Fischer tengist að einhverju leyti samningaviðræðum Íslands og Bandaríkjanna um framtíð Varnarliðsins. Þór Whitehead sagnfræðingur segir að vissulega geti þetta frumkvæði Íslendinga valdið pirringi í Washington en það sé fullkomlega fráleitt að lesa einhverjar samsæriskenningar út úr þessu máli. 21.12.2004 00:01
Ferðin tefst um sinn Ferð Sæmundar Pálssonar til Japans til að sækja Bobby Fischer, tefst um sinn, vegna óvissu um hvort Fischer verði leystur úr haldi. Taugatitrings virðist gæta meðal japanskra yfirvalda vegna óskar Bandaríkjamanna um að íslensk stjórnvöld dragi til baka boð um að veita honum dvalarleyfi. 21.12.2004 00:01
Viðtökur fram úr björtustu vonum Viðtökur íslensks viðmóts Windows XP stýrikerfisins og Office 2003 skrifstofuhugbúnaðarvöndulsins meðal almennings voru betri en við var búist, að sögn Elvars Steins Þorkelssonar, framkvæmdastjóra Microsoft á Íslandi. 21.12.2004 00:01
Hækkunin er 270 miljónir Oddviti sjálfstæðismanna í borgarstjórn segir hækkun þjónustugjalda hjá borginni að mörgu leyti óeðlilega. Hann segir hækkunina nema 270 milljónum á milli ára. 21.12.2004 00:01
Ill lykt af málinu Forsvarsmaður Þjóðarhreyfingarinnar segir illa lykt af meðhöndlun dómsmálaráðuneytisins á umsókn hreyfingarinnar fyrir söfnun. Dómsmálaráðherra vísar því á bug. 21.12.2004 00:01
Fuglarnir verði notaðir markvisst Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra, er bjartsýnn á framtíð skógræktar hér á landi, þrátt fyrir svarta skýrslu Ríkisendurskoðunar um greinina. Guðni vill markvisst nota snjótittlinga til landgræðslu, eins og gert er við Gunnarsholt. Þeir vinna kauplaust og eru glaðir við sína iðju, segir ráðherra. 21.12.2004 00:01
Meistaranám við KHÍ Boðið verður upp á meistarnám í beinu framhaldi af þriggja ára námi í Kennaraháskóla Íslands árið 2007. Útskrifaðir stúdentar hafa hingað til einungis getað stundað meistaranám eftir minnst tveggja ára starfsreynslu í fjarnámi eða hlutanámi. 21.12.2004 00:01