Innlent

Atvinnurógur af verstu tegund

Landmælingar Íslands vísa því á bug að upplýsingar frá stofnuninni séu ónákvæmar og rangar. Allt tal um slíkt sé atvinnurógur af verstu tegund.  Stöð 2 greindi frá því fyrr í vikunni að Ísland væri, samkvæmt nákvæmum mælingum Loftmynda, 300 ferkílómetrum minna en upplýsingar Landmælinga Íslands kveða á um og að strandlengjan væri 1600 kílómetrum lengri en Landmælingar héldu fram. Samkvæmt upplýsingum frá Landmælingum Íslands er stærð landsins viljandi rúnnuð af við 103.000 ferkílómetra því nákvæm tala þar sem svona litlu skeikar skipti ekki máli. Landmælingar benda á að í gögnum sem stofnunin gaf út á síðasta ári, byggð á nýjustu mælingum miðað við gagnasafnið IS50V, sé Ísland 102.695 ferkílómetrar eða fimm kílómetrum minna en framkvæmdastjóri Loftmynda hafi haldið fram. Hvað lengd strandlengjunnar varðar megi endalaust deila um hvernig mæla skuli strönd. Þá segja Landmælingar að hefð hafi skapast fyrir ákveðnum upplýsingum, líkt og upplýsingum um stærð landsins, og líklega þyki almenningi nóg að vita að landið sé 103.000 ferkílómetrar. Þeir sem þurfi nákvæmari upplýsingar geti gengið að þeim hjá Landmælingum Íslands og fullyrðingar um að stofnunin sendi frá sér rangar upplýsingar sé atvinnurógur af verstu tegund, sem sé ekki svaraverður.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×