Fleiri fréttir

Hálfs árs fangelsi

Héraðsdómur Vestfjarða hefur dæmt rúmlega tvítugan karlmann í hálfs árs fangelsi fyrir tvær líkamsárásir. Helmingur dómsins er skilorðsbundinn. Manninum var gefið að sök að hafa í desember 2002 slegið mann með glasi í höfuðið á skemmtistað í Bolungarvík og að hafa ráðist að öðrum manni fyrir utan veitingastað á Ísafirði í maí á síðasta ári og slegið hann.

Sameining sunnan Skarðsheiðar

Kosið verður um sameiningu hreppanna sunnan Skarðsheiðar þann tuttugasta nóvember næstkomandi. Um er að ræða Hvalfjarðarstrandahrepp, Innri-Akraneshrepp, Leirár- og Melahrepp og Skilamannahrepp. Viðræður um sameiningu og tilraunir til sameiningar hafa staðið yfir í um 15 ár og slitnaði upp úr á síðasta ári án þess að íbúar fengju að kjósa um.

Skorað á bæjarstjórn

Nú á fimmta tímanum ætla kennarar í Kópavogi að afhenda forseta bæjarstjórnar áskorun um að kynna sér kröfur kennara. Að lokinni afhendingu ætla kennarar að fjölmenna á bæjarstjórnarfund. Talsmaður þeirra segir sveitarstjórnarmenn almennt ekki vita nóg um kröfur kennara og skýla sér um of á bak við samninganefnd sína.

Ólíubrák á Ísafirði

Mikil olíubrák er nú á Pollinum á Ísafirði, samkvæmt fréttablaðinu Bæjarins besta. Þar kemur fram að mikinn olíufnyk hafi lagt yfir miðbæ Ísafjarðar í dag, eftir að olía sem verið var að dæla í togskip í höfninni, fór í höfnina. ekki liggur fyrir hversu mikið magn fór í sjóinn.

Vilja einrækta mannsfóstur

Vísindamennirnir sem einræktuðu kindina Dolly, fyrsta einræktaða spendýrið, hafa sótt um leyfi til að einrækta mannsfóstur til að nýta stofnfrumur til rannsókna. Þetta á að gera í því skyni að reyna að finna lækningu við MND.

Ítölsku konunum sleppt

Ítölsku konurnar tvær, sem verið hafa í haldi mannræningja í Írak, eru nú lausar úr prísundinni. Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu segir líðan kvennanna góða. Tveim Írökum sem voru í haldi með konunum hefur einnig verið sleppt.

Tyrki drepinn í Írak

Tyrkneskur flutningabílstjóri var drepinn af uppreinsarmönnum í Írak síðdegis í dag. Að minnsta kosti fjórir Tyrkneskir gíslar hafa verið drepnir síðan í ágúst og tveir eru enn í haldi. Samkvæmt sumum fréttamiðlum er talan þó mun hærri og samkvæmt sjónvarpstöðinni NTV hafa 15 gíslar verið drepnir, 10 eru enn í haldi og 17 hefur verið sleppt.

Kúgaðir í fangelsum

Kynferðisglæpamenn hafa löngum verið fyrirlitnir af samföngum sínum, sem gjarnan ráðast á þá með fúkyrðum og jafnvel ofbeldi, að sögn Ara Björns Thorarensen, formanns Fangavarðafélags Íslands.

Kýldi lögreglumann

Maður á fimmtugsaldri hefur verið ákærður fyrir brot gegn valdstjórninni en hann er sakaður um að hafa kýlt lögreglumann með krepptum hnefa í andlitið í maí í fyrra. Maðurinn mætti ekki í Héraðsdóm Reykjaness þegar átti að þingfesta málið í gær.

Bjóða upp á skyr

Vefritið Vantrú.is ætlar að bjóða þingmönnum upp á skyr þegar þing verður sett á föstudaginn, til að minna á málstað trúleysingja. Forsvarsmenn heimasíðunnar segja aðalmálefni vefritsins nú vera tengsl ríkis og kirkju sem þurfi að rjúfa. Þessi tengsl sjáist einna best við þingsetninguna, sem að stórum hluta sé kirkjuleg athöfn.

Tveir slasast í árekstri

Tveir karlmenn slösuðust þegar annar þeira missti stjórn á bíl sem þeir voru í á hringtorgi á mótum Lindavegar og Fífuhvammsvegar á fjórða tímanum í dag. Bíllinn hafnaði á ljósastaur og skemmdist töluvert. Svo virðist sem hvorugur mannanna hafi verið í belti og köstuðust þeir báðir í framrúðu bílsins með tilheyrandi afleiðingum.

Ákærður fyrir sex líkamsárásir

Hálfþrítugur þekktur ofbeldismaður í Hafnarfirði tók sér frest til að tjá sig um sex líkamsárásir og vopnalagabrot sem hann er ákærður fyrir þegar mál hans var þingfest í Héraðsdómi Reykjaness. Ákæra á hendur manninum, fyrir að hafa slegið mann í höfuðið með öxi á veitingastaðnum A.Hansen í Hafnarfirði síðasta dag ágústmánaðar, er í undirbúningi.

Tony Blair undir þrýstingi

Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands viðurkenndi í dag að stríðið í Írak hefði valdið klofningi meðal bresku þjóðarinnar, og að upplýsingar um gereyðingavopnaeign Saddams Hússeins hefðu verið rangar. Hávær mótmæli skyggðu á ræðu Blairs á þingi Verkamannaflokksins síðdegis.

Tjaldferðalög að leggjast af

Gestum á tjaldsvæðum þjóðgarðanna á Þingvöllum og í Skaftafelli hefur fækkað um 50 til 60 prósent á fjórtán ára tímabili. Íslendingar gista síður á tjaldstæðunum meðan komur útlendinga standa nánast í stað.

Kviknaði í út frá rafmagni?

Grunur leikur á að kviknað hafi í út frá rafmagni þegar iðnaðarhúsnæði brann til grunna á Blönduósi í nótt. Tugmilljóna tjón varð í brunanum. Bæjarstjórinn óttast um afleiðingarnar fyrir atvinnumál á staðnum.

Undanþágur í lok vikunnar?

Ef kennaraverkfall stendur enn við lok vikunnar gætu undanþágur vegna fatlaðra barna verið veittar. Tíu undanþágubeiðnir voru teknar fyrir á fundi undanþágunefndar í dag. Fjórar þeirra voru ítrekun á beiðnum vegna kennslu fyrir fötluð börn, sem áður hafði verið hafnað.

Verri afkoma kúabænda

Hagur kúabænda versnaði milli áranna 2002 og 2003 að því er fram kemur í árlegri skýrslu Hagþjónustu landbúnaðarins um uppgjör búreikninga. Skoðaður var rekstur 193 sérhæfðra kúabúa, en til að falla undir þá skilgreiningu þurfa búin að vera með 70 prósent búgreinatekna sinna af afurðum nautgripa.

Krafa um að framkvæmdir stoppi

Nágrannar gamla Eimskipafélagshússins hafa krafist þess að framkvæmdir verði stöðvaðar við fyrirhugað hótel í húsinu. Hvorki liggur fyrir byggingaleyfi né bráðabirgðaleyfi til framkvæmdanna.

Hálfur milljarður í kostnað

Umferðartafir í Reykjavík kosta sendibíla í borginni 525 milljónir á ári hverju, samkvæmt útreikningum Kristins Vilbergssonar, framkvæmdastjóra Dreifingarmiðstöðvarinnar og Vörubíls. Kristinn gerir ráð fyrir að um 5 prósent af heildaraksturstíma sendibíla fari í umferðartafir, eða um 275 klukkustundir í mánuði.

Sauðfjárbændur fá minna í vasann

Í tölum Hagþjónustu landbúnaðarins kemur fram að tekjur sauðfjárbúa, fyrir laun eiganda, hafi lækkað úr 979 þúsund krónum árið 2002 í 837 þúsund krónur árið 2003. Lækkunin nemur 14 prósentum.

Byr í seglin hjá Bush

George W. Bush Bandaríkjaforseti hefur drjúgt forskot á keppinaut sinn í forsetakosningunum í haust, John Kerry, samkvæmt nýjum skoðanakönnunum.

Skammaður fyrir kveðjuna

Breski utanríkisráðherrann Jack Straw sætir harðri gagnrýni heima fyrir sökum þess að hann tók í hendina á Robert Mugabe, forseta Simbabve, í móttöku í tengslum við þing Sameinuðu þjóðanna í síðustu viku. Mugabe hefur verið harðlega gagnrýndur fyrir mannréttindabrot og hafa Bretar verið framarlega í flokki þeirra sem krefjast umbóta í Simbabve.

Aftur í fangelsi

Fangarnir tveir sem flýðu úr fangelsi vestur af Stokkhólmi í síðustu viku eru á bak vil lás og slá á ný. Fangarnir fundust nærri Örebro og gáfu sig að lokum á vald lögreglu. Áður en til þess kom áttu þeir þó í löngum samningaviðræðum við lögreglu og meðan á þeim stóð skaut annar fanginn úr haglabyssu að flugvél sem sveimaði yfir með spennta fréttamenn.

Metfjöldi tjaldgesta í Ásbyrgi

Metfjöldi heimsótti Jökulsárgljúfur í sumar að sögn Árna Bragasonar, forstöðumanns umhverfisverndarsviðs Náttúrufræðistofnunar. Hann segir að aldrei hafi fleiri sótt tjaldstæðin í Ásbyrgi og í Vesturdal heim, hvorki Íslendingar né útlendir ferðamenn.

Vilja ríkisvæða lestakerfið

Forysta breska Verkamannaflokksins varð fyrir áfalli þegar fulltrúar á þingi flokksins samþykktu ályktun um að ríkisvæða ætti lestakerfið á nýjan leik. 64 prósent greiddu atkvæði með tillögunni en 36 prósent voru andvíg henni.

Efins um faðernið

Eiginmenn í Peking, höfuðborg Kína, fara nú fram á faðernispróf í mun meiri mæli en áður. Á einu stærsta sjúkrahúsi borgarinnar hefur faðernisprófum fjölgað um fimmtung frá fyrra ári og sömu sögu er að segja víðar í borginni.

Eftirlitsbúnaður á skólabörn

Eftirlitsbúnaði hefur verið komið fyrir á nemendum í nokkrum japönskum grunnskólum. Búnaðurinn sendir frá sér boð í nema sem skrá hvenær börnin mæta í skólann og hvenær þau yfirgefa hann.

Mikill áhugi á kosningunum

Forsetakosningarnar í haust virðast vekja mun meiri áhuga meðal almennings en kosningar síðustu áratuga. Í það minnsta er mun meira um að einstaklingar sem ekki hafa kosið áður láti bæta sér inn á kjörskrá í sínu kjördæmi.

Hóta uppreisn um alla Nígeríu

Forystumenn nígerískra uppreisnarmanna við árósa Nígerfljótsins segjast ætla að hefja allsherjarbaráttu gegn stjórnvöldum á föstudag til að ná yfirráðum yfir olíulindum landsins á sitt vald. Þá eru 44 ár liðin frá því Nígería fékk sjálfstæði frá Bretum.

Hátt olíverð hefur minni áhrif hér

Hæsta olíuverð í sögunni hefur viðtæk áhrif, meðal annars hér á landi. Alls hefur olíuverð hækkað um 55% á árinu. Áhrifanna verður vart hér á landi, og ekki bara við bensíndæluna. Útgerðir og aðrir sem þurfa á olíu að halda greiða meira, flutningskostnaður eykst og sá kostnaður streymir að mestu út í verðlag.

Hungursneyð ógnar milljónum

Hungursneyð vofir yfir tveimur milljónum íbúa Lesótó, Malaví og Svasílands að sögn forsvarsmanna Matvælaáætlunar Sameinuðu þjóðanna. Búist er við því að fólkið verði farið að líða skort áður en kemur að næstu uppskeru, í apríl.

Olíuauður streymir í ríkissjóð

Norski fjármálaráðherrann, Per-Kristian Foss, hefur fulla ástæðu til að gleðjast þessa dagana, að sögn norska blaðsins Dagens Næringsliv. Blaðamenn þess hafa reiknað út að hækkun olíuverðs á heimsmörkuðum leiði til þess að tekjur ríkissjóðs í ár hækki um andvirði rúmra 500 milljarða íslenskra króna frá því sem spáð var.

Baulað á Blair

"Ég veit að þetta málefni hefur klofið þjóðina. Ég skil fullkomlega hvers vegna margir eru ósammála ákvörðuninni," sagði Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, þegar hann fjallaði um innrásina í Írak og þær deilur sem hún hefur valdið í bresku samfélagi. Hann sagðist þó engan veginn geta beðist afsökunar á því að taka þátt í að steypa Saddam Hussein af stóli.

Framsókn fundar

Þingflokkur Framsóknarflokksins kom saman til fundar klukkan sex í kvöld til að skipta með sér verkum fyrir komandi þing. Siv Friðleifsdóttir bætist nú í hóp óbreyttra þingmanna eftir að ráðherrum flokksins fækkaði þegar Halldór Ásgrímsson tók við forsætisráðuneytinu.

Munað getur kílói á hvern dilk

Sökum hita og þurrka í sumar kemur fé rýrara af fjalli í haust. Ástandið er misslæmt eftir landshlutum, verst á Norðausturlandi. Fleiri hlutir spila þó inn í varðandi afkomu í sauðfjárrækt.

Lýst eftir stúlku í Keflavík

Lögreglan í Keflavík lýsir eftir Sunnu Dögg Scheving. Hún er 16 ára, til heimilis að Birkiteig 12, Keflavík. Hún er með dökklitað, axlarsítt hár og er um 155 cm á hæð. Ekkert hefur spurst til Sunnu Daggar síðan á sunnudag en þá var hún stödd í Reykjavík og var hún þá í bláum íþróttabuxum og svörtum anorak.

Ítölsku konunum sleppt

Tveimur ítölskum konum sem verið hafa í haldi mannræningja í Írak var í dag sleppt. Konunum var báðum rænt í byrjun mánaðarins og síðan hafði ekkert heyrst frá þeim. Í síðustu viku var fullyrt á íslamskri vefsíðu að þær hefðu verið drepnar, en í dag var þeim skilað ósködduðum. Að auki var þremur Egyptum, sem rænt var fyrr í mánuðinum, sleppt.

Skaut fjóra bekkjarfélaga til bana

Fimmtán ára nemandi skaut fjóra bekkjarfélaga sína til bana og særði fimm til viðbótar í skotárás í skóla í Carmen de Patagones í Argentínu. Nemandinn dró upp skammbyssu og byrjaði að skjóta af handahófi á samnemendur sína.

Skorað á bæjarstjórn Kópavogs

Grunnskólakennarar í Kópavogi fjölmenntu á fund forseta bæjarstjórnar í dag til að skora á hann að beita sér fyrir lausn kjaradeilunnar við kennara. Að því loknu flykktust kennarar á bæjarstjórnarfund.

Öllum flugfreyjum sagt upp störfum

Öllum íslenskum flugfreyjum, rúmlega 40 talsins, sem starfa hjá Iceland Express verður sagt upp störfum vegna hagræðingar. Gert er ráð fyrir að þær fái starf hjá Astreus, flugfélaginu sem flýgur fyrir Iceland Express.

Brim hleypir illu blóði í viðræður

Guðmundur Kristjánsson framkvæmdastjóri Brims hefur að mati forkólfa verkalýðssamtakanna hleypt illu blóði í kjaraviðræður sjómanna og útvegsmanna með því að þvinga áhöfn Sólbaks til að gera leynilega sérsamninga. Á móti sakar Guðmundur Sjómannasambandið um gamalsdags hugsunarhátt sem hindri framþróun í sjávarútvegi.

Aldraðir verða best settir

Aldraðir verða ástmegir fjármálaráðherra um miðja öldina, segir Ásmundur Stefánsson ríkissáttasemjari sem í dag opinberaði nýja spá um framtíð þjóðarinnar. Að hans mati verða aldraðir best settu þegnar landsins eftir rúm þrjátíu ár, vel stæðir skattgreiðendur og engum háðir.

Íslendingar í fararbroddi

Íslendingar eru í fararbroddi í fjarskiptatækni, og búa því yfir einstöku hugviti á því sviði, segir Kenneth Peterson, fyrrum eigandi Norðuráls. Hann hefur nú keypt íslenskt hugvit til að byggja upp breiðbandskerfi á Írlandi.

Prestur hirti virkjunarbæturnar

Prestastéttin í landinu logar vegna milljóna sem runnu í vasa sóknarprestsins á Valþjófsstað í formi bóta frá Landsvirkjun vegna framkvæmdanna við Kárahnjúka. Séra Lára G. Oddsddóttir samdi sjálf við Landsvirkjun um 15 milljónir og hótaði Prestsetrasjóði að hirða alla upphæðin fengi hún ekki minnst helminginn í sinn hlut.

Heimskulegt segir Kristinn H.

"Þetta er heimskuleg og vanhugsuð ákvörðun sem skapar ný og erfiðari mál en henni var ætlað að leysa," segir Kristinn H. Gunnarsson þingmaður Framsóknarflokksins. Þingflokkurinn ákvað í gær að reka Kristin úr öllum nefndum og ráðum sem hann hefur setið í á vegum þingflokksins.

Sjá næstu 50 fréttir