Fleiri fréttir

Kristinn H. fallinn í ónáð

Þingflokkur Framsóknar treystir Kristni H. Gunnarssyni ekki til að sitja í nefndum á vegum þingsins. Kristinn segir að sjálfstæði hans í tveimur málum hafi valdið óánægju innan forystu flokksins. Ætlar að starfa áfram innan þingflokksins. </font /></b />

Einn á báti

Saga Kristins H. Gunnarssonar innan Framsóknarflokksins er stutt en viðburðarík. Fyrir sex árum gekk hann í raðir flokksins og var strax leiddur í öndvegi. Í gærkvöldi var hann orðinn útlagi í eigin flokki eftir að þingflokkurinn úthýsti honum úr nefndum alþingis.

Reykingar bannaðar á matsölustöðum

Reykingabann á veitingahúsum kann að verða samþykkt á Alþingi í vetur. Drög að frumvarpi til tóbaksvarnalaga, þar sem gert er ráð fyrir banninu, er tilbúið í heilbrigðisráðuneytinu og Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra hyggst leggja frumvarpið fram í haust.

Powell svartsýnn

Óöldin í Írak fer enn versnandi, að mati Colin Powels, utanríkisráðhera Bandaríkjanna,sem telur að tilgangur uppreisnarmanna sé meðal annars að trufla fyrirhugaðar þingkosningar í landinu í janúar. Uppreisnarmenn vörpuðu í morgun sprengjum á lögregluskóla í austur Bagdad. Engar fregnir hafa þó borist af mannfalli, en þrír íraskir þjóðvarðliðar fórust í sprengjutilræði í Mosul.

Önnur vikan hafin

Önnur vika kennaraverkfallsins er hafin og að sagði Ríkissáttasemjari í gær að ekkert benti til þess að annar hvor deilenda myndi leggja fram nýjar tillögur til sátta á næstunni. Næsti samningafundur hefur verið boðaður á fimmtudagsmorgun

Atkvæðagreiðsla um hersetu í Írak

Atkvæði verða greidd á ársþingi breska Verkamannaflokksins um hvort kalla eigi heim herlið Breta frá Írak. Atkvæðagreiðslan verður á fimmtudaginn. Nú þegar hefur stríðið í Írak tekið að skyggja á allt annað á flokksþinginu en fyrirfram var talið að það myndi að mestu snúast um innanríkismál.

Ekki vitað hver sprengdi

Lögreglan á Selfossi er engu nær um það hver eða hverjir sprengdu öfluga sprengju í grennd við lögreglustöðina í fyrinótt. Til merkis um hversu kröftug hún var, þá flugu brot úr sprengjunni allt að tuttugu metra og höfnuðu meðal annars við vegg lögreglustöðvarinnar.

6 látnir í Florida

Fjórði fellibylurinn á sex vikum gengur nú yfir Flórída. Að minnsta kosti sex manns hafa látið lífið af völdum fellibylsins. Yfir en ein og hálf milljón heimila og fyrirtækja á svæðinu er án rafmagns. Vindhraðinn fellibylsins var 193 kílómetrar á klukkustund þegar hann náði landi.

Leikur veldur nærri stórtjóni

Minnstu munaði að leikur tveggja ellefu ára stráka að eldi austur í Hveragerði um níuleitið í gærkvöldi ylli umtalsverðu tjóni. Þeir kveiktu í ruslagámi, sem stóð upp við áhaldahús bæjarins og náði eldurin að læsa sig í tréklæðningu á húsinu, en vegna þess hversu fljótt eldsilns varð vart, var strax kallað á slökkvilið

Alvarlega slasaður eftir veltu

Karlmaður, sem var ásamt fleirum að smala fé sunnan Myrdalsjökuls í gær, slasaðist alvarlega þegar fjórhjól hans valt. Ekki urðu vitni að slysinu en talið er að hann hafi orðið undir fjórhjólinu í veltunni.

Þrír stöðvaðir vegna hraðaksturs

Heimþrá bar löghlýðni þriggja ökumanna á heimleið til Akureyrar ofurliði í gærkvöldi og slóu þeir ótæpilega í fararskjóta sína. Lögreglumenn á eftirlitsferð sáu hinsvegar til þeirra og stöðvuðu þá alla með skömmu millibili enda mældust þeir allir á vel yfir 100 km. hraða.

Nauðlenti vegna sprengjuhótunar

Flugvél með 301 farþega um borð nauðlenti nærri London í gær vegna sprengjuhótunar. Vélin, sem er frá Olympic Airlines flugfélaginu, var á leiðinni frá Grikklandi til New York. Eftir að hótunin barst óskaði flugstjóri vélarinnar eftir fylgd frá herþotum Breta. Vélin lenti á Standsted flugvellinum, rétt norðan við London, skömmu síðar.

Nokkrir látnir í Dubai vegna hruns

Nokkrir starfsmenn flugvallarins í Dubai létust þegar viðbygging sem var í viðgerð hrundi á flugvellinum fyrir stundu. Starfsmennienir urðu undir þegar byggingin hrundi, en ekki er meira vitað um tildrög slyssins að svo stöddu.

Háttsettur Al-Qaeda liði líflátinn

Yfirvöld í Pakistan segjast hafa líflátið helsta hryðjuverkamann landsins, Amjad Farooqi, háttsettan Al-Qaeda liða. Amjad er sagður hafa staðið á bak við tilræði við forseta Pakistan og einnig morðið á Bandaríkjamanninum Daniel Pearl. 

Dan Rather látinn fara?

Framtíð fréttamannsins Dans Rathers er í tvísýnu eftir að hann flutti umdeilda frétt í fréttaskýringaþættinum sextíu mínútur um herþjónustu Bush Bandaríkjaforseta. Efnislega er fréttin sögð vera rétt, en í ljós kom að skjöl sem voru lögð henni til grundvallar voru fölsuð.

Kennth enn á lífi segir bróðirinn

Paul Bigley, bróðir Kenneths Bigley, Bretans sem er í haldi mannræningja í Írak, segist hafa öruggar heimildir fyrir því að Kennth sé enn á lífi. Í gær var sagt frá því á íslamskri heimasíðu að Kenneth hefði verið líflátinn líkt og Bandaríkjamennirnir tveir sem voru með honum í haldi.

Afkoma sauðfjárbænda versnar

Afkoma sauðfjárbænda var lakari í fyrra en árið áður þrátt fyrir að ýmis skilyrði hafi breyst þeim í hag.

Blóðtaka hjá Al-Qaeda

Al-Qaeda samtökin í Pakistan urðu fyrir mikilli blóðtöku í gær þegar einn æðsti leiðtogi þeirra var drepinn í skotbardaga. Erlend sendiráð, opinberar stofnanir og bænastaðir eru í viðbragðsstöða af ótta við hefndarverk.

Kauphöll lokuð vegna bilunar

Vegna bilunar hjá Landsíma Íslands, sæstreng, í morgun náði stór hluti kauphallaraðila ekki að ljúka við að hlaða gögnum sem nauðsynleg eru til að hefja viðskipti klukkan tíu. Kauphöllin ákvað því að fresta opnun markaða um 30 mínútur. Opnunaruppboð hófust því kl. 10:15 og samfelld viðskipti kl. 10:30.

Skemmdir á byggðasafni

Brotist var inn í Byggðasafn Austur-Skaftfellinga um helgina og þar unnin mikil skemmdarverk og óbætanlegt tjón að sögn safnvarðar. Þjófurinn, eða þjófarnir virðast ekki hafa verið að leita að neinu verðmætu, heldur aðeins bortist inn í safnið til að svala skemmdarfýsn sinni.

Leikskólastarf líka í uppnámi?

Verkfall grunnskólakennara gæti haft áhrif á starfsemi leikskóla, þar sem leikskólakennarar geti ekki mætt til vinnu vegna eigin barna. Leikskólabörn verði því hugsanlega send heim.

Blair enn í vanda

Tony Blair tapaði fyrstu lotu í baráttunni um hug og hjörtu breska Verkamannaflokksins. Blair vildi ræða innanríkismál, en flokksmenn þvinguðu fram neyðarumræður um stríðið í Írak. Í dag er svo komið að uppgjöri þeirra Blairs og Gordons Browns, fjármálaráðherra.

Segja átti öllum starfsmönnum upp

Til stóð að segja öllum starfsmönnum Norðurljósa upp störfum á vormánuðum hefði fyrsta fjölmiðlafrumvarp ríkisstjórnarinnar orðið óbreytt að lögum.

Íhuga að skipuleggja starfsemi

Hvorugur deilenda í Kennaraverkfallinu hafði nú undir hádegið óskað efitir því við Ríkissáttasemjara að fyrirhuguðum samningafundi hjá Ríkissáttasemjara á fimmtudag yrði flýtt.

Hefur áhrif á starfsemi Icelandair

Skyndiverkfall flugumferðarstjóra í Noregi hefur áhrif á flug Icelandair. Þannig lenti farþegaþota félagsins í áætlunarflugi til Osló í Bergen á vesturströnd Noregs klukkan 10 í morgun. Rúmlega hundrað farþegar voru um borð. Ekki er vitað hvenær flugumferðarstjórar hefja störf á ný, en samningafundir standa yfir. Flogið verður frá Bergen til Osló eins fljótt og unnt er eftir að opnað verður fyrir flugumferð og síðan frá Osló til Íslands með þá 150 farþega sem bíða þar, en til stóð að fljúga þaðan til baka síðdegis. Viðkomandi eru hvattir til þess að fylgjast með breytingum á áætlun á textavarpi eða Netinu.

Heyrir „King size" sögunni til?

Það fer brátt hver að verða síðastur til þess að næla sér í „King Size" súkkúlaðistykki í Bretlandi. Súkkúlaðiframleiðendur hyggjast hætta framleiðslu á yfirstærðum, vegna mikils þrýstings þar að lútandi frá heilbrigðisyfirvöldum. Talsmaður matvælaframleiðenda í Bretlandi segir engan áhuga vera fyrir því að settar verði reglugerðir til þess að reyna að sporna við offituvandanum og því ætli súkkúlaðiframleiðendur að grípa til sinna eigin ráða í tæka tíð. Til að mynda er stefnt að því að engin Cadbury súkkúlaðistykki í yfirstærðum verði á boðstólnum þegar líður á næsta ár.

Virgin á leið út í geim

Nýjasti áfangastaður Virgin-flugfélagsins er geimurinn. Breski milljarðamæringurinn Richard Branson, eigandi félagsins, segir til standa að bjóða geimferðir á vegum nýs félags, Virgin Galactic, frá og með árinu 2007.

Deilt um undanþágur

Kolbrún Halldórsdóttir, þingmaður Vinstri-grænna, telur synjun á undanþágum fyrir fjölfjötluð börn eðlilega á þessu stigi málsins, en Sigurður Kári Kristjánsson, þingmaður fyrir Sjálfstæðisflokkinn, lýsti sig ósammála því í viðtali við Gunnlaug Helgason og Heimi Karlsson í Íslandi í bítið í morgun.

Óbætanlegt tjón

Listaverk eftir Ríkharð Jónsson urðu meðal annars fyrir barðinu á skemmdarvargi, sem svalaði skemmdarfýsn sinni í Byggðasafni Austur Skaftfellinga um helgina, þar sem óbætanlegt tjón var unnið.

Viðræður fram í næsta mánuð

Niðurstöðu úr sameiningarviðræðum Tækniháskóla Íslands og Háskólans í Reykjavík er ekki að vænta fyrr en undir miðjan næsta mánuð, að sögn Stefaníu Katrínar Karlsdóttur, rektors Tækniháskólans.

Minni kálfaslátrun en í fyrra

Slátrun nautkálfa hefur dregist saman síðustu mánuði, miðað við sama tímabil í fyrra, að því er fram kemur á vef Landssambands kúabænda. Slátrun ungkálfa hefur dregist saman um 8 prósent síðustu 12 mánuði miðað við sama tímabil árið áður og um 15 prósent ef horft er til síðustu 6 mánuða.

15 ár í inngöngu Tyrkja

Að minnsta kosti 15 ár eru þangað til Tyrkland getur gengið í Evrópusambandið að mati fjármálaráðherra Frakklands, Nicolas Sarkozy. Þá segir Sakorsky að innganga Tyrkja í sambandið sé háð því að Frakkar samþykki það í þjóðaratkvæðagreiðslu.

Jahaní sleppt

Írakskir mannræningjar hafa sleppt íranska diplómatanum Fereidún Jahaní, sem rænt var í síðasta mánuði, samkvæmt frétt íranska sjónvarpsins og er hann nú í sendiráði Írans í Bagdad. Jahaní var konsúll í hinni helgu borg sítamúslima Kerbala.

Kennarar fá stuðning og átalningu

Í yfirlýsingu frá Kennarafélagi Vesturlands er fullum stuðningi við samninganefnd Kennarasambands Íslands lýst yfir og hún hvött til að kvika hvergi frá settum kröfum. Og stjórn Heimdallar átelur þá afstöðu KÍ að veita ekki undanþágur til kennara sem koma að kennslu og umönnun fatlaðra barna.

Gríska vélin aftur á loft

Gríska flugvélin sem lenti á Stansted flugvelli eftir sprengjuhótun í morgun, hefur fengið grænt ljós á að halda áfram ferð sinni til New York. Nafnlaust símtal barst grísku dagblaði í morgun, þar sem sagt var að í flugvélinni væri sprengja fyrir Bandaríkjamenn.

Bin Laden í Pakistan?

Osama Bin Laden er líklega á lífi og heldur til í Pakistan. Þetta segir Pervez Musharraf, forseti Pakistans og byggir hann þetta á upplýsingum frá leyniþjónustunni í landinu. Að sögn Musharrafs hafa yfirheyrslur á háttsettum liðum úr Al-Qaeda leitt í ljós að margt bendi til að Bin Laden sé á lífi og haldi til í Pakistan. Það sé mun líklegra en að hann haldi til í Afghanistan, enda telji háttsettir menn í hryðjuverkasamtökunum sig mun öruggari í Pakistan

Reynt að raska ekki leikskólum

Bergur Felixson, framkvæmdastjóri Leikskóla Reykjavíkur, segir að reynt verði að skipuleggja starfsemi leikskóla þannig að röskun vegna verkfalls grunnskólakennara verði sem minnst.

Lokahátíðinni frestað

Lokahátíð Ólympíumóts fatlaðra í Aþenu var aflýst eftir að sjö skólabörn sem voru á leið á hátíðina biðu bana í bílslysi. Börnin voru í rútu sem lenti í árekstri við flutningabíl. 41 var í bílnum og sluppu aðeins fjórir án meiðsla.

Sprengja á Gaza

Flugskeyti var skotið úr ísraelskri þyrlu á bíl á sunnanverðu Gaza-svæðinu í dag. Skotmarkið var Mohammed Abu Nsair leiðtogi herskárra Palestínumanna. Hann særðist í árásinni sem og fjöldi annarra. Ísraelsmenn hafa ráði fjölda leiðtoga Palestínumanna af dögum með þessum hætti undanfarin fjögur ár.

5 létust í sprengingum

Flugvélar Bandaríkjamanna sprengdu upp bækisstöðvar uppreisnarmanna í Baghdad í dag, með þeim afleiðingum að 5 létu lífið og 40 særðust.

Súkkulaðið minnkar

Viðbrögð breskra sælgætisframleiðenda við gagnrýni sem þeir hafa sætt vegna vaxandi offituvandamála falla í grýttan jarðveg, hvort tveggja hjá þeim sem finnst of langt gengið og þeim sem finnst ekki nóg gert til að takast á við vandann.

Danskir ráðamenn réttmætt skotmark

Danski forsætisráðherrann, varnarmálaráðherrann og danskir hermenn í Írak eru réttmæt skotmörk hryðjuverkamanna. Þetta sagði danskur múslimi sem var fyrr á árinu leystur úr haldi Bandaríkjamanna sem héldu honum föngnum í Guantanamo.

Hjúkrunarkona ákærð fyrir morð

51 árs gömul hjúkrunarkona í Bretlandi hefur verið ákærð fyrir að drepa þrjár konur á aldrinum 67-95 ára, sem allar voru sjúklingar á spítala í Yorkshire. Að auki hefur hjúkkan verið ákærð fyrir að reyna að drepa 42 ára gamlan mann sem einnig lá á spítalanum, sem og fyrir að gefa 13 öðrum sjúklningum banvænan skammt af lyfjum.

Tveir endurnýja undanþágubeiðni

Tveir af þeim sem var synjað um undanþágu vegna kennaraverkfallsins hafa endurnýjað umsóknir sínar. Öllum umsóknum um undanþágur hefur hingað til verið hafnað, en fulltrúi kennara í nefndinni hefur sagt að ekkert sé því til fyrirstöðu að sækja aftur um undanþágu dragist verkfallið á langinn.

Út í geim

Richard Branson, eigandi Virgin-fyrirtækjahópsins, verður seint sakaður um að setja markið ekki hátt. Árum saman hefur Virgin Atlantic flugfélagið verði meginviðfangsefni hans, en hvers vegna að fljúga í tíu kílómetra hæð á milli landa eins og allir hinir þegar maður vill í raun komast miklu lengra?

Sjá næstu 50 fréttir