Baulað á Blair 28. september 2004 00:01 "
Ég veit að þetta málefni hefur klofið þjóðina. Ég skil fullkomlega hvers vegna margir eru ósammála ákvörðuninni," sagði Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, þegar hann fjallaði um innrásina í Írak og þær deilur sem hún hefur valdið í bresku samfélagi. Hann sagðist þó engan veginn geta beðist afsökunar á því að taka þátt í að steypa Saddam Hussein af stóli. Ræðu Blairs á þingi Verkamannaflokksins var beðið með eftirvæntingu. Viðbrögðin voru að sumu leyti eftir því. Sumir andstæðingar innrásarinnar bauluðu á forsætisráðherrann og gripu fram í fyrir honum meðan hann hélt ræðuna. Ræðuna flutti Blair í skugga þess að hryðjuverkamenn hóta að myrða breskan gísl og ekki bætti úr sök að tveir breskir hermenn létust í fyrirsát íraskra vígamanna í gær. Blair viðurkenndi að sumar upplýsingar sem innrásin var byggð á hefðu reynst rangar og kvaðst geta beðist afsökunar á því. Það breytti því þó ekki að Bretar ættu að ljúka verkefninu sem þeir hefðu hafið og styðja við bakið á írösku þjóðinni í enduruppbyggingu lands þeirra.
Erlent Fréttir Stj.mál Mest lesið Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Innlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Rannsaka komu mögulegra launmorðingja hingað til lands Innlent Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Erlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Innlent Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Innlent Google gerir athugasemdir við frumvarp Ingu Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Fleiri fréttir Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Sjá meira