Krefur ráðherra um rökstuðning 27. ágúst 2004 00:01
Helga Jónsdóttir borgaritari hefur óskað eftir rökstuðningi félagsmálaráðherra fyrir því að hafa ráðið Ragnhildi Arnljótsdóttur lögfræðing í stöðu ráðuneytisstjóra í félagsmálaráðuneytinu. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrverandi borgarstjóri, segir það vera með ólíkindum að gengið sé fram hjá Helgu. Sex sóttu um stöðu ráðuneytisstjóra í félagsmálaráðuneytinu. Þar af voru þrjú talin hæfust: Ragnhildur Arnljótsdóttir, Helga Jónsdóttir og Hermann Sæmundsson, settur ráðuneytisstjóri. Helga er lögfræðingur að mennt og hefur verið borgarritari frá árinu 1995. Hún hefur auk þess verið aðstoðarmaður forsætisráðherra, utanríkisráðherra og skrifstofustjóri í forsætisráðuneytinu um þriggja ára skeið. Helga vildi ekki tjá sig um skipun ráðherra í stöðuna í dag að öðru leyti en því að hún hefði beðið um rökstuðning fyrir þessari ákvörðun. Umsóknarfrestur um stöðuna var framlengdur í tvígang og komust sögur á kreik um að það hefði verið vegna umsóknar Helgu en vilji manna hefði staðið til að ráða Hermann Sæmundsson. Menn hafi óttast að ef það yrði gert yrði málið kært til kærunefndar jafnréttismála. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrverandi borgarstjóri, segir Ragnhildi Arnljótsdóttur mæta og hæfileikaríka konu og að hún eigi ekkert nema gott skilið. Það varpi hins vegar ekki rýrð á hana þótt dregið sé fram að í hópi umsækjenda hafi verið manneskja sem hafi hvað mesta reynslu og þekkingu á stjórnsýslu ríkis og sveitarfélaga, sem sé Helga. Ingibjörg segir það eiginlega óskiljanlegt að gengið skuli hafi verið framhjá Helgu og hún spyrji sig til hvers fólk, svo ekki sé talað um konur, skuli vera að leggja á sig mikla menntun, vinnu og þjálfun og uppskera svo ekkert í samræmi við það. Ingibjörg segist ekki vita hvað valdi í þessu tilfelli og kveðst eiginlega hætt að skilja hvað ráði gjörðum þeirra sem með völdin fara í þessu samfélagi. Hún segist samt halda að það hafi sitt að segja að Helga hafi verið náin samstarfskona Ingibjargar þegar hún var borgarstjóri, og jafnvel einnig að hún verið samstarfskona Steingríms Hermannssonar, fyrrverandi forsætisráðherra.
Fréttir Innlent Mest lesið Rúmlega helmingur starfsmanna Félagsbústaða hættur Innlent Ákærður fyrir líkamsárás en lýsir yfir sakleysi Innlent „Sátt og samlyndi“ um skyndileg starfslok varaslökkviliðsstjóra Innlent Hætta að skilgreina gróðurhúsalofttegundir sem skaðlegar Erlent Rifust um Trump áður en faðir skaut dóttur sína til bana Erlent „Myndi ekki koma mér á óvart ef það færi að gjósa þarna“ Innlent Einfalt að stýra glæpahring frá allt öðru landi Innlent Ólína fyllir í skarð Margrétar á Bifröst Innlent Nafngreindi sex mögulega samverkamenn Epstein á þinginu Erlent Smíða tengibyggingu sem verður hjarta Leifsstöðvar Innlent Fleiri fréttir Kynnir drög að aðgerðaáætlun til að bregðast við offitu Íslendinga Ársæll í veikindaleyfi: „Mjög skrýtið að fá sleggju ríkisstjórnar í andlitið“ Ákærður fyrir líkamsárás en lýsir yfir sakleysi Ólína fyllir í skarð Margrétar á Bifröst „Sátt og samlyndi“ um skyndileg starfslok varaslökkviliðsstjóra Starfsfólk bráðamóttöku óttist um heilsu sína og öryggi Einfalt að stýra glæpahring frá allt öðru landi Vill að virðisaukaskattur á barnavörur verði látinn fjúka Starfsfólk á bráðamóttöku segist óttast um öryggi sitt Afplánaði of lengi en fær ekki krónu Hæstiréttur fjallar um hryðjuverkamálið svokallaða í dag Rúmlega helmingur starfsmanna Félagsbústaða hættur „Myndi ekki koma mér á óvart ef það færi að gjósa þarna“ Smíða tengibyggingu sem verður hjarta Leifsstöðvar „Aðferðafræðin við þetta mál er alveg galin“ Úkraínumenn á Íslandi minntust Kjartans Sævars Lægðirnar nái ekki til landsins Réðst á fyrrverandi kærasta sinn eftir sambandsslit Fiskúrgangi fargað á útivistarsvæði: „Þetta er náttúrulega bara viðbjóður“ Stoltur yfir arfleifð Bryndísar Klöru en söknuðurinn sár Spila styrktarleik til minningar um Patrek: „Hans er sárt saknað“ Taki þátt í skipulagningu frá Litla-Hrauni Segja gögn um verktakagreiðslur tekin úr samhengi Innflutningi stýrt frá Litla-Hrauni Hefjast handa á rúmlega hundrað íbúðum fyrir fyrstu kaupendur Grikki grunaður um morð látinn dúsa tvær vikur til viðbótar Hættur við að fá dómkvadda matsmenn vegna varnargarða Bílvelta í Ártúnsbrekku Tók þrjátíu sekúndur að fara inn og út „Málþófsflokkarnir“ séu mættir „í fullum skrúða með leikrit og skuespil“ Sjá meira