Verð gæti hækkað tímabundið 27. ágúst 2004 00:01
Ný húsnæðislán bankanna gætu orðið til þess að húsnæði hækkaði tímabundið í verði á höfuðborgarsvæðinu. Íbúðaverð gæti hins vegar lækkað aftur og niður fyrir veðsetningu. Þá gæti húseignin rétt hrokkið fyrir lánunum, neyddist fólk til að selja. Tryggvi Þór Herbertsson, forstöðumaður Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands, segir hættu á því að almenningur fari á eyðslufyllerí og hleypi af stað verðbólguaskriðunni. Þar með myndi Seðlabankinn fara af stað með vaxtahækkanir og ríkið þyrfti að draga úr útgjöldum sínum. Þannig myndi sú kjarabót sem fólk fengið með nýjum og betri húsnæðislánum fara fyrir lítið. Tryggvi segir að ef fólk fer í miklum mæli að nýta sér hinar auknu veðheimildir og lágu vexti bankanna í neyslu, þ.e. að kaupa bíl, sumarbústað, breyta heima hjá sér eða hvaðeina, þá mun það valda miklum þrýstingi á verðbólguna. Bankarnir vöruðu mjög sterklega við fyrirætlunum ríkisins um veita öllum níutíu prósent húsnæðislán. Nú bjóða þeir áttatíu prósenta húsnæðislán. Samkvæmt kenningu bankanna sjálfra gætu lánin hleypt upp húsnæðisverði tímabundið með óskemmtilegum afleiðingum. Tryggvi Þór varar við því að fólk fari upp í topp á veðsetningu húsnæðis síns. Það hafi verið mjög mikil þensla á fasteisngamarkaði undanafarin misseri og væntanleaga muni hún aukast ef hin nýju lán drífa áfram verðhækkanir. Tryggvi segir að einhvern tíma taki þetta enda og það gæti fjarað undan veðum þannig að fólk stæði uppi með lán með meira en hundrað prósenta veðsetningu á húsnæði sínu, Það myndi þýða tilheyrandi vandamál fyrir bankakerfi og annað slíkt líkt og gerðist á Norðurlöndunum á tíunda áratugnum.
Fréttir Innlent Mest lesið Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Innlent Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Erlent Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla Innlent „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Innlent Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Innlent Árásin til marks um aukna hörku vestanhafs Erlent Myndir: Upplausn á blaðamannamóttöku Erlent Talinn ætla að ráðast á Trump og fleiri háttsetta Erlent Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Erlent Fleiri fréttir Stál í stál og sammála um fátt á fundi um ESB Muni vitanlega gera kröfu um sæti í meirihluta Segir Miðflokkinn selja snákaolíu Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Samfylkingin stærst á Akureyri Skotárás á kvöldverði Bandaríkjaforseta og klakstöðvar lúsmýsins Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Sjá meira