Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Palestínumenn reiðir eigin mönnum Margir Palestínumenn eru reiðir eftir sprengjuárás sem beint var gegn Ísraelum. Sprengjan sprakk í grennd við landamærastöð á Vesturbakkanum í gær. Hún varð tveim Palestínumönnum að bana og særði tíu. Auk þess særðust sex ísraelskir hermenn. 12.8.2004 00:01
Skattadeilur hjá stjórnarflokkum? Sjálfsstæðismenn eru reiðubúnir að lækka tekjuskatt um meira en fjögur prósent á kjörtímabilinu eða meira en kveðið er á um í stjórnarsáttmálanum. Líklegt er að deilt verði um þessi mál á stjórnarheimilinu í haust en eins og fréttastofan komst að hafa þingmenn ólíkar skoðanir á því hvernig eigi að útfæra loforð um skattalækkanir. 12.8.2004 00:01
Fjölmörg atriði á Menningarnótt Heilgrillað naut, tilfinningaþrungið torg og bongótrommu-maraþon er meðal fjölmargra atriða sem boðið verður upp á á menningarnótt eftir rúma viku. Stjórn menningarnætur var í sumarskapi þegar hún bauð til blaðamannafundar í blíðviðrinu í dag en laugardaginn 21. ágúst verður hátíðin haldin hátíðleg í níunda skipti. 12.8.2004 00:01
Skaðvaldsskiltið fært Talsvert minni líkur eru nú á því en áður að þeir sem eiga leið um Hálsabraut, skemmi bílinn sinn. Á mótum Krókháls og Hálsabrautar hefur staðið akreinaskilti undanfarin ár sem hefur líklega eyðilagt bíla fyrir margar milljónir króna eins og Stöð 2 greindi frá á dögunum. Úr þessu var hins vegar bætt í gær þegar skiltið var fært u.þ.b. einum metra aftar. 12.8.2004 00:01
Harlem Sophisticate í Loftkastala Andi svartra tónlistarmanna svífur yfir vötnum í Loftkastalanum en á morgun verður söngskemmtunin Harlem Sophisticate frumsýnd þar. Fjöldi bandarískra og íslenskra tónlistarmanna kemur fram í sýningunni en alls verður verkið sýnt fjórum sinnum. 12.8.2004 00:01
Hitamet fellur í Reykjavík Veðurstofan hefur aldrei mælt hærri hita í Reykjavík en í dag. Talið er að hitabylgjan í landinu hafi náð hámarki. Verslunum var lokað og fundum frestað vegna veðurs. Það var mollulegt um að litast í höfuðborginni í dag, svo heitt að fólk þusti út í sólina að njóta blíðunnar. 11.8.2004 19:00
Bush berst gegn staðreyndum George W. Bush heldur því fram að efnahagsástandið í Bandaríkjum sé gott. Hagtölur sýna hið gagnstæða. Vont efnahagsástand í lykilríkjum gæti reynst Bush dýrkeypt í kosningunum. </font /></b /> 11.8.2004 00:01
Útlánaeftirlit stóraukist Samkeppni um hag hluthafa bankanna hefur orðið til þess að útlánaeftirlit hefur stóraukist í bankakerfinu. Bankarnir hafa tekið upp nýjar innri reglur. Eftirlit með innheimtu hefur einnig verið aukið. Afskriftahlutfall sagt of hátt hér á landi. 11.8.2004 00:01
Gott uppgjör hjá Marel Sex mánaða uppgjör Marels sýnir töluvert betri niðurstöðu en greiningardeildir bankanna gerðu ráð fyrir. Hagnaður af rekstrinum á öðrum ársfjórðungi nam 2,54 milljónum evra (um 220 milljónir króna) en á sama tímabili í fyrra nam hagnaður af rekstrinum 1,7 milljónum evra. 11.8.2004 00:01
Fundu þýskan pilt út frá farsíma Björgunarsveitamenn fundu undir morgun fjórtán ára þýskan pilt, sem hafði orðið viðskila við föður sinn á Fljótsdalsheiði í gærkvöldi og villst. Pilturinn var heill á húfi en illa brugðið. Feðgarnir höfðu fest bíl sinn og ætlaði pilturinn að fara fótgangandi eftir aðstoð. 11.8.2004 00:01
Brúin yfir Jöklu á kaf Brúin yfir Jöklu fór á bóla kaf í gærkvöldi þótt vatnsrennsli framan af degi gæfi vísbendingar um að ekki yrði flóð í gærkvöldi. Vatnsborðið fór upp í 478 metra yfir sjávarmál og vantaði tuttugu metra upp á að það næði hæð varnargarðsins ofan stíflustæðisins, þar sem vinna er hafin á ný eftir hátt í viku hlé. 11.8.2004 00:01
Handtekinn fyrir að kvikmynda Bandaríska alríkislögreglan, FBI, hefur Pakistanskan borgara í haldi, eftir að lögregluþjónn veitti manninum athygli þar sem hann var að kvikmynda sextíu hæða byggingu Seðlabanka Bandaríkjanna og annan skýjakljúf, í Norður Karólínu ríki. 11.8.2004 00:01
Norsk strandgæsla um borð í skip Norskir strandgæslumenn fóru um borð í íslenskt fiskiskip, sem er á síldveiðum við Svalbarða, og tilkynntu skipstjóranum formlega að öll íslensk skip, sem ekki væru farin af svæðinu fyrir miðnætti á sunnudag, yrðu tekin sem landhelgisbrjótar. 11.8.2004 00:01
Varaforsetinn vill að herinn hörfi Varaforseti íröksku bráðabirgðastjórnarinnar, Ibrahim Jaafari, vill að liðsmenn hernaðarbandalags Bandaríkjanna hörfi frá borginni Najaf, þar sem bardagar hafa geisað milli fjölþjóðahersins og íraskra uppreisnarmanna. 11.8.2004 00:01
Sprengjuhótun á flugvelli í Sofiu Komusal flugvallarins í Sofíu, í Búlgaríu, var lokað um hálfsjöleytið í morgun, að íslenskum tíma, vegna sprengjuhótunar, samkvæmt innanríkisráðuneytinu í landinu. Stjórnendur flugvallarins segja að ekki hafi þurft að fresta flugi en fjölmiðlar í landinu segja að tuttugu mínútna seinkun hafi orðið á lendingu vélar frá Tyrklandi vegna málsins. 11.8.2004 00:01
Olíuverð í sögulegu hámarki Olíuverð í Bandaríkjunum náði sögulegu hámarki í gær, eða um 45 dollurum fyrir tunnuna, eftir að fregnir bárust af því að dregið yrði úr olíuvinnslu við Mexíkóflóða vegna yfirvofandi óveðurs. 11.8.2004 00:01
Áheitasund yfir Faxaflóann Í dag þreyja sundmenn úr Sundfélagi Akraness sitt árlega áheitasund yfir Faxaflóann frá Reykjavík til Akraness, um 18 km langa leið. Ferðin hófst á því að sundfólkið sigldi með hafnsögubátnum Leyni til Reykjavíkur, þar sem sundið hófst kl. 9:30 frá syðri innsiglingarvitanum í Reykjavíkurhöfn. 11.8.2004 00:01
Ungmennabúðir að Laugum í vetur Ungmenna- og tómstundabúðir verða opnaðar í vetur að Laugum í Dalasýslu. Að rekstrinum koma Ungmennafélag Íslands og Dalabyggð og munu Dalabyggð og Saubæjarhreppur leggja mannvirkin að Laugum til rekstursins. 11.8.2004 00:01
Vilja fella neyðarlög úr gildi Tíu útlendingar, sem haldið hefur verið í Bretlandi í nærri því þrjú ár án ákæru, töpuðu áfrýjunarmáli í morgun. Þeir eru grunaðir hryðjuverkamenn. Mannréttindasamtök og breskir þingmenn hafa hvatt stjórnvöld í Bretlandi til að fella úr gildi neyðarlög sem þau settu eftir hryðjuverkin ellefta september. 11.8.2004 00:01
Nýja kerfið reynist vel Reynslan af nýju símkerfi lögreglunnar í Reykjavík hefur reynst vel segir í fréttatilkynningu frá embættinu. Lögreglan í Reykjavík tók í síðasta mánuði upp Centrexkerfi þar sem öll símanúmer og símar hafa verið sameinuð í eitt kerfi með nýju símanúmeri 444-1000. 11.8.2004 00:01
Spassky hvetur til eigin handtöku Skáksnillingurinn Boris Spassky, gamall keppinautur Bobbys Fishers, hefur hvatt stjórnvöld í Bandaríkjunum til að handtaka sig og setja í fangaklefa með Fisher þar sem báðir mennirnir brutu í bága við viðskiptabann Bandaríkjanna í Júgóslavíu árið 1992. 11.8.2004 00:01
Hitamet í Reykjavík Nærri þrjátíu ára hitamet í Reykjavík er að öllum líkindum fallið þar sem hiti er kominn yfir 25 stig. Veðurfræðingar vilja þó ekki staðfesta metið fyrr en eftir mælingar í lok dags. Það má með sanni segja að Ísland sé heitt þessa dagana. 11.8.2004 00:01
Tvö börn vitni að líkamsárás Sjö manns, þar á meðal tvö börn, voru á vettvangi í Öxnadal þar sem karlmaður á þrítugsaldri á að hafa höfuðkúpubrotið annan mann í síðustu viku. Hinn grunaði hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald. Lögreglan á Akureyri yfirheyrir nú þá sem voru á staðnum. 11.8.2004 00:01
Flóð í Jöklu í hámarki annað kvöld Búist er við að flóðin í Jöklu nái hámarki annað kvöld og rennslið verði þá álíka mikið og þegar það varð mest á fimmtudag í síðustu viku. Þetta er samkvæmt reiknilíkani verkfræðistofunnar Vatnaskila, sem spáir fyrir um rennsli út frá veðurspá og hefur aðferðin reynst áreiðanleg. 11.8.2004 00:01
900 milljónir í verkfallssjóði Kennarar eru tilbúnir að eyða 900 milljóna króna verkfallssjóði sínum, segir formaður Félags grunnskólakennara. Fyrsti fundur deilenda eftir sumarhlé hefst klukkan eitt í dag og má búast við stífum fundarhöldum á næstunni. 11.8.2004 00:01
Harðir bardagar í Najaf Enn geisa bardagar í borginni Najaf í Írak. Varaforseti landsins krefst þess að Bandaríkjamenn fari frá borginni. Barist er í Najaf sjöunda daginn í röð. Bandaríski herinn telur að dregið hafi úr átökunum í gær og í dag en þeir segja að yfir 350 uppreisnarmenn hafi látið lífið síðustu daga. 11.8.2004 00:01
15 særast í árásum Ísraelshers 15 særðust, þar á meðal tvö börn, í árásum Ísraelshers á Gazasvæðinu í nótt. Herinn segist hafa skotið flugskeyti að palestínskum vígamönnum á opnu svæði. Tíu ísraelskir skriðdrekar og nokkrir valtarar voru þar til að brjóta niður hús Palestínumanna. 11.8.2004 00:01
Þurrkatíð rýrir afkomu bænda Þurrkatíðin að undanförnu rýrir afkomu bænda þar sem gróður fölnar og er ekki eins kjarngott fóður og ella. Jóhanna Pálmadóttir á Akri í Húnavatnssýslu segir þetta hafa ótvíræð áhrif á afkomu sauðfjárbænda þar sem lömbin dafni hægar en ella , en nú styttist í sláturtíð. 11.8.2004 00:01
Klóna stofnfrumur í lækningaskyni Vísindamenn í Newcastle-háskóla í Bretlandi ætla að klóna stofnfrumur úr mönnum til að finna lækningu við sykursýki. Bresk stjórnvöld hafa veitt mönnunum leyfi til að klóna stofnfrumurnar í þágu læknavísinda. 11.8.2004 00:01
Ermasundsgöngunum lokað um stund Ermarsundsgöngunum milli Bretlands og Frakklands, var lokað rétt fyrir ellefu í morgun vegna bilana í merkjabúnaði lestarkerfis. Lokunin hefur áhrif á Eurostar-lestirnar sem flytja farþega á milli Parísar, Brussel, Lille og Lundúna, sem og lestir sem flytja bíla á milli Parísar og Lundúna. 11.8.2004 00:01
Bátur brann og sökk Skipverjinn á hraðfiskibátnum Eyrarröst slapp ómeiddur þegar eldur kom upp í bátnum í hádeginu og hann sökk. Ekkert neyðarkall barst frá manninum, en Landhelgisgæslunni barst tilkynning um það klukkan hálf eitt að reykjarstrókur sæist á hafinu um það bil sex sjómílur vest-norðvestur af Garðskaga. 11.8.2004 00:01
Leitað að sprengju á baðströnd Spænska lögreglan leitar nú dyrum og dyngjum að 150 kílóa sprengju, sem á að vera falin einhverstaðar á baðströndum í Tarragona, á miðjarðarhafsströndinni. Lögreglu barst nafnlaust símtal eftir hádegi, þar sem sagt var að aðskilnaðarhreyfing Baska, ETA , hefði komið sprengjunni fyrir. 11.8.2004 00:01
Finnar kaupa mest af sterku áfengi Finnar kaupa mest af sterku áfengi á Norðurlöndum. Þetta kemur fram í tölum um áfengissölu sem Stakes, rannsóknastofnun um félags- og heilsuvernd, hefur birt. Árlega kaupa Finnar, 15 ára og eldri, að meðaltali 13 hálflítra flöskur af sterku áfengi. Það er nær tvisvar sinnum meira en Norðmenn og Svíar kaupa. 11.8.2004 00:01
Upplagseftirlit á fyrri hluta árs Meðaltalssala Morgunblaðsins frá janúar til júní 2004 var 53.135 eintök á dag. Á sama tíma á síðasta ári var hún um 350 blöðum meiri. Prentuð blöð Fréttablaðsins á frá janúar til júní í ár, voru að meðaltali um 101 þúsund eintök á dag. Þetta kemur fram í upplagseftirliti Verslunarráðs Íslands. 11.8.2004 00:01
Brjóta ekki gegn EES samningi Eftirlitsstofnun EFTA í Brussel (ESA) hefur samþykkt að starfsskilyrði Íbúðalánasjóðs brjóti ekki gegn ákvæðum EES-samningsins. Stofnunin samþykkir einnig hækkun hámarksláns Íbúðalánasjóðs í 90% af kaupverði íbúðar. 11.8.2004 00:01
Gæsluvarðhald framlengt Héraðsdómur Reykjavíkur féllst eftir hádegi á þá kröfu lögreglunnar að framlengja gæsluvarðhald yfir Hákoni Eydal, sem myrti fyrrverandi sambýliskonu sína fyrr í sumar, til 5. nóvember. Jafnhliða gæsluvarðhaldinu sætir hann geðrannsókn. 11.8.2004 00:01
Torri Edwards í tveggja ára bann Heimsmeistarinn í 100 metra hlaupi kvenna, Torri Edwards, hefur hlotið tveggja ára keppnisbann eftir að hún féll á lyfjaprófi. Edwards hafði áður verið valin í Bandaríska liðið á Ólympíuleikana. 11.8.2004 00:01
Lestarslys í Tyrklandi Sex fórust og um hundrað slösuðust þegar tvær lestir rákust saman í vestur Tyrklandi í dag. Ekki er enn vitað um tildrög slyssins, en það varð skammt frá þeim stað þar sem 39 manns fórust í lestarslysi í síðasta mánuði. 11.8.2004 00:01
Forseti Alþingis til Kaliforníu Halldór Blöndal, forseti Alþingis og eiginkona hans munu heimsækja Kaliforníu dagana 12. - 19. ágúst í boði efri deildar fylkisþings Kaliforníu. Með þeim í för verða Guðmundur Árni Stefánsson og Gunnar Birgisson ásamt mökum og starfsmanni Alþingis. 11.8.2004 00:01
Djúpsprengja kom í troll togara Sprengjusérfræðingar Landhelgisgæslunnar eyddu í gær djúpsprengju sem kom í troll togarans Þórunnar Sveinsdóttur. Skipstjórinn á Þórunni Sveinsdóttur hafði samband við stjórnstöð Landhelgisgæslunnar kl. 10 í gærmorgun og óskaði eftir aðstoð. 11.8.2004 00:01
Lýst eftir konu Lögreglan í Hafnarfirði lýsir eftir Ólöfu A. Breiðfjörð Guðjónsdóttur. Ekkert hefur spurst til hennar síðan á föstudaginn var í Garðabæ. Ólöf er þrítug, 173 til 175 sentimetrar á hæð, dökkhærð, með hár rétt niður fyrir axlir og grannvaxin. Þeir sem vita eitthvað um ferðir hennar eru beðnir að hafa samband við lögregluna í Hafnarfirði í síma 525 3300. 11.8.2004 00:01
Ekki meira kossaflens Gloria Arroyo, forseti Filippseyja, er orðin hundleið á stöðugu kossaflensi karlmanna sem hún hittir. Hún frábiður sér nú frekari atlot. Arroyo segist vera siðprúð og hún muni aðeins kyssa eiginmann sinn héðan í frá. 11.8.2004 00:01
Kviknaði í slökkvistöðinni Slökkviliðsmenn á Flórída eru ekki óvanir því að eiga við elda sem kvikna í kjölfar eldinga. Þeir voru hins vegar teknir í bólinu þegar eldingu laust niður í gamla slökkvistöð í timburhúsi í dreifbýli norðarlega á Flórídaskaganum. 11.8.2004 00:01
Schwarzenegger mjög vinsæll Arnold Schwarzenegger er vinsælasti ríkisstjóri í Kaliforníu í þrjátíu ár, samkvæmt nýrri skoðanakönnun. Um 65% kjósenda í ríkinu styðja leikarann og hasarhetjuna sem hefur gegnt embætti í níu mánuði.</font /> 11.8.2004 00:01
Gildistöku vegabréfalaga frestað Forseti Bandaríkjanna skrifaði í gær undir lög sem fresta gildistöku laga um vegabréf með lífkenni, um eitt ár fyrir þau lönd sem þurfa ekki áritun til Bandaríkjanna, en áður hafði reglugerðin verið samþykkt árið 2002. Með þessu frestast gildistaka laganna til 26. október 2005 11.8.2004 00:01