Harðir bardagar í Najaf 11. ágúst 2004 00:01
Enn geisa bardagar í borginni Najaf í Írak. Varaforseti landsins krefst þess að Bandaríkjamenn fari frá borginni. Barist er í Najaf sjöunda daginn í röð. Bandaríski herinn telur að dregið hafi úr átökunum í gær og í dag en þeir segja að yfir 350 uppreisnarmenn hafi látið lífið síðustu daga. Götur eru auðar, almenningur þorir ekki út fyrir hússins dyr og Bandaríkjamenn hafa sett upp vegatálma víðsvegar um borgina og lokað heilu hverfunum. Þeir aka nú um Najaf og hvetja íbúa til að flýja borgina á meðan átök standa yfir. Mestu bardagarnir eru í miðbænum en uppreisnarmenn hafa leitað skjóls inni í heilögum byggingum sjíta múslima. Telja margir að Bandaríkjamenn hyggist gera harðar árásir á uppreisnarmenn á næstu dögum. Herflugvélar hafa sveimað yfir borginni fram eftir morgni. Varaforseti íröksku bráðabirgðastjórnarinnar, Ibrahim Jaafari, vill hins vegar að liðsmenn hernaðarbandalags Bandaríkjanna hörfi. Jaafari vill að írakskar öryggissveitir verði áfram í borginni til að koma á friði. Telur hann að Írakar sætti sig frekar við að þeirra eigin sveitir geri árásir á uppreisnarmenn og heilaga staði en ekki erlendar hersveitir. Ekki er víst að Írakar sjálfir fái betri útreið í Najaf því fylgismenn sjítaklerksins, Moqtada al-Sadr, rændu í gær nokkrum írökskum lögreglumönnum og segjast hafa hálshöggvið einn þeirra.
Erlent Fréttir Mest lesið Töpuðu tæpum hundrað milljónum Innlent Milljónir í sekt fyrir að bakka á konu Innlent Þau kvöddu á árinu 2025 Erlent Hitinn fór í 19,8 stig og desembermetið slegið Veður Seinfeld og Friends-leikari látinn Lífið Klæðning fauk af Stjórnsýsluhúsinu og skemmdi bíla Innlent Yfir hundrað handteknir grunaðir um að skipuleggja árásir á gamlársdag Erlent Fundu yfir milljón skjöl sem tengjast Epstein Erlent Hvar er opið á aðfangadag? Innlent Gefur lítið fyrir staðhæfingar um nýfallið hitamet Veður Fleiri fréttir Rússar opna leikhúsið í Maríupól á ný Yfir hundrað handteknir grunaðir um að skipuleggja árásir á gamlársdag Fjallaði um stríðsátök í jólaávarpinu Fundu yfir milljón skjöl sem tengjast Epstein Fimm fórust í þyrluslysi á Kilimanjaro Þau kvöddu á árinu 2025 Kynnti drög að nýrri friðaráætlun Tveir lögreglumenn sprengdir í loft upp Blússandi hagvöxtur í Bandaríkjunum Nýjar ákærur á hendur Russell Brand Fleiri Epstein-skjöl birt: Bað um „óviðeigandi vinkonur“ Saka AfD um að ganga erinda Kremlverja Kínverjar og Rússar lýsa yfir stuðningi við Venesúela Skapari Call of Duty lést í bílslysi Trump nefnir nýja kynslóð orrustuskipa í höfuðið á sjálfum sér „Bandaríkin eiga ekki að taka yfir Grænland“ Nýr ritstjóri stöðvaði umfjöllun um brottvísanir Trump Breiddi út faðminn fyrir rasista: „Þið þurfið ekki að biðjast afsökunar á að vera hvít lengur“ Sprengdu rússneskan hershöfðingja í loft upp í Moskvu Undirbúningur árásarinnar stóð yfir í marga mánuði Trump skipar sendifulltrúa fyrir Grænland Segir unnið að því að móta sameiginlega nálgun Bandaríkjanna, Úkraínu og Evrópu Sýknaður af nauðgun eftir að hafa verið skimaður fyrir sjaldgæfri svefnröskun Málið sem Trump getur ekki losað sig við Grunaður um manndráp eftir að tveggja ára drengur féll úr blokk Fóru um borð í vélvana rússneskt skip Baulað á Albanese á minningarathöfn á Bondi-strönd Kvarta yfir ritskoðun Epstein-skjala: „Við vitum ekki hvað við vitum ekki“ Níu skotnir til bana á krá Sextán ára fékk greitt fyrir að færa Epstein stúlkur Sjá meira